Morgunblaðið - 01.03.1974, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.03.1974, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974 Umfangsmikil björgunar- störf yamarliðsins í GÆR var á dagskrá í sameinuðu þingi fvrirspurn frá Stefáni Gunnlaugssyni (A) til utanríkis- ráðherra um björgunarstarfsemi varnarliðsins á Keflavíkurflug- vellL Verður svar ráðherrans við fyrirspurninni birt hér á eftir í heild. Stefán Gunnlaugsson lagði á það áhverzlu, að tímabært væri að athuga vandlega, hvaða starf varnariiðið hefði lagt af mörkum í björgunarmálum, ef sú væri raunin. að varnarliðið færi úr landinu bráðlega, því að þeim þætti yrðum við isiendingar að bæta á okkur. Ráðherra sagði, að þetta væri fyrst og fremst fjárhagsleg spurn- ing og ef hafa ætti sams konar rekstur í björgunarmálum og nú væri á Keflavíkurflugvel 1L væri enginn vafi á því, að um mjög háar fjárhæðir væri að ræða. Fyrirspurnir Stefáns Gunnlaugssonar voru svohljóð- andi: 1. Hve margar flugvélar og þyrlur og af hvaða gerðum og hvaða önn- ur tæki notar varnarliðið á Kefla- víkurflugvelli við björgunar- storf? 2. Hve mikinn mannafla notar varnarliðið beint eða óbeint við björgunarstörf? 3. Hve oft hefur björgunarsveit varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli og aðrar deildir þess látið í té aðstoð við fólk í nauðum statt að beiðni opinberra aðila íslenskra á árinu 1973? Hvemig flokkast þessi aðstoð eftir tegundum neyðartilfella? 4. Telur ráðherrann nokkuð því til fyrirstöðu, að íslendingar gætu tekið þessa björgunarstarfsemi að sér? Einar Ágústsson utanríkisráð- herra svaraði: „Svarið við fyrstu spurning- unni er: 1 björgunarsveit varnar- liðsins eru 3 flugvélar af Herkúlesgerð og 3 stórar þyrlur af HH 103 E- gerð. Þessi flugvéla- kostur er svo aukinn með öðrum flugvélumfrá varnarliðinu, þegar sérstaklega stendur á, t.d. þegar umfangsmikíi leit á stóru svæði stendur yfir. Auk alls konar tækja og viðleguútbúnaðar svo sem klifurbúnaðar, sem tíðkast hjá björgunarsveitum, má nefna talstöðvar, snjóbelta-, vatna- og fjal labifreiðir. Önnur spurning fjallar um mannaflann. Svarið við henni er: Varnarliðið hefur jafnan til taks 45 æfða þyrluflugmenn og 94 flugmenn fyrir Herkúlesvélarnar. 53 þessara manna eru eingöngu við störf hjá björgunarsveitinni á vöktum, en hinir eru til vara. Landgöngulið flotans, 125 menn, er þjálfað til björgunarstarfa á landi og kallað út þegar á þarf að halda svo og læknar og hjúkrun- arlið. Auk þessa má nefna þá menn, sem annast viðgerðir, eftir- lit og þjónustu við flugvélar, bif reiðar og tækjakost. Þriðja spurningin er um það, hve oft björgunarsveit varnarliðs- ins hafi verið beðin um aðstoð á árinu 1973 og hvernig flokkast þessi aðstoð eftir tegundum neyðartilfella? í sambandi við þessa spurningu var leitað til Slysavarnafélags íslands og hef- ur borist þaðan skýrsla um þá aðstoð, sem varnarliðið hefur lát- ið í té frá því að þyrlurnar HIl 3 E komu hingað til lands seint á ár- inu 1971. Þar kemur fram m.a., að á árinu 1972 hefur Slysavarna- félagið leitað