Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983 Mannætuhákarl Þessi mynd er af fimm metra löngum mