Morgunblaðið - 03.06.1964, Síða 8
§
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 3. júní 1964
Bíldkostur Siökkviliðsins í Reykjavik. Ljósm. Sv. j»orm.
Slökkviliöiö verndar eignir
að verðmæti 25 milljarða kr,
A FUNDI, sem Valgarð Thorodd
sen, slökkviliðsstjóri, hélt með
blaðamönnum í gær um störf
slökkvilitfsins í Reykjavík á s.l.
ári, kom m.a. fram:
Áð slökkviliðið var kvatt 428
sinnum út vegna bruna og
meintra bruna.
Að ókunnugt er um upptök 116
eldsvoða, en algengasta orsök til
bruna er að óvarlega er farið með
eld.
Að eidsvoðar hafa tvöfaldazt á
tuttugu ára tímabili.
Að sjúkr&ferðir slökkviliðsins
á árinu 1963 voru 6100 að tölu.
Að slökkviliðið gætir fyrir eldi
eigna borgarbúa að verðmæti 25
milljarða króna.
Að siðustd skýrði slökkviliðs-
stjóri frá nýafstöðnu námskeiði
brnnavarða, sem haldið var hér
í höfuðborglnni 13. marz. til 28.
Gabbaðir 47 sinnum.
Af þessum 428 kvaðningum var
í 301 skipti um raunverulegan
bruina að ræða, 9 sinnum olli bil
un símakerfis kvaðningu, í 71
skipti var grunur um bruna og
47 sinnum hreint ga/bb.
Flestir urðu brunamir í íbúðar
húsum, eða 97 að tölu. Aðrir
voru: 42 í útihúsum, 30 í bif-
reiðum, 10 í skipum, 33 í verk-
stæðum og verksmiðjum, 6 í
bröggum og 83 á ýmsum stöðum.
Slökkviliðsstjóri sagði enn
fremur, að þegar athugun var
gerð á þvi hvað valdið hefði hin-
um 301 bruna í Reykjavík og ná-
grenni á árinu 1963, kom í ljós,
að stærsti þátturinn þar er í-
kveikja, þ.e.a.s. óvarlega farið
með eld, eða samtals 53 sinnum.
Næst komu raflagnir og raf-
magnstæki 39 sinnum, olíukynd
ingartæki 38 sinnum, reykháfar
7 sinnum, ýmislegt ósundurliðað
36 sinnum, en eldsupptök ókunn
í 116 skipti.
300 rúður sprungu í nágrenni
ísaga.
Mestur varð eldur á árinu við
íkviknun í gasverksmiðju ísaga
við Rauðarárstíg. Varð þar mikið
tjón af völdum elds og spreng-
iniga við ofhitun á gashylkjum,
þ.e. stálflöskum með acetylen-
gasi. Til marks um sprenigimátt-
íiimi má geta þess að um eða yfir
300 rúður í nágrenni staðarins
brotnuðu af völdum loftþrýst-
ingsins.
Manntjón varð í eitt skipti.
Kiviknaði í litlu timburhúsi
snemma að morgni til og var
húsið alelda, þegar náðist að til
kynna eldinn. Þar brunnu inni
3 manns.
Dregið úr bruna af völdum
olíukynditækja.
Valgarð Thoroddsen gat þess,
að gerður hefði verið nokkur
samanbuxður um bruna á árinu
1963 við fyrri ár, og tekið þar
20 ára tímabil. Úr þeim athug-
uaum þykir ástæða að geta
tveggja atriða. Á nefndu tíma-
bili hafa árleg brunatilfelli tvö-
faldazt. Hitt atriðið er, að brun-
ar af völdum oliukynditækja
hafa tekið allmiklum breyting-
m A árinu 1944 eru brunar af
þessum sökuru nær óþekkt, en
eykst siðan all hratt, þar til árið
1949 að siikir brunar verða 22%
allra eldsvoða. Síðan hefur dreg
íð úr þessari brunaorsök frá ári
til árs, og nú er hún um 12%
allra bruna.
500 slysaflutningar.
Sjúkrabifreiðar Reykjavíkur-
deildar Rauða krossins, sem
slökkviliðið hefur í þjónustu
sinni, eru þrjár að tölu, og sjá
hinar föstu brunaverðir um akst
ur þeirra. Sjúkraferðir eru mjög
svipaðar frá mánuði til mánaðar,
en samtals á árinu 1963 urðu þær
6100 að tölu. Af þeim voru um
500 vegna slysa, en aðrir flutn-
ingar innanibæjar 5370 og utan-
bæjar 230.