alls 23 sinnum til varnarliðsins um aðstoð, en skýrslan greinir aðeins frá þeim þáttum, er snerta samstarf félags- ins við varnarliðið. Ég tel þó ekki ástæðu til að fara nánar út í þessa aðstoð, þar sem í fyrirspurninni er talað um aðstoð á árinu 1973, en þá eru aðstoðarbeiðnir Slysa- varnafélagsins alls 20 og eru eins og hér greinir: Þann 22. jan. kl. rúmlega 6 um kvöldið óskaði S.O.R. varnarliðs- ins þess, að S.V.F.l. skipulegði leit báta norður af Garðskaga, þar sem herþotan nauðlenti á sjónum í aðflugi og væri flugmannsins saknað. S.V.F.I. varð við þeirri beiðni og undir miðnætti fannst ýmislegt brak úr vélinni, er sann- aði örlög vélar og flugmanns. 23. jan., Ieit haldið áfram á Faxaflóa af þyrlum varnarliðsins og bátum frá Akranesi. Kl. um 2 var S.V.F.I. tilkynnt um eldsumbrotin í Vestmannaeyjum. Var þá þegar haft samband við yfirmenn varnarliðsiris og þess óskað, að frekari leit á Faxaflóasvæði yrði hætt, en þyrlur og þær flugvélari, er gætu lent í Vestmannaeyjum, yrðu þegar hafðar til reiðu vegna fólksflutninga frá Vestmannaeyj- um. Var þegar orðið við þeirri beiðni og þar með hófst hinn ómetanlegi þáttur varnarliðsins við hjálp og aðstoð í Vestmanna- eyjum. 2. febrúar: Leitar- og björgunarflugvél af Herkúles- gerð tók þátt í leit að vélbátnum Maríu RE 84 með fjögurra manna áhöfn, er farist hafði í róðri kvöldið áður, án þess að nokkurt neyðarkall heyrðist frá bátnum. Þyrlur varnarliðsins voru hafðar til reiðu, ef á þyrfti að halda. 11. til 21. febrúar: Alla þessa daga stóð yfir ein umfangsmesta leit f sögu SVFÍ og jafnframt erfiðasta, en ILfebrúar fórst Sjö- niÞinci stjarnan KE 8 á leið frá Færeyj- um til Islands. Tíu manna áhöfn komst í tvo gúmmíbáta. Leitar- og björgunarflugvélar af Herkúles- gerð fóru tíu leitarleiðangra. Flugtími þeirra samtals 64,5 klukkustundir og Ieitarsvæðið 16.500 fersjómilur. 27. febrúar um kvöldið óskaði SVFl eftir sjúkraflugi til Ölafsvíkur, vegna veikrar konu, er þurfti að koma í sjúkrahús. Þyrla varnarliðsins var þegar send áleiðis, en varð frá að hverfa vegna dimmviðris og snjókomu á utanverðu Snæfells- nesi. I. marz: Þyrla varnarliðsins leiðaði innanverðan Faxaflóa um Snæfellsnes að vélbátnum Islend- ingi HU 16, tveggja manna áhöfn, sem farið hafði frá Reykjavík daginn áður áleiðis til Hvamms- tanga og ekkert frekar af ferðum hans frést, sömuleiðis leitaði Herkúlesvél ádjúpslóðum. II. mars sótti þyrla varnarliðs- ins alvarlega slasaðan íslenskan sjómann til Stykkishólms, en flugbrautin þar var ófær vegna aurbleytu. Herkúlesvél aðstoðaði við sjúkraflug þyrlunnar. 27. mars aðstoðuðu þyrlur frá varnarliðinu við leit að Beach- Craft flugvélinni TF Vor, er týnst hafði á leið frá Akureyri til Reykjav'íkur með 5 mönnum. Þyrlan flutti lík mannanna til Reykjavíkur, auk þess flutti þyrl- an rannsóknarnefnd slyssins að flaki flugvélarinnar. 6. apríl sótti þyrla varnarliðsins fárveika konu að Staðarfelli í Döl- um og flutti hana til Reykjavíkur, þar sem hún var lögð á sjúkrahús. 29. maí sótti þyrla varnarliðsins hermann til Akraness, er slasast hafði í umferðarslysi. 