Morgunblaðið - 01.03.1974, Side 39

Morgunblaðið - 01.03.1974, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974 39 EDSE- ANNA FRAMHALDSSAGA EFTIR MAJ SJÖWALL OG PER WAHLOÖ' JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR ÞÝDDI 44 aftur. Og þar kemur þú til sög- unnar. Ef þú vilt og heldur, að þú ráðir við það auðvitað. Þú átt að verða hans næsta fórnardýr. — Ósköp hljómar það notalega, sagði Sonja Hansson og dró síga- rettu upp úr pússi sinu. — Þú ert svipuð Roseönnu í hátt og við ætlum að biðja þig að leika agnið. Það verður að gerast á eftirfarandi hátt: Ilann er skrif- stofustjóri í vöruflutningafyrir- tæki. Þú ferð þangað og pantar flutningabíl, daðrar dálitið við hann og sérð til þess að hann fær heimilisfang þitt og símanúmer. Þú reynir að vekja áhuga hans. Og svo getum við bara vonað. — Þú hefur haft hann í yfir- heyrslu? Er hann ekkert tortrygg- inn? — Við höfum sent frá okkur tilkynningu, sem sennilega róar hann. — Eg á sem sagt að fleka hann. Og hvernig á ég að fara að því? Og ef það nú tekst? — Þá skaltu ekki vera hrædd. Við verðum alltaf á næstu grös- um. En þú verður að setja þig vel inn í málið fyrst. Lesa allar skýrslur um Roseönnu málið. Það er áríðandi. Þú verður að vera Roseanna McGraw. Líkjast henni — á ég við. — Ég lék að vísu i skólaleikrit- um í gamla daga, en þau afrek hafa ekki verið skráð á spjöld sögunnar .. . — Við skulum nú sjá til með þetta. Martin þagði augnablik. Svo sagði hann. — Þetta er eina ráðið, sem við höfum. Hann verður að fá ein- hverja hvatningu, og hana verð- um við að gefa honum. — Allt i lagi. Eg reyni. Eg vona að ég geti staðið mig. En auðvelt verður þetta ekki. — Fyrst skaltu fara í gegnum allar skýrslurnar, bréfin, skeytin og skoða allar myndirnar. Svo töl- um við aftur saman. — Núna? — Já. í dag. Hammar mun sjá um að þú fáir leyfi frá störfum þínum á Bergsstöðinni. Við verð- umlíka að skreppa heim tilþín og skoða aðstæður. Auk þess verðum við að láta smiða aukalykla. Hitt kemur svo smátt og smátt. Tíu minútum síðar kvaddi hann hana, þar sem hún sat inni á skrif- stofunni með þeim Kolberg og Melander og var að byrja að fara i gegnum skýrslurnar. Seinna um daginn kom Alil- berg. Hann hafði rétt tyllt sér niður þegar Kolberg kom þjótandi inn. — Ahlberg fer heim á morgun aftur, sagði Martin. — Hann ætti að fá að sjá Bengtsson áður en hann fer. — Það verður að gerast mjög gætilega, sagði Kolberg. — Hann þekkir mig nú ekki, hvernig sem á allt er litið, sagði Ahlberg. — Við skulum koma strax, sagði Kolberg. Það er ys og þys alls staðar. Eg sé ekki betur en allir höfuðborgarbúarnir séu í jólagjafakaupum. Ahlberg klóraði sér í höfðinu. — Æ, já, jólagjafirnar. Þeim hafði ég alveg gleymt. — Ég lika, sagði Martin. — Það er að segja, ég man eftir þeim öðru hverju, en meira er það nú ekki. Umferðin var skelfileg. Klukkuna vantaði tvær mínútur í fimm, þegar þeir hleyptu Ahlberg út úr bílnum á Norrmalmstorgi og sáu hann hverfa i fjöldánn. Kolberg og Martin biðu úti fyrir Berns.Tuttugu og fimm minútum síðar kom Ahlberg. Hann klifraði inn í aftursætið og sagði: — Víst er þetta maðurinn frá kvikmyndinni. Hann tók vagn númer fimmtíu og sex. — Með honum fer hann upp á St. Erikstorg. Þar kaupir hann mjólk, smjör og brauð og fer svo heim. Borðar, glápir á sjónvarpið og svo fer hann að hátta, sagði Kolberg. — Hvar viljið þið fara út? — Hérna. Kannski við drífum okkur í jólagjafirnar, sagði Mart- in. Daginn eftir hitti Ahlberg konuna, sem átti að veiða Bengts- son. Hún hafði aðeins komizt í gegnum hluta af öllum skýrslun- um. Um kvöldið hélt Ahlberg heim til Motala. 