70 manns í þjónnstu
slökkviliðsins.
Slökkviliðsstjóri sagði að síð-
marz til 28. maí s.l. Námskeiðið
sóttu 46 starfsmenn slökkvistöðv-
arinnar, en að því loknu voru
próf haldin ti'l að kanna árang-
ur fræðslunnar. í ljós kom að
áhugi starfsimanna var mjög mik
ill og árangur ágætur.
Kennsla á mann voru 69 stund
ir í bóklegum greinum, en 13 í
verklegum, eða samtals 82 stund
ir á mann. Vegna vaktaskipta og
vegna þess að rétt þótti að hafa
mjög iáa saman í hverri verk-
legri kennslustund, urðu kennslu
stundir á námskeiðinu alls 294
klst.
Aðalkennari námskeiðsins var
Gunnar Sigurðsson, varaslökkvi-
liðsstjóri, og annaðist hanin alla
verklegu kennsluna, en auk þess
kenndu 9 menn ýmsar greinar
slökkvistarfi viðkomandi.
Valgarð Thoroddsen, slökkvili ðsstjóri og Gunnar Sigurðsson
varaslökkviliðsstjóri fyrir framan nokkra slökkviliðsbíla
I tilefni námskeiðsins var te' -
in saman handbók brunavarða,
ustu, að s.l. haust hefði orðið
nokkur fjölgun í föstu starfsliði
slökkviliðsins. Nú væru 52 fast-
ráðnir starfsmenn, þar af 40
brunaverðir og 12 sem starfa aðal
lega að viðhaldi slökkvitækja,
eftirliti brunavarna í húsum, sót
hreinsun, skrifstofuvinnu og
stjórnun. Auk þess væru 22 vara
liðsmenn, sem kallaðir eru við
meiri háttar bruna. Reiknað
hefði verið út að þessir menn
gættu fyrir eldi fasteigna og
lausra fjármuna borgarbúa 'að
verðmæti 25 milljarða króna, og
léti nærri að hver borgarbúi
greiddi sem svaraði 0,4 pro mill
af þessu verðmæti fyrir þessa
starfsemi.
í ráði er að byggija nýja
slökkvistöð við Reykjanesbraut
ög væru framkvæmdir þegar
hafnar. Væri áætlað að hægt
verði að flytja starfsemina í hin
nýju húsakynni fyrir árslok
1965, þegar starfsmannabústaður
og bílageymsla væru tilbúin.
Væri þá eftir að byggja verk-
stæði og æfingaturn. — Þá væri
í athugun að koma á fót tveim
hverfisstöðum í bænum, öðrum í
Vesturbænum, nálægt vesturhöfn
inni, en hinum í Kleppsholti.
46 brunaverðir á námskeiði.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá hér í blaðinu var haldið nám
skeið fyrir hrunaverði dagana 13.
sem notuð var við kennsluna.
Rók sú var tekin saman af Gunn
ari Karlssyni, blaðamanni og fyrr
verandi brunaverði.
— Indland
Framh. af bls. 1
húsi og beið frétta með eftir-
væntingu. Fundi-nn sátu 547 (þing
menn Kongressflokksins, ríkis-
stjórar einstakra ríkja og 18
manna framkvæmdastjóm Kon-
gressflokksins, sem undir forustu
Kamaraj, forseta flokksins, hefur
átt mestan þátt í því, að Shastri
var kjörinn. Var það álit fram-
kvæmdastjórnarinnar að átök
milli vinstri og hægri arma
flokksins gætu haft hinar alvar-
legustu afleiðingar fyrir fram-
tíð hans. — Gekkst hún því
fyrir skoðanakönnun meðal
helztu áhrifamanna flokksins og
urðu úrslit hennar þau, að mikill
meirihluti var fylgjandi kjöri
Shastris.
