Morgunblaðið - 01.03.1974, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.03.1974, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974 Valdimar Kristinsson: Borgir og bgggðajafnvœgi Kortið sýnir kerfi borga og bæja og helztu þjónustutengsi, sem rætt er um f greininni. Leggja þyrfti bundið slitiag á allan hringveginn og helztu hiiðar- vegi fyrir aidamót. 1 SlÐASTA hefti Fjármálatfð- inda birtist grein eftir Vaidimar Kristinsson undir yfirskriftinni hér að ofan. En undirfyrirsögnin hljóðar svo: „Efiing Akureyrar og myndun borgar á Austurlandi er, ásamt lagningu góðs hringveg- ar, lykillinn að gróskumiki lli byggð í öllum landsfjórðungum.“ Greinin er skrifuð f tilefni þess, að tíu ár eru liðin sfðan Valdimar birti grein sína um „þróunar- svæði á Islandi“, en hún vakti mikla athygli á sfnum tfma. Er þróun sfðasta áratugar lyst f þess- um efnum og ákveðnar hugmynd- ir markaðar en fyrr. Morgunblaðinu þykir rétt að gefa sem flestum kost á að kynn- ast efni greinarinnar og birtirþvf hér stuttan útdrátt úr henni. Brejdingarnar á byggðinni síð- ustu 10 árin hafa orðið þær helst- ar, að á höfuðborgarsvæðinu bjuggu tæplega 51% þjóðarinnar 1962, en tæplega 54% 1972. Þetta er minni hlutfallsleg aukning heldur en áratugina á undan, en mundi þó með svipuðu áfram- haldi leiða til þess, að á höfuð- borgarsvæðinu byggju nær tveir þriðju hlutar þjóðarinnar um næstu aldamót. Þróunin er því öll á sama veg og hún hefur verið áður. Að einu leyti hafa forsendur breyst verulega frá því, sem var fyrir 10 árum. Þá var talað um, að landsbúar yrðu sennilega 360—380 þús. um næstu aldamót, en nú er talað um 310—330 þús. Þarna gæti munað hvorki meira né minna en heilli borg eða stór- um borgarhluta á höfuðborgar- svæðinu. Nú búa 113 þús. manns i Reykjavík og nágrenni, en 210 þús. á öllu landinu; það er tæp 100 þús. utan höfuðborgarsvæðis- ins, og er vel hugsanlegt, að sú tala hækki lítið næstu 20—30 ár- in. Samkvæmt því gætu íbúarnir á höfuðborgarsvæðinu orðið 200 þús. um aldamóf, og yrðu þá eðli- leg ibúðarsvæði líklega fullbyggð frá Hafnarfirði að hlíðum Esju, ef ekki hefði orðið meiri dreifing í nærsveitir, eins og siðar verður að vikið. Byggðastefna. Nú er það kallað „byggða- stefna" að stuðla að „jafnvægi i byggð landsins“. Hugtökin eru nokkuð óljós, en í meginatriðum skilst þó, hvað við er átt. Ljóst er, að hingað til hefur byggðastefnan ekki tekist í þeim skilningi, að sifellt hallar á hinar dreifðu byggðir, en bæirnir eflast, eink- um við Faxaflóann. Þar með er ekki sagt, að þessi stefna hafi að öllu leyti mistekist. Enginn veit, hver byggðaþróunin hefði orðið, ef ekki hefði verið veitt fé árum og áratugum saman til að reyna að jafna aðstöðuna um allt land í vegamálum, símamálum, orku- málum; með skólabyggingum á afskekktum stöðum, jöfnunar- verði á bensíni og þannig mætti lengi telja. Ef allur þessi kostnað- ur væri gerður upp og þjóðhags- legi hagnaðurinn á móti, má vel vera, að stefnan hafi að nokkru leyti brugðist. En þá yrði sagt, að mannlegi þátturinn mundi vega þarna vel upp á móti. Fólk mætti búa, þar sem það vildi, og ætti kröfu á hendur þjóðfélaginu um góða þjónustu. Um þetta sjónar- mið má að sjálfsögðu deila, en um hitt verður ekki deilt, að góða þjónustu er ekki hægt að veita á erfiðum og afskekktum stöðum, og það jafnvel ekki þótt peningar væru engin hindrun. 