Morgunblaðið - 14.09.1968, Page 4
MOBGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. SEPT. 1968
*
*
0 Um lélegar slysavarnir
á Langanesi
Eftiríarandi bréf barst okkur frá Húsa-
vík:
„Velvakandi góður,
Ég var á ferðalagi ekki alls fyrir löngu,
og fór meðal annars norður á Langanes,
út í Skoruvík og Skála og út á svonefnd-
an Font, sem er yzti oddi Langaness. Það,
sem þarna bar fyrir augu, eða réttara sagt
bar ekki fyrir augu, gekk svo fram af
mér, að ég fæ ekki orða bundizt. Það eru
slysavamirnar, sem engar eru. Skipbrots-
menn, sem þarna bæri að landi ættu sér
næsta litla lífsvon, ef eitthvað væri að
veðri t.d. Á um það bil 12 km. löngum
kafla norðan á nesinu eru ómanngeng
björg og stórgrýtt fjara. Þar er algjörlega
ómögulegt að komast upp á land, nema
á einum stað, þó ekki eins og nú er á-
statt. Er það um svonefnda „Ensku-gjá“.
Þar íóru skipbrotsmenn upp um áður fyrr,
en nú hefur hrunið grjót úr neðsta hluta
gjárinnar, svo að hún er ókleif. Úr þessu
væri vandalaust að bæta, þó ekki nema
með kaðalstiga. í eyðiþorpinu á Skálum,
austan á Langanesinu, er alveg sama á-
standið. Þangað liggur símalína, en tólið
hefur verið fjarlægt, svo að ógjörningur
væri að gera vart við sig þaðan.
Þama verður að vera skýli og sími,
því langt er til byggða. Vegur liggur að
nafninu til þarna út eftir, en hann er ill-
fær jeppum. í förinni með mér var læknir,
og hafði hann orð á því, að vonlaust væri
að reyna að flytja mikið slasaða eða sjúka
menn eftir honum. Og nú er mér spum,
Hví er ekkert gert þarna? Til þess þarf
ekki nema sára lítið fjármagn. Á að bíða
þar til skip ferst þarna, og áhöfnin einnig
bara fyrir handvömm og hugsunarleysi?
Ferðalangur."
0 Meinga
Sr. Árelíus skrifar:
„Sögnin að meinga hefur verið mikið
notuð undanfarið meira að segja í fyrir-
sögnum blaðanna.
Elliðaárnar hafa meingast af hrossalandi,
sjórinn í Nauthólsvík af frárennsli salerna,
Engeyjarsund af olíu, loftið i borginni af
fýlu, hugarfar fólksins af hráskinnaleik
stjórnmálanna.
En svo undarlega bregður við að hvergi
hef ég séð þessa mjög notuðu sögn rétt
ritaða.
Hún er skrifuð menga, eins og hún
væri dregin af men — sem þýðir skart-
gripur, en ekki mein, sem þýðir sár eða
sjúkleiki, skaði eða skömm jafnvel eitrun
eitra.
Auðvitað er sögn þessi undantekning frá
reglunni um einfaldan samhljóða á undan
ng likt og í orðunum seinka hreinka og
Steinka og Sveinki, þar sem ei-ið er í
stofni.
Eða er kannske allt orðið meingað af
margtuggða orðinu mengi — mergð eða
meigur og mengið orðið hugstola?
Árelíus Nielsson.“
0 „Jurtafrostlögur“
„Bændavinur" skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Nýverið dvaldist ég í leyfi mlnu hjá
ættingjum mínum að Vindfelli í Vopna-
firði, og ferðaðist ég þar víða um. Fannst
mér mjög hryggilegt að sjá hvemig frost-
in á síðastliðnum vetri höfðu leikið þessa
grösugu byggð. Hvarvetna blöstu við kal-
ákemmdir. Því þótti mér mjög athyglis-
vert að lesa um það í dálkum þínum, að
frændur vorir Norðmenn hefðu fundið upp
aðferð til að forðast þennan vágest. Höf-
um við eflaust sitthvað að læra af frænd-
um vorum í þessu efni eins og einnig
t.d. af meðferð þeirra á erlendu fjármagni.
Náttúruskilyrði eru og lík, svo ekki er ó-
trúlegt að þessi „jurtafrostlögur'* eigi einn
ig við hér.
Ég veit, að óhætt er að treysta því, að
vor röggsami og grandvari landbúnaðar-
ráðherra tekur þetta mál traustum tökum
og athugar, hve raunhæft það reynist okik-
ur íslendingum.
Með kærri kveðju Bændavinur."
0 Áfengi bjórinn
E.H. skrifar eftirfarandi bréf:
„Kærí Velvakandi!
Það vakti án efa mikla athygli margra
hlustenda útvarpsins í gærkvöldi, þegar
Halldór Blöndal, blaðamaður skýrði frá því
að auðvelt væri fyrir fólk hér að fá keypt
„ Export öl“, þe.. áfengt öL Þeir sem það
vildu fá, gætu fengið það, ef þeir nenntu
að hafa fyrir því, eins og fyrirlesari orð-
aði það. Hljóta þetta að vera fróðlegar
upplýsingar fyrir löggæzluna I landinu og
væri ekki til of mikils ætlast af henni að
hún hefði tal af Halldóri í þeirri viðleitni
hennar a.ð koma lögum yfir hina brotlegu
og fyrirbyggja frekari lögbrot.