í ræðu sem Shastri hélt að
loknu kjöri þakkaði hann við-
stöddum stuðning og Öesai sér-
staklega. Hann harmaði fjarveru
frú Indiru Gandhi dóttur Nehrus
og tárfelldist er hann ræddi um
hina göfugmannlegu framkomu
hennar í sorginni vegna föður-
missisins. Fór hann miklum viður
kenningarorðum um hana og
sagði sáðustu daga hafa sýnt öðru
betur hvern mann hún hefði að
geyma. Væri Kongressflokknum
mikill styrkur að þeirri konu og
það væri ósk sin, að hún yrði
sér og stjórninni væntanlegu til
ráðuneytis svo sem hún hefði ver
ið föður sínum.
Fréttamenn segja, að leiðtogar
flokksins hafi ekki verið fylli-
lega vissir um að svo vel mundi
til takast á fundinum í morgun
og því hafi blaðamönnum og ljós
myndurum verið meinaður að-
gangur að honum.
★
Þegar lýst hafði verið kjöri
Shastris og fundi verið slitið
þyrptust þingmenn að hinum
nýja leiðtoga. Var blómakrans
lagður um háls honum og hver
af öðrum óskaði honum til ham-
ingju.
Að svo búnu ók Shastri rak-
leiðis til þess staðar, er bálför
Nehrus var gerð fyrir nokkrum
dögum. Hann lagði hvít lótus-
blóm við minnismerki Mohandas
K. Gandhis og rauðar og hvítar
rósir á pallinn þar sem lík
Nehrus var brennt. Þaðan hélt
harnn til Indiru Gandhis og lagði
blóm umhverfis krukkuna með
ösku hins látna.
Indira hefur haldið sig í ein-
rúmi að mestu frá því bálförin
var gerð. í AP-frétt í dag er upp
lýst, að hún haifi gefið föður sín
um blóð, er hann lá á banabeði.
Gátu lækinar ekki náð nógu fljótt
í blóð af hans flokki, en þau
feðgin voru í sama blóðflokki.
★
Að loknum fundi þingflokksins
lagði Nanda lausnarbeiðni sína
fyrir Rhadakrishnan, forseta, sem
aftur bað hann gegna embættinu
þar til ráðuneyti Shastris væri
fullskipað og samþykkt. Getgétur
eru uppi um hina væntanlegu
stjórn, en sjálfur hetfur Shiastri
ekkert viljað um það mál ræða.
Á fundi, er hann boðaði til með
blaðamönnum síðdegis í dag neit
aði hann að segja nokkuð um
hvort hann ætlaði að gegna sjélf
Karlakór
heldur
Keflavíkur
vorhljómleika
KARLAKÓR Keflavíkur held-
ur sína árlegu vorhljómleika í
Bíóhöllinni í Keflavík dagana 4.
og 6. júní næstkomandi.
Kórinn hefur unnið að æfing-
um sínum í vetur og efnisskráin
að þessu sinni mjög fjölbreytt og
skiptist í fjóra megin kafla. Fyrst
syngur kórinn lög eftir erlenda
höfunda og þá mun kvartett kórs
ins, sem skipaður er eftirtöldum
mönnum: Sveini Pálssyni, Hauki
Þórðarsyni, Ólafi R. Guðmunds-
syni og Jóni Kristinssyni, syngja
sjálfstætt, enda þó allir söngv-
ararnir séu söngmenn kórsins.
Drengjalúðxasveitin kemur einn-
ig fram á þessum tónleiku-m með
nokkur erlend og innlend úrvals
lög.
Karlakórinn frumflytur að
þessu sinni Frelsisljóð, kantötu
eftir Arna Björnsson, sem samin
var í tilefni af Lýðveldistökunni
1944, við ljóÖ eftir Kjartan J.
Gíslason frá Mosfelli og verður
Kantatan nú flutt í fyrsta skipti
í tilefni af 20 ára afmælinu.
Sjórnandi karlakórsins og
Lúðrasveitarinnar er Herbert
Hriberschek en einsöngvarar með
kórnum þeir Guðjón Hjörleifs-
son og Haukur Þórðarson. Við
hljóðfærið er Ásgeir Beinteins-
son.
Þessir hljómleikar eru fyrir
styrktarfélaga kórsins og gesti
þeirra og eru Suðurnesjamenn
eindregið kvattir til að sækja
þessa hljómieika sem eru bæði
vel undirbúnir og nýstárlegir að
mörgu leyti. — -hsj-
ut embætti utanrikisráðherra. á-
samt embætti forsætisráðh erra,
svo sem Nehru gerði. Eru uppi
bollaleggingar um, að hann muni
gegna því sijálfur nokkra rnán-
uði en fá það síðan í hendur frú
Indiru Gandhi.