19. júlí aðstoðaði þyrla varnar- liðsins við að losa eins hreyfils flugvél úr sandbleytu á Skeiðar- ársandi og lenti þar með tvo erlenda jarðfræðinga, fylgdi þyrlan vélinni til Reykjavíkur. 15. júli. Þyrla frá varnarliðinu ásamt Herkúlesvél aðstoðuðu við leit að lítilli flugvél af gerðinni Moony 21 FF-REA, er týnst hafði á leiðinni frá Reykjavík til Þórs- hafnar með fjórum um borð. 18. júlí flutti þyrla varnarliðs- ins slasaðan mann, er fallið hafði af hestbaki og hálsbrotnað, frá bænum Hátúnum í Skriðdal til Egilsstaða, þar sem áætlunarflug- vél beið mannsins og flutti á sjúkrahús í Reykjavík. 27. júlí sótti þyrla varnarliðsins fárveikan botnlangasjúkling um borð í m.s. Goðafoss, er staddur var um 150 sjómílur suðvestur af Garðskaga á leið frá Bandaríkjun- um til Islands og flutti hann á spítala íReykjavík, þar sem hann var samstundis skorinn upp. Leitar- og björgunarflugvél af Herkúlesgerð var send á vettvang til að staðsetja og fylgjast með ferðum skipsins og gegndi jafn- framt hlutverki radíóvita eins og jafnan í slíkum ferðum til að auð- velda flug þyrlunnar á meðan á sjúkrafluginu stóð. 3. ágúst sótti þyrla varnarliðs- ins fársjúkan, pólskan sjómann af verksmiðjutogaranum Víbró, er var um 90 sjómílur suður af Reykjanesi og flutti hann til Reykjavíkur, þar sem hann var lagður á sjúkrahús. Herkúlesvél aðstoðaði og fylgdist með þyrl- unni meðan á fluginu stóð. 8. ágúst sótti þyrla varnarliðs- ins fjóra menn, þar af þrjá slasaða, og flutti þá til Reykjavík- ur. Eins hreyfils flugvél af gerð- inni Cessna 177 TF-BKA hafði hlekkst á í flugtaki á flugbraut- inni að Skálmanesi á Barða- strönd. 25. ágúst bjargaði þyrla varnar- liðsins dönskum flugmanni af Cessna 310 vél, er nauðlenti á sjónum í aðflugi á Keflavíkur- flugvöll. 13 mínútum eftir að flug- vélin lenti á sjónum var flug- manninum bjargað af þyrlunni. 26. til 27. ágúst leitaði þyrla frá varnarliðinu ásamt froskmönnum úr björgunarsveitinni að íslensk- um kafara, er fenginn var til að staðsetja flak flugvélarinnar, er nauðlenti ásjónum daginn áður. 28. ágúst sótti þyrla varnarliðs- ins móður og nýfætt barn til Hafnar í Hornafirði og flutti þau til Reykjavíkur, þar sem bæði voru lögð á fæðingardeildina. Móðirin hafði misst mikið blóð við fæðinguna og íslenskur læknir Framhald á bls. 43 Ellert B. Schram um olíuskattinn: Óútfyllt ávlsun á reikn- ing skattborgaranna FRUMVARP til álagningar sér- staks gjalds til að draga úr áhrif- um olíuverðhækkana var á mið- vikudag afgreitt sem lög frá Alþingi. Felur það í sér álagn- ingu 1% gjalds á söluskattsstofn, og er gert ráð fyrir, að þannig verði unnt að afla ríkisstjóði tekna, sem nema um 700 milljón- um á ársgrundvelli. Samkvæmt 2. grein laganna er svo gert ráð fyr- ir, að tekjum af gjaldi þessu verði ráðslafað samkvæmt sérstökum iögum, og verður frumvarp þess efnis væntanlega lagt fyrir Al- þingi í næsta mánuði. Hér er um að ræða framleng- ingu á öðru prósentustiginu á söluskattsstofninn, sem lagður var á með lögum um Viðlagasjóð