Morgunblaðið - 12.11.1977, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.11.1977, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1977 Nautakjöts skortur framundan HORFUR eru á að fremur lítið framboð verði á nautakjöti þegar fram kemur á veturinn, því að nautgripaslátrun, sem nú stendur yfir í mörgum sláturhúsum, er með minnsta móti og þvf hætt við að skortur geti orðið á nautakjöti. Fyrstu 9 mánuði ársins var slátr- un nautgripa 14.5% minni en á sama tíma I fyrra. Sala á naut- gripakjöti var mjög svipuð þessi tímabil, heildsalan fyrstu 9 mán- uði ársins var 1382 lestir. Birgðir af nautakjöti 1. septem- ber sl. voru með allra minnsta móti eða aðeins 69 lestir, en á sama tíma í fyrra voru þær 629 lestir. Mjög mikið hefur verið um að slátrað hafi verið ungkálfum í ár, og því liggur fyrir að ásetning- ur er með minna móti. Helzt eru það bændur á Fljótsdalshéraði, sem leggja stund á nautakjöts- framleiðslu og kaupa þeir þó nokkuð af ungkálfum úr öðrum héruðum. Utanríkisráð- herra boðið til Dan- merkur og Noregs EINAR Ágústsson utanríkisráð- herra hefur þegið boð utanríkis- ráðherra Danmerkur og Noregs um heimsókn til þessara landa um mánaðamótin næstu. Mun heimsóknin til Kaup- mannahafnar standa yfir dagana 28. og 29. nóvember. í framhaldi af Danmerkurheim- sókninni heldur utanríkisráð- herra til Osló og mun dvelja þar 1. og 2. desember. Drengur fyrir bíl DRENGUR, 10 ára að aldri, varð í gærdag fyrir bíl á Hringbraut við Gamla Garð. Drengurinn hljóp yf- ir götuna á gangbraut, en varð fyrir bíl. Hann hiaut höfuðhögg og marðist eitthvað. -Missti þó ekki meðvitund, en var í öryggis- skyni lagður i gjörgæzludeild Borgarspitalans. Vonazt var til að meiðsli drengsins væru ekki al- varlegs eðlis. Bókakynning í Norræna húsinu Kynninga tveggja bóka frá Norðurlöndum verður ° morguH, sunnudag, í Norræna húsinu. Bækurnar, sem Mál og merftiing gefur út eru: Turninn á heims- enda, nýjasta skáldsaga Williams Heinesens i þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar, og lístasagan Heimslist — Heimalist eftir R. Broby Johansen i þýðingu Björns Th. Björnssonar. Utgáfa beggja þessara bóka er styrkt af Norræna þýðingarsjóðnum. í kynningunni munu þýðendur lesa upp og jafnframt verður mynda- sýning. Kynningin hefst klukkan 16.00 og er öllum heimill aðgangur. — Vilja semja Framhald af bls. 1 geta hafið samninga við ræningj- ana. Lausnargjaldið sem mannræn- ingjarnir krefjast er að upphæð 50 milljónir schillinga eða um 600 milljónir islenzkra króna og þeir vilja fá það greitt i frönskum, svissneskum, vestur-þýzkum og austurriskum seðlum. Mannræn- ingjarnir hafa ekkert samband haft við fjölskylduna. Tengdasonur Palmers sagði að fjölskylda hans vildi ekki tala við lögregluna, en hún vildi tala við mannræningjana. Starfsfólk fyrirtækja Palmers skoraði i dag á ræningjana að láta hann lausan þar sem hann gengi ekki heill til skógar. Lögreglan hefur enn ekki kom- izt á slóð mannræningjanna, en telur ránið ekki pólitískt. Hæstiréttur staðfestir gæzluvarð- haldsúrskurði IIÆSTIRÉTTUR hefur staðfest tvo gæzluvarðhaldsúrskurði, sem kveðnir voru upp nýlega en þeir kærðir til Hæstaréttar. I öðru tilfellinu var um að ræða ungan mann, sem hnepptur var I gæzluvarðhald