1 þeim tilfellum, þar sem ekki er hægt að flytja viðunandi þjón- ustu til fólksins, verður að flytja fólkið til þjónustunnar. Ekki er hægt að gera kröfur um það, sem enginn mannlegur máttur fær við ráðið, en á hinn bóginn væri ekki óeðlilegt, að hið opinbera keypti eignir af því fólki, sem getur ekki fengið sómasamlegt verð fyrir jarðir sínar og hús, tilþess að það hafi ráð á að koma sér fyrir á hagstæðari stöðum. Um mikil- væga stefnubreytingu af þessu tagi mætti ekki ríkja algjört handahóf, þannig þyrfti að af- marka þau svæði um allt land, þar sem ekki verður séð fram á, að koma megi á viðunandi þjónustu, og láta fólkið þar ganga fyrir um aðstoð til flutninga. Oft er á það bent, hve tilteknir litiir staðir leggi mikið til gjald- eyrisöflunar þjóðarbúsins, þótt ýmis aðstaða hjá þeim sé oft hin erfiðasta. Þessi dæmi eru án efa yfirleitt rétt, þó að jafnframt ætti einnig að taka tillit til kostnað- arins, eins og áður segir, og hafa í huga, að gjaldeyrisöflun er ekki einasta markmið þjóðfélagsstarf- seminnar. En það er önnur hlið á þessu máli, sem sjaldan eða aldrei er talað um. Getur þjóðfélagið ætlasttil, að fólk búi við margvis- legt aðstöðu- og öryggisleysi, sem óviðunandi þykir nú til dags, bara af því að það aflar mikils gjald- eyris? Talað er um „peninga- sjónarmið“ með lítilsvirðingu af minna tilefni. Þegar ekki er hægt að bæta aðstöðuna og öryggið, svo að viðunandi megi teljast, verður þá ekki að draga byggðina nokkuð saman, jafnvel þótt það kosti eitt- hvað minni gjaldeyri? Svo þarf þó alls ekki að vera, svo sem sjá má af framlagi Vestmannaeyinga til þjóðarbúsins. Stjórnmálabaráttan og ,Jireppapólitíkin“ hafa oft mjög slæm áhrif á byggðamálin. Þetta er að mörgu leyti skiljanlegt, en er engu að síður jafnalvarlegt fyr- ir því. Árangursrík byggðastefna hlýtur að mismuna stöðum, velja liklegustu vaxtarpunktana og stuðla svo að eflingu þeirra, að þeir taki að vaxa að mestu af sjálfum sér. Þannig myndast kjarnar, sem geta bætt aðstöðu heilla héraða og landshluta,' og mótvægi myndast við aðdráttarafl annars staðar frá. Um síðustu aldamót fór Reykja- vfk að taka við aðflutningi þeirra, sem vildu ekki una við einhæfni íslenskra sveita og sjávarþorpa og höfðu áður farið til Kaupmanna- hafnar eða Ameríku. Æ síðan hef- ur Reykjavík gegnt þessu hlut- verki fyrir allt landið, nema hvað segja má að Akureyri hafi haft svipuð áhrif i Eyjafirði og að nokkru leyti víðar um Norður-, land. Áhrif minni bæja úti á landi í þessu sambandi eru auðvitað nokkurs viðri, en eru þó hverf- andi, eins og sjá má af því meðal annars, að allir kaupstaðir lands- ins, sjö að tölu, utan Suðurlands (og Akureyrar) hafa samtals að- eins litlu fleiri ibúa en Akureyri ein, þótt hún hafi svo aðeins íbúa- fjölda á við tiunda hluta höfuð- borgarsvæðisins. Þegar nú íbúar og framámenn á hverjum stað ásamt með stjórn- málamönnum allra flokka í við- komandi héraði leggjast á eitt um að dreifa fjármagninu og aðstöð- unni nokkuð jafnt yfir allt svæð- ið, verður afleiðingin sú, sem hér hefur blasað við í hálfa öld, að ekkert raunverulegt mótvægi skapast á móti höfuðborginni. Mikil árangur næst sjaldan án fórna og það, sem hér þarf að „fórna“, er að leyfa einum bæ í hverjum landshluta að vaxa langt fram úr öðrum. Þá er þjónustan komin og fjölbreytni atvinnulifs- ins orðin slík, að ekki er allt leng- ur háð Reykjavik eins og áður, og landshlutinn og landið í heild