Morgunblaðið - 25.03.1980, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.03.1980, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980 29 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 230 kr. eintakiö. Kjarnork- an hélt velli Þjóðaratkvæðagreiðslan í Svíþjóð um friðsamlega nýtingu kjarnorkunnar á rætur að rekja til þess, að stjórnmálamenn- irnir ákváðu að skjóta sér undan þeirri ábyrgð að taka sjálfir ákvörðun um frekari hagnýtingu kjarnorkunnar, eftir að sex raforkuver knúin henni höfðu verið reist. I atkvæðagreiðslunni tókust á tvö meginsjónarmið: Hræðslan við mengun og stórslys, og vitneskjan um, að fráhvarf frá kjarnorkunni myndi hafa í för með sér efnahagslegar þrengingar. I atkvæðagreiðslunni á sunnudaginn var það borið undir alla atkvæðisbæra menn í Svíþjóð: 1) Hvort þeir vildu halda áfram á sömu braut og endurmeta stöðuna eftir þrjátíu ár; 2) Hvort þeir vildu stefna að því að rekstri kjarnorkuveranna yrði hætt eftir tuttugu og fimm til þrjátíu ár; og 3) hvort þeir vildu hætta við frekari smíði kjarnorkuvera og ieggja þau, sem nú eru starfandi, niður á næstu tíu árum. Urslit kosninganna urðu þau, að um 58% kjósenda voru hlynnt tveimur fyrri kostunum og 38% kusu þann þriðja. Meirihluti manna valdi leið 2, það er að segja millileiðina. Aætlanir eru í Svíþjóð um það, að alls verði rekin þar tólf kjarnorkuver. Fyrir utan þau sex, sem nú eru starfandi, bíða tvö tilbúin til raforkuframleiðslu. Flokkur Thorbjörns Fálldins forsæt- isráðherra, Miðflokkurinn, hefur af mestri hörku barist gegn kjarnorkuverunum. Hægri flokkurinn hefur fylgt línu eitt og Þjóðarflokkurinn og sósíaldemókratar hafa fylgt línu 2. í atkvæðagreiðslunni hafa flokksbönd riðlast. Olof Palme, formaður sósialdemókrata, sem einkum skiptust milli línu 2 og 3 í afstöðu sinni, er bjartsýnn um, að honum takist að halda flokki sínum saman. Og borgaraflokkarnir segjast munu halda áfram stjórnar- samstarfi. Aðrir eru þeirrar skoðunar, að atkvæðagreiðslan kunni að hafa alvarlegar pólitískar afleiðingar. í Noregi eru menn sammála um það, að ekki hafi enn að fullu gróið um heilt til dæmis í Verkamannaflokknum þar eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildina að Efnahagsbandalaginu 1972, sem fór á þann veg, að sjónarmið flokksforystunnar urðu undir. Nú hafa sjónarmið stjórnarforystuflokksins orðið undir í Svíþjóð og deilur eru um það milli stjórnarflokkanna með hvaða hraða skuli ráðist í frekari nýtingu kjarnorkunnar. Allt fram í síðustu viku var tvísýnt um úrslit atkvæðagreiðslunnar og því var spáð, að andstæðingar kjarnorkunnar myndu hafa betur. Auðvelt var að benda mönnum á þær hættur, sem kynnu að stafa af kjarnorkuverunum og hefur áróðurinn um þær verið ofarlega á baugi í mörgum löndum. En hvað leiddi til þeirrra niðurstöðu, sem fjf nú er kunn? Við því er ekki unnt að gefa einhlítt svar, en athygli kjósenda var síðustu daga mjög beint að efnahagslegu afleiðingun- um. Færustu efnahagssérfræðingar Svía úr öllum flokkum S sameinuðust um það álit, að það myndi skerða lífskjör manna d verulega, ef strax yrði horfið frá kjarnorkunni. Ætli sú skýring sé ekki nærtæk, að pyngjan hafi ráðið því, hvernig atkvæði féllu. Þegar til ákvarðana af þessu tagi kemur, horfa menn fyrst í eigin barm og jjf meta síðan hugsjónirnar. Auk þess hafa gild rök verið færð fyrir því, að kjarnorkuver séu ekki eins hættuleg og af hefur verið látið, þótt þar geti vissulega orðið stórslys. Svíar hafa af mörgum verið taldir til fyrirmyndar. Þess vegna er ekki ólíklegt, að ákvörðun þeirra á sunnudaginn kunni að hafa áhrif víða um lönd, þar sem tekist hefur verið á um sama mál. í Vestur-Þýskalandi er rætt um græna bylgju í stjórnmálunum, en það er framgangur umhverfisverndarmanna, sem nefna flokk sinn Grænu bylgjuna, og í fleiri löndum hafa umhverfisverndarmenn byrjað beina þátttöku í stjórnmálum. Hvort úrslitin í Svíþjóð verði til þess að hafa áhrif á fylgi slíkra flokka skal ósagt látið. Hitt er ljóst, að í iðnaðarþjóðfélögunum stendur nútímamaðurinn frammi fyrir næsta óvægilegum kostum, þegar hann þarf að gera það upp við sig, hvernig hann á að tryggja afkomu sína og lífskjör í orkusnauðum heimi. Vandi okkar íslendinga í orkumálum er sem betur fer ekki þannig vaxinn, að val ^okkar standi á milli kjarnorku eða orkuskorts. En atkvæðagreiðslan í Svíþjóð minnir okkur á, að við eigum enn mikið af óvirkjuðum orkulindum. Við nýtingu þeirra þarf að ríkja sá stórhugur, sem tryggir allri þjóðinni betri lífskjör, þegar fram líða stundir. Hættan er ávallt sú, þegar tveir deila, að í hita baráttunnar missi menn sjónar á kjarna málsins og einbeiti sér fremur að því að ná sér niðri á andstæð- ingnum en efnislegum ár- angri. í milliríkjadeilum eins og þegar ágreiningur verður milli einstaklinga er það forsendan fyrir sam- komulagi, séu menn þess yfirleitt fýsandi, að unnt sé að samræma hagsmuni deiluaðila. Þess vegna er nauðsynlegt, að þeir liggi ætíð skýrir fyrir. Ýmsum kann að sýnast ástæðulaust að rifja upp svo almennar staðreyndir sem þessar í upphafi greinar um Jan Mayen-málið. Það er þó gert vegna þess, að ýmislegt bendir til, að sumir hafi gleymt því um hvað málið snýst og hverjir eru mögu- leikar okkar íslendinga. Nú í þessari viku hittast þeir Knut Frydenlund utan- ríkisráðherra Noregs og Ól- afur Jóhannesson í tengslum við utanríkisráðherrafund Norðurlanda, sem haldinn er í Helsingfors á fimmtu- dag og föstudag. Síðan hefur verið boðað til formlegra samningaviðræðna í Reykjavík 14. og 15. apríl n.k. Þar verður fram haldið þar sem frá var horfið á síðasta sumri. grein, að á hugmyndirnar ætti að líta sem „pröveballong" eða tilraunabelg, sem sendur væri á loft til að fá fram viðbrögð Norðmanna. Hafnaði blaðið síðan þeirri hugmynd með öllu, að yfirráðunum yrði skipt jafnt milli landanna. Jan Mayen ekki norsk Nú kunna sumir að segja, að ýtrasta krafa Islendinga sé ekki samstjórn heldur sú að viðurkenna alls ekki fullveldisrétt Norðmanna yfir Jan Mayen, neita því sem sé að eyjan sé norsk. Hæpið er að það sjónarmið standist, þegar gangur málsins er skoðaður. Hefðu Islendingar ætlað að halda því til streitu var til dæmis óþarft við útfærsluna í 200 mílur 1975 að vera með nokkrar vangaveltur um miðlínu gagnvart Jan Mayen, sem allir stjórnmálaflokkar voru þó einhuga um, að dregin skyldi til bráðabirgða. Haustið 1978 flutti Eyjólfur Konráð Jónsson ásamt fleiri sjálfstæðis- mönnum þingsályktunartillögu um að fela ríkisstjórninni að hefja strax samningaviðræður við Norðmenn um fiskveiðiréttindi og nýtingu auðlinda á landgrunninu utan 200 mílna efna- hagslögsögu íslands umhverfis Jan Mayen. I þessari tillögu, er í fyrsta sinn tekið af skarið um það, að ekki skuli gilda miðlína gagnvart Jan Mayen og var það síðan staðfest með lögunum um landhelgi íslands og efnahagslög- sögu, sem tóku gildi 1. júní 1979. Um þær sömu mundir var að komast skriður á viðræður við Norðmenn en upp úr þeim slitnaði síðan af tækni- legum ástæðum þ.e. fyrst vegna sveit- arstjórnakosninga í Noregi og síðan vegna kosninga og stjórnarkreppu hér á landi. Hvergi er unnt að finna skjöl, sem sýna að íslendingar hafi með formleg- um hætti mótmælt yfirráðum Norð- manna yfir Jan Mayen. En 1927 voru fyrirvarar íslendinga tilkynntir norsku stjórninni og þar áskilja þeir sér allan rétt til að nýta hlunnindi Jan Mayen. Norskir þjóðréttarfræðingar viðurkenna tilvist þessara fyrirvara. Hins vegar er það skoðun Egil Amlie yfirmanns þjóðréttardeildar norska SZZB POLITIKK CÐ Fvlicsstyre rundt Jan Jlayens S J OKK-KRAV FRA ISLAND NEM VORK (VG) — og nlen- riksmlniMer Knnt Fn’denlnnii kan fnrherede pá et slagsmSI nton llke i RoyWJaxik etter pftske, nár de to lnnd skal dlskutere opprettelsen a\ en norsk 200 mils sono rundt Jan Mayen. Dette cr klfcrt. ctter al T’G har vrri kontakl mcd islandfkr dclcpa sjonskretscr og fitt rap- port om dct islandskc forhan d 11 r.gsopplegget Uf no' lí opprettr er liff oljerUtOommi sœ ii( idit kommlsjon som ár sokkelen pA Set lolondake^pla- ajónera terrítorlum. m'ÍÝ., nlí"' ' J" iíndK N4Íreíal«d "fllbýr' en Inflm forÖUder n noe ekæmpel pl at en u •e utalllge neg pA knr- mpel páen Et norste-islandsU kupp NEW YORK (VG) — Den ordningcn Iland vil tárrslá for Norge, er reRelrett et norsk-islandsk kupp I verdensmálcstokk tor & sikre scg et fellesstyre over hav og havbunn i sonen rundt Jan Mayen. Det er Norge som folkerettslig skal gá i bre?y)en og opprette sonen I mcdhold av de fore- Ispigt havrettstekstene. Mon uodorháodon aluU Nor aráaoi., r..,.dl Jan M.itu drr kan ul lr« «1 Irniarl allcrr laland *r for ayrhllkkrl r»- S! oc laland pá forhánd Irri di to l«nd i rtlltnl.i, ak«l *!• dlahutrrra mrllont dr lo prrarnlrrt mré *n ajclden III cniga om ct frllraalyrt i fordnvr .11. „,.d,i l..nrta drlr|jaaj..nrr pá hav tlor kontlnicenl. nor aom un nrádrl Dcl t------ —- ..... ------------------- blltt avnr akyldlg. Tredje land Allr .IredJelbnd-./del vll 1 prakala al ruaaerC^gá danakrr. asna tí.S’ ífs landakr atendpunktrt. Ruaaer- ÍTKÍi Mrn drl gjelder á handlr hurtlf, undrralrekrr Jonaaon — Drtte má Norgr og Ialand hll^enlgr om allrrrde^l aprlL I forkjaprt. nrmllg vrd á lukkr