27. kafli. Þetta urðu rauð jól. Maðurinn sem hét Folke Bengtsson dvaldi hjá móður sinni í Södertálje yfír jólin. Martin Beck hugsaði til hans sýknt og heilagt, meira að segja meðan hann var að hlusta á jólaguðsþjónustuna í útvarpinu. Kolberg át yfir sig og lá i þrjá daga á sjúkrahúsi. Ahlberg hringdi á öðrum í jól- um, kófdrukkinn. Blöðin birtu nokkrar til- kynningar, þar sem gefið var í skyn, að bandariska lögreglan VELVAKAIMOI Velvakandi svarar í sima 10-100 kl. 1 0.30 — 1 1 30, frá mánudegi til föstudags. % Verkföllin Guðný Gilsdóttir skrifar: „Nýlega var tekið svo til orða í útvarpsfrétt, að verkfall það, sem nú er nýlokið, hafi verið með þeim stærstu, er verið hafa. Eigi veit ég það, en of stórt var það og hörmung til þess að vita, að því, sem Drottinn gefur úr djúpinu, skuli vera fleygt í það aftur eða eyðilagt á annan hátt. Sumarið 1921 var togáraflotinn bundinn allt sumarið. Það kom sér illa fyrir þá, sem voru að Iosna úr skóla eftir langt nám, áttu skuldir og ekkert annað, nema kannski konu og krakka. Ekki var sá tími betri en þessi. Þegar síðustu togararnir komu inn um vorið var verkfallið skollið á, og var reynt að fá sjálfboðaliða til að hjálpa til við losun. Það tókst, og þekkti ég tvær húsfreyjur, sem tóku þátt í því starfi. En hvers vegna þessi heimsku- legu verkföll, sem alltaf gefa minna af sér en það, sem nemur þeirri verðhækkun, sem á eftir kemur. Geta vinnuveitendur ekki lagt spilin á borðið og sýnt verkalýðn- um það svart á hvitu ef halla- rekstur er? Ég tel, að það bæri góðan árangur. % Móðurmálið Ekki finnst mér nógu vel vand- að orðfæri okkar elskulega móðurmáls. Hví í ósköpunum að vera að innleiða enskar setning- ar? Hafa Bretar til þess unnið með aðförum sínum við strendur land- ins, að við virðum þá þess? ,,Ég mundi segja" er setning, sem si og æ er tönnlazt á. Þetta er þó bæði lengra og óákveðnara en ef sagt væri: „Ég tel", „ég held", „ég vil“ eða annað, sem tungan á betra. Sama er að segja um þetta danska „síðan", — er ekki nóg að segja fyrir mörgum árum, vikum eða mánuðum? Þetta „síðan" er aðeins málalenging og málvilla. Þetta og ýmislegt fleira heyrist daglega í útvarpserindum, en þar er mest áríðandi, að vandað sé málfarið. Efnisvalið þyrfti líka að vanda betur. Mér og fleiri hefur oft blöskrað að heyra þann ófögnuð, sem okkur er boðið að hlusta á. Leikrit á borð við „Opnar dyr“ vil ég taka sem dæmi. Aðalefnið var drykkjuskapur og kvennafar. Við fullorðna fólkið getum lokað og gerum það, en gera unglingarnir það? Ætli þeir hugsi ekki sem svo — a.m.k. sumir hverjir — að svona sé lífið? 0 Kvöldbænir Hvílikur mismunur á því and- rúmslofti, sem börn og unglingar alast upp í nú og þvi, sem var fyrir 60—70 árum. Þá var siðalær- dómur Helga Hálfdanarsonar kenndur fyrir fermingu og í heiðri hafður af ungum sem öldruðum. Nú spyr ég: Gerir útvarpsráð sér grein fyrir þeirri ábyrgð, sem hvílir á þeim, sem efnisvali ráða? Auðvitað ber útvarpsráð alla ábyrgðina á gjörðum þjóna sinna. Ef vel væri á haldið gætu útvarp og sjónvarp verið mestu og beztu menningartæki þjóðarinnar. Fyrir mörgum árum, já áratug- um, var beðið um kvöldbæn í út- varpi. Þær óskir hafa verið endur- teknar síðan, en það hefur verið árangurslaust. Vestmannaeyingar fengu þessu þó til leiðar komið, og stóðu vonir til, að áframhald yrði á því, en sú von brást. % Þarfasti þjónninn Nú er um það talað að vernda fornar minjar, enskiptarskoðanir um það, hvað vernda skuli. Mér verður hugsað til þess, er ég geng um gatnamót Hverfisgötu og Laugavegar, hvort nokkur þjóð önnur sýni liðna timanum svo mikla vanvirðu sem við gerum. Á þessum stað svöluðu þreyttir og þyrstir hestar þorsta sínum eftir löng og erfið ferðalög. Vatnsþróin var brotin niður og sjoppa sett I staðinn — ein unglingatálbeitan í viðbót. Hefði það ekki verið verðug viðurkenning við þarfasta þjón- inn að hafa þarna fallega styttu af hesti með pósttöskur. Hesturinn vann sitt verk með prýði þar til bíllinn leysti hann af — kom manni og pósti á leiðarenda og sat aldrei fastur í fönninni. Með beztu kveðjum til þeirra, er þessar linur lesa. Guðný Gilsdóttir." % Grasköggla- framleiðsla Stefán Sigfússon, sem er frarn- kvæmdastjóri fyrir búrekstrinum í Gunnarsholti, hringdi vegna greinar, sem birtist