Morgunblaðið - 01.03.1974, Page 42

Morgunblaðið - 01.03.1974, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974 IMTTMm MORCUniBLADSIIVS Sárlasnir Islendingar áttu enga möguleika Töpuðu 15-25 fyrir Tékkum, eftir 6-11 1 hléi Þegar Tékkarnir sáu, að íslenzka liðið var langt frá sínu bezta, settu þeir upp hraða i leiknum og í seinni hálfleiknum léku þeir mjög vél. Beztu menn liðsins voru þeir Jary og Koreny, hávaxnir leikmenn báðir tveir, en þó liðleg- ar vaxnir en margir handknatt- leiksmenn frá Austur-Evrópu. Þessir tveir leikmenn báru upp allt spil tékkneska liðsins, en miklu munaði einnig fyrir það, að markvörður þess varði mjög vel. Það sýnir vel yfirburði í leiknum, að markvörður þeirra tók þá áhættu f seinni hálfleiknum að skjóta yfir þveran völlinn og í mark Islendinganna og þar sem Ölafur Benediktsson hafði hætt sér of langt fram á völlinn tókst honum að skora. Mörk Islands í leiknum skor- uðu: Axel Axelsson 8, Einar Magnússon 2, Geir Hallsteinsson 2, Björgvin Björgvinsson 2 og Gunnsteinn Skúlason 1. Markhæstur í liði Tékkanna var Jary, sem skoraði 8 mörk. Tveimur Islendinganna, Axel Axelssyni og Herði Kristinssyni, var vísað af velli í 2. mín., og Tékkarnir misstu einnig tvo menn útaf. Queens Park sigraði SKOTLAND vann Belgíu 2—1 í leik liðanna í undankeppni EUFA-bikarkeppni unglinga í knattspyrnu, en leikur þessi var háður í Skotlandi í fyrrakvöld. Óvænt úrslit í HM Axel Axelsson — átti langbezt- an leik tslendinganna. skyttur yfir utan — Axel og Geir — og svo fjóra linumenn: Gunn- stein, Auðun, Björgvin og Sigur- berg. Þessi leikaðferð hafði gefizt nokkuð vel á móti Norðmönnum á dögunum, en gegn Tékkum brást hún gersamlega. Engin ógnun var af skyttunum og línumennirnir voru klaufalegir og ólíkir sjálfum sér. Fljótlega varð manni sú stað- reynd ljós, að íslenzka liðið átti enga möguleika — leikmennirnir höfðu hreinlega ekki þrek tilþess að leika — flensan sá um það. Um miðjan fyrri hálfleikinn náðí íslenzka liðið þó þokkalegum leikkafla og minnkaði muninn niður í tvö mörk, en síðan ekki söguna meir. Þrátt fyrir góðan stuðning líflegra áhorfenda tóku Tékkarnir aftur öll völd í leiknum og höfðu náð fimm marka forskoti í leikhléi, 11:6. Seinni hálfleikurinn var svo enn verr leikinn af íslenzka liðinu og um leið og Tékkarnir settu upp hraðann slökuðu okkar menn á. Þeir höfðu raunar ekkert úthald. Munurinn jókst smátt og smátt og í lokin varð hann tíu mörk 25:15. Það var mikill munur á þessum leik og leiknum gegn Noregi s.l. mánudagskvöld. Það var ekki til barátta í íslenzka liðinu í leikn- um, engar keyrslur á línunni og ógnun sáralítil í spili þess. í vörn- inni var nær engin hreyfing á leikmönnunum og Tékkarnir fengu ráðrúm til að gera nánast það, sem þeim sýndist. íslenzka liðinu hafði verið fyrirskipað það Vladimir Jary — skoraði átta mörk I leiknum! glæsilegum langskotum. Auðunn Öskarsson og Sigurbergur Sig- steinsson reyndu hvað þeir gátu, en máttu sín lítils.Einar Magnús- son ógnaði nokkuð í seinni hálf- leiknum og skoraði þá tvö mörk, en Tékkarnir voru fljótir að sjá við honum — komu út á móti honum f tíma og náðu að stöðva hann, áður en hann gat lyft sér. Markverðirnir Hjalti Einarsson og Ólafur Benediktsson áttu enga möguleika gegn skyttum 'Tékk- anna, sem voru hinar fjölhæfustu og skutu mikið föstum langskot- um utan frá punktalínu. Þeir, sem hvíldu í gær, voru G unnar Einarsson úrFH.Gunnar Einarsson, Haukum, Gísli Blöndal og Ólafur H. Jónsson. Þeir tveir síðastnefndu lágu i rúminu og var stranglega bannað að fara út úr húsi. Það sýnir ef til vill glögglega ástand íslenzku leikmannana. Þeir Ólafur og Gísli voru að vísu verst haldnir, en hinir voru ýmist í þann veg að ná sér aftur eftir pestina, eða að byrja að fá hana. Hver getur krafizt þess, að maður með 39 stiga hita f fyrra- dag geti leikið landsliek af fullum krafti í gær, en það mátti þó Gunnsteinn Skúlason gera. í upphafi leiksins virtust Tékk- arnir ekki ýkja sterkir, þeir fóru sér hægt, greinilega hræddir við andstæðingana. Þeir hafa ekki góða reynslu af ísienzka landslið- inu, en landinn hefur jafnan átt tiltölulega góða ieiki gegn þeim. Danir unnu — Svíar töpuðu MJÖG óvænt úrslit urðu I tveimur leikjum f lokakeppni heimsmeistarakeppninnar í handknattleik I gærkvöldi. Spánn sigraði Svfþjóð með 15 mörkum gegn 14 í miklum bar- áttuleik, þar sem Svfþjóð hafði haft betur allan fyrri hálfleik- inn og hafði tvö mörk yfir f hléi 9:7. 