omrádrl for drm. Drllr tUndpunklrt. alrr atándpunkl blanl "flr parllrr YOUR REAL HAMBURGER BAR IS NEVER TOO FAR < .liöeselninjef Mllk ‘ 6,50 6,50 5.25 • I l.tl.h 4,25 h /Iiiikj ui/pnrnmns tntns 10,75 iinrtí..id 3.75 l'lrrn 13,75 y Þannig leit 3. síöa víðlesnasta blaös Nor- egs, Verdens Gang, út fimmtudaginn 20. mars s.l., þegar birt var þar viötal viö Eyjólf Konráö Jónsson, alþingismann. veita strandríkjum yfirráð yfir land- grunninu utan 200 mílna efnahagslög- sögu þeirra. Þar með skapast grund- völlur undir kröfur íslendinga um landgrunnsréttindi í áttina að Jan Mayen. Islendingar hafa heimilað norskum fiskiskipum að stunda línuveiðar innan 200 mílna lögsögunnar hér við land. Aflinn er að vísu mjög lítill og stærð skipanna takmörkuð, en engu síður hefur þessi samningur haft gildi fyrir Norðmenn og skiptir þá miklu. Norskir línuveiðarar sóttu áður fyrr mikið til Grænlands og Nýfundnalands. Nú hafa þær veiðar að mestu lagst niður og flotinn, sem þangað sótti, er nær úr sögunni. Minni skipin byggja afkomu sína að verulegu leyti á því að eiga rétt til veiða hér við land. Þessi samningur er gott tæki til að ná besta rétti til fiskveiða við Jan Mayen. Einsýnt er af viðræðum við norska ráðamenn, að þeir hafa fullan vilja til þess að ná samkomulagi við íslend- inga, byggist það á þjóðréttarlegum forsendum, sem þeir telja í gildi. I því efni ber þó að hafa í huga, að það eru ekki síst norsku þjóðréttarfræðingarn- ir t.d. í utanríkisráðuneytinu, sem haldið hafa fast í alls kyns formlegheit og ef til vill þrengt óeðlilega að stjórnmálamönnunum. En hér er um mál að ræða, þar sem íslendingar geta litlu um þokað. Einungis er unnt að vona, að Norðmenn hafi víðsýni til að meta málið þannig, að hag beggja sé borgið. Hverjir eru hagsmunir Islendinga og Norðmanna umhverfis Jan Mayen? Sameiginleg stjórn Islendingar telja hag sínum best borgið, ef samkomulag tekst á grund- velli hagsmuna þeirra með þeim hætti, að þeir fari ásamt með Norðmönnum með yfirráð yfir lögsögunni umhverfis Jan Mayen utan 12 mílna, sem verði landhelgi eyjarinnar. Norðmenn telja sér ekki fært að deila yfirráðaréttinum þannig með öðrum. Þegar íslenskir blaðamenn ræddu þetta mál við Knut Frydenlund utan- ríkisráðherra í síðustu viku, vísaði hann um þetta atriði sérstaklega í fyrirlestur þann, sem dr. Carl August Fleischer þjóðréttarprófessor flutti í boði lagadeildar og Lögfræðingafélags- ins í Háskóla íslands 13. mars sl. Prófessor Fleischer sagði þar, að þjóðaréttur heimilaði Norðmönnum að veita Islendingum réttindi innan lög- sögu sinnar við Jan Mayen, en hins vegar væri þeim óheimilt að afhenda sjálfa lögsöguna og fullveldisréttinn öðru ríki eða fela því að annast stjórn á nýtingu auðlinda. Sagði prófessorinn, að í því efni rækjust menn á þá grundvallarreglu lögfræðinnar, að menn gætu framselt réttindi sín en ekki skyldur. Því var slegið upp í norskum blöðum í síðustu viku, sem Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður sagði við norska blaðamenn á hafréttarráð- stefnunni í New York um kröfu