Morgunblaðið - 05.09.1972, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 05.09.1972, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1972 13 Spassky: „Tilbúinn til a ð tefla við Bobby hvenær sem er‘ Vitleysa að ég hafi reynt að brjóta Spassky niður, segir Fischer Landon og New York 4. september — AP, NTB. Eitt af því sem g-laddi Bobby Fischer hvað mest eftir að liann sigraði Spassky í skákeinvíginu f Reykjavík var skeytið sem hon- um barst frá Nixon Bandaríkja- forseta, þar sem forsetinn ósk- aði Fischer til hamtngju með sigurinn. Sagði í heillaóskaskeyti Nixons að Fischer hefði unnið mikinn sigur í erfiðasta leik, | sem til væri. Forsetinn sagði að þetta væri mikill persónnlegur sigur fyrir Fischer og fyrir hönd Bandaríkjamanna óskaði liann honum innilega til hamingju. Fischer sagði í viðtali við júgóslavneska stónmeistarann Gligoric, sem útvarpað var í Belgrað í gær, að hann væri til- búinn til að tefia aftur við Spassky, ef nægir peninigar væru í boði. Þegar Spassky heyrði þetta sagði hann við Gligoric: „Þetta er mjög fallega sagt af Bobby og vissulega er óg tilbú- inn til að tefia við hann aftur hvenær sem er.“ Spassky sagð- ist telja sig geta sigrað Bobby og næsta einvígi yrði miklu erf- iðara en þetta, sem nú var að ljúka. Spassiky sagði að Bobby væri mjög skemmtilegur and- stæðingur. 1 viðtali við BBC sagði Bobby Fischer að það væni hrein vit- leysa að hann hefði reynt að brjóta Spassky niður með hegð- un sinni. Hann sagði að hugsan- legt væri að Spassky hefði verið orðinn andlega þreyttur er hann kom til leiks. Hann sagðist aldrei hafa kvartað yfiir Spassky og að hann kynni mjög vel við hann persónulega. Hann sagði að vandræðin hefðu verið í sam- bandi við skipuleggjendiur ein- vigisins, en þeir hefðu verið mjög sanngjamir. „1 raun og veru fór einvigið mjög vel fram“ sagði Fischer brosandi. Hann sagði að Rússar hefðu sl. 20 ár notað skák sem áróðurs- tæki og það væri sér mikil per- sónuleg ánægja að hafa tekið það áróðurstæki af þeim. Þá segir í AP skeyti að fulltrúar Fischers og Fox reyni nú að komast að samkomiulagi í máli því sem Fox hefuir höfðað á heindur Fischer í Bandarikjun- um. Sovézkir Gyðingar skrifa Podgorny Moskvu, Canberra, 4. sept. NTB FJÖRUTÍU og sjö sovézkir Gyð- ingar hafa ritað Nikolal Pod- gorny, forseta Sovétríkjanna, bréf þar sem þeir mótmæla hin- nm háu sköttum og ýmiss konar refsiaðgerðum, sem menntaðir sovézkir Gyðingar eru beittir, ef þeir vilja flytjast til Israel. Krefjast þeir þess að þessar hömlur verði þegar í stað nnmd- ar úr gildi eða endurskoðaðar af réttsýni og sanngirni. 1 öðru bréfi frá Victor Perel- man, fyrrverandi blaðamanni, segir að þegar sé farið að gera kröfur á hendur Gyðingum, sem vilja flytjast úr landi. Er heimt- að að þeir endurgreiði þann kostnað, sem rikið kveðst hafa lagt fram þeim til menntunar. Segir Perelman að Genri nokkur Finherg hafi ætlað að sækja um fararleyfi og hafi hann þá verið krafinn um greiðslu á um tveim ur milljónum króna fyrir mennt- un sína. Finberg er sagður hafa bjargað miklum verðmætum fyr- ir Rauða herinn þegar Riga var hernumin af Þjóðverjum. 1 annarri NTB-frétt frá Mosikvu segir að hugsanlegt sé að sovézkir menntamenn verði sviptir titli sinum ef þeir sýni einhverjar þær náttúrur, sem ekki falla undir föðurlandsást. Er sagt að verulegs ótta gæti meðal vísindamanna vegna þess- ara nýju ákvæða, sem án efa verða nokkuð téygjanleg i fram- kvæmd. í Canberra i Ástralíu fóru um 200 manns í mótmælagöngu að sovézka sendiráðinu þar í borg í gærkvöldi til að láta i ljós gremju með þá meðferð, sem sovézkir Gyðingar, sérstaklega menntamenn sæta i Sovétríkjun- um. — Skerumst ekki í leikinn Framh. af bls. 32 verður ekki leyst hér á miðun uim, hún verður aðeins leyst við samningaborðið og við vljuim ekki magna deiluna, hekiur jafna hana. En togar- amir munu vafalaust veita viðnám.