Morgunblaðið - 25.03.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.03.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980 39 + Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, stjúpfaðir og afi HAFSTEINN HANNESSON, Bjarnarstíg 9, andaðist að Landakotsspítala, föstudaginn 21. mars. Sigrún Lína Helgadóttir, Kristín Margrót Hafsteinsdóttir, Péll R. Magnússon, stjúpbörn og barnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir og amma JÓNA ÞORUNN ARNADOTTIR, Álfheimum 58, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 26. marz kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á líknarstofnanir. Birgir Magnússon, Birna Ögmundsdóttir, Freyr Magnússon, Soffía Jensdóttir, Stefón Örn Magnússon, Sigríöur Gísladóttir, og barnabörn. Útför BJÖRNS G. GÍSLASONAR Asparteigi 1, Mosfellssveit, verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 10.30 f.h. Gyöa Gunnarsdóttir, Gísli Björnsson, Guðmundur Björnsson. + Eiginkona mín MAGNEA S. MAGNÚSDÓTTIR, Sogaveg 132, verður jarðsungin frá kirkju óháöa safnaðarins fimmtudaginn 27. marz kl. 1.30 e.h. Gísli Arason. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaöir og afi, GUÐJÓN SVEINBJÖRNSSON, vélstjóri, Ásvallagötu 10, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27. marz kl. 3 e.h. Þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á Slysavarnafélag íslands. Oddný Guömundsdóttir, Guöný Guöjónsdóttir, Guömundur Baldvinsson, Guömundur Guöjónsson, Björg Björgvinsdóttir, Hulda G. Guöjónsdóttir, Garöar H. Svavarsson, barnabörn og barnabarnabarn. + Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, PÁLL B. EINARSSON, vólstjóri, Goöheimum 15, verður jarðsunginn fimmtudaginn 27. marz kl. 13.30 frá Dómkirkjunni. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaöra eða aðrar líknarstofnanir. Gyöa Siguröardóttir, Gunnlaugur Pálsson, Inga I. Guömundsdóttir, Margrét S. Pálsdóttir, Magnús Gústafsson. + Eiginmaöur minn, sonur og faðir MARKÚS H. GUÐJÓNSSON, verkstjóri, Fellsmúla 20, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 26. marz kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Hjartavernd. Sigurína Friöriksdóttir, Guörún Jónsdóttir, börn og fjölskyldur þeirra. Faöir okkar SIGRÍKUR SIGRÍKSSON, Akranesi veröur jaðsunginn frá Akraneskirkju miðvikudaginn 26. marz kl. 14.30. Þeim sem vilduminnast hans er vinsamlega bent á Dvalarheimilið Höföa, Akranesi. Bára Sigríksdóttir, Ingibjörg Sigríksdóttir, Hreggviöur Sigríksson. Minning: Björn G. Gíslason járnsmíöameistari Miðvikudaginn 19. marz síðast- liðinn andaðist í Borgarspítalan- um mágur minn, Björn Gíslason járnsmíðameistari, eftir tveggja mánaða harða baráttu við ban- vænan sjúkdóm. Björn Guðmundur Gíslaison, eins og hann hét fullu nafni, fæddist hér í Reykjavík 31. júlí 1922 og var því aðeins á fimmtug- asta og áttunda ári, er hann lézt. Hann var Arnesingur í báðar ættir, sonur hjónanna Guðríðar Guðmundsdóttur frá Sandlæk í Gnúpverjahreppi og Gísla Eiríks- sonar frá Miðbýli á Skeiðum, og var elztur sex systkina. Foreldrar hans, þau Guðriður og Gísli, höfðu bæði flutzt ung að árum úr átthögum sínum til Reykjavíkur að leita hér gæfunnar í ört vaxandi bæ eins