Morgunblaðið - 03.06.1964, Page 17
Miðvikudagur 3. júní 1964
MORGU N BLAÐID
17
Haraldur Böðvarsson:
sjúkratiúsinu á
okkar bezta liö
Leggjum
Akranesi
Ég skrifaði stjóm Andakíls-
árvirkjunar neðangreint bréf,
sem mið langax til að komi
fyrir almenningssjónir og vil
svo baeta við nokkrum orðuim
að endingu til hvatningar um
framlög til sjúkrahússins.
Akranesi, 30. okt. 1963
Sjúkrahúsmál.
I>egar byggja átti Sjúkrahús
Akrane9s fyrir nokkrum árum
var eiginlega ekki fé til að
gera það með að undanskild-
um sjóði, 9em kvenfélagið hér
hafði safnað, ca. 165 þúsirnd kr.,
og áheita- og gjafasjóður ca. 100
þúsund, en húsið átti að kosta
samkv. ásetlun 2 milljónir og þar
af átti að koma frá Ríkissjóði 800
þús. eða 40%, nú, þá vantaði
935 þúsund og það lagði Bíó-
höllin til-þannig: Nokkuð af upp-
hæðinni var greitt úr sjóði, en
stærsti hluitinn var fenginn að
láni hjá Tryggingastofnun rík-
isins gegn veði í tekjum hennar,
og nú er sú skuld að mestu
greidd (aðeins eftir 60 þúsund).
Ég var kosinn í nefnd ásamt
fjórum öðmm til þess að vinna
að framkvæmd málsins. Eftir ca.
4 ár var húsið loksins fullgert og
afhentum við þá bæjarstjórn-
inni það skuldlaust, en þá var
eftir að kaupa allan húsbúnað
og lækningatæki m.ma og kom
það í hluta Akranesbæjar.
Ég var þá líka í stjóm Anda-
kílsárvirkjunar, sem er sameign
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og
Akraneskaupstaðar. Mér fannst
þá mjög æskilegt og næstum
sjálfsagt að sýsiumar legðu fram
vemlega upphæð til Sjúkrahúss-
ins, þar sem (eins og reynslan
hefur sýnt) að Sjúkrahúsið hef-
ur verið notað að jöfnu fyrir Ak-
urnesinga, sýslurnar og aðra,
eftir þvi sem rúm leyfir. Ég tal
færði þetta við Jón heit. Stein-
grímsson, sýslumann og Guð-
mund. heit. Jónsson á Hvítár-
bakka og bað þá að athuga mögu
leika hjá sýslunefndunum, hvort
þær sæju sér fært að láta eitt-
hvað af mörkum í þessu skyni,
en árangur af því varð enginn
og var borið við að ekki væri
fé fyrir hendi.
Nú er svo komið að Sjúkra-
húsið er fyrir löngu orðið allt
of lítið fyrir þann mikla fjölda
sjúklinga, sem sækja um vist á
því, og þess vegna stendur til
að hefja byggingu nýs fjórðungs
sjúkrahúss hér í sambandi við
það, sem fyrir er. Gert er ráð
fyrir að þessi nýja bygging muni
kosta um 25 miljónir, en þar af
legur Ríkissjóður til 60% eða
15 miljónir, nú, og þá verður
að koma annars staðar frá 10
miljónir og þar að auki allur
búnaður og mikið af nýjum lækn
ingatækjum.
Ég var sjúklingur á sjúkra-
húsinu í júní s.l. og skil þess
vegna ennþá betur, hve mikið
öryggi felst í því fyrir þá sem
veikjast, að geta leitað til full-
komins sjúkrahúss með úrvals
lækna og hjúkrunarliði, — þú
þú getur þurft á því að halda
fyrr eða síðar. — Reynslan sýn-
ir, að margir hafa fengið bót
meina sinna á Sjúkrahúsi Akra-
ness og hefur það unnið sér álit
og hróður víða um land.