“ Biaðamaðiur spurði, hvort togaraskipstjórarinir hefðu um það fyrirmæli, eti Adams, kvaðst ekki geta sagt um það, en sagði, að sklpstjóramir teidu sig vera að löglegum veiðum á úthafinu. Blm. spurði, hvað Adams vildi segja um þá ráðstöfun skipstjóranna að má út nafn og númer skipanna. Hann kvað það vera sér óviðkom- andi og vildi hann því ekki láta i ljós neina sérstaka skoðun á því. Þetta væri mál togaraútgerðarinnar, þar hefði þessi ákvörðun verið tekin. Fram kom í samtalinu, að tveir togarasjómenn eru nú lítillega slasaðir um borð í Miröndu, en ekki alvarlega og fara þeir brátt yfir í skip sín á ný. Þegar spurt var um nöfn þeirra skipa, kvaðst Adams ekki hafa heimild til að gefa þau upp. Þoka var á miðunum og lé- legt skyggni, þegar Mbl. tal- aði við Adams. Adams sagðist haida, að varðskipið væri enn á þessum slóðum, en þegar spurt var, hvort það hefði haft samband við Miröndu, kvað hann það ekki vera. „Við vorum alltaf vanir að veifa hvorir til annars, en nú keppumst við við að taka myndir hvorir af öðrum," sagði hann. Adams sagðist að lokum hafa haft samband við hóp færeyskra togara, 9 talsins, sem væru á svipuðum slóð- um og boðið þeim læknisað- stoð ef á þyrfti að halda. Morguntolaðið reyndi í gær að ná samtoandi við merkta brezka togara á miðunum við landið, en þeir svöruðu ekki utan einn, Northem Chief GY 128, en skipsmenn neituðu al- gerlega að svara nokkrum spurnmgum. — Taugatöflur Framh. af bls. 32 bátsins til Þingeyrar, þar sem stýrimaðurinn á heima. HéSdu pi'ltarnir siðan áfram tll í.safjarð ar og birgðu sig þar uipp af á- fengi, en síðan iá leiðin aftur til Þingeyrar og þar segjast þeir hafa farið í apótekið sem er i herbergi i sjúkraskýlinu, og stol ið töflunuim. Ekki hafa þeir get- að gert sér grein fyrir magninu og hafa bent lögregluþjónunum, sem rannsaka málið, á að telja bara sjálfir. Héraðslæknirinn á Þingeyri var ekki heima á fimmtudaginn. Frá Þingeyri lá leið piiitanna aftur til Suðureyrar og upphófst þá hinn mesti gJfeð- skapur og var taflnanna og áfieng isins neytt í ríkum mæll. Héldu þeir sig m.a. i báti þe'.m, er ungi sjómaðurinn var að fara út I, er hann féll í sjóinn og drufk'kinaði. Slógust ýmsir aðrir aSkomumenn á Suðnreyri í hópinn og einnig var talsverðu magni af töflun'U'm dreift til ungmenna, sem eiga heimili á Suðureyri. Fór nokkur hópur unga fólksins á dansIeiK í Hinífsdal á Laugardaigskvöldio og voru flestir í þeim hópi í mik ilii vimu á dansteikmum, en eng- in slys eða óhöpp urðu þó af völdum lyfja- eða áfengisneyzl- unnar. KASTAÐ í SJÓINN Raninsóton málsins hófst á surmudag, en þá höfðu lögregl- unni á ísafirði borizt nokkrar kva”tanir frá íbúum á Suður- eyri vegna lyfjaneyzlurunar meðal unga fólksins. Fóru tveir lögregluirnetnin til Suðureyrar og tóku í sina vörzlu þær töflur, sem þeir náðu í. Yfirheyrslurnei' gengu þó treglega vegna þess að það fól(k sem yfirheyra átti, var flest ennþá í stímu. Ekki fékkst úr þvi skorið, hversu mik- ið magn af töflum komst í hendur piltanma tveggja í upp- hafi, en á sikýrsluim lögregluninar eru heimildir um vel yfir 3.000 töflur. Erfitt verður að staðfesta þær tölur, m. a. þar