Morgunblaðið - 01.03.1974, Page 30

Morgunblaðið - 01.03.1974, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974 Sigurboði Þorgeirs- — Minningarorð son F. 28.7. 1956, D. 19.2. 1974. Þínir vegir eru órannsakanleg- ir, ó Drottinn: Þannig hljótum við að hugsa, þegar ungmenni í sín- um bjartasta æskublóma er hvatt á burt í skyndingu eins og blóm, sem fellur á einni frost-nóttu. Ungmennið er með hugann fullan af framtíðarvonum og draumum, sem einnig fjölskyldan hefur vænzt svo mikils af. Sigurboði Þorgeirsson var fæddur og uppal- inn i Hafnarfirði á Garðavegi 9. Þar ólst hann upp i hópi margra systkina og leikfélaga, barnanna á efri hæðinni. A samskipti þessa stóra barnahóps bar aldrei neinn skugga, þau undu glöð í skjóli bernsku og æsku, leidd af góðum og kærleiksrikum foreldrum á báðum hæðum hússins. Þess vegna er svo þungur harmur kveðinn að báðum fjölskyldunum við hið snögglega fráfall hins unga manns. Einkum sakna ung- mennin vinar i stað. Sérstaklega sendir Þórdís Sölvadóttir, ein systranna af efri hæðinni, hjart- ans kveðjur og þökk fyrir sam- verustundirnar en hún og Sigur- boði voru alveg einstaklega sam- rýnd, þótt hún væri talsvert eldri og sé nú búsett annars staðar, þá geymir hugurinn enn minningar um elskulegan ungan dreng, sem dreyminn og prúður brosti við vori og sól og leitaði trausts hjá henni, ef eitthvað var óskiljanlegt litium kolli og hún þá eins og eldri systir kom til móts til að leysa vandann. Já, heimur bernsk unnar með brosum sinum og tár- um, yndislegasta paradís mann- legs lífs. Hversu fastmótaðar eru ekki minningar þess tima í hug- um okkar og myndir vonanna. Sigurboði Þorgeirsson var dag- farsprúður, hlýlyndur piltur, sem vann sér vinsemd samferða- manna sinna, hvort sem þeir voru ungir eða aldnir. Hann hafði áhuga á íþróttum eins og margir á hans aldrei og vonaði að geta náð þar nokkrum árangri, en svo kenndi hann einhvers slappleika og eftir mjög stutta dvöl ásjúkra- húsi til rannsóknar var hann lát- inn. Drottinn kallar og við verð- um að hlýða því kalli, hvar sem við erum stödd og hvernig sem við erum stödd. Jesús segir: Sjá, í Matthildur Sveinsdóllir frá Mörk — Minning húsi föður míns hef ég búið yður stað. Já, ó þá náð að eiga Jesúm, einkavin í hverri þraut. 1 hans forsjá felum við Sigur- boða Þorgeirsson, vininn okkar kæra og biðjum hann að láta náðarljósið bjarta lýsa gegnum húmsins tjöld. Foreldrum og systkinum vottum við okkar inni- legustu samúð í þeirra stóru sorg. Fjölskyldan Garðavegi9 (uppi), Hafnarfirði. Fædd 4. nóv. 1890. Dáin 21. febr. 1974. Síminn hringdi og orðin: Hún Matta er dáin, bárust mér til eyrna. Þennan undurfagra vetrar- morgun'var ég ekki með hugann við árið 1932, en þegar þessu fyrr- nefnda samtali lauk, fór ég að hugsa um öll þau mörgu ár, er liðin eru síðan ég, þá 7 ára snój, var boðin velkomin á rausnar- heimilið Mörk á Akranesi. Sú, er það gerði, var Matta, þessi bros- hýra góða kona, sem var vinkona móður minnar, og nú naut ég þess. Ég man vel er hún sagði: „Seztu á þennan stól, þér finnst kannski gaman að sitja á þessum gamla stréstól" og svo sannarlega átti ég oft eftir að setjast á þennan stól, því að þær urðu margar heim- sóknir mínar til Möttu. Sem barn var ég ekki of dugleg að hjálpa til, en að ,,hjálpa“ Möttu í slátri, það vildi ég gera. Þær tóku mörg slátur húsmæðurnar í þá daga og það var reglulegt slát- ur, engu hent, allt varð að bezta mat í höndum þessara heiðurs- kvenna, sem bara voru húsmæð- ur, eins og sagt er i dag, en nú eru t Maðurinn minn, JÓHANN GUÐMUNDSSON, kaupmaður, Steinum, Austur-Eyjafjallahreppi, lést að heimili sínu 2 7. febrúar. t ÞURÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Stóra-Knarrarnesi, Vatnsleysuströnd, verður jarðsungin frá Kálfatjarnarkirkju, laugardaginn 2. marz kl. 2. Jónina Jónsdóttir. Börn, tengdabörn og barnabörn. t HERBERTJÓNSSON, Hveragerði, lést 25 þ m. á Sjúkrahúsinu Selfossi. Jarðsett verður frá Hveragerðis- t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við fráfall og útför, JÓHANNESAR FINNSSONAR. kirkju laugardaginn 2. marz kl. 2 e.h. Bjarnfríður