Islendinga til sameiginlegrar yfir- stjórnar yfir Jan Mayen svæðinu. En eins og Eyjóífur sagði sjálfur hér í Morgunblaðinu og norskir embættis- menn viðurkenndu í einkasamtölum var hér alls ekki um neina nýja ffett að ræða fyrir þá, sem með málinu hafa fylgst. Þeim var öllum ljóst, að þetta væri ýtrasta krafa íslendinga. Daginn eftir að víðlesnasta blað Noregs Verd- ens Gang hafði birt heilsíðufrétt um sjónarmið Islendinga eftir frásögn Eyjólfs Konráðs sagði það í forystu- utanríkisráðuneytisins, að þeir gildi ekki lengur og hafi ekki sjálfkrafa yfirfærst gagnvart norska ríkinu þegar það innlimaði eyjuna 1929, en því er haldið fram, að þá hafi þeir ekki verið ítrekaðir. Hvað sem þessu líður er ljóst, að íslensk stjórnvöld hafi aldrei haldið því opinberlega fram, að Jan Mayen væri ekki norsk. Og Knut Frydenlund vísaði í þessu sambandi til dæmis í stjórnarsáttmála núverandi ríkis- stjórnar, þar sem segir: „Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir samningum við Norðmenn til þess að tryggja fisk- veiðréttindi Islendinga á Jan Mayen svæðinu og fullnægjandi vernd fisk- stofnanna þar. Jafnframt verði hafs- botnsréttindi íslendinga á svæðinu tryggð." Sagðist ráðherrann líta svo á, að í ákvæðinu um fiskveiðiréttindin fælist viðurkenning á fullveldisrétti Norðmanna. Hins vegar benti síðasta setningin til þess, að annað kynni að gilda um landgrunnið. Haldgóð rök Hvað sem gömlu fyrirvörunum líður höfum við Islendingar nú margvísleg haldgóð rök til að tryggja okkur sem bestan rétt innan væntanlegrar lög- sögu við Jan Mayen og til verndar 200 mílna lögsögu okkar í stað miðlínu. Þeirri staðreynd verður ekki mót- mælt, að eins og drögin að hafréttar- sáttmála líta nú út, er þar fyrst nefnt, þegar rætt er um skiptilínur milli landa, að þær skuli markaðar á grundvelli sanngirnissjónarmiða og síðan er rætt um miðlínu. Hefur orðalagi nýlega verið breytt þannig að sanngirnissjónarmiðin voru færð fram fyrir miðlínuna. Norðmenn viður- kenna, að sanngirni mæli fyrir um það, að íslendingar eigi kröfur á hendur þeim við Jan Mayen. í væntanlegum hafréttarsáttmála verða að öllum líkindum ákvæði, sem Hagsmunir ísleudinga eru þessir: 1 Norðmenn viöurkenni 200 mílna íslenska efnahagslögsögu gagnvart Jan Mayen. 2 íslendingar fái yfirráð yfir landgrunn- inu utan 200 mílna í áttina að Jan Mayen. 3 íslendingar hafi jafnan rétt til hlut- deildar í afla við Jan Mayen og Norðmenn. 4 Lögsögunni umhverfis Jan Mayen sé lokað, svo aö komiö sé í veg fyrir veiðar svonefndra þriðju ríkja (Sovétríkin o.fl.) á svæöinu og settar reglur um hámarks- afla á því. Hagsmunir Norðmanna eru þessir: 1 2 3 Jan Mayen sé viöurkennd sem norsk eyja, er hafi eigin 200 mílna lögsögu. Miölína gildi gagnvart íslandi og Grænlandi bæði á hafsbotni sem hafinu. Komið sé í veg fyrir ofveiöi á svæöinu, norsk stjórnvöld fari meö stjórn fiskveiöa þar og úthluti veiðiheimildum. Loðnuveiðar Johannes Hamre rannsóknarstjóri norsku hafrannsóknastofnunarinnar í Bergen sagði, að með sókninni í loðnustofninn við ísland, sem hluta úr ári gengur inn á Jan Mayen svæðið, hefði verið gengið hættulega nærri honum. Tók hann dæmi frá loðnu- rannsóknum og loðnuveiðum Norð- manna í Barentshafi. Engar sambæri- legar rannsóknir hefðu verið stundað- ar á þessu sviði við ísland og Norð- menn hefðu stundað í Barentshafi undanfarin 8—10 ár. Hins vegar væri ljóst, að lifnaðarhættir loðnunnar á báðum stöðum væru þeir sömu. Of mikil sókn í hrygningarstofninn leiddi fljótlega til hruns. Þannig hefði 100 þúsund tonna ofveiði á hrygningar- stofninum í Barentshafi í för með sér 400 þús. tonna árlegan samdrátt í stofninum. Islendingar hafa augljósan hag af því, að sem minnst sé veitt af loðnu, þegar hún gegnur inn á Jan Mayen svæðið. Fram kom í viðræðum við menn í Noregi, að ef til vill væru ekki allir loðnuskipstjórar þar jafn áhuga- samir um útfærslu lögsögunnar, því að þeir litu þannig á, að þeir gætu veitt ótakmarkað magn, á meðan ekki hefði verið fært út. I samningáviðræðunum sl. vor var um það rætt, að hvor aðili mætti veiða 90 þúsund tonn af loðnu við Jan Mayen, en eftir að samninga- viðræður lögðust niður veiddu Norð- menn 124 þúsund tonn. Nú er um það rætt, að sa'mningar verði að hafa tekist, áður en loðnuveið- ar hefjast á svæðinu í sumar. Talið er, að vertíðin byrji upp úr miðjum júlí eða í byrjun ágúst. Olía Nokkrar vonir hafa verið við það bundnar, að á landgrunnshryggnum milli íslands og Jan Mayen kynni að finnast olía. Norska olíustofnunin í Stavanger gaf í síðustu viku út árs- skýrslu sína fyrir 1979. Þar kemur fram, að eftir segulmælingar úr lofti, sem stofnunin stóð fyrir 1976, hafi sumarið 1979 verið farið til jarðeðlis- fræðilegra rannsókna á Jan Mayen svæðinu. Hafi hryggurinn sérstaklega verið kannaður og mælingar gerðar á 600 km langri línu i krákustigum um hafið frá 70 breiddargráðu suður fýrir 69 breiddargráðu. I ársskýrslunni kemur ekki fram, hverjar eru niðurstöður þessara rann- sókna. Talsmaður olíustofnunarinnar sagði við okkur íslenska blaðamenn, þegar við spurðum hann nánar um þetta mál, að stofnunin hefði ekki mikinn áhuga á frekari rannsóknum á landgrunninu við Jan Mayen. Ekkert hefði komið fram, sem benti til þess, að þar væri olíu að finna. Sagði hann, að íslenska iðnaðarráðuneytinu hefði ver- ið skýrt frá því, að mjög litlar líkur væru á því, að olía fyndist á Jan Mayen hryggnum. Og hann bætti því við, að það þyrfti mikla bjartsýni til að halda, að olía væri umhverfis Jan Mayen. Svo virtist, sem landrekið hefði á sínum tíma leitt til þess, að olíuauðug setlög hefðu lent sitt hvoru megin við Jan Mayen hrygginn, þ.e. við Noreg og Austur-Grænland. Sé þessi kenning norsku olíustofn- unrinnar rétt, virðist ekki eftir miklu að sækjast á landgrunninu í áttina að Jan Mayen. En það þýðir ekki, að íslendingar eigi að láta hjá líða að nýta sér þann rétt til yfirráða á þessum slóðum, sem þjóðaréttur veitir þeim. Þriðju ríki Egil Amlie þjóðréttarfræðingur norska utanríkisráðuneytisins flutti um það stuttan fyrirlestur í lok fundar síns með íslenskum blaðamönnum, hvað gerast myndi, ef allar