og svo margt framsækið æskufólk á þeim árum. Hér gengu þau í hjónaband og stofnuðu heimili af litlum efnum en heilbrigðri bjartsýni, sem lét sér ekki til skammar verða. Blómgaðist brátt hagur þeirra fyrir samvinnu beggja og síðan einnig barnanna. Gísli stundaði alla tíð sjómennsku á togurum á hinum misjöfnu tímum reykvískr- ar togaraútgerðar milli heims- styrjaldanna tveggja og var alls staðar eftirsóttur vegna frábærs dugnaðar og verkkunnáttu. En einmitt er bezt gegndí, dundi ógæfan yfir þessa samhentu fjöl- skyldu. I janúarmánuði fórst togarinn Max Pemberton undir Svörtuloft- um með allri áhöfn, en á því góða aflaskipi, sem ætíð hafði reynzt hin mesta happafleyta, hafði Gísli árum saman verið bátsmaður hjá Pjetri Maack skipstjóra. Reyndi nú meira en nokkru sinni á manndóm eldri systkinanna að veita móður sinni í sorg hennar alla þá hjálp, er þau máttu. Á unglingsárum hafði Björn heitinn hug á að feta í fótspor föður síns og gera sjómennsku að ævistarfi. Voru þeir feðgar þá um skeið saman á Max Pemberton. Er ekki að efa, að hann hefði reynzt þar vel hlutgengur sem faðir hans. En ekki átti þetta fyrir honum að liggja sökum skyndilegs heilsu- brests, sem knúði hann til árs- dvalar á heilsuhælinu að Vífils- stöðum. Fékk hann þar góðan bata, enda maður sterkbyggður og hraustur að upplagi. Björn var prýðilega! laghentur, svo sem verið hafa forfeður hans í marga ættliði. Varð það nú til þess, að hann hóf nám í plötu- og ketilsmíði í h/f Stálsmiðjunni og lauk meistaraprófi í þeirri grein og jafnframt fullnaðarprófi frá Iðnskólanum í Rvík. Næstu fimm- tán ár vann hann að iðn sinni sem verkstjóri í rennismiðju Vélaverk- stæðis Sigurðar Sveinbjörnssonar og öðlaðist þar mikla reynslu við margs konar verklegar fram- kvæmdir. Leiddi það til þess, að hann réðst í að stofna eigið fyrirtæki, vélsmiðjuna Þrym h/f, ásamt þeirn járnsmíðameisturun- um Jóni Bergssyni, er hafði lókið iðnnámi samtímis honum og ætíð síðan unnið með honum, og Jó- hannesi Eríkssyni, sem nú er látinn. Hefur vélsmiðjan Þrymur annazt margvíslegustu verkefni í 17 ára sögu sinni, bæði við við- gerðir fiskiflotans og ýmsar fram- kvæmdir víða um land, sumar viðamiklar, og átt sín blóma- -og erfiðleikaskeið eins og að heita má allur iðnaður hér á landi og þeirn er bezt kunnugt, sem til þeirrar atvinnugreinar þekkja. Þessu þjóðnytjastarfi helgaði Björn Gíslason alla krafta sína og unni sér nær aldrei hvíldar. Hið eina, sém hann leyfði sér í því efni, voru nokkrar ferðir að stimarlagi uni öræfi íslands og að skreppa dag og dag austur að Iðu í Biskupstungum til laxveiða í Hvítá. Utanferðir hans til véla- framleiðenda í Bretlandi og Þýzkalandi voru engar skemmti- reisur, heldur einungis einn af mörgum þáttum í starfi hans. Slíkir menn eiga sér að sjálfsögðu oft sínar gleðistundir, er þeir sjá einhvern árangur erfiðis síns, en lýjandi er svo þrotlaust starf og fæstum hent til lengdar. Björn Gíslason átti sér mikla drauma uni glæsilega framtíð íslenzks iðnaðar, einkum járnsmíðaiðnaðarins. Hann taldi það eitt mesta nauðsynjamál þjóð- arinnar — og raunar mikinn þátt í sjálfstæði hennar bæði efnahags- og stjórnarfarslegu, — að eyþjóð langt vestur í úthafinu