vegna rannsóknar fíkniefnamáls og hinu tilfellinu var ungur maður úrskurðaður i gæzlu vegna rannsóknar milljón- arþjófnaðarins í Breiðholti ný- verið. — Veðrið Framhald af bls. 40 en hún hafði beðið sunnan henn- ar eftir aðstoð við að komast í Hrútafjörð. Þangað komust bíl- arnir síðdegis i gær og var þá fyrirhugað að aðstoða aðra lest, sem beðið hafði Hrútafjarðarmeg- in, við að komast suður yfir heið- ina. Veður fór versnandi á þess- um slóðum í gær, og samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar var ekki ætlunin að ryðja snjó af veginum, fyrr en veðrinu slotaði. Var því ekki fyrirhugað að átt yrði við heiðina, er bílalestin var komin suður yfir. Skafrenningur var i Húnavatns- sýslum og Skagafirði í gær, en færð hafði þó ekki spillzt. Öfært var þó til Siglufjarðar úr Fljótum. Stórum bílum var fært yfir Öxna- dalsheiði, en ófært var fyrir Ólafsfjarðarmúla vegna snjó- flóða, sem þar höfðu fallið. í gær var hriðarveður í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum og var veður öll- u harðara á Norðausturlandi en um norðanvert landið. Þó taldi Vegagerðin að stórum bilum væri fært til Vopnafjarðar, en full- komnar upplýsingar um færð lágu ekki fyrir. Allir fjallvegir á Austfjörðum voru ófærir i gær, en vegir um láglendi voru sæmilega færir. Lónsheiði var í gær ófær og er ekki fyrirhugað að halda henni opinni í vetur, þar sem kominn er góður vegur um Hvalnes og verð- ur honum haldið við í staðinn. Góð færð var síðan um alla suður- ströndina til Reykjavíkur. — Fyrsti sigur Framhald af bls. 1 á Siegfried Buback og var hand- tekinn eftir skotbardaga í Utrecht. Wackernagel er grunaður um að hafa tekið upp á myndsegul- band kvikmynd sem var send yfir- völdum til að sýna að hann væri á lífi. Tiltölulega stutt er síðan hann gerðist hryðjuverkamaður. Hann sást í Suður-Þýzkalandi í vor ásamt konu og barni. Eftir skotbardagann var Wackernagel fluttur í fangelsis- sjúkrahúsið i Scheveningen skammt frá Haag en Scneider var of alvarlega særður til þess að hægt væri að flytja hann frá sjúkrahúsi i Amsterdam. Annar særðist í kviði, hinn á höfði. Wackernagel og Schneider bjuggu við kyrrláta götu i ibúð sem lögreglan fann af tilviljun þegar hún rannsakaði ránið á auð- manninum Maurits Caransa og lögreglan elti þá þegar þeir fóru í simaklefa til að hringja. Öeinkennisklæddur leyni- lögreglumaður opnaði dyrnar og spurði hvað þeir yrðu lengi. „Andartak," sagði annar þeirra á þýzku og dró upp skambyssu. Hann fór að skjóta þegar vopnað- ir lögreglumenn komu aðvifandi. Annar mannanna kastaði hand- sprengju að lögreglunni. Þeir voru skotnir niður þegar þeir komu út úr símaklefanum. — BSRB Framhald af bls. 2 grannabyggðum höfuðborgarinn- ar mun kjörsókn hafa verið á bil- inu 65 til 70% og allt upp í 80%. Þá sagði Haraldur að Starfs- mannafélag ríkisstofnana hafi i gær verið að ná kjörsókn, sem hafi verið um 60%. Fyrirhugað er að atkvæði verði talin í dag eftir hádegi — sagði Haraldur Stein- þórsson. Alls voru fyrir atkvæðagreiðsl- una haldnir 19 kynningarfundir úti um land á hinum nýja kjara- samningi. Haraldur Steinþórsson kvað mikinn áhuga hafa komið í ljós á kjarasamninginum og hann kvað athyglisvert að ekki hafi þurft að aflýsa neinum fundanna