Morgunblaðið - 25.03.1980, Page 19

Morgunblaðið - 25.03.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980 19 óhagstæður um 8,7 milljarða í febrúar VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR landsmanna varð óhagstæður um rúma 8,7 milljarða króna í febrúar, en á sama tíma í fyrra var hann hagstæður um 362 m.kr. Á árinu er vöruskiptajöfn- uðurinn orðinn óhagstæður um 19,8 milljarða en var tvo fyrstu mánuði síðasta árs óhagstæður um 2,1 milljarð. Innflutningur til landsins í febrúarmánuði var rúmlega 30 milljarðar og útflutningur um 21 milljarður. Frá áramótum hefur verið flutt inn fyrir rúman 61 milljarð og út fyrir rúman 41 milljarð króna. í febrúar var flutt út ál og álmelmi fyrir 2,4 millj- arða, kísiljárn fyrir 545,6 milljónir og til Islenzka járnblendifélagsins var flutt inn fyrir 1.311,7 milljónir og 909 milljónir til Álfélagsins. í frétt Hagstofunnar um út— og innflutning segir að hafa verði í huga við samanburð við utanríkis- verzlunartölur frá 1979 að meðal- gengi erlends gjaldeyris hafi verið 27,8% hærra en í ársbyrjun 1979 fyrstu tvo mánuði þessa árs. Jarðfræðistofnunin fær bókagjöf frá Þýskalandi Myndin af kórnum var tekin á dögunum er hann var að leggja upp i söngferð á Snæfellsnes. Tónleikar kórs Tónskóla Sigursveins ÞÝSKA rannsóknarfélagið í Bonn-Bad Godesberg hef- ir í í samvinnu við þýska vísindamenn, þ.á.m. frú Steubing prófessor (Giess- en) og hr. Poser prófessor (Göttingen) valið allstóra bókagjöf til jarðfræðistofn- unarinnar í Hveragerði. Verðmæti bókanna er u.þ.b. 8.000, þýsk mörk. Þessi bókagjöf er þakklætisvott- ur þýskra vísindamanna til j arðf ræðistof nunarinnar og Gísla Sigurbjörnssonar forstjóra fyrir ágæta sam- vinnu við fræðilegar rann- sóknir í Hveragerði. Bókagjöf þýska rann- sóknarfélagsins mun sendi- herra þýska sambandslýð- veldisins, hr. Raimund Hergt, afhenda Gísla Sig- urbjörnssyni forstjóra mið- vikudaginn, 26. mars n.k., kl. 15.00 í Hveragerði. KÓR Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar heidur aðra tón- leika sina i Kirkju óháða safnað- arins annað kvöld (miðvikud.) kl. 20.30. Þetta eru fjórðu tónleikar kórs- ins á þessu vori og í ráði er að syngja meira úti á landi auk þess sem kórinn kemur fram á árlegum vortónleikum Tónskólans n.k. sunnudag, 30. mars. Á efnisskrá tónleikanna eru lög eftir fjölmarga höfunda, m.a. Gastoldi, Morley, Brahms, Ravel, Jón Ásgeirsson og Sigursvein D. Kristinsson. Tónleikarnir verða eins og áður sagði í Kirkju Óháða safnaðarins annað kvöld og hefjast kl. 20.30. Hver er réttur bíleigenda?: © INNLENT Standa höllum fæti nema kaskótryggðir HVER er réttur bíleigenda? — Þetta er spurning sem hefur vaknað hjá mörgum í kjölfar Fulltrúar verksmiðjanna og Gunnars Ásgeirssonar sýndu mönnum hinar ýmsu vélar. Gunnar Ásgeirsson hf: Fjölmenni skoðaði trésmíðavélarnar FYRIRTÆKIÐ Gunnar Ás- geirsson hf. sýndi um helgina ýmis verkfæri og vélar til trésmiðavinnu og var sýningin i sal fyrirtækisins við Suður- landsbraut í Reykjavik. Að sögn Gunnars Ásgeirssonar sóttu hana milli 5 og 6 þúsund manns. Gunnar Ásgeirsson kvað vél- arnar og verkfærin einkum ætl- uð smærri verkstæðum og til vinnu í heimahúsum, en þær eru frá austurríska