Shastri lýsti því ytfir við blaða
menn, að brýnasta hlutverk rikis
stjórnarinnar í innanlandsmá'lum
yrði að berjast gegn höfuðóvim
þjóðarinnar, fátækt, atvinnuleysi
og þekkingarskorti. Sagði hann
áætlanir hafa verið gerðar þar
að lútandi en þekn ætti eftir að
hrinda í framkvæmd. Hann lagði
áherzlu á nauðsyn einingar Kon
gressflokksiins og kvaðst vona að
úrslit viðræðnanna um eftirmann
Nehrus yrðu til að styrbja veg
flokksins út á við, engu síður en
inn á við. Þá sagði hann varnar-
mál Indverja mikilvægt og brýnt
vandamál. Ennfremur það að
tryggja öryggi minnihlutans jafn
framt því sem eining þjóðarinn-
ar væri varðveitt.
í utanríkismálum kvaðst Sh-
astri mundu fylglja stefnu fvrir-
rennara síns. „Við getum ekki
tengzt neinni sérstakri ríkjaheild
í utanríkisstefnu okkar“ sagði
hann og bætti við að Indverjar
hefðu fallizt á að taka þátt i
fundi sendiherra hinna ýmsu
ríkja í Vientiane um Laosmélið
en fyrirsjáanlegt væri að lausn
fengist ekki á því máli nema 14
ríkja Genfarréðstefnan yrði köll-
uð saman á ný.
Shastri kvaðst ætla að sitja
samveldisráðstefnuna sem hald-
in verður í London á næstunni.
Vonaðist hann til að hitta þar
að máli Ayub Khan, forseta Pak
istan og fór mjög vinsamlegum
orðum um útvarpsræðu Khans i
gær, þar sem hann hvatti til
þess að enn yrði gerð tilraun til
að leysa hina langvinnu Kas-
mír deilu.
— Castro
Framh. af bls. 1.
ríkjamenn um notkun sótt-
kveikja í hernaði. Þeir hafa áð-
ur verið bornir þeim sökum 1
Kóreu og í Viet-nam.
Enn hafa verið teknir af iífi
á Kúbu þrír menn, sakaðir um
njósnir fyrir bandarísku leyni-
þjónustuna (CIA). Einn þeirra
var sagður hafa haft á hendi um
fangsmikla njósnastarfsemi und
ir yfirskini félagsstarfa fyrir
Lionsklúbbana. Tveir menn aðr
ir aðrir hlutu fangelsisdóma.
Menn þessir voru: Alberto
Cesareo Fernández Medranos,
félagi í alþjóðasamtökum Lions-
klúbbanna og alþjóðlegur ráð-
gjafi upplýsingamálanefndar
samtakanna, Mánuel Paradela
Gómez og Marcelino Martínez
Tapia. Þeir munu hafa verið
teknir af lífi í Camaguey á
mánudag eftir að byltingardóm-
stóll fjallaði um mál þeirra. Fer-
nández Medranos var talinn vera
fyrir hópnum og hefðu félags-
menn Lions-klúbba í öllum fylkj
unum stundað njósnir á hans
vegum. „Njósnahringur" þessi
var sagður hafa sent upplýsing-
ar um hermál, efnahagsmál og
stjórnmál á Kúbu til bandarísku
leyniþjónustunnar og ennfremur
sagður hafa tekið við fyrirmæl-
um frá henni.
Þetta er í annað sinn í þessari
viku að meintir njósnarar banda
rísku leyniþjónustunnar eru
teknir af lífi á Kúbu. Síðastlið-
inn fimmtudag voru fjórir menn
skotnir þar fyrir meint landráð.
Humar til
Akraness
Akranesi, 1. júní: —
ÞRÍR lönduðu í dag. Ásmund-
ur kom með 1000 kg. af slitnum
humar, Svanur 988 kg. og Ver
850 kg.
Ms. Axel Sif kom í morgun
með 23 standarda af timbri til
Haralds Böðvarssonar & Co.
Hingað kom m.s. Goðafoss sl.
laugardag og lestaði 20 þúsund
öskjur af freðsíld og töluvert
magn af frosnum fiski, samtala
400 tonn á Evrópumarkað.