Leósdóttír, Leó Jóhannesson, Árni Filippusdóttir og aðstandendur. Steinunn Jóhannesdóttir, Einar Karl Haraldsson, Hallbera Jóhannesdóttir, móðir og systkini hins látna. þær margar horfnar yfir landa- mærin. Matta var svo sannarlega ein af þessum konum. Það gat verið kærkomið að fá vinkonu í heimsókn, sem hafði áhuga á því að halda í ristla og þeir voru anzi margir, ef ég man rétt. Það var oft hlegið dátt í kjallaranum í Mörk þessa haust- daga. Húsmóðirin átti margar litlar vinkonur, er höfðu áhuga á því að hjálpa, og Matta var frábær verkstjóri; svo lauk hverjum „vinnudegi“ okkar með veizlu. Já, Matta var mikil húsmóðir i þess orðs fyllstu .merkingu. Hún var um árabil bústýra hjá öldruð- um foreldrum sínum, hjónunum Mettu H. Hoffmann og Sveini Guðmundssyni. Þau urðu mörg jólaboðin í Mörk. Kær vinkona mín, sem nú er látin, dvaldi um tíma hjá foreldrum mínum á Akranesi. Eftir lát hennar barst mér dagbók, er hún hafði skrifað um árabil, um heimsóknir, ferða- lög o.fl. og á einni blaðsíðunni var skráð þessi frásögn: „Á annan í jólum 1932 var okkur boðið til Matthildar Svéinsdóttur ásamt öllum úr Haraldarhúsi og þar var nú glatt á hjalla.“ Svo telur þessi velgerðarkona mín upp allar veit- ingar, er á borðum voru, og endar frásögnina á þessum orðum: „Eftir súkkulaði og mat var spilað langt fram á kvöld. Þetta var nú boð í lagi og mikið skemmti ég mér vel.“ Eg vil gera þessi orð að mínum. + Móðir okkar og tengdamóðir, MARÍA VILHJÁLMSDÓTTIR, Mávahlíð 8, lézt i Landspítalanum 1 8. febrúar. Jarðarförin hefur farið fram. Sigriður Einarsdóttir, Þorgeir Jónsson, Björg E. Pétursson, Ásgeir Pétursson, Villa M. Einarsdóttir, Ólafur Kjartansson, Einar Einarsson, Margrét Sigurðard.. Magnús Einarsson. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNLAUGURMARKÚSSON, Munkaþverárstræti 12. Akureyri, andaðist i Fjórðungssjúkrahúsinu, Akureyri, sunnudaginn 24. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju, laugardaginn 2 marz kl 1 30 Þeim, sem vildu minnast hins látna er bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Sigrún Gunnlaugsdóttir, Halla Gunnlaugsdóttir, Þráinn Jónsson, Kolbrún Gunnlaugsdóttir, Jón B. Helgason, Anna Sverrisdóttir, Frank Shaw, og barnabörn. t Konan mín, móð*r okkar, tengdamóðir og amma, MARÍA INGUNN GUÐMUNDSDÓTTIR, Sólheimum 23, verður jarðsungin 2. marz frá Fossvogskirkju kl 10.30. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeir sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Benedikt Einarsson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför, SALOMONS LOFTSSONAR, . Hraunbæ 44, Ragnheiður Vilmundardóttir, börn og systkini hins látna. t Hjartanlegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð, vináttu og veitta ómetanlega hjálp vegna veikinda og fráfalls eiginmanns, föður, tengda- föður og afa, GUÐMUNDAR PÁLSSONAR, Hvolsvelli. G uð blessi ykkur öll. Guðrún Sveinsdóttir, Leifur Guðmundsson, Laufey Steindórsdóttir, Steindór Guðmundur Leifsson, Gunnar Rúnar Leifsson, Sara Leifsdóttir. Eftir lát foreldra sinna fluttist Matta suður til Reykjavíkur. Þá urðu þáttaskil í lífi hennar. Möttu var fleira vel gefið en að vera góð húsmóðir. Hún hafði hlotið góða menntun á yngri árum, auk kvennaskólanáms hlaut hún skólagöngu í Danmörku. Matta var óþreytandi að bæta við tungu- málakunnáttu sína. Þetta vega- nesti notaðist henni vel, er hún fór að vinna að ýmsum störfum í Reykjavík. En hugurinn dvaldi löngum á Skaga og þar kvaddi hún þessa tilveru. í Reykjavík eignaðist Matta fallegt heimili. Ég bar gæfu til þess að dveljast oft hjá henni og alltaf tók á móti mér sama bros- hýra konan, er forðum bauð mér sæti á gamla sérkennilega stóln- um. Eftir að ég fluttist suður lágu Ieiðir okkar oft saman á hennar heimili eða mínu, og var móðir mín þar oft viðstödd, enda fágæt vinátta þeirra á milli. Hversu oft voru þær ekki búnar að njóta samvista hvor annarrar. Þær áttu t Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og jarðarfarar systur minnar, ÁGÚSTUWENDEL F.h. vandamanna, Andrés Wendel.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.