Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.01.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.01.1997, Blaðsíða 1
Smyglið svæfði kjara- baráttuna s Ikröfugerð vélstjóra á far- skipum er þess krafist að grunnlaun hækki um allt að 40%. Til viðmiðunar benda þeir á að tímalaun iðnaðar- manna í járniðnaði séu 20% hærri en þeirra. Þessari launa- þróun vilja þeir snúa við þannig að þeir verði með 20% hærri grunnlaun en járniðnaðurinn greiðir. í því sambandi benda vélsljórar á að hluti af þeirra námi er viðurkennt iðnnám í járniðnaði. „Það er bara sannleikur að hér á árum áður þá hugsuðu farmenn ekkert um launin sín. Þeir höfðu tekjur sínar með öðrum hætti eins og sagt er, en það er steinbúið. Þannig að þeiman launamun má rekja til þess túna,“ segir Helgi Laxdal formaður Vélstjórafélags ís- lands. -grh Leikskólar Ábótavant útí á landi Aðbúnaður barna á leik- skólum er mjög góður á höfuðborgarsvæðinu en ábótavant víða úti á lands- byggðinni. Dæmi er um að rottufaraldur hafi verið innan leikskóla og kvörtunum um hættulegar lóðir er ekki sinnt, að sögn Ingibjargar Óðinsdótt- ur, formanns Landssamtaka foreldrafélaga leikskóla. Um 240 leikskólar eru starf- ræktir á íslandi og eru leik- skólabörnin tæplega 14 þúsund talsins, þar af langflest á höfuð- borgarsvæðinu. Sjá umfjöllun á bls. 15 Fjallvegir Vonskuveð- ur og ófærð Vónskuveður var í gær- kvöldi komið á Holta- vörðuheiði og hún þung- fær. Sömu sögu var einnig að segja af Qallvegum á Vestfjörð- um. Víða var snjókoma á Norð- urlandi og ófært var orðið til Siglufjarðar. Akureyri Hvernig? Kristnitökuafmælið Reiknað með 100 þús. manns á Þingvelli Að gefnu tilefni vinn- ur nefnd manna að lausn samgöngumála vegna hátíðarinnar - „munum biðja mátt- arvöldin um gott veð- ur,“ segir Júlíus Hafstein. Kirkjukór, 2.500 manna af öllu landinu, mun vænt- anlega koma fram á Þingvöllum á 1000 ára kristni- tökuafmælinu sem haldið verð- ur hátíðlegt dagana 30. júní, 1. og 2. júlí, frá föstudegi til sunnudags árið 2000. Ennfrem- ur er rætt um sviðsetningu á kristnitökunni á hinu forna al- þingi íslendinga, trúlega munu nokkur hundruð leikendur koma þar við sögu. Dagskrá há- tíðarinnar verður í mótun allt þetta ár. Júlíus Hafstein er fram- kvæmdastjóri Kristnihátíðar- nefndar í hálfu starfi fram eftir ári en tekur við fullu starfi í júlí, þegar hann lýkur störfum við framkvæmd Smáþjóðaleika íþróttamanna. Nefndin hefur opnað skrifstofu að Síðumúla 32 í Reykjavík. Nefndina skipa Ólafur Skúlason biskup, Ólafur Ragnar Grímsson forseti ís- lands, Ólafur G. Einarsson for- seti Alþingis og Haraldur Henrýsson forseti Hæstaréttar. Júlíus sagði í gær að undir- búningur væri hafinn fyrir af- mæli kristnitöku á íslandi. „Eftir 50 ára lýðveldisafmæl- ið skipaði forsætisráðherra nefnd td að fara yfir samgöngu- leiðir og gera tillögur um úr- bætur í þeim málum með hhð- sjón af hátíðahöldum á Þing- völlum. Á lýðveldisafmælinu urðu vissir vankantar á samgöngumálunum og auðvitað eiga menn að læra af því og taka á málunum strax. Það verður að gera úrlausnir þann- ig að hægt verði að stefna á Þingvöll jafnvel allt að 100 þús- und manns árið 2000,“ sagði Júlíus Hafstein í gær. Júlíus kvaðst ekki vilja úttala sig um hvaða ráð berast frá nefndinni, sem skipuð er vegamálastjóra, lögreglustjóranum í Reykjavík og fidltrúa Þingvallanefndar. Reiknað er með að talsvert verði um gestakomur til lands- ins vegna afmælis kristnitök- unnar árið 2000. „Auðvitað munum við biðja máttarvöldin að gefa okkur gott veður þessa sumardaga á Þing- völlum árið 2000, þegar fagnað verður þeim lögum Alþingis sem staðið hafa í tíu aldir,“ sagði Júlíus Hafstein í gær. Júlí- us er án efa með meiri og stærri verkefni í fanginu en flestir menn. Auk þess að vinna að framkvæmd afmælis kristni- tökunnar, stýrir hann stórum framkvæmdahópi Smáþjóða- leikanna, sem verða stórvið- burður í vor. -JBP Sjá nánar bls. 6 Lífið í landinu Hvað er að Jóni Viðarí? saltfiskurinn frá EKTA fiski er unnin úr EKTA fullstöðnum saltfiski. einnig með sjófrysta ýsubita, gæða rækjur, ðan kinnfisk, sérútvatnaða saltfiskbita til steikingar og söltuð og útvötnuð gollaraþunnildi. iskur er okkar fag • EKTAFISKUR Trausti ehf • EKTA FISK

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.