efl- ist að sama skapi. Það þarf víð- sýni fjölda fólks og stjórnmálaleg- an kjark til að leysa þennan vanda, en taki ekki nægjanlega margir og öflugir aðilar að sér forystuna, þá verður „byggða- stefna“ á íslandi sama kákið út öldina, eins og hún hefur verið til þessa. Vegamál. Þéttbýlið og varanleg vegagerð styðja hvort annað. Vegirnir efla þjónustukjarnana og gera fólki i heilum landshlutum fært að not- færa sér aðstöðuna, sem þeir skapa. Með varanlegri vegagerð, og væntanlega með henni einni, er hægt að jafna aðstöðuna verulega milli flestra landshluta. Spítalar, skólar og félagsheimili nýtast þá fyrir stærri svæði en áður, og sama er að segja um flesta aðra þjónustu. Fjarlægðin i kólómetrum skiptir ekki höfuð- máli, heldur sá timi, sem fer í að komast á áfangastað. Þeir, sem geta komist á einum til tveimur tímum eftir góðum vegi til góðs þjónustukjarna, verða að teljast vel settir, og reyndar að jafnaði því betur sem fefðin er styttri. En nú er fámennið hér slíkt, að hver sem þróunin verður í þessum mál- um úti á landi í fyrirsjáanlegri framtíð, er hætt við, að sér- hæfðustu þjónustu verði aðeins að finna í Reykjavík og nágrenni. Flugsamgöngur hafa að visu mik- ið bætt úr fyrir nokkrum stöðum, en þær geta aldrei komið í staðinn fyrir gott vegakerfi nema að nokkru leyti, eihs og Vestmanna- eyingar geta manna best borið vitni um. Góður hringvegur um landið mun einmitt gjörbreyta allri aðstöðu og gera það byggi- legt í nýjum skilningi. Þegar var- anleg vegagerð hefur náð hring- inn, mun flest fólk verða í mesta lagi dagleið í bíl frá öðrum lands- hlutum, og milli helstu byggða- kjarnana verður aðeins fárra klukkustunda þægileg ferð, svo sem um 6 tímar milli Reykjavíkur og Akureyrar og innan við 4 tímar milli Akureyrar ogEgilsstaða. Hvers vegna áhyggjuefni? Þótt margir hafi áhyggjur af byggðaþróuninni i landinu, hafa ekki allir slíkar áhyggjur, og þeir geta með réttu bent á ,að Reykja- vík sé ekki stórborg á alþjóðlegan mælikvarða. Höfuðborgarsvæðið er aðeins stórt á íslenskan mæli- kvarða, en eins og drepið hefur verið á hér að framan, fara kost- irnir við áframhaldandi stækkun þess smám saman minnkandi, jafnfram því sem ókostirnir fara vaxandi. Þessir ókostir geta birst i margvíslegum myndum, svo sem í samgöngumálum og umgengnis- háttum. Eru það ekki í rauninni fáir, sem mundu vilja sjá höfuð- borgarbyggðina flæða yfir alla Mosfellssveit og Kjalarneshrepp þegar á næstu áratugum? Þróun- in til „borgrikis" samræmist held- ur ekki ásetningnum um að halda uppi sjálfstæðu þjóðfélagi á 103 þús. fekólómetra Iandi. Til þess að nýta landið og fá fram eðlilega samkeppni, þarf að vera öflug byggð f öllum lands- hlutum, en þar með er ekki sagt, að byggja þurfi útnes og afdali, frekar en þurft hefur að byggja miðju landsins og annað hálendi, tilþess að allt byggilegt land væri í byggð. Aðstæðurnar hafa aðeins breyst. Sumt það, sem áður var kallað byggilegt, erþað ekki leng- ur miðað við nútíma kröfur og þægindi. Því fyrr sem skilningur á þessari staðreynd eykst.