vegna veðurs og taldi hann það óvanalegt á þessum árstima. — Kjaradómur Framhald af bls. 2 ingar til þess að skammta öðrum, þá kvað Jónas allar slíkar tilraun- ir dæmdar til að mistakast. Er Jónas var spurður við hvað hann ætti með þessu, kvað hann laun- þegasamtök í vaxandi mæli hafa tilhneigingu til sliks og að þau reyndu að koma í veg fyrir að þeir, sem hærri laun hefðu, fengju sambærilegar hækkanir. Slíkt virtist orðið stefnumál laun- þegasamtaka, hvort sem þau hétu ASl eða BSRB. — Pétur Sig- urðsson Framhald af bls. 2 sjálfsögðu mundu mótast talsvert af kjördæmismálum. Rétt til setu á þinginu eiga 35 fulltrúar og sagði Pétur að fyrir- hugað væri að þinginu lyki á sunnudag. Ef ákveðið verður, sagði Pélur, að samningum verði sagt upp, verða þeir iausir við áramót og mun þingið væntanlega óska eftir kjarasamningaviðræð- um eins fljótt og auðið yrði. — Vandi fisk- vinnslufyrirtaekja Framhald af bls. 2 andi atriðum úr skýrslu Þjóðhags- stofnunar ásamt skoðun fulltrúa fiskvinnslufyrirtækja. 2.1 Þjóðhagsstofnun telur að rekstrarskilyrði frystingar sé all- miklu lakari á síðustu vetrarver- tíð en á árinu 1976, og einnig eru þau lakari en meðaltal undanfar- inna átta síðustu ára. Afkoma söltunar- og skreiðar- framleiðslu er einnig að mati Þjóðhagsstofnunar talin hafa ver- ið allmiklu lakari á þessu ári en meðaltal átta síðustu ára. 2.2 Fyrstu átta mánuði þessa árs jókst freðfiskframleiðslan i heild um 13% sé miðað við sama tímabil ársins 1976. Þessi aukning ásamt hagstæðri þróun i aflasam- setningu ættu einar sér að bætá afkomu frystingar í heild á þessu ári. 2.3 Helzta orsök þess að svo er ekki, er sú að hækkun innlends kostnaðar (laun, hráefni og annað verðlag) hefur verið meiri en hækkun afurðaverðs. 2.4 Sé miðað við október- verðlag, þá er áætlað að tap á fiskvinnslunni i heild sé um 1300 milljónir, á ársgrundvelli. Það skal tekið fram, að þessi niður- staða fæst þrátt fyrir að tekið hefur verið tillit til þeirrar hækk- unar viðmiðunarverðs (7%), er kom til framkvæmda 1. október s.l., og gengissigs, ella hefði tapið orðið um 3500 milljónir. Einnig er rétt að benda á að áætlaðar greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði umfram markaðsverðs eru 4.330 milljónir. 2.5 Um þróun markaðsverðs farast ÞHS m.a. svo orð: „Óhætt mun þó að fullyrða, að sölusam- tökum frystihúsanna hafi tekist að tryggja hagstæðasta verð fyrir framleiðsluna að undanförnu, og virðast íslenzku fyrirtækin vest- anhafs oft vera í fararbroddi við mikilvægar verðhækkanir". 2.6 „Lausn hins bráða almenna vanda er þó skammgóður vermir, því um áramót ris vandinn á ný í kjölfar launahækkunar frá 1. des- ember n.k. og krafa um fiskverðs- hækkun i framhaldi af þeim. Þannig er fram á við brýn þörf á að gera ráðstafanir til þess að draga úr misræmi í þrún innlends og erlends verðlags, sem við blas- ir, með öllum tiltækum ráðum“. 3.1 Það er skoðun nefndarinnar að augljóst sé að framansögðu að rekstrarvandi fiskvinnslufyrir- tækja hefur ekki verið leystur, og er illt til þess að vita að Þjóðhags- stofnun telji lausn vera fundna á vanda fiskvinnslufyrirtækja fram til 1. janúar n.k. þrátt fyrir að niðurstöður sýni taprekstur upp á um2%. 