Morgunblaðið - 14.02.1961, Qupperneq 23
Þriðjudagur 14. febr. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
23
Sló köttinn úr tunn-
unni í Narssarssuak
SÓLFAXI, skymastervél Flug
félagsins, sem annast ískönn-
unarflugið við S-Grænland,
kom til Reykjavíkur síðdegis
í gær, með farþega frá Nars-
sarssuak. Það er ekki nema
vika síðan Sólfaxi fór til
Grænlands, en hann hefur
flogið mikið þennan stutta
tíma.
— Þetta er fimmti dagur-
inn, sem við fljúgum, sagði
Aðalbjörn Kristbjarnarson,
flugstjóri, er Mbl. hafði tal
af honum í gærkvöldi. Við
könnum fyrst og fremst
svæðið undan Hvarfi, suður-
odda Grænlands, en eina ferð
höfum við farið norður með
vesturströndinni, allt norður
á Disco-flóa.
— fsinn við Grænland er
óvenjulítill miðað við árs-
tima, sagði Aðalbjörn. En
hann siglir nú hraðbyri suður
með austurströndinni — og
síðan fer hann upp með vest-
urströndinni. — Við búumst
við fyrsta Grænlandsfarinu
að Hvarfi þann 20. þessa mán
aðar — og þá verður það hlut
verk okkar að leiðbeina því
í gegnum ísinn, ef þörf kref-
ur. Með okkur eru jafnan
tveir danskir ís-sérfræðingar
og þeir stjórna könnunarflug
inu frá degi til dags.
— Það er frekar fátt um
manninn í Narssarssuak,
sagði Arinbjörn, en engu að
síður er gott að búa hjá Dan-
anum. Þannig er það yfirleitt
á Grænlandi, sama hvort það
er Bandaríkjamaðurinn eða
Daninn, sem í hlut á. Af-
bragðs fóik.
— Við heyrum stöku sinn-
um í íslenzka útvarpinu, en
yfirleitt í öllum öðrum stöðv
um. Annars erum við varla
búnir að koma okkur fyrir
og ég held, að engin hætta
sé á að okkur leiðist þarna
þó afskebkt sé. Danirnir eru
gamansamir og bregða oft á
leik. Á laugardaginn sló ég
t. d. köttinn úr tunnunni og
það hef ég víst ekki gert síð-
an ég var strákur.
— Lumumba
Framh. af bls. 1
gert til þess að forðast hefnd-
arráðstafanir gegn íbúunum. —
Síðar var upplýst, að umrætt
þorp væri á Kolwezi-svæðinu,
um 200 mílur frá Elisabethville.
Munongo innanríkisráðherra
lét svo ummælt, að Lumumba
og félagar hans hefðu verið ,,af
brotamenn í augum heimsins",
og hefði Kongó í rauninni losn-
að við mikið vandamál við
dauða þeirra.
★
Þá sagði ráðherrann, að íbú-
um þorpsins yrði afhent fé það
fum 300 þús. ísl. kr.), sem lagt
var til höfuðs Lumumba eftir að
lýst var yfir, að hann hefði
sloppið úr haldi á dögunum.
Munongo sagði, að Katanga-
stjórn myndi ekki leyfa neina
„utanaðkomandi“ rannsókn í
sambandi við dráp Lumumba og
félaga hans.
•Á Fundur i Öryggisráðinu
Jafnskjótt og fréttin um
dráp Lumumba barst út, var
málið rætt á fundi í Öryggisráði
SÞ. Hammarskjöld, framkvstj.,
lýsti áhyggjum sínum vegna
þessa atburðar, sem hann kvað
mjög nlvarlegan og geta haft
öfyrirs’jáanlegar afleiðingar. —
Kvatti hann til, að fram færi
nákvæm, alþjóðleg rannrókn á
málinu. — Aðalfulltrúi Banda-
ríkjanna, Stevenson, tók í sama
streng, kvað þetta hinn hörmu-
legasta atburð og skoraði á full-
trúa ráðsins að láta hann verða
sér hvatningu til að vinna enn
betur en áður að lausn Kongó-
málsins. — Stevenson kvað
Málfundanámskeiði Heimdallar,
FUS heldur áfram í Valhöll í
kvöld kl. 8,30.
Þá mun Bragl Hannesson, lög
fræðingur , halda fyrirlestur um
ræðumennsku.
Heimdellingar eru hvattlr tll
að mæta vel og stundvíslega.
Kennedy Bandaríkjaforseta hafa
fallið þessar fréttir mjög þungt.
— Sovézki fulltrúinn, Zorin, lét
svo ummælt, að nýlendusinnar
hefðu orðið Lumumba að bana
og væri það þeim mun alvar-
legra sem segja mætti að það
hefði gerzt undir verndarvæng
Sameinuðu þjóðanna. — Lýsti
hann ábyrgð á morði Lumumba
á hendur Hammarskjöld og full
trúum SÞ í Kongó — og kvaðst
þeim í engu treysta.
Fundi Öryggisráðsins var síð-
an frestað til miðvikudags til
þess að gefa fulltrúum tóm til
til kynna sér málið og hafa
samráð við ríkisstjórnir sínar.
— Lögðu hendur á
Framh af bls. 24.
Helgu, flutti þá bát sinn að
minni bryggju skammt frá, en
þar fór á sömu leið. Bílum var
lagt í veg fyrir vörubifreiðina
með lóðimar. Ætlaði Pálmi
engu að síður að flytja lóðirnar
út í bát sinn og byrjaði að af-
ferma bílinn efst á bryggjunni.
Skipti það engum togum, að
Suðumesjamenn lögðu hendur
á Pálma. Norðlendingurinn lét
sér ekki vel líka, en svaraði á
sinn hátt — og hófust stymp-
ingar. Missti hann einn lóða-
balanna í sjóinn og mun hann
þá hafa séð, að við ofurefli var
að etja. Einn Suðurnesjamanna-
snerizt illa á ökla í átökunum.
Húsavíkurbátar reru ekki á
sunnudagskvöldið og heldur
ekkj í gær.
Kom Pálmi hingað til bæjar-
ins og leitaði lögfræðilegrar að-
stoðar hjá Áka Jakobssyni. —
Vill Pálmi krefjast bóta af
Suðurnesjamönnum fyrir róðra-
tapið og telur sér ekki skylt að
fara í verkfall fyrr en hinn 15.,
ef samningar nást ekki.
— Geimskip
Framh. af bls. 1
Venusi, mundu þannig fást
miklu fleiri og gleggri upplýs-
ingar um reikistjörnuna en
hingað til hefði tekizt. Ætlunin
væri fyrst og fremst að „rjúfa
gat á skýjaþykknið“, sem alla
tíð hefur hulið Venus mannleg-
um augum. Fást muni upplýs-
ingar um þéttleika andrúms-
loftsins, um stærð plánetunnar,
magn geimgeisla og hvort mikil
hætta sé þar á árekstrum við
loftsteina.
100 millj. km
Vísindamennirnir virðast
ekki fullkomlega vissir um,
hversu öruggt fjarskiptasam-
bandið er í svo mikilli fjarlægð
en segja að tilgangurinn sé m.
a. að reyna það til þrautar. —
Fjarlægðin milli Venusar og
jarðarinnar verður sennilega um
100 milljónir kílómetra um það
leyti sem geimskipið kemst að
markinu. — Samband hefur ver
ið haft við „skipið" tvisvar
sinnum eftir að því var skotið
á loft og var upplýst í Moskvu
í gærkvöldi, að það væri komið
rúma 500 þús. km frá jörðu.
Framvegis verður tekið við
merkjum frá geimskipinu
fimmta hvern dag og sagt frá
gangi ferðarinnar einu sinni í
viku.
— ~k —
I Rússlandi og öðrum komm-
únistalöndum ríkir mikill fögn-
uður yfir þessu nýjasta vísinda-
afreki Rússa. Prófessor Vladimir
Timakov, varaforseti sovézka
háskólans í læknavísindum, fagn
aði því í dag sem „dásamleg-
asta atburði okkar tíma“ og
sagði, að nú kynni að verða
„lyft hulunni, sem hvílt hefur
yfir uppruna lífsins“.
jc Rannsóknartæki til
tunglsins?