Frásögn Halldórs á ástæðum þess að ýms
ir vilja ekki fá áfengt öl inn í landið,
var í knappasta lagi og meðferð hans á
rökum bindindismanna í því efni, minnti
blátt áfram á aðferð strútsins, sem sting-
ur höfðinu £ sandinn. E.H.“
Margir hafa gagnrýnt þá afstöðu stúku-
manna að berjast gegn framleiðslu og sölu
áfengs öls hér á landi — þar sem allar
tefundir sterkra og veikra v£na fást. Telja
það óraunhæfa baráttu. — Á það verður
ekki lagður dómur hér, en hitt er rétt,
að á meðan sala áfengs öls er bönnuð
verður að hlýta þvi lagaboði — og reyna
að koma i veg fyrir lögbrot £ þvi sam-
bandi.
0 „Fjörgömul kona úr
V esturbænum.“
Ásgeir Jakobsson skrifar:
ÞÚ BIRTSR þann 13. september, Velvak-
andi góður, bréf frá „fyrrverandi útgerð-
armanni," og það bréf er nánast ástarjátn-
ing með tilbrigðum. Þeir herrar, Eyjólfur
Konráð og Steingrímur eru réttilega lofað-
ir fyrir glæsileik og ýmsa karlmannlega
eiginleika en jafnframt því er hreytt ónot-
um í Einar Sigurðsson fyrir að vilja kaupa
skip, hafa trú á íslenzkum útvegi og vilja
mæfca tregfiski með aukinni sókn.
Hér er ekkl um fyrrverandi útgerðar-
mann að ræða heldur fjörgamla konu úr
V esturbænum.
Það hringir stundum til min öldruð kona
fín frú í den tid, sem fylgist vel með
þjóðmálum, en hefur aldeilis óstjórnlega
óbeit á sjó, sjómennsku og útvegi. Hún
hafði eitt sinn lesið eitthvað eftir mig um
þetta efni, hringdi til min og skammaði
mig ótæpilega en við urðum þó vinir. Að
ioknum þættinum í brennideplinum á föstu
dagskvöldið, 6 sept. hringdi hún og var
þungorð i garð Einars en lofaði Eyjólf og
Steingrím og var orðalagið mjög ámóta og
„fyrrverandi útgerðarmaður", notar í bréf-
inu til þin. Svo líkt reyndar, að ég er ekki
í vafa um hvaðan það er ættað þrátt fyrir
undirskriftina. Að vísu talaði gamla frúin
jafnan um þá Eyjólf og Steingrím, sem
„mjög pena unga menn“, að hætti fínnar
frúar á hennar sokkabandsáium. En þessu
hefur þú vafalaust breytt í próförk, eins
og þú sjálfur, að þessir ungu og penu
menn, sérílagi Eyjólfur, hefðu verið Einari
sammála í öllum meginatriðum, báðir
vildu beina kröftum þjóðarinnar að því
að auka útflutningsframleiðsluna, en ekld
snúa nú öllu við upp i fornan heimilisiðnað.
Ásgeir Jakobsson"
Velvakandi þakkar Ásgeiri skemmtilegt
bréf, en verður að hryggja hann með því,
að hér hefur ályktunargáfa hans brugðizt
Hann hefur „fjörgömlu konuna úr Vestur-
bænum" fyrir rangri sök. Bréfritarinn
siglir ekki undir fölsku flaggi, hann er —
þrátt fyrir allt — fyrrverandi útgerðarmað
ur.
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
SENDIIM
SÍIMI 82347
BÍLALEIGAINI
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 o* 36217.
Sími 22-0-22
Raubarársfíg 31
SÍH' 1-44-44
m/UF/m
Hverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
MAGIMÚSAR
SKIPHOUl21 54MA«21190
*Hir toifvn 403ol
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastrætl 11—13.
Hagstætt leigugjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81746.
Sigurður Jónsson.
Til sölu
Rambler American árg. ’67 2ja dyra.
Verð 297 þús.
VÖKULL H.F.,
Hringbraut 121, sími 10600.
Nýfízku íbúð
3ja—4ra herb. eða einbýlishús í eða fyrir utan bæinn
óskast strax til leigu. rÞennt fullorðið í heimili.
Fyrirframgreiðsla. Sími 84827.
TIL LEIGU
Einbýlishúsið Mánahlíð við Geitháls er til leigu.
lfúsið er 4 herb., eldhús og baðherbergi. Verður til
sýnis sunnudaginn 15. september kl. 2—4 e.h.
BLAÐBURÐARFOLK
r eftirtalin hverfi:
ÆGISSÍÐA - BÁRUGATA - LYNGHAGI
TÖMASARHAGI - LAUGAVEGUR 1-33
To//ð wð afgreiðsluna i sima 10100