frá síðasta ári. Á þriðjudag var hins vegar framlengt hitt pró- sentustigið, sem áfram rennur til Viðlagasjóðs. Þótt umrætt frumvarp hafi ver- ið lagt fyrir Alþingi af ríkis- stjórninni, að höfðu samráði við alla þingflokka, þá spunnust um það talsverðar umræður f neðri deild. Aðeins einn þingmaður, Ellert Schram, greiddi þó frum- varpinu mótatkvæði, og var því sfðan vfsað til efri deildar. Efri deikl afgreiddi svo frumvarpið eftir þrjár umræður með því að afbrigði voru veitt. Formaður fjáhags- og viðskipta- nefndar, Vilhjálmur Hjálmars- son (F) geri grein fyrir meðferð fruriívarpsins í nefndinni og sagði, að það hefði náðst sam- komulag um efni þess. Einstakir nefndarmenn hefðu þóundirritað með fyrirvara. Ingólfur Jónsson (S) sagði, að þeir í minnihluta nefndarinnar hefðu undirritað með fyrirvara, þar sem ekki hefði legið ljóst fyr- ir, á hvern hátt hefði átt að ráð- stafa þessum gjöldum. Það hefði hins vegar verið ljóst, að hér væri um svo vandasamt verk að ræða, að ekki hefði unnizt timi til að Ijúka því fyrir mánaðamót, en nauðsyn hefði borið til, að unnt yrði að heimta gjöldin frá því tímamarki. Varpaði Ingólfur þeirri spurn- ingu til viðskiptaráðherra, hvort ekki væri að hans mati opin leið til að ákvarða niðurgreiðslur til atvinnuhúsnæðis jafnt sem íbúð- arhúsnæðis, þótt í þessu frum- varpi væri aðeins gert ráð fyrir því síðarnefnda, þegar frumvarp um ráðstöfun gjaldsins yrði lagt fyrir Alþingi. Það hlyti að liggja i augum uppi, að til þess lægi ámóta nauðsyn. Lúðvfk Jösepsson viðskiptaráð- herra sagði, að með samþykkt þessa frumvarps væri ekki á neinn hátt komið i veg fyrir, að unnt væri að ákvarða nánar um ráðstöfun fjárins, þegar frumvarp þess efnis yrði lagt fyrir þingið. Með því að samþykkja þetta frum- varp nú fyrir mánaðamótin myndi vinnast tími til að athuga þessi mál nánar. Ellert B. Schram (S) kvaðst álíta, að þetta mál væri enn eitt dæmið um það, að ríkisstjórnin megnaði engan veginn að halda um stjórntaumana. Átaldi Ellert síðan stjórnarandstöðuna harð- lega fyrir stöðu hennar I þessu máli. Hér væri aðeins um það að ræða, að Alþingi ætlaði að af- henda þessari óráðsíuríkisstjórn óútfyllta ávísun á reikning skatt- borgaranna, sem hún gæti síðan ráðstafað að eigin geðþótta. Lík- legast væri, að hér ætti að fara að koma á nýju styrkjakerfi, a.m.k. þyrftu sjálfstæðismenn ekki að reikna með að verða hafðir með í ráðum um ráðstöfun gjaldsins, ekki þyrfti nema Bjarna Guðna- son eða Alþýðuflokkinn til að þessu gjaldi yrði ráðstafað í al- gjörri óþökk sjálfstæðismanna. Hér væri um það að ræða, að rfkisstjórnin væri að skáskjóta málum i gegnum þingið með dyggri aðstoð stjórnarandstöð- unnar. Ekki lægi neitt fyrir um það, hvernig þessum málum yrði varið í heild, heldur væri bara komið með 1% hækkun á sölu- skattsstofn í dag og væntanlega 5% hækkun á mánudag. Hér væri hreinlega verið að snúa á stjórnarandstöðuna. Hún væri lát- in taka inn nýjar skattlagningar I smá skömmtum, og teldi hann það sizt við hæfi stjórnarandstöðunn- ar að stuðla að framgangi