þvi fyrr verða byggðamálin tekin raun- hæfum tökum á Iandi hér. En að fleiru ber að hyggja. Við lifum í vályndri veröld og á kenjóttu landi. Aldrei hefur verið talið hyggilegt að láta öll eða nær öli sín egg í eina körfu. Á þennan hátt skapar ör stækkun Reykja- vikur og nágrennis þjóðfélaginu einnig ákveðna hættu. Eru örlög Vestmannaeyja nærtækasta dæm- ið þar um. Eldfjallasvæði landsins liggur fyrst og fremst frá suðvestri og suðri til norðausturs. Sjálf Reykjavík liggur að vísu rétt utan við þetta svæði, en ekki er þaðan langt í Hafnarfjarðarhraun eða Rauðhólana. Af þessum ástæðum gæti verið varlegra að byggja meira tii norðurs, en minna á hraunum og í lægðum, sem liggja frá gömlum eldstöðvum. Jarðskjálftar eru önnur hætta, sem varla hefur verið gefinn gaumur sem skyldi. Mjög erfitt mun að átta sig á, um hve mikla hættu er að ræða i þessu sam- bandi, auk þess sem staðbundin atriði geta ráðið miklu i hverju tilviki. Ljóst mun þó, að á Vest- fjörðum og á Austfjörðum er þessi hætta langminnst hérlendis, en liklega mest fyrir miðju Norð- urlandi og á Suðsuðvesturlandi. Akureyri er þó utan við mesta áhættusvæðið og Reykjavík væntanlega líka. En í þessum ef n- um hefur áhætta þjóðarinnar aukist, þar sem mjög hefur fjölg- að á hættumeiri svæðum, en fækkað á hinum. Eitt af því, sem mælir með stórvirkjunum á Austurlandi og uppbyggingu iðn- aðar og þéttbýlis í þvi sambandi, er einmitt dreifing jarðskjálfta- áhættunnar. Fleirí sérstakar hættur geta steðjað að, svo sem styrjaldar- átök, sem mæla með dreifingu byggðar. En ný stórstyrjöld yrði mannkyni ef til vill slik ragnar- rök, að ekki þyrfti um að binda. Vaxtarskilyrði landshlutanna. Akureyri er einni staðurinn utan höfuðborgarsvæðisins, sem hefur fjölbreytt atvinnulíf og þjónustu. Þar hefur verið lagður margvíslegur starfsgrundvöllur, svo sem með léttum iðnaði, sem auðvelt er að bæta við, ef fólkinu fjölgar og önnur aðstaða batnar. Þróunin þarna stefnir í rétta átt, en fólksfjölgunin á Akureyri og í nærliggjandi héruðum er of hæg, til þess að verulegt mótvægi skap- ist á móti Suðvesturlandi. Áþessu þyrfti vissulega að verða breyt- ing, og hefur þótt einna líklegast tilárangurs að efnatil stóriðjuá. svæðinu og þá helst f nágrenni Akureyrar, til þess að aðalkjarn- inn geti náð hagkvæmnisstærð lít- illar borgar. Þróun orkumála á Norðurlandi síðustu misserin eyk- ur ekki bjartsýni i þessum efnum. Langlinur frá Þjórsá og siðan hugsanlega frá Austurlandi geta aldrei að fullu veitt sama öryggi og orkuver i nærsveitum. Þó er vel hugsanlegt að tengja þetta allt saman og hefja stóriðju. Mundi það mjög stuðla að því, að hægt yrði að efla svo Akureyri og styrkja nágrannahéruðin, að þar yrði einn helsti vaxtarpunktur þjóðfélagsins. Á miðhluta Norð- urlands, frá Skagafirði að Skjálf- anda, búa nú samtals yfir 25 þús. manns. Ef Akureyri næði 30 þús. fbúa markinu og aðrir bæir i nágrenninu efldust um leið, gæti heildarmannfjöldinn þama náð um 50 þúsundum um aldamót. Austurlandi svipar á margan hátt tii Vestfjarða, og þróunín i þessum landshlutum hefur orðið lík fram til þessa, en þó er veiga- mikill mismunur aðstæðna á nokkrum sviðum, sem kann að skipta miklu í framtíðinni. Fljótsdalshérað er mjög aðlað- andi landsvæði og gott til búsetu. Þar eru Egilsstaðir í örum vexti, enda eru þeir samgöngumiðstöð fjarðanna á landi og fyrir flutn- inga í lofti. Opnun hringvegarins mun hafa sérstaka þýðingu fyrir Austur- land. Allir flutningar til og frá Reykjavik verða mun auðveldari og þessi landshluti kemst í þjóð- braut sem aldrei fyrr. Að vísu þyrfti að krækja fyrir Lónsheiði Og fleiri vegabætur þarf að gera, sem væntanlega fylgja í kjölfar Framhald á bls. 27.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.