Þá vil ég snúa mér að merg
málsins; Akranesbær hefur ekki
bolmagn til að byggja þetta á
eigin spýtur og er því nauðsyn-
legt að leita annarra úrræða, og
kemur þá fyrst til mála að
leita stuðnings nærliggjandi
sýslna, en þá kemur að því sama
og þegar sjúkrahúsið gamla var
byggt, fé er ekki fyrir hendi,
hvorki hjá sýslunum né Akra-
nesbæ. En samt sem áður er
hægt að leysa þetta vandamál á
mjög auðveldan hátt, skörugleg-
an og með miklum myndarbrag,
héraðinu öllu til sóma og bless-
imar.
Andakílsárvirkjun er eign
sýslnanna og Akraness eins og
fyrr segir að % hvert, fjárhag-
ur virkjuninnar er með miklum
blóma, þrátt fyrir að hún selji
Haraldur Böðvarsson
raforkuna ódýrar en nokkur
önnur virkjun á landinu. Til
samanburðar við aðrar virkjan-
ir, sem byggðar hafa verið síð-
ustu árin miðað við kostnaðar-
verð og framleiðslugetu, þá er
Andakílsárvirkjun minnst 100
miljóna króna virði, hún átti um
sl. áramót peningaeign um 3,5
milj., en áhvílandi skuldir eru
aðeins 9,8 miljónir og má því
segja, að virkjunin eigi sam-
kvæmt framansögðu skuldlausa
eign milli 90 og 100 milljónir,
og þar að auki græðir hún ár-
lega nettó 1-2 miljónir með
sama verðlagi og nú er. Ég vil
geta þess til skýringar, að Anda-
kílsárvirkjun hefur haft tvo
þriðju hluta tekna sinna af seldri
raforku til Atraness, en aðeins
einn þriðja frá öðrum saman-
lagt.
Mér hefur dottið í hug að bera
fram fyrir hina virðuJegu 27
fulltrúa Andakílsárvirkjunar (9
frá hvorri sýslu og 9 frá Akra-
nesi) að virkjunin leggi fram til
Fjórðungssjúkrahúss Akraness ó
afturkræft framlag 9 miljónir
króna, þ.e. 3 miljónir frá hverj-
um aðila, Akranesi, Mýrarsýslu
og Borgarfjarðarýsslu. En þá
einu miljón sem á vantar ásamt
lækningatækjum og húsbúnaði
öllum leggi Akranesbær til þar
að auki. Nú getur enginn aðil-
inn borið því við að fé sé ekki
fyrir hendi, því eins og áður
segir er vandamálið leyst á auð-
veldan hátt án þess að nokliur
þurfi að kveinka sér.
Virkjunin getur ekki tekið alla
upphæðina úr eigin sjóði á þessu
ári, en eftir því sem mér hefur
verið sagt um, mun nægja að
upphæðin verði af hendi látin á
6 árum, þ.e. 1% miljón á ári,
eða til vara, á 9 árum, þ.e. 1
miljón á ári.
Nú veit ég ekki hvort hægt
sé að gera ráðstöfun án þess að
breyta lögum félagsins Andakils-
árvirkjunar, en til lagabreyting-
ar þarf samþykki félagsfundar
þ.e. 27 fulltrúa fundarins. En
til þess að ekki þurfi að kalLa
saman félagsfund, sem er ýms-
um vandkvæðum bundið, þá
finnst mér að óathuguðu máli
þó, geti fundurinn samþykkt til-
löguna um 9 miljóna króna fram
lagið og feli stjórninni (7
manna) fullt og óafturkræft um-
boð til að ganga frá máiinu og
þar með lagabreytingunni ef
með skyldi þurfa.
Það er hugsanlegt að fara megi
ýmsar leiðir án þess að til laga-
breytinga þurfi að koma, en
það er atriði, sem ég veit, að
fulltrúarnir muni leysa á fund-
inum.