3.2 Það er einnig skoðun nefnd- arinnar að þrátt fyrir reiknings- leg vinnubrögð Þjóðhagsstofnun- ar sé afkoma fiskvinnslunnar lak- ari en skýrslan segir til um þar sem langvarandi r-ekstrarhalli hefur haft neikvæð áhrif á ýmsa kostnaðarliði, ekki sízt vexti. — Hrun á 8 metra svæði Framhald af bls. 40 um til klukkan 22 i gærkveldi. Fyrirhugað hafði verið að steypa i þennan kafla, sem hrunið var I, en því hafði verið frestað. Verður nú steypt i úiskotið og öryggisnet lagfært, sem fór niður um leið og hrunið varð. Arnkell Einarsson vegaeftirlits- maður kvað þetta hrun ekki vera mikið, þar sem um væri að ræða svo sem eins og eitt biihlass eða svo. Hins vegar kvað hann alvar- legt, þegar hrun yrði, þvi að þá væri við búið að meira hefði losn- að í göngunum og héngi þá á bláþræði, ef svo má að orði kom- ast. Fyrirhugað mun hafa verið að verktakinn við göngin skilaði verki sinu nú um miðjan mánuð- inn og átti vigsla ganganna upp- haflega að fara fram 20. nóvem- ber. Var vígslunni siðan frestað, þar sem yfirmenn samgöngumála og þingmenn gátu ekki komið um- ræddan dag. Var ætlunin að vígsl- an færi fram 25. nóvember, en vegna hrunsins mun væntanlega þurfa að fresta vigslunni eitthvað enn. — Kom á lítilli skútu . . . Framhald af bls. 40 Dickson i Kara-hafi, en það er fyrir austan Novaja Semlja. Rússar tóku hann innan rúss- nesku lögsögunnar og fluttu hann til Vardö í Noregi. Frá Vardö fór Czuday i ferðalag á skútunni áleiðis til Svalbarða og var þá vinkona hans í för með honum, en hún fór i land þegar komið var til Bodö á ný. Frá Bodö hélt Czuday í lslands- ferð sína hinn 28. október. Seglskútan, sem Czuday sig- lir, er 9 metra löng af Vanguard-gerð og er smíðuð í Hollandi. Lítil hjálparvél er í skútunni. — Leitin að Haraldi SH Framhald af bls. 40 strax byrjað að ganga fjörur. Leitin að Haraldi var mjög skipulögð i gær og leituðu þá 25 skip, eins og fyrr segir. Var leit- inni stjórnað frá rannsóknaskip- inu Bjarna Sæmundssyni, þá fór flugvél Landhelgisgæzlunnar RF- Syn í loftið kl. 8.45 í gærmorgun og leitaði i allan gærdag, og björgunarsveitarmenn gengu fjörur frá Grundarfirði að Skarðs- vík, og reyndar allt suður á Svörtuloft. Eins og að framan greinir, voru 7—8 vindstig á Breiðafirði þegar siðast heyrðist til Haralds, en er leið á nóttina lægði og i gær voru í kringum 5 vindstig á þessum slóð- um. Bátar sem voru í leitinni fundu í gær nokkurt brak á reki. Meðal annars fann Fanney SH lestar- borð á reki, en eins og fyrr segir var i gærkvöldi ekki búið að kveða upp úr um, hvort borðið væri úr Haraldi eða einhverju öðru skipi. Haraldur SH 123 er 29 tonn að stærð, byggður árið 1962 í Vest- mannaeyjum. — Líbanon Framhald af bls. 1 fylgdi í kjölfar eldflaugaárásar á israelsk þorp eins og sú fyrri. Bækistöðvar palestínskra skæruliða á svæðinu þar sem appelsinuekrurnar eru virðast hafa verið skotmark israelsku flugvélanna. Aðrar ísraelskar flugvélar flugu yfir markaðsbæ- inn Nabatiyeh um 30 km norð- austur af Tyrus en Palestinu- menn hröktu þær burtu með loft- varnabyssum áður en þær gátu varpað sprengjum að sögn frétta- ritara Reuters. Fréttaritari Reuters segir að Israelsmenn hafi skotið á nokkur þorp sem vinstrisinnar ráða og stöðvar Palestínumanna i dag. Palestinumenn segja að eld- flaugarárás þeirra I dag á isra- elska þorpið Yarin hafi verið gerð i hefndarskyndi við árásir Israels- manna. Jafnframt flutti Menahem Beg- in forsætisráðherra í dag ræðu til egypzku þjóðarinnar sem á sér enga hliðstæðu með áskorun um frið. Hann fagnaði enn þeirri yfirlýs- ingu Anwar Sadats forseta að ávarpa israelska þingið og kvaðst sjálfur fús að fara til Kaíró til að stuðla að friði. En hann sagði að Israelsmenn mundu verjast ef á þá yrði ráðizt. — Skútuöldin Framhald af bls. 21 8.500 kr. í þremur afborgunum á 2ja mánaða fresti. Prentstofa G. Benediktssonar annaðist filmusetningu og um- brot, Prentþjónustan filmaði en bókband annaðist Arnarfell. Myndskreyting á kassa og bókar- spjöldum er unnin af Hilmari Þ. Helgasyni. — Gæðinga- dómur Framhald af bls. 29. Holti einnig fram é þinginu tillögu um gæðingadómana og var hún á þann veg að stjórn LH skipaði 5 manna milliþinganefnd, sem ynni með íþróttaráði LH að endurskipun gæðingakeppni og gæðingadóma i þá átt að um tvenns konar keppni yrði að ræða, annars vegar þar sem samspil manns og hests væri dæmt, ásamt kunnáttu og hæfni hestsins, en hins vegar væri leitað að bcvta gæðingnum, þar sem einkum mætti sin fjör, mýkt, geta og fegurð Báðum þessum tillögum var visað til mótanefndar! þingsins og gerði nefndin þá viðbótartillögu við tillögu frá ráðstefnu LH að reglur LH um gæðingadóma skyldi endurskoða á fjögurra ára fresti, á fyrsta ársþingi eftir hvert landsmót Töldu ýmsir þingfulltrúa að með þessu væri til- laga Halldórs i Holti óþörf þar sem landsmót yrði haldið að sumri. Enn visað til milliþinganefndar Þegar tillögur mótanefndar komu til afgreiðslu var fyrst borin upp fyrrnefnd tillaga sr. Halldórs í Holti óbreytt og var hún samþykkt með 70 atkvæðum gegn 13 Þá voru teknar til afgreiðslu tillögur ráð- stefnu LH um gæðingadómana og urðu um þær nokkrar umræður og lagði einn ræðumanna, Árni Magn- -ússon, Akureyri, fram eftirfarandi dagskrártillögu: ..Tillögur þær sem fyrir liggja um dóma gæðinga verði visað til milliþinganefndar." Við at- kvæðagreiðslu var þessi tillaga Árna samþykkt með 46 atkv gegn 2 Þar með vat hringrásrn hafin rétt einu sinni — engin niðurstaða feng- in og breytingum á gæðingadómum visað enn einu sinni til milliþinga- nefndar Undirritaður hélt nú satt bezt að segja að þingfulltrúar á þing- um LH hefðu fengið sig fullsadda af þessum milliþingahugmyndum og þá kannski sér i lagi varðandi þetta tiltekna mál. En hver veit nema þessi nýja milliþinganefnd visi bara aftur til álitsins frá nefndinni, sem skipuð var 1 974 eða lagt verði til að reglurnar frá þinginu á Selfossi 1970 verði notaðar á ný Þvi miður virðast þingfulltrúarnir í Heiðarborg ekki hafa gert sér grein fyrir gerðum sinum Fyrst menn geta ekki sætt sig við tillögur þessara síendurnýj- uðu milliþinganefndar, hljóta þeir að hafa ástæður fyrir andstöðu sinni og þvi er spurt: Hvers vegna leggja þeir þá ekki fyrir þingið sínar eigin tillög- ur og þá i beinu tillöguformi? — Við félagar i hestamannafélögunum kjósum ykkur þingfulltrúar til að takast á við verkefnin en ekki flýja frá þeim Vonandi gefst tækifæri siðar til að fjalla nánar um þessa afgreiðslu þingsins og aðrar ályktan- ir þess — t.g.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.