Morgunblaðið - 01.11.1981, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1981
47
I>essi mynd var tekin af þeim Völu og Gunnari Thoroddsen er
þau hlýddu á umræður á íandsfundinum síðdegis á föstudag en
þá fóru fram miklar umræður um ágreiningsmálin í Sjálfstæðis-
flokknum og stjórnarmyndun Gunnars Thoroddsens.
Frá umræðum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins:
Fyrirtækin verda að njóta
frelsis í gjaldeyrismálum
segir Kristinn
Pétursson
FRELSI í gjaideyrisviðskiptum og
vísitölutrygging lánsfjár voru helstu
umræðuefni Kristins Péturssonar,
sem tók til máls á landsfundi í
gærmorgun við umræður um at-
vinnumálin, að loknum erindum
framsögumanna. Sagði Kristinn
fyrirtækjum nauðsyn að njóta frelsis
í gjaldeyrisviðskiptum, t.d. að þau
mættu taka lán í þeim erlenda gjald-
eyri, sem hagstæðastur væri, í stað
þess að krefjast þess að hafa þau í
Bandaríkjadölum.
Um lánsfé sagði hann að hvorki
einstaklingar né fyrirtæki hefðu
efni á að bera þá vísitölubindingu
lána, sem nú tíðkaðist, fyrr eða
síðar stefndi í greiðsluþrot. Þá
sagði Kristinn skattalög vera
meira eða minna rugl og ættu
sjálfstæðismenn þar sinn skammt
og minntist hann m.a. á 10%
skattlagningu á útflutning skreið-
ar. Að lokum sagði hann að aðal-
atriði í umræðu manna um at-
vinnumál ætti að vera hvernig
mætti stækka þjóðarkökuna, en
ekki sífellt rifrildi um hvernig hún
ætti að skiptast, ekki þýddi að ríf-
ast um hluti sem ekki væru til.
Þorvarður Elíasson tók undir
orð Kristins um gjaldeyrismál og
sagði að byggðarlögum hlyti að
vera það hagsmunamál að fá að
hafa eitthvað af þeim gjaldeyri að
segja, sem þau öfluðu með útflutn-
ingi sínum. Pétur Blöndal ræddi
einnig um vísitölumálin og sagði
að fram til þessa hefðu sparifjár-
eigendur verið flengdir, en nú
nytu þeir verðtryggingar fjár síns,
en vísitölubinding væri þó nauð-
vörn til að auka sparifjármyndun.
Þá gerði hann orkumál að umtals-
efni og sagði að þar sem næg orka
væri fyrir hendi í landinu, óbeisl-
uð, þar væru þau atvinnutækifæri
sem nýta þurfti, þar væri nánast
fundið fé. Einnig tóku til máls í
umræðum um atvinnumál þeir
Jón Sveinsson, Ragnar Hall-
dórsson, Kristinn Jónsson, Edgar
Guðmundsspn og Agúst Sigurðs-
son og bað Ágúst menn að taka til
endurskoðunar þann hluta álykt-
unarinnar er fjallaði um landbún-
aðarmál og spurði hvar bændur
hefðu verið er þau drög voru sam-
in.
Að loknu erindi Matthíasar Á.
Mathiesen um kjördæmamálið
tóku til máls Guðmundur Hansson
og Páll Daníelsson. Sagði Guð-
mundur tillögurnar um kjör-
dæmamálin aðeins vera bolla-
leggingar en ekki bein yfirlýsing
um hvað Sjálfstæðisflokkurinn
vildi í þeim málum og þyrfti að
marka þessar tillögur skýrar. Páll
Daníelsson sagði að heildarat-
kvæðamagn flokks í kosningum
ætti að ráða fjölda þingmanna og
síðan ætti að skipta þingmönnun-
um niður milli kjördæma eftir
fylgi í hverju kjördæmi og með
hliðsjón af styrk flokksins. Þannig
gætu að vísu sum kjördæmi misst
sína eða sinn þingmann, en með
því móti væri skiptingin eðli-
legust.
Þessum fundi um atvinnu- og
kjördæmamálin stjórnaði Einar
K. Guðfinnsson og fundarritarar
voru þau Áslaug Öttesen og Kári
Jónasson.
I.andsfundarfulltrúar hlýða á mil
framsögumanna.
Eyjaprent
færir út
kvíarnar
EYJAPRENT hf. í Vestmannaeyj-
um hefur nýlega tekið til starfa í
nýjum og rúmgóðum húsakynnum
í lfiOO fermetra húsnæði, vinnusal
og skrifstofu. Eyjaprent var eitt
fyrsta nýja fyrirtækið scm hóf
rekstur í Vestmannaeyjum eftir
gos, haustið 1973, og síðan hefur
prentsmiðjan sífellt eflst að véla-
kosti og verkefnum. í júní 1974
hóf Eyjaprent að gefa út vikublað-
ið Fréttir og hefur það komið út
reglulega síðan.
Fyrir skömmu tók Eyjaprent
í notkun nýjar prentvélar, sem
gera prentsmiðjunni kleift að
taka stærri verkefni og viða-
meiri á allan hátt en áður, en
Eyjaprent sinnir allri almennri
prentþjónustu bæði fyrir Eyja-
menn og einnig ýmsa aðila úti á
landsbyggðinni og í Reykjavík.
Með tilkomu nýju vélanna er
stefnt að því að hefja bóka-
prentun í Eyjaprenti, en í Eyja-
prenti er setning, prentun,
plötu- og filmugerð. Forstjóri
Eyjaprents er Guðlaugur Sig-
urðsson.
Ljó.sm. Mbl. Si({urgeir.
(■udlaugur við eina setningarvél-
ina.
af öndvegisverkum
“ íslenskrar leikritunar
— eru nti aftur fáarlleg á hljómplötum
Gullna hliðið
eftir Davíö Stefánsson
Leikstjóri: Lárus Pálsson
Tónlist: Páll ísólfsson
íslandsklukkan
eftir Halldór Kiljan Laxness
Leikstjóri: Lárus Pálsson
Á þessum upptökum af verkum tveggja af höfuöskáldum fslenskrar tungu
koma fram margir af vinsælustu leikurum þjóöarinnar fyrr og síöar.
Meö þessum hljómplötum fylgja vandaöir baeklingar meö upplýsingum um
verkin, leikstjóra, leikara og höfundana. Einnig eru upplýsingar á ensku.
Heildsölubirgöir fyrirliggjandi
Verk þessi eru fáanleg í hljómplötuverslunum
um land allt
FALKINN
Suóurlandabraut 8 — simi 84670.
Laugavegi 24 — sími 18670.
Austurvsri — simi 33360.