Þegar stjóm Andakílsárvirkj-
unar var á fyrstu fundum sín-
um að ræða og taka ákvörðom
um byggingu og stærð virkjun-
innar, var þar jafnan mættur
tækni- og verkfræðingur fyrir-
tækisins, hr. Ámi Pálsson. Hann
áleit, að 1600 hestafla virkjun
mundi nægja okkur fyrst í stað
og 2400 hestöfl nokkur ár, og það
væri hámark fyrstu virkjunar.
Verkfræðingurinn hafði rétt fyr
ir sé að vissu marki, en ég þótt-
ist hafa lært það af reynslunni,
að allar virkjanir fram að þeim
tíma reyndust fljótlega of af-
kastalitlar og lagði þessvegna til
að virkjuð yrðu strax 5000 hest-
öfl og fékk meðnefndarmenn
mína og okkar ágæta Árna Páls-
son til að samiþykkja þessa
stærð. Fyrstu árin var orkcUi
ekki fullnotuð, en ekki leið á
löngu þar til allt var komið í
gagnið.
Nú ber ég fram nýstárlega
tillögu samkvæmt framansögðu,
sem ég vona að fuUtrúarnir 27
beri gæfu til að samþykkja, og
tel ég líklegt að framtíðin muni
minnast þeirra manna með virð-
ingu, sem komu henni fram með
atkvæði sínu.
Ég hef beðizt undan endur-
kosningu í stjórn virkjunarinnar
sökum veikinda, en mér er eins
og fyrr mjög annt um heiður,
heill og framgang Andakíisár-
virkjunar.
Með vinsemdarkveðju,
Haraldur Böðvarsson.
Eftirmáli:
Því miður var tillaga mín í
ofangreindu bréfi ekki sam-
þykkt á fundinum í þetta sinn
og ekkert framlag innt af hendi
frá virkjuninni, því miður. En
sem betur fer hafa sjúkrahús-
inu borist stórgjafir nú nýlega,
fyrst og fremst hin höfðinglega
gjöf frá Kaupfélagi Borgfirðinga,
500 þúsund krónur og ein milj-
ón fyrir milligöngu hins mikla
athafnamanns Júlíusar Bjarna-
sonar bónda á Leirá, frá velunn-
urum sjúkraihússins í Borgar-
fjarðar- og Mýrarsýslum, en bet-
ur má ef duga skal og vil ég
beina máli mínu fyrst og fremst
til Akurnesinga og annarra vel*
unnara sjúkrahússins, t.d. sýsl-
anna í Vesturlandsumdæmi og
víðar, að taka nú höndum sam-
an í þessu velferðarmáli, og bið
ég þá að taka sér í munn hin
frægu orð Grettis: „ekki skal
skuturinn eftir liggja ef vel er
róið framrní".
Sérstaklega vil ég þó beinjt
máli mínu til fullorðna fólksins,
sem á einhver efni, að athuga
gaumgæfilega, hvort ekki sé rétt
að leggja nokkuð af mörkum
af efnum sínum til þessa nauð-
synjamáls.
Ég hef ekki þessi orð fleiri að
sinni, og treysti því fastlega að
gjafmildi og rausn eigi eftir að
sýna sig í verki frá fleirum en
komið er.
Akranesi, 25. maí, 1963.
V insemdark veðj a
Haraldur Böðvarsson
Snœbjörn Jónsson:
Furöuleg
fjarstæöa
„Annar eins maður og Oliver
Lodge fer ekki með neina lygi“.
Líklega ekki. En á að leiða hjá
sér þær fjarstæður sem svo eru
rosalegar, renna sér svo beint á
staðreyndirnar, að enginn skyn-
bær maður taki mark á þeim.
Þeirri spurningu mundu sumir
svara játandi, segja að þser falli
um sjálfa siig. Að vísu, en þó
hygg ég að réttara sé að and-
mæla.