fyrirtækinu Emco og voru einnig sýnd hand- verkfæri frá Bosch og fylgihlutir við borvélar frá Wolfcraft. Þá voru sýndir rennibekkir sem geta þjónað jafnt gullsmiðum sem trésmiðum og sýnd voru ýmis tæki sem koma einkum módelsmiðum að gagni. Gunnar kvað menn hafa sýnt þessum tækjum mikinn áhuga og sumir jafnvel komið að skoða báða dagana, en austurrískur fulltrúi frá Emco sýndi handbrögðin við vélar fyrirtækisins. Að lokum kvaðst Gunnar vilja vekja at- hygli á því að í sambandi við þær trésmíðavélar sem seldar eru til fyrirtækja í samkeppnisiðnaði væri hægt að sækja um endur- greiðslu söluskatts, að mati toll- stjóra í hvert sinn, en slíkt ætti ekki við um menn sem keyptu slíkar vélar til tómstundastarf- semi. margra óvæntra umferðar- óhappa að undanförnu, s.s. þegar bílar hafa fokið út af vegi, bílum verið stolið og þeir stórskemmdir og svo þegar einn og sami bílstjórinn stórskemmdi sjö bíla í síðustu viku með háskalegum akstri. Til að leita svara við þessari spurningu leitaði Mbl. til Runólfs Þorgeirssonar hjá Sjó- vátryggingarfélagi íslands, og kom fram hjá honum að menn standa nokkuð höllum fæti nema vera kaskótryggðir. „í tilfellum eins og þegar bílar lenda utan vegar, þegar þeim er stolið og þeir skemmdir eða þá að eldur kemur upp í þeim verður eigandi bílsins að bera skaðann að fullu nema því aðeins að bíllinn hafi verið kaskótryggður. Sé hann hins vegar kaskótrvggður ber við- komandi tryggingarfélag skaðann að fullu. Venjuleg ábyrgðartrygging sem allir eru lögskyldaðir til að hafa á bílunum er fyrst og fremst hugsuð til að vernda hagsmuni þess er þolir tjón af tryggingarkaupa. Ef hins vegar menn hafa áhuga á því að tryggja sjálfa sig eða öllu heldur eigin bíl kaupa þeir sér kaskótryggingu," sagði Runólfur. Aðspurður um hver bæri ábyrgð á tjóni eins og þegar ekið var á sjö bíla af einum og sama ökumannin- um í sl. viku, sagði Runólfur að samkvæmt lögum bæri trygging- arfélag tjónvalds ábyrgð gagnvart þeim er yrðu fyrir tjóninu. Trygg- ingarfélagið hefði síðan endur- kröfurétt á ökumanninn ef það sannaðist að hann hefði ekki hagað sér samkvæmt lögum við aksturinn. Runólfur sagði að öku- maður væri í flestum tilfellum ábyrgður gerða sinna nema því aðeins að sannað væri að eigand- inn væri annar og hefði lánað honum bílinn. „Einu tilfellin sem spurning er um hver ber að greiða skaða í svona tilfellum, er þegar trygg- ingarfjárhæðin hrekkur ekki til, en í þessu ákveðna tilfelli í síðustu viku kemur ekki til þess þar sem tjónið fer ekki upp fyrir trygg- ingarfjárhæðina sem er um 24 milljónir. Sannist það síðan að bílstjórinn hafi verið undir áhrifum áfengis, mun tryggingarféiagið væntan- lega gera endurkröfu á hendur honum. Það er hins vegar ekki víst að gerð verði krafa um fullar bætur, því þegar tryggingarfélög gera endurkröfur á hendur mönnum eru aðstæður þeirra metnar hverju sinni, þ.e. hvort yfirleitt þýðir að gera kröfur á hendur þeim. Séu menn vel í stakk búnir eru gerðar hærri og meiri kröfur heldur en sé um að ræða illa stæða menn efnahagslega," sagði Runólfur að síðustu. Til sölu Mercedes Benz, 26 farþega, Volvo 43 farþega. Uppl. í síma 83351, 75300.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.