kröfur Islendinga næðu fram að ganga með samþykki Norðmanna. Hann sagði, að þá yrði alls ekki unnt að hafna kröfum dönsku stjórnarinnar og Efnahags- bandalags Evrópu fyrir hönd Græn- lendinga. Næðu þær kröfur fram að ganga yrði 100 þúsund ferkílómetra svæði skorið af lögsögu Jan Mayen og þar með bestu loðnumiðin. í þessu sambandi hljóta menn að velta fyrir sér sanngirnisreglunni og spyrja sem svo, hvaða sanngirni sé í því að leggja að jöfnu hagsmuni Islendinga annars vegar og Grænlend- inga hins vegar. Hinir síðarnefndu hafa aldrei stundað neinar fiskveiðar á þessum slóðum og eru alls ekki í stakk búnir til þess. Nýlegar fréttir herma, að Sovét- menn bíði átekta og voni, að ekki takist að leysa úr málinu með samningum milli íslendinga og Norðmanna. Fari svo ætli þeir að lýsa yfir stuðningi við málstað og kröfur Islendinga. Fyrir Sovétmönnum vakir að sjálfsögðu ekki að leggja lóð sitt á vogarskálina Islendingum í vil. Stífni þeirra í viðræðunum um lækkun á olíuverðinu hingað til lands sýnir, að þeim er alveg sama um hag íslendinga. Sovétmenn eru auðvitað að hugsa um sinn eigin hag. Þeir vilja tefja fyrir því í lengstu lög að til útfærslu komi, svo að þeir geti stundað áfram veiðar sínar á þessum slóðum. Þeir vilja skapa glundroða í samskiptum íslands og Noregs, og þeir vilja, að Norðmönnum sé gert eins erfitt fyrir og kostur er, þar sem það kynni að veikja þá í samningaviðræðunum um skiptilínu í Barentshafi milli Sovétmanna og Norðmanna. Samningar besta lausnin Öll rök mæla með því, að nú strax gangi íslensk og norsk stjórnvöld til viðræðna með því hugarfari að leysa Jan Mayen málið með samningum. Sameiginlegir hagsmunir af því að samningar takist yfirgnæfa það, sem á milli ber, einkum þegar litið er til fiskveiðanna, landgrunninu mætti skjóta á frest. Einhliða útfærsla Norð- manna á fiskveiðilögsögunni í and- stöðu við íslendinga yrði mikið áfall bæði fyrir norska sem íslenska utan- ríkisstefnu. I báðum löndum eru sterk stjórn- málaðfl, sem krefjast þess, að í engu sé hvikað frá ýtrustu kröfum. Augljóst er, að ekki dugir að mælast til samninga og neita síðan, að viðurkenna þær forsendur, sem samningar hljóta að byggjast á. Hvorki íslendingar né Norðmenn eru slegnir slíkri blindu. Björn Bjarnason. Birgir ísl. Gunnarsson: „Hér þarf að verða gjör- breyting og það strax“ Þann 28. nóvember s.l. ritaði núverandi forsætisráðherra, Gunnar Thoroddsen, grein í Morgunblaðið, þar sem segir m.a.: „I viðureign við verðbólgu er afkoma ríkissjóðs meginmál. Halli á ríkissjóði árum saman og skuldasöfnun við Seðlabankann er ein af uppsprettum verðbólg- unnar. Hér þarf að verða gjör- breyting og það strax. Árið 1980 verður ríkissjóður að skila greiðsluafgangi og byrja á því að borga skuldir sínar við Seðla- bankann, sem nú nema 30—40 milljörðum króna. En hvernig má þetta verða? Það er ekki lengur hægt að hækka skatta, þeir eru þegar orðnir alltof háir. Þetta verður að gerast með því að lækka rikisútgjöldin. Hvprnig á að fara að því? Taka þarf upp ný vinnubrögð við gerð f járlaga.