Morgunblaðið - 12.11.1977, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 12.11.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGAKDAGUR 12. NÓVEMBER 1977 31 Benedikt S. Sölvason frá Hvarnmi - Minning Hinn 26. júlí s.l. andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri Benedikt Sveinn Sölvason frá Hvammi i Þistilfirði. Benedikt heitinn var fæddur að Núpi í Öxarfirði 14. nóv. 1931. Foreldrar hans voru hjónin Steinfríóur Tryggvadóttir og Sölvi Ólason. Var Sölvi einn fyrsti maður hér í sýslu, sem lagói fyrir sig akstur bifreiða og gerði að atvinnu sinni. Barn að aldri missti Benedikt föður sinn, en ólst upp með móður sinni og síðar stjúpa Hólmgeiri Halldórssyni. Með þeim fluttist hann til Þórshafnar um sex ára aldur. Ungur að árum fór Bene- dikt að vinna fyrir sér, og eins og að líkum lætur með dreng í sjávarþorpi, var þaó mest við ým- is störf er að sjómennsku lúta, gera að fiski, beita línu og hvað sem til féll. Snemma kom i ljós verkhæfni hans og vandvirkni. Við línubeitingu náði hann slíkri leikni, að sagt hafa mér þeir er skil kunna á, að fáir muni hafa jafnast á við hann í þvi verki. Síðar réðst Benedikt sem síldar- matsmaður hjá Síldarmati ríkis- ins og starfaði við það í mörg ár. Var það aðallega á Austfjörðum. Mun hann þá oft hafa komist í nokkra raun i vetrarferðum um fjallvegi austanlands. Við síldar- matið komu eðliskostir Benedikts vel í ljós, giöggskyggni, sanngirni og vandvirkni. Enda mun hann fljótt hafa áunnið sér traust síldarsaltenda jafnt sem sildar- kaupenda. Þegar síldin hvarf, fór Benedikt að vinna hvað sem til féll, siðustu árin sem verslunar- maóur hjá Kaupfélagi Langnes- inga á Þórshöfn. Jafnframt ók hann mjólkinni héðan af bæjun- um til Þórshafnar. Taldi hann ekki eftir sér að vera búinn að losa mjólkina út í mjólkurstöð kl. 9 á morgnana, þegar hann þurfti að hefja störf í versluninni og skila síðan brúsunum á kvöldin að afloknum vinnudegi. Þótt Bene- díkt heitinn ynni þannig ólík og margvísleg störf, mátti af kunn- ugum þekkja allt, er hann fór höndum um. Það var sama hvort það var að fletja fisk, salta hann í stakk, eða skrifa innleggs- eða út- tektarnótu, alltaf var sama snilld- ar handbragðið á öllu sem hann gerði. Sitt mesta gæfuspor í lífinu sté Benedikt heitinn, þegar hann gekk að eiga eftirlifandi eigin- konu sína Aðalbjörgu Jónu Sig- fúsdóttur frá Hvammi. Reistu þau sér íbúðarhús 'i Hvammi og bjuggu þar síðan. Mun það í upp- hafi hafa verið ætlunin aó hefja búskap, þó ekki yrði af þvi ýmissa orsaka vegna. Þessi ár voru hafís- og kalár, atvinna nóg við sjávar- siðuna og hann eftirsóttur til ann- arra starfa. Mjög var sambúð þeirra hjóna til fyrirmyndar og þau samhent urn allt. Enda bar heimilið þess órækan vott. Var þar jafnan gott að koma. Þau Aðalbjörg og Benedikt eignuðust þrjár dætur. Þær eru: Anna Sig- rún, fædd 30. mars 1958, nemandi i Verslunarskóla Islands; Elfa, fædd 17. sept. 1965 og Sylvía, fædd 7. apríl 1973. Leiðrétting Vegna ummæla í minningar- grein um frú Agnesi Konráðsdótt- ur vil ég taka fram, að Hjalti Jónsson skipstjóri var aldrei skip- stjóri á Ingólfi Arnarsyni eldra. Sá sem lengst var með hann hét Pétur Bjarnason, Bræðraborgar- stig 20. Mun hann hafa verið með Ingólf frá því hann var keyptur til landsins árið 1911 