Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983 5 Eru þeir að fá 'ann ■ Þeir stóru með líkan flugnasmekk „Það hefur verið kolvitlaust veður hérna að undanförnu og það hefur dregið úr veiðinni, samt gekk þetta þokkalega í þeirri veiðiviku sem lauk hjá okkur í dag. Frá mánudegi til mánudags veiddust 77 laxar, það eru því komnir 552 laxar á land, um 50 löxum meira en á sama tíma í fyrra,“ sagði Sigrún Árna- dóttir, ráðskona í Tjarnarbrekku við Víðidalsá, í samtali við Mbl. í gær. Það er næstum eingöngu veitt á flugu um þessar mundir, enda erlendir veiðimenn í ánni. Stærstu laxa sumarsins hafa þeir erlendu dregið, tvo 21 punds fiska og einn 20 punda. Þeir stærri veiddust í Harðeyrar- streng og Garðari, en sá minni í Galtanesi. Allir ginu við sömu flugunni, Pate Diablo, sem einn- ig hefur verið kölluð, svo undir- ritaður viti, Black Wolf, Black Labrador og Canadian Sweep. Kolsvört padda með feitan búk. Meðalþungann taldi Sigrún vera 12—13 pund og þó nokkrir 18—19 punda laxar hafa veiðst, þar af tveir í gærmorgun, einn 18 punda á Blue Charm og einn 19 punda á túbuflugu. Drýgstu flugurnar að undanförnu hafa verið Hairy Mary, Collie Dog og Krafla. Stórfískur úr Vatnsdalsá Nýlega veiddi bandarískur stangaveiðimaður einn stærsta lax sem komið hefur á land hér- lendis í sumar. Var hann að veið- um í Vatnsdalsá, en laxinn var rúm 24 pund. Laxinn veiddi hann á flugu sem ber heitið Black Sheep. Fluga sú er ný af nálinni í íslenskum laxveiðiám og ber langa, hármikla vængi. Höfuðlit- irnir eru svart og gult, en flugan er sögð eftirlfking af álaseiðum sem talið er að laxinn leggi sér til munns í hafinu. Góð veiði hefur verið í Vatns- dalsá að undanförnu og vikuveiði hefur orðið allt að 90 löxum, en sex stangir eru leyfðar í ánni. í gær frétti Mbl., að hálft fimmta hundrað laxa væri komið á land úr ánni. Fyrrgreindur stórlax er ekki stærsti lax sumarsins; eftir því sem Mbl. kemst næst hefur eng- inn slegið út 25 punda laxinn sem veiddist í ölfusá á dögunum eins og frá var greint í Mbl. Stórsilungur Greint var frá því í veiðifrétt- um Akureyrarblaðsins Dags á föstudaginn, að veiðimaður að nafni Kristján Birgisson hefði dregið 11 punda urriða á land úr Reykjadalsá í S-Þingeyjarsýslu fyrir nokkrum dögum. Veiddi hann urriðann á maðk við brúna hjá Laugum. Að sögn Dags, er silungur þessi næstum jafn þungur og stærsti laxinn sem veiðst hefur í ánni í sumar, en hann var 13 pund. Segja Dags- menn 95 laxa hafa verið komna á land úr ánni á föstudaginn, en á sama tima í fyrra hefðu þeir að- eins verið 40. Svo við höldum okkur við veiðifréttir Dags, þá er þar pist- ill um gang mála í Húseyjar- kvíslinni. Á laugardaginn voru komnir 50 laxar á land, en allt tímabilið í fyrra veiddust 40 lax- ar. Veiðin verður því að öllum líkindum talsvert betri í sumar og bæta má við, að skilyrði hafa verið örðug það sem af er sumri, vatnavextir og því um líkt, eftir því sem segir í frétt Dags. „Misskilningur“ — segir Halldór Ásgrímsson HALLDÓR Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, hafði samband við Morgunblaðið vegna fréttar blaðsins sl. laugardag um ráðstöfun gengism- unar, og sagði hana á misskilningi Ólafs G. Kinarssonar byggða. „Á ríkisstjórnarfundi á fimmut- daginn lagði ég fram mínar hug- myndir og tillögur um aðgerðir vegna vanda saltfiskframleiðenda. Aðrir ráðherrar tóku undir þessar hugmyndir og ákveðið var að ganga frá málinu milli funda og síðan voru tilnefndir menn til þess og þeir munu koma saman til fundar á þriðjudag í því skyni. Því er frétt Morgunblaðsins um ágreining í málinu og tillögur ann- arra ráðherra á misskilningi byggð,“ sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra. Frétt Mbl. á laugardaginn var byggð á samtali við Ólaf G. Ein- arsson, formann þingflokks sjálf- stæðismanna. Blaðið náði ekki í hann í gær til að bera undir hann ummæli Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráðherra. Sverrir Hermannsson, iðnaðarráðherra, vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið í gær. Niðjamót í Vogum Björk, MývalnNNveit, 8. ágÚNt. UM SÍÐIISTII mánaðamót minntust niðjar Sigfúsar Hallgrímssonar og Sólveigar Stefánsdóttur í Vogum þess að liðin eru hundrað ár frá fæðingu Sigfúsar. Sigfús Hallgrímsson fædd- ist á Grænavatni 11.8. 1883. Foreldr- ar hans voru Ólöf Jónasdóttir og Hallgrímur Pétursson. Sólveig fædd- ist á Stóru-Reykjum í Reykjahverfi 21.9. 1891. Foreldrar hennar voru Guðfinna Sigurðardóttir og Stefán Jónsson er bjuggu á Andólfsstöðum í Reykjadal. Mikið fjölmenni sótti þetta niðjamót í Vogum, eða á annað hundrað manns víða af landinu. Þótti það takast vel og er mörgum þeim minnisstætt er þekktu þessi heiðurshjón. Sólveig og Sigfús í Vogum bjuggu þar alla sína bú- skapartíð og komu upp stórum barnahópi, enda eru niðjar þeirra fjölmennir eins og að framan greinir. Kristján Þao hefur ávallt borgaö sig aö mæta á útsölurnar okkar toppsumarvörur um hásumar. Vi A 'á iB? £. Ausiurstraeti 22 Sími frá skiptiboröi 85055 Ljugmgi 20. Sáni trá Oipttborð* K055

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.