í Morgunblaðinu 24. mai er
grein „um bökmenntir“ og hefst
þannig:
„Það hefir verið sagt, að Jónas
Hallgrímsson hafi bundið enda á
rímnaskeiðið í íslenzkum bók-
menntum, og má það til sanns
vegar færa. Ekkert rímnaskáld
kom fram, eftir að hann birti
sinn harða dóm um Tistransrím-
ur Sigurðar Breiðfjörðs í þriðja
árgangi Fjölnis 1837. Þá höfðu
rímur verið ortar og kveðnar í
fimm aldir samfleytt.“
Hver er nú sannleikurinn i
þessu máli? Hann mun vera sá,
að eins og Dr. Jón Þorkelsson
sagði, ávann Jónas ekkert með
fellidómi sínum nema það eitt,
að særa Sigurð Breiðfjörð. Aldrei
var rímnakveðskapur kappsam-
legar iðkaður en einmitt næstu
40-50 árin eftir að Jónas skrifaði.
Um allt land spruttu þá rímur
eins og sóleyjar í túni. Þetta
mun ljóslega sýna sig þegar út
kemur hin mikla rímnaskrá Dr.
Finns Sigmundssonar — senni-
lega fyrir eða um næstu áramót.
Og að ekkert (nýtt) rímnaskáld
kæmi fram eftir útkomu greinar-
innar er fjarri sanni. Sigurður
Bjarnason var þá enn ófæddur.
En það var með undrum hverju
hann hafði afkastað í þessari
grein er hann féll frá 24 ára að
aldri. Víðkunnustu rímu hans
kallar Sir William Craige „eitt
af meistaraverkum nítjándu ald-
ar‘. Símon Dalaskáld var þá líka
ófæddur, en Craige segir að fyr-
ir 1891 hafi flokkar hans og stak-
ar rímur, sem sumar eru geysi-
langar, verið ekki færri en sex-
tán að tölu. Þó bætti hann miklu
við eftir það og átti þá eftir að
og yrkja í hendurnar á setjaran-
um, Ágúst Jósefssyni, sem ekki
hafði undan honum og þótti þó
á meðal fremstu manna prentara
stéttarinnar. Sveinbjörn Bein-
teinsson er fæddur -1924, en hann
hefir þegar ort marga flokka og
gert það með ágætum. Á hitt
þarf varla að minna, að slík önd
vegisskáld sem Benedikt Grön-
dal og Einar Benediktsson kváðu
rímur.
Sá sem rita vill sögulega um
bókmenntir okkar, þarf helzt að
vita dálítið um sögu þeirra.
Árni leit óvart í testamentið
og hugkvæmdis tþá að flytja dý-
ið (en ekki fjallið). Síra Gísli
hefir sagt okkur hvernig þeirri
tilraun lauk.
Rifarasfaða
Vita og hafnarmálaskrifstofan óskar eftir að ráða
stúlku til vélritunarstarfa. Þarf að hafa góða kunn-
áttu í vélritun. Laun samkvæmt launakerfi opin-
berra starfsmanna. Væntanlegir umsækjendur komi
til viðtals á skrifstofuna næstu daga frá kl. 9—12.
Sfúlka óskast
J yfir sumarmánuðina til símaafgreiðslu og
vélritunar á skrifstofu í Reykjavík. Eigin-
handarumsókn sendist afgr. Mbl.. merkt:
„9950“.
Mötuneyti
Barnlaus hjón óska eftir forstöðustarfi fyrir mötu-
neyti í síldarbæ Austanlands á komandi sumri.
Bæði vön slíku starfi. Tilboð sendist í pósthólf 343
í Reykjavík fyrir 4. júní 1964.
4ra herbergja íbúð
á 2. hæð í góðu húsi í Laugarneshverfi. Hitaveita og
bílskúrsréttur.
íbúðin er nýstandsett og laus til íbúðar nú þegar.
MÁLFLUTNINGS- og FASTEIGNASTOFA
Agnar Gústafsson, hrl.,
Björn Pétursson, fasteignaviðskipti.
Austurstræti 14. — Símar 22870 og 21750.
Utan skrifstofutíma: 35455 og 33267.
Skrifstofa Rauða Kross Islands
er flutt að Öldugötu 4 efri hæð.
Skrifstofustúlku
vantar Rauða Kross íslands.
Upplýsingar í síma 14658.
Sn. J.