sem piitamir bera því við, að maður nokkur á Suðureyri hafi tekið af þeim talsvert magn og heint í sjóinn. Anmar maður tók af þeim nokk- ur humdruð stykki og afhenti síðan lögreglunni og hefur húm nú undir höndum nær 1.000 stykki. AFTUR í VÍMU Annar lögregiiuþjónanna hélt frá Suðureyri tii Þingeyrar í gærmorgun til að rannsaka inn- brot í Kaupfélagið og Hrað- frystihúsiið, þar sem stolið var samitals 50 þús. kr., riffli og úri, en hin.n héit yfirheyrslum áfram. Eru þeir nú báðir á Isafirði og hafa 4 eða 5 piitar, sem hlut áttu að máli, verið kvaddir til frek- ari yfirheyrslu á ísafirði í dag. Er annar lögregluþjónanna var ný- kominn til Isafjarðar í gærkvöldi, barst honum tilkynning um að aftur væri farið að bera á undar- legu hátterni meðal ungs fólks á Suðureyni og var talið að það væri komið í vímu af töflun'um á ný. Að sögn lögregiluþjónanma getur reynzt erfibt að ramnsaka þetta mál til hlítar, m. a. er alls ekki vitað með vissu urn það, hverjir fengu skammt £if töflun- um eða hvað stór hópurinm er, en í fljótu bragði virðist fjöldi ungmennanna, sem h'lut átibu að máiinu, á milli 20 og 30, og þó nokkur hiuti þeirra aðkomufólk, sem hetfur verið hvað atkvæða- mest í málinu. — írland Framh. af bls. 1 skæruhernaði með byssum. Sprengjuárásimar, sem hafa kostað marga saklausa borgara lífið hafa vakið svo mikla and- úð í Bandarikjunuim, þaðan sem mesta fjármagnið hefur komdð til starfsemi IRA, að foringjar IRA eru neyddir til að hætta vegna mininkandi fjárframlaga. Höggdeyfar (fflmnau Skeifunni 5 Bolholti 4 ist h.t 5 HLU STAVERND - HEYRNASKJÓL STURLAUGUR JÓNSSON & CO. Vesturgötu 16, Reykjavík. Símar: 13280 og 14680. fíTð VOLKSV/AGEN Volkswagen varahlutir tryggja Volkswagen gæði: Örugg og sérhæíð viðgerðoþjonustn FRETTIR í stuttumáli V-þýzk vél lenti í Leipzig Bonn 4. sept. NTB. BOEING 727 vél i eigu leigu- flugfélagsins Condor lenti í Austur-Þýzkalandi á sunnu- dag og er það í fyrsta skipti, að veistur-þýzk vél íær að flytja farþega þangað. Tals maður Condor sem er aystur fyrirtæki Lufthansa sagði að 98 farþegar hefðu verið fluttir á Alþjóðavörusýninguna Leipzig. Austur-þýzk yfirvöld hafa gefið leyfi til að vestur- þýzkar vélar fari þrjár ferðir til Leipzig vegna kaupstefn- unnar, en hún hófst nú um helgiina. Sovézkir ráðgjafar verða í Sýrlandi Damaskus 4. sept. NTB. SÝRLENDINGAR munu ekiki vísa úr landi sovézkum sér fræðingum, sem þar dvelja, alténd ekki meðan stjómvöld telja þörf ráðlegginga þeirra og aðstoðar. Var þetta haft eftir ábyrgum heimildum.NTB fréttastofunnar um helgina Álitið var að Anwar Sadat, forseti Egyptalands hefði snúið sér til Sýrlendinga og óskað eftir því, að þeir létu sovézka hernaðarsérfræðinga hverfa þaðan eins og gert var í Egyptalandi. HEKLA hf. -.'Líúflíveai 1T0— ÍM — Slmi S1240. Coryse hefur leyst vand- ann. Créme Blue er unnið úr azúlene juort- um — mjög mjúkt krem, seim ætlað er húð er vill roðna — vamar einnig að æðar springi í andliti. Créme P.A. næringarkrem fyrir við- kvæma, þurra og jaifrrveil ofnæmiskennda húð. Hríf- ur fljótt án óþæginda. Utsölustaðir: Hárgrst. Vaihöli, Langa- vegi 25, Mirra, Austurstræti 17, Ocnl'us, Austurstræti 7, Regnhlífabúðin, Lauga- vegi 11, Varðan, Grebtisgötu 2, Apótek Árbæjar, Hraun- bæ 102, Sigraubúðin, Strandg., Hf., Vörusalan, Akureyri, Valibær, Akranesi, Isól, ísafirði, Verzl. Sigurbj. Ólaísd. Vestm. Kf. Húnvetninga, Blöndu- ósi, Apótek Sauðárkróks, Einar Guðfinnsson, Bol- ungarvi'k.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.