nýrrar skattlagningar. Vissulega væri hér um að ræða vanda, sem þyrfti að lesya. Það væri þó skýlaust álit sitt, að hann mætti leysa innan ramma tekju- öflunar ríkisins, sem markaður hefði verið með í fjárlögum. Lúð- vík Jósepsson sagði, að aðdrag- andi þessa máls hefði verið sá, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði sent ríkisstjórninni bréf í endaðan janúar, þar sem skorað hefði ver- ið á hana að leggja fram tillögur um ráðstafanir vegna hækkunar oliuverðs til að koma í veg fyrir aðstöðumun þeirra, sem nota olíu til húsahitunar og annarra. Þetta hefði ríkisstjórnin gert, og hefðu stjórnarandstöðuflokkarnir talið þann kostinn vænstan, sem greindi í frumvarpinu. Varðandi það, hvort aðeins ætti að vera um að ræða jöfnun aðstöðumunar til hitunar íbúðarhúsnæðis sagði ráðherrann það sína skoðun, að niðurgreiðslur ættu ekki að ná til atvinnuhúsnæðis. Pétur Sigurðsson (S) átaldi þá ákvörðun að ætla að afgreiða þetta mál fyrr en ljóst væri, hvernig gjaldinu yrðí ráðstafað. Þá kvaðst hann vilja benda á, að I desember hefðu verið gerðir samningar við ríkisstarfsmenn, þar sem tekið hefði verið tillit til þess uggvænlega ástands, sem þá hefði verið i orkumálum heims. Nú hefðu hins vegar verið gerðir samningar við aðra launþega, og hefði þar ekki í neinu verið tekið tillit til slíks ástands. Enda liti nú allt út fyrir, að úr þvi væri að rætast. Loks beindi þingmaðurinn þeim tilmælum til ráðherra, að athugaðir yrðu möguleikar á hag- stæðari samningum um olíukaup. Bjarni Guðnason (Ff) sagði sina afstöðu, eins og margra ann- arra þingmanna mótast af því, hvernig ráðstöfun fjárins yrði hagað. Kvaðst hann telja, að hag- stæðast yrði að afhenda olíufélög- unum gjaldið og halda þannig i við olíuverð. Með því móti yrði komið i veg fyrir, að um þessar niðurgreiðslur hlæðist skrifstofu- bákn, sem hefði í för með sér mikinn kostnað. Gunnar Thoroddsen (S) sagði það rétt, að fyrir réttum fjórum vikum hefði þingflokkur Sjálf- stæðisflokksins sent ríkisstjórn- inni bréf, þar sem farið hefðí ver- ið fram á, að úrbætur yrðu gerðar á þvi vandamáli, sem sýnt hefði verið að skapaðist vegna hækkuri- ar olíuverðs. I því bréfi hefði einnig verið bent á þann mun á aðstöðu, sem skapaðist fyrir at- vinnurekstur í þessu sambandi. Ríkisstjórnin hefði siðan haft samráð við hann og formann Al- þýðuflokksins, Gylfa Þ. Gíslason, um þessar ráðstafanir, sem þeir hefðu talið æskilegri heldur en að hækka útsvör, sem einnig hefði verið um að velja. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins stæði þvi að samþykkt þessa frumvarps, en að sjálfstögðu áskildu einstakir þing- menn sér rétt til að láta i ljós öndverða skoðun í þessu máli sem öðrum. Loks sagði Gunnar, að þar sem samkvæmt þessu frumvarpi væri gert ráð fyrir, að ráðstöfun gjalds- ins yrði ákveðin síðar, hefði hann talið eðlilegra, að ekki væri kveð- ið neitt á um, til hverra nota ætti að verja gjaldinu, þ.e.a.s. að fella hefði átt niður orðin „til ibúðar- húsa“ í frumvarpinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.