sl. þriðjudag og fjallaði um graskögglagerð. Vildi Stefán leiðrétta það, sem þar kom fram, þ.e.a.s. að gras- kögglaframleiðsla væri nýlunda hér á landi og ennfrem.ur það, að þar hefðu Brautarholtsbræður verið brautryðjendur. Stefán benti á það, að graskögglar hefðu fyrst verið framleiddir hér árið 1964 og hefði það verið í Gunnarsholti. Síðan hefði verið farið að framleiða kögglana á Stórólfsvallarbúinu árið 1971, og árið 1972 hefði verið farið að búa þá til i Brautarholti. Framleiðsla grasmjöls hefði verið undanfari kögglafram- leiðslu. Brautryðjandi á því sviði var Klemenz á Sámsstöðum, en hann byrjaði að framleiða gras- mjölið árið 1948. Síðan var farið að framleiða grasmjöl á Stórólfs- vallarbúinu árið 1962, 1963 í Brautarholti og í Gunnarsholti árið 1964. % Um daginn og veginn Rósa B. Blöndal skáldkona talaði úm daginn og veginn í út- varpinu sl. mánudag, og hefur Velvakandi verið beðinn fyrir þakkir nokkurra lesenda til henn- ar fvrir erindið. Kona á Akranesi hringdi og vildi lýsa ánægju sinni með mál Rósu. Hún sagði, að langt væri síðan mælt hefði verið af svo mikilli einurð og festu i þættin- um, en sérstaklega vildi hún þakka Rósu fyrir orð hennar um fóstureyðingafrumvarpið. Það hefðu verið tímabær orð, og ósk- andi, að fleiri yrðu til að taka i sama streng. Þá hringdi Margrét Jónsdóttir og óskaði hún þess, að Mbl. fengi erindi Rósu til birtingar. Þess er að geta, að útvarpserindi eru ekki birt í Mbl. nema í undantekn- ingartilfellum, og þá helzt þegar einhver eftirmáli hefur orðið. Maður, sem vildi ekki láta nafns getið, en sagðist vera at- vinnurekandi suður með sjó, vildi einnig koma þakklæti sínu á framfæri og sagði Rósu áreiðan- lega hafa mælt fyrir munn margra, sérstaklega um varnar- málin. Hann lét þess getið í leið- inni, að hann hefði gengið um með lista fyrir „Varið land“ og hefði allt starfsfólk sitt skrifað undir. Meira að segja hefði sumt þeirra komið að máli við sig að fyrra bragði og spurt, hvort hann gæti ekki útvegað eyðublöð til að skrifa á. B33 SIG6A V/öGpt £ ‘ÍILVERAW — Frjálslyndi... Framhald af bls. 20 stofnaður og farinn að safna til sín nokkuð af þeim atkvæðum, sem áður höfðu óskert farið til Frjálslyndaflokksins. Árið 1910 missti Frjálslyndi flokkurinn umtalsvert fylgi, — en hélt þó valdaaðstöðu sinni. Arið 1915 var Asquith lávarður í forystu fyrir samsteypustjórn, en árið eftir varð ágreiningur milli arma i flokknum, Asquith lávarðar annars vegar og Lloyd George hins vegar. Sá síðar- nefndi varð svo forsætisráð- herra í samsteypustjórn, sem studdist mjög við íhaldsflokk- inn. Enn molnaði af flokknum í ágreiningi, sem reis upp árið 1931 vegna myndunar þjóð- stjórnar James Ramsey MacDonalds og síðar Winstons Churchills árið 1945. Eftir styrjöldina fór fylgi Frjáls- lynda flokksins mjög dvínandi og í kosningunum árið 1955 fékk flokkurinn aðeins sex full- trúa kjörna í Neðri málstofuna, eða 2,7 prósent atkvæða. Siðan hefur fylgi flokksins haldið áfram að minnka, þar til áallra siðustu árum, að hann hefur verið að rétta sig við. Aldrei hefur þó straumurinn til hans verið jafn augljós og nú og virðast menn hafa trú á núver- andi leiðtoga hans, Jerome Thorpe. Verður því á allan hátt forvimilegt að sjá, hvað flokk- urinn ber úr býtum nú. Sá flokkur, sem um langa hrið var forystuflokkur í brezkum stjórnmálum, en fékk árið 1970 enn aðeins sex þingmenn kjörna. VERKSMIDJU ÚTSALA! Opin þriðjiidaga kl.2-7e.h. og föstudaga kl.2-9e.h. - A UTSOLJUNNI: Flækjulopi Vefnaöarbútar Hespulopi Bílateppabútar Flækjuband Teppabútar Endaband Teppamottur Prjónaband Reykvlkingar reynió nyju hradbrautina upp i Mosfellssveit og verzlið á útsölunni. Á ALAFOSS HF MOSFELLSSVEIT MATUR „er mannsins megin” Munið okkar vinsælu köldu boró og hinn skemmtilega „kabarett” Leigjum út sali fyrir fjölmenna og fámenna mannfagnaði. VEITINGAHÚSIÐ GUESIBÆ (Útgaröur) simi 85660

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.