og þar til hann var seldur til Frakklands árið 1917 að undanskildum nokkr- um síðustu mánuðunum vegna veikinda, að Aðalsteinn Pálsson var fenginn til að vera með hann. Eg skrifa þetta vegna þess, að ég vil hafa það sem sannara reynist. Virðingarfyllst, Gunnar Pétursson. F. 4. nóvember 1929 D. 2. nóvember 1977. í dag, laugardaginn 12. nóvem- ber, verður lögð til hinstu hvíldar ástkær frænka okkar, Ásta Ár- sælsdóttir frá Fögrubrekku í Vestmannaeyjum. Ásta var fædd 4. nóv. 1929, dóttir hjónanna Laufeyjar Sigurðardóttur og Ár- sæls Sveinssonar útgerðarmanns. Ólsl hún upp i stórum systkina- hópi og við mikið ástríki foreldra sinna, sem hún launaði ríkulega með því að annast þau þar til yfir lauk. Sérstaklega var hún stoð og stýrkur föður sins eftir að hann var orðinn ekkjumaður. Hann var mikill atorku- og dugnaðarmaður, sem vildi fylgjast vel með lífinu við höfnina og margan bíltúrinn fengum við systkinin með þeim á bryggjurnar og út um alla Eyju. Mikið dáðumst við oft að Ástu frænku þá, fyrir þolinmæði hennar og skilningsríki. Þannig hefur það alltaf verið, alltaf allt sjálfsagt og allt gert meó svo góðu, hvað sem til hennar var leitað, enda sögðum við oft að hún væri mamma númer tvö. Ásta gifti sig seint eða 31. 12. 1971 eftirlifandi manni sínum Agústi Helgasyni og bjuggu þau i hamingjusömu hjónabandi, fyrst að Fögrubrekku, en síðan að Þor- finnsgötu 6 Rvk. Það var mikil gleðistund hjá fjölskyldunni, er Auk þess ólu þau upp að nokkru leyti systurson Benedikts, Helga Ólason. Eins og fyrr'segir var Benedikt heitinn mikill og góður heimilisfaðir. Ég sem þess- ar línur rita átti þess oft kost að fylgjast með Benedikt heitnum, þegar hann var að birgja heimili sitt af haustmat. Var næstum un- un að sjá hvernig þar var frá öllum hlutum gengið. Ekki verður Benedikts heitins svo minnst, að gengið sé fram hjá því, sem hvað ríkast var í fari hans. En það var að hann mátti aldrei heyra þeim hallmælt, sem fjarstaddir voru. Reis hann þá ævinlega upp til andmæla. Var sama hver eða hverjir í hlut áttu. Gat hann fundið flestum eitthvaó til málsbóta. Einkanlega þeim sem minna máttu sín. Fyrír tveimur árum fór Bene- dikt heitinn að kenna þess meins, er dró hann til dauða. Varð hann að ganga undir erfiða uppskurði og dvelja á sjúkrahúsum, en mest þó heima. Sýndi kona hans þá hvern mann hún hefur að geyma og hjúkraði honum af frábærri ástúð og umhyggjusemi, uns ekki var lengur stætt og sérfræðileg húkrun þurfti að koma til. Var hann þá fluttur á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri, þár sem hann lá í fimm vikur uns yfir lauk. 1 fámennri byggð eins og hér, skiptir hver einstaklingur meira máli en þar, sem fjölmennið er meira. Því meira er gildi hvers einstaklings, sem hann er stærra hlutfall af hópnum. Við finnum það glöggt hérna á bæjunum við Þistilfjarðarbotninn að nú er skarð fyrir skildi. En við huggum okkur við minninguna um góðan dreng, að maður kemur I manns stað, og að fámenni er ekki fátækt meðan þar á menn að missa eins og Benedikt heitinn var. Sárastur verður missirinn eiginkonu, dætrum. stjúpsyni, fóstursyni, aldraðri móður, stjúp- föður og systkinum. Ég sendi þeim öllum mínar innilegustu samúðarkveðjur og bið Guð að vernda þau og styrkja. Öli Halldórsson. Asta Arsœlsdótt- ir—Minningarorð