“ vafalaust varpað öndinni iéttar þegar núverandi forsætisráð- herra settist í stól sinn. Maður, sem fyrir rúmum fjórum mánuð- um sagði: „Það er ekki lengur hægt að hækka skatta, þeir eru þegar orðnir allt of háir“, honum hlaut að vera treystandi í þess- um efnum. Því sárari eru vonbrigðin nú. Á Alþingi er hart deilt þessa dagana um skatt. Öll sú umræða snýst um þau áform ríkisstjórn- arinnar að hækka skatta. Útsvar á að hækka um 10%. Það hefur í för með sér um 5 milljarða í auknar álögur á landsmenn. Sú hækkun er gerð án nokkurs samhengis við þá vinnu, sem nú fer fram við endurskoðun á verkefna- og tekjustofnaskipt- ingu sveitarfélaganna. Sveitarfélög vinstri manna í því máli er það einnig athyglisvert að þau sveitarfélög, sem harðast hafa knúið á um hækkuð útsvör eru sveitarfélög vinstri flokkanna. í fararbroddi hafa þar verið Reykjavík, Kópa- vogur og Neskaupstaður. Forseti bæjarstjórnar Reykjavíkur, Sig- urjón Pétursson, hefur viður- kennt að hafa persónulega geng- ið hart fram í því að fá hækkuð útsvör. Reykvíkingar geta því ekki búist við neinni miskunn úr þeirri átt. Eina vönin er sú að hörð andstaða Sjálfstæðismanna gegn hækkun útsvaranna verði til að vinstri flokkarnir notfæri sér ekki álagsheimildina að fullu, — en það er veik von. Fólki ofbauð skattar vinstri stjórnarinnar Þessi grein var liður í miklum umræðum, sem urðu fyrir síðustu kosningar um skattamál og fjármál ríkisins. Megin- ástæða umræðnanna um skatta- mál var sú að fólki ofbauð, hversu vinstri stjórnin síðasta gekk langt í skattheimtu á landsmenn. Eldri skattar voru hækkaðir og nýir fundnir upp af mikilli hugkvæmni. Sjálfstæðisflokkurinn hafði mjög skýra og glögga stefnu í skattamálum. Stefnan var sú að afnema hina nýju skatta vinstri stjórnarinnar og færa skattkerf- ið aftur í fyrra horf. Kjósendur flokksins trúðu þessari stefnu og treystu því að flokkurinn yrði henni trúr, ef hann fengi tæki- færi til að framfylgja henni. „Það er ekki lengur hægt að hækka skatta“ Að þessu leyti hafa því margir Nýr orkuskattur En það er fleira að gerast í skattamálum þessa dagana. í iðnaðarráðuneytinu sitja menn með sveittan skallann að semja frumvarp um nýjan orkuskatt. Nýjustu fregnir úr því ráðuneyti herma að sá skattur eigi að gefa ríkissjóði í nýjar tekjur allt að 8 milljörðum og alls ekki minna en 5 milljarða. Tekjuskattar hækka Þá verður nú eftir helgina flutt frumvarp um nýja skatt- stiga tekjuskatts. Þegar hefur verið skýrt frá helstu efnisatrið- um þess frumvarps og fljótt á litið sýnast hinir nýju skattstig- ar hafa í för með sér hækkaða skatta á miðlungstekjur og þar yfir. I þeim hópi er langmestur fjöldi skattgreiðenda. Og svo eru allir gömlu skattar vinstri stjórnarinnar: Nýbygg- ingargjald, hækkaður söluskatt- ur, sérstakur skattur á skrif- stofu og verzlunarhúsnæði, svo að eitthvað sé nefnt. Allir eiga þessir skattar áfram að standa. Nú taka allir undir með for- sætisráðherranum, þegar hann sagði: „Hér þarf að verða gjör- breyting og það strax“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.