1 seinni hálfleik léku Spán- verjarnir hins vegar af miklum og óvæntum krafti og náðu að skora sigurmark sitt skömmu fyrir leikslok. Þá kom það ekki síður á óvart, að Danir skyldu sigra Vestur-Þjóðverja í Karl Marx Stadt. Urslit leiksins urðu 12:11 fyrir Danina, eftir gífurlega spennandi lokamfnútur. Þegar aðeins nokkrar sekúndur voru til leiksloka, var staðan jöfn 11:11, en þá var dæmt vitakast á Danina. Hinn frægi leikmað- ur Vestur-Þjóðverjanna, Hansi Schmidt, var sendur fram til þess að framkvæma vítakastið, en honum brást svo bogalistín að danski markvörðurinn hálf- greip knöttinn og gat sent hann fram á Jörgen Frandsen, sem var fljótur upp og skoraði sig- urmark Dananna. Urslit þessa leiks þýða það nánast fyrir ís- lendinga, að engir möguleikar eru á því, að þeir nái þriðja sæti í riðlinum og fái þannig að leika um 9.—12. sætið. Urslit leikja i HM í gærkvöldi urðu annars þessi: Island — Tékkóslóvakía 15—25 (11—6) V-Þýzkaland — Danniörk 11—12 Rúmenía — Pólland 18—14 (10—6) Svíþjóð — Spánn 14—15 (9—7) A-Þýzkaland —Japan 34—14 (13—9) Sovétríkin — Bandaríkin 40—11 (16—6) Júgóslavía — Búlgaría 25—17 (11—7) Ungverjaland — Alsír 30—10 (12—5) Eftir þetta fyrsta leikkvöld eru þeir Axel Axelsson og Vladimir Jary markhæstu leik- menn keppninnar, hvor um sig hefur skorað 8 mörk. Sovét- mennirnir Kuljow og Krazow hafa skorað 7 mörk. Hansi Schmidt misnotaði víta- kast á sfðustu stundu. Frá Agústi I. Jónssyni blaðamanni Mbl. f Karl Marx Stadt. Það var engin von til þess.að fárveikir leikmenn fslenzka handknatt- leikslandsliðsins næðu að ógna hinum sterku Tékkum í fyrsta leik okkar í lokakeppni heimsmeistarakeppninnar. Leiknum hlaut að Ijúka með tapi og lokatölurnar urðu 25:15 fyrir Tékka, eftir að staðan f leikhléi hafði verið 11:6. Eftir látlausa, en virðulega setningarathöfn hófst fyrsti leik- urinn, sem fram fer hér í suður- hluta Þýzka alþýðulýðveldisins, leikur Islands og Tékkóslóvakiu. Norsku dómararnir flautuðu leik- inn á og ekki voru liðnar margar mínútur þar til að tékknesku leik- mennirnir höfðu tekið forystuna. Fyrstu sóknarlotur íslenzka liðs- ins fóru í vaskínn, Sigurbergur missti knöttinn, Geir tók of mörg skref og Axel skaut framhjá. Fyrr en varði var staðan orðin 3:1 fyrir Tékka, og höfðu þeir þó verið einum færri, þar sem leikmanni frá þeim var vísað af velli í tvær mínútur, þegar í upphafi leiksins. i byrjun leiksins reyndi ís- lenzka Iiðið að leika með tvær fyrir leikinn að reyna að fara sér eins hægt og unnt væri og halda knettinum, en það tókst ekki. Til þess lék vörn Tékkanna af of miklum krafti og of framarlega. Bezti leikmaður islenzka liðsins í þessum leik var Axel Axelsson. Hann skoraði átta mörk, flest með Gunnsteinn Skúlason — með 39 stiga hita f fyrradag, lék samt landsleikinn f gær. VERÐUR RÓTARBURST? Fararstjórarnir íslenzku voru ekki betur haldnir en leikmenn- irnir í gærdag. Þannig mætti t.d. Karl Benediktsson landsliðsþjálf- ari til leiksins sárlasinn, var með rúmlega 39 stiga hita. Eftir Ieik- inn við Tékka hitti ég Jón Erlendsson að máli. Hann var að vonum niðurdreginn eftir þennan ósigur og raunir íslenzka lands- liðsins. — Þetta var lélegt, eins og við mátti reyndar búast, eftir það, sem á undan var gengið, sagði Jón, — en Tékkarnir eru góðir og Sjá og íþróttir bls. 26 geta vafalaust náð langt í keppn- inni. Um íslenzka liðið er ekki iengur spurning um handknatt- leiksgetu heldur heilsufar. Ef strákarnir verða ekki búnir að ná sér betur í kvöld fáum við rótar- burst gegn Vestur-Þjóðverjum. Það, sem ég óttast mest, er, að það kunni að h'afa alvarleg eftirköst að fara með leikmennina út í erf- iðan leik, svona illa á sig komna, en auðvitað verður maður þó að vona hið bezta. Skotland sigraði EINN leikur fór fram í ensku 1. deildar keppninni í knattspyrnu i fyrrakvöld. Queens Park Rangers sigraði Burnley 2—1. Einnig fór fram einn leikur i 2. deildar keppninni, Aston Villa og Bolton Wanderesgerðu jafntefli 1—1.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.