Morgunblaðið - 14.02.1961, Page 22
22
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 14. febr. 1961
A SUNNUDAGINN fór fram
í íþróttahúsi varnarliðsins :
Keflavíkurflugvelli, keppni
handknattleik á milli lands
liðsins og liðs er íþróttafrétta
ritarar völdu, en miklar
breytingar höfðu orðið á lið
inu frá því að það var upp-
haflega valið og þar til leik-
ur hófst, en þá höfðu
menn tilkynnt fjarveru sína.
Þetta var síðasti leikur lands
liðsins fyrir utanförina og
lofaði hann góðu um þá
ferð.
• Yfirburðir
Leikurinn var var lítið spenn.
andi til þess voru yfirburðir
landsliðsins alltof miklir. Þeir
gerðu fyrstu þrjú mörkin og svo
komu þau þrettán í röð og svona
gekk það fyrri hálfleikinn allan.
Lands-
keppni í
frjálsum
íþróttum
ÁKVEÐIÐ er að ísland taki
þátt í fjögurra landa keppni
í frjá.lsum íþróttum í sumar.
Verður þetta önnur lands-
keppni frjáisíþróttamannra á
þessu ári — hin er í Reykja-
vík gegn B-liði Austur-Þjóð-
verja.
Fjögurra landa keppnin
verður með sama sniði og
sú er haldin var í Oslo á sl.
sumri. Eina breytingin er að
í stað landsliðs Belgiu verð-
ur landslið Austurrikis.
Einn maður frá hverju
Iandi kemur til kepprrinnar
frá íslandi, Austurríki og
Danmörku. Hins vegar senda
Norðmenn fram A-B og C-Iið
sitt svo sex menn verða í
hverri grein. Keppt verður í
öllum venjulegum Iands
keppnisgreinum.
Þessi keppni verður á Bisl-
ett leikvanginum 12. og 13.
júli.
I hálfleik stóðu leikar 23:4 fyrir
landsliðið, en síðari hálfleikur
var mun jafnari og endaði 19:13
fyrir landsliðið.
• Agætur leikur
Landsliðið sýndi góðan hand-
bolta á köflum. Liðsmenn eru
Ragnar Jónsson skorar.
mjög fljótir fram, og vörnin er
sterk. Beztu menn liðsins voru
örn, Ragnar og Pétur Antons,
einnig átti Karl Jóhansson ágæt-
an leik. Sólmundur í markinu
varði oft glæsilega.
• Erfið byrjun fyrir
pressuliðið
Þessi langi völlur kom víst
mörgum úr Pressuliðinu ókunn-
lega fyrir sjónir, þeir voru sein-
ir í vörn og þegar þangað var
komið var hún mjög opin og því
auðvelt að skjóta í gegnum hana.
Tveir menn úr liðinu skutu á
markið í tíma og ótima og varð
lítill hagnaður af þeim skotum.
Þetta fór samt all batnandi er
leið á leikinn og um miðjan síðari
hálfleik, tókst Pressuliðinu að
gera 6 mörk án þess að landslið-
ið gerði nokkurt.
Beztir í Pressuliðinu voru
fróttaféfag Reykjavíkur
Aðalfundur félagsins verður haldinn mið-
vikudaginn .1. marz.
Fundarstaður auglýstur síðar.
Stiórnin
bbbbbbbbbbbbbtbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb
Murboltar
3/16“—%“
Simi 35697
ggmgavorur h.t. Laugaveg 178
Matthías og Ingólfur, einnig átti
Jón Friðsteinsson ágætan leik.
Guðmundur Gústafsson varði
markið vel í síðari hálfleik og
einnig Sigurjón rneðan hann var
inná.
• Mörkin
Mörkin gerðu fyrir landsliðið:
Ragnar 9, ICarl og Pétur Antons
8, Gunnlaugur 6, Örn 5, Birgir 4,
Hermann og Karl Ben. 1 mark
hver.
Fyrir pressuliðið : Ingólfur og
Sigurður 3, Agúst, Heinz, Pétur
Stefáns, Jón Friðsteinsson og
Matthías 2 mörk hver og Hilmar
1 mark.
• Skemmtiatriði
I leikhléi og eftir leikinn
skemmti hinn góðkunni söngvari
Omar Ragnarsson og sögðu sum-
ir að hann hefði verið bezti mað-
ur dagsins. Söng hann ágætar vís
ur um handknattleiksmenn okk-
ar og hermdi eftir okkar ágæta
útvarpsþul Sigurði Sigurðssyni
er hann lýsti leik KR og FH í
handbolta.
Olafur Thorlacius brýzt í gegnum Iandsliðsvörnina og skorar.
(Ljósm.: Sv. Þorm.)
Eftir þessa góðu skemmtun
fóru svo fram 2 leikir í körfu-
knattleik, fyrst á milli ÍR og úr-
vals af vellinum og lauk honum
með sigri hinna síðarnefndu,
50—35. Hinn leikurinn var á milli
KFR og annars úrvalsliðs af vall
inum og lauk honum einnig með
sigri úrvalsliðsins 52—42.
K.P.
KR-sveitin hafdi yfirburði
AFMÆLISMÓT skíðadeildar
Vals var haldið sl. sunnudag í
Hamragili við ÍR-skálann, í á-
gætu veðri. Áhorfendur voru fjöl
margir. Brautin var 500 m á
lengd. Hæðarmismunur 280 m og
hliðin 45. Keppendur voru 37.
Úrslit:
Sveit KR:
Ólafur Nilsson ........ 98,8 sek
Hilmar Steingrímsson 105,7 —
Ásgeir Úlfarsson .... 106,5 —
Marteinn Guðjónsson 112,8 —
423,8 sek
Sveit IR:
Haraldur Pálsson .... 108,4 sek
Sveinn Jakobsson .... 116,0 —
Grímur Sveinsson .... 119,2 ■—
Ágúst Björnsson .... 188,8 —
532,4 sek
Sveit Ármanns :
Stefán Kristjánsson .. 109,7 sek
Ingólfur Árnason .... 135,7 —-
Þórður Jónsson ..... 137,7 —
Sigurður Guðmundss. 184,4 —
567,5 sek
B-sveit KR:
Davíð Guðmundsson 118,5 sek
Henrik Hermannsson 120,1 —
Úlfar Guðmundsson .. 140,0 —
Júlíus Magnússon .... 235,3 —.
613,9 sek
Beztan brautartíma hafði Ól-
afur Nilsson KR 46,2 sek. Mót-
stjóri var Andrés Bergmann og
ræsir Jóakim Snæbjörnsson.
Sveit KR, sem sigraði. Talið frá vinstri: Marteinn Guðjónsson, Ásgeir Úlfsson, Hilmar Stein-
grímsson og Ólafur Nilsson.
Þingi BÆR lokið
BANDALAG Æskulýðsfélaga í
Reykjavík, BÆR, lauk ársiþingi
sínu í gær. Fyrri hluti þingsins
hófst 29. janúar" s.l.
Þingið setti formaður BÆR
Lárus Salómonsson. Þingforseti
var kjörinn próf. Ásmundur Guð
mundsson fyrrv. biskup, og til
vara Böðvar Pétursson.
Stjórnarkjöri lauk þannig, að
form. var endurkjörinn Lárus
Salómonsson, og í stjóm með
honum sér Áxelíus Níelsson
Hörður Einarsson, Gunnar Gutt
ormsson, Steingrímur Kristjáns
son, Ólafur Hallgirímsson og Guð
björg Kristjánsdóttir.
Týndi 4000 kr.
á götu
MAÐUR NOKKUR sneri sér í
gær til rannsóknarlögreglunnar,
vegna þess að hann tapaði á
laugardagskvöldið á fimmta þús.
kr. í peningum, í Hafnarstræti
austanverðu.
Þetta gerðist þar um kl. 10
um kvöldið. Maðurinn var með
seðlana í dálitlu búnti í vasanum.
Þurfti hann að fara úr bílnum
sem snöggvast, og hafði þá farið
ofaní vasann sem peningaseðlam
ir voru í. Þeir hafa trúlega dreg
izt með hendinni upp úr vasan
um og fallið á gangstéttina utan
við bílinn. Telur maðurinn sig
■hafa séð ungan mann beygja sig
niður við bílinn og taka upp af
götunni, það sem hann heldur að
hafi verið peningarinr. Litlu síð
ar hafði maðurinn áttað sig á
því að peningarnir voru dottnic
úr vasa hans. Hann var al.sgáð
ur. Lögreglan vill biðja mann
þann er peningana fann að gefa
sig fram hið fyrsta.
Bar aflann lieim
Akranesl, 13. febrúar.
EIN trillan, sem héðan réri í gær
mað 8 bjóð hafði ekki erindi sem
erfiði. Formaðurinn hélt á öllum
aflanum í hendinni heim. Sama
trilla lagði sama bjóðafjölda á
sama stað daginn áður og fisk.
aði 800 kg. Ysan er hlaupin a4
miðunum. — Oddur,
Landsliðið lék sér
að ,,pressuiiðinu“