Eins og fyrr segir, hafa
margir vestrænir vísindamenn
sent sovézkum starfsbræðrum
heillaóskir, þar á meðal Sir
Bernard Lovell, forstjóri rann-
sóknarstöðvarinnar í Jodrell
Bank í Englandi og bað hann
um upplýsingar, svo stöðin gæti
fylgzt með ferðum geimskips-
ins. Hann sagði í þessu sam-
bandi við fréttamenn, að Ijóst
væri að Rússar gætu nú sent
mann út í geiminn og hann
byggist við að þeir mundu brátt
senda eldflaug til tunglsins, sem
gæti lent hægt og kæmi þangað
ýmsum rannsóknartækjum heilu
á höldnu.
— k —
Venusarskotið er aðalefni
blaða víða um heim í dag. Yfir-
leitt er mjög dáðst að afreki
Rússa, en einstaka blöð telja þó,
að hér sé fyrst og fremst um
„áróðursskot“ að ræða — vís-
indalegur ávinningur verði tæp-
ast mikill. — „New York Times“
sagði í dag, að „skotmörkin"
væru þrjú: Venus, hugir manna
um víða veröld, og — Kennedy
Bandaríkj af orseti.
Hjartanlegustu þakkir flyt ég öllum ættingjum og vin-
um, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og heilla-
skeytum á 70 ára afmæli mínu 5 febrúar s.l.
Málfríður Jónsdóttir, Mjógötu 5, ísafirði.
Lokað
ki.
£ dag vegna jarðarfarar.
BJÖRGVIN SCHRAM
UMB0ÐS-06 HE/LDVERZLUN
SÓLBORG JENSDÓTTIR
andaðist 10. þ.m. að Hrafnistu.
Vandamenn.
Konan mín
GUÐRlÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR
andaðist að morgni 11. febrúar
Kristinn Ág. Jónsson,
. Fjölnisvegi 9.
Konan mín
SIGRlÐUR GÍSLADÓTTIR
andaðist að Vífilstöðum 12. febrúar.
Þorlákur Kolbeinsson.
Móðir okkar
INGIBJÖRG EINARSDÓTTIR
Smiðjustíg 13,
andaðist 11. þ.m. að Elliheimilinu Grund.
Einar Ástráðsson og systkinL
Hjartkær eiginmaður minn og elskulegur bróðir okkar
SIGHVATUR I. BLÖNDAHL
cand, jur.,
andaðist á Landapítalanum 12. þessa mánaðar.
Inger Blöndahl,
Kristjana Blöndahl,
Sigríður Fjeldsted,
Sigfús BlöndahL
Faðir okkar
EINAR ÓLAFSSON
stýrimaður
andaðist að heimili sínu Vesturgötu 16, Hafnarfirði laug-
ardaginn 11. febrúar.
Laufey Einarsdóttir, Elísabet Einarsdóttir,
Sigurjón Einarsson.
Útför eiginmanns míns og föður okkar
VALTÝS BERGMANNS BENEDIKTSSONAR
vélstjóra
fer fram fimmtudaginn 16. þ.m. og hefst með bæn aB
heimili hins látna Sunnubraut 16, Akranesi kl. 1,30 e.h.
Blóm afbeðin. — En þeim er vildu minnast hans er vin-
samlegast bent á minnismerki sjómanna á Akranesi og
líknarstofnanir.
Fyrir mína hönd og barna minna.
Bára Pálsdóttir.
Utför
séra JES A. GlSLASONAR
Hóli, Vestmannaeyjum,
sem andaðist 7. þ.m. verður gerð frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum miðvikudaginn 15. þ.m. og hefst með húa-
kveðju frá heimili hans kl. 14.
F. h. aðstandenda.
Friðrik Jesson.
Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför móðursystur okkar
HALLDÓRU JÓNSDÓTTUR
Kristjana M. Sigurðardóttir og systkinl
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför litla drengsins okkar
GUTTORMS
N Sólveig Guttormsdóttir, Jón Finnsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
KRISTlNAR ÞÓRARINSDÓTTUR
og vináttu og heimsóknir í veikindum hennar
Marta Gísladóttir, Guðríður Gísladóttir,
Guðrún Elíasdóttir.
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð við andlát og jarð-
arför mannsins mins, föður okkar, tengdaföður og afa
GUÐMUNDAR JÓNSSONAR
bifreiðastjóra.
Kristín Lýðsdóttir,
Bryndís Guðmundsdóttir, Guðjón B. Jónsson,
Kristín Jónsdóttir, Björgvin Guðmundsson,
og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför
STEFÁNS ÞORVALDSSONAR
frá Kálfafelli í Fljótshverfi
Börn og tengdabörn