væri ekki „innibyrgð sem fé í sjóarhólmum“, heldur ætti sér sem glæsilegastan flota farm- og fiskiskipa og væri þess umkomin að halda þar a.m.k. vel í horfi bæði með viðgerðum og smíði nýrra skipa. Var honum fátt meira eitur í beinum en hin miklu skipakaup Islendinga erlendis og taldi íslenzkar skipasmíðastöðvar mundu fullfærar að sinna sínu sjálfsagða verkefni, ef svo yrði að þeim búið sem skylt væri. Um skoðanir hans í þessum efnum má að vísu segja, að hann ætti þar sjálfur hagsmuna að gæta og fyrirtæki hans, en engu breytir það um réttmæti þeirra. I einkalífi sinu verður Björn heitinn að teljast mikill ham- ingjumaður. í ágústmánuði 1946 gekk hann að eiga unga Reykja- víkurstúlku, Helgu, dóttur hjón- anna Oddfríðar Jóhannesdóttur og Guðmundar R. Oddssonar for- stjóra. Helga var mikil rausnar- kona, hjálpfús, svo af bar, og höfðingi heim að sækja. Var það ein mesta gleði þeirra hjóna á góðum stundum að fagna gestum á fögru og notalegu heimili sínu, að ógleymdum mörgum en stopul- um ánægjustundum við garðrækt, sem bæði höfðu mikinn áhuga á. Þau hjón eignuðust tvo syni, sem báðir hafa farið að dæmi föður síns og lært iðn hans. En fyrir réttum tíu árum dró ský fyrir sólu, er Helga var skyndilega á brott kvödd í blóma lífsins. Varð það sviplega fráfall reiðarslag öllum hinum fjölmörgu vinum þeirra, en þó mestur harm- ur öldruðum foreldrum, eigin- manni og sonum, er þá voru báðir á viðkvæmum aldri. Síðustu árin bjó Björn með sambýliskonu sinni, Gyðu Gunn- arsdóttur, að Asparteigi 1 í Mos- fellssveit. Bjó hún honum af mikilli smekkvísi hið bezta heim- ili, sem bæði voru samtaka um að prýða bæði innanhúss og utan. Hvað er langlifi? Lífsnautnin frjóva. aleflinK andans ok athöfn þörf. Athöfn þörf — þau orð lista- skáldsins góða um raunverulegt ianglífi manna koma mér helzt í hug, er ég nú að lokum kveð hinztu kveðju hinn góða og trausta dreng, Björn Gíslason. Jón S. Guðmundsson + Eiginmaöur minn, sonur, faðir, tengdafaöir, afi og bróöir HALLDÓR INDRIÐASON, múrarameistari, Yrsufelli 15, veröur jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriöjudaginn 25. þ.m. kl. 13.30. Halldóra Ólafsdóttir, Ólöf Ketilbjarnar, Indriöi Halldórsson, Ólöf B. Halldórsdóttir, Oddný B. Halldórsdóttir, Bjarni Friöriksson, Birgitta Bjarnadóttir, Kolbrún Indriöadóttir. + ELÍAS Þ. EYVINDSSON læknir, Park Falls, Wisconsin, USA, lést þann 16. marz sl. Útförin hefur fariö fram. Lynn Eyvindsson, Eggert Elíasson, Pétur Eyvindsson, Helen Eyvindsson Dvorak, William Dvorak, Eyvindur Þórarinn Eyvindsson, Jane Eyvindsson, Hans Karl Eyvindsson, Erik Eyvindsson, Melinda Dvorak. + Hjartkær eiginkona mín, móöir, tengdamóöir, amma og lang- amma, GUDBJÖRG GUÐJONSDOTTIR, Álfaskeiði 64, Hafnarfiröi, andaöist aö kvöldi 21. marz í Borgarspítalanum. Þórarinn J. Björnsson, Guójón Þórarinsson, Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Aöalbergur Þórarinsson, Ólafía Einarsdóttir, Hrafnhildur Þórarinsdóttir, Ágúst Húbertsson. Þóra Antonsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað verður til kl. 1 þriöjudag vegna jaröarfarar BJÖRNS GÍSLASONAR. Dömu- og herrabúöin, Laugavegi55.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.