ATHYGLl skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast hlaðinu með góóum f.vrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagshiaði, að berast f síð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þar þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. Asta gifti sig og hefur Ágúst tekið okkur mjög vel. Hann hefur reynst frænku okkar alveg sér- staklega vel, ekki síst i veikindum hennar. Ásta hafði alveg einstaka þolinmæði og þrek og kvartaði ekki þrátt fyrir margar erfiðar veikindastundir. Álltaf var jafn yndislegt að koma á heimili Ástu og Ágústs, sem jafnframt var griðastaður okkar, er við komum til Rvk. Eigum viö ótal margar minningar frá dvölum okkar hjá þeim og geta vist margir sagt það sama, því margir litu inn og fengu sér góðan kaffisopa hjá Ástu. Er því ntikill söknuður okkar allra, en þó sérstaklega Agústs að missa svo ástríka og góða eiginkonu. Megi góður Guð styrkja hann í sorg hans. Við vottum honum og systkinum hennar dýpstu sarnúð okkar og kveðjum svo elsku Ástu með miklum söknuði og kæru þakklæti fyrir allt, fyrir okkur gert. „Nú pk auKun aftur. » (»ud. þinn náúarkraftur m ín veri vörn í nótt. •K. virzt miií að þér taka. mér yfir láttu vaka þinn etiKÍI svo ók sofi rótt.‘ sem hún hefur (S. Kjiilsson > Ilennar einlægu systrabörn, Laufe.v, Lovísa og Guðni. + Eiginmaður minn og faðir okkar, SIGURÐUR SCHEVING, lézt að heimili sínu, fimmtudaginn 1 0 nóv Margrét Scheving, Edda Scheving, Birgir Scheving, Baldur Scheving, Gylfi Scheving, Knútur Scheving. + Eiginmaður minn HERMANN KRISTJANSSON. forstjóri, Hvassaleiti 87, Reykjavik, lést af slysförum 1 0 þ m Guðrún Einarsdóttir, börn og tengdabörn. + Móðir okkar ÁGÚSTA BJARNADÓTTIR. Skúlagötu 58, lést á Borgarspítalanum aðfaranótt 1 1 nóv Fyrir hönd vandamanna Jóhann Valdimarsson, Erla Valdimarsdóttir, Esther Valdimarsdóttir. + Útför fósturbróður míns SIGURÐAR GUOMANNS SIGURÐSSONAR Karlagötu 1 6, fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 1 5 nóvember kl 13 30 e h Lára Þorsteinsdóttir. + JÓNÍNA JÓNSDÓTTIR Smyrlahrauni 2, Hafnarfirði verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunm í Hafnarfirði mánudaginn 14 nóvember kl 2 Fyrir hönd aðstandenda Hanna Valdimarsdóttir, Guðrún Andrésdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát mannsms mins og föður, BJARNA SVAVARS Beztu þakkir sendum við hjúkrunar og starfsfólki öllu á EIIi- og hjúkrunarheimilinu Grund Fyrir hönd vandamanna. Dagmar Beck Jóna B. Svavars. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför, GÍSLA BRYNJÓLFSSONAR frá Vestmannaeyjum. Vallargötu 24, Keflavik. Guðrún Þorsteinsdóttir og aðrir aðstandendur. + Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður. afa og langafa, JÓHANNS B. LOFTSSONAR Eyrarbakka. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og jarðarför. + Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarfor GÍSLA JÓNSSONAR. eiginkonu minnar og móður. útvegsbónda. SIGRÚNAR BJORNSDÓTTUR, Þökkum sértaklega Unni Pálsdóttur, forstöðukonu Hraunbúða, og starfsfólki Einari Valbjarnarsyni sjúkrahússlækni og starfsliði hans, svo og öðrum vinum og nágrönnum hins látna Ingibjorg Þorsteinsdóttir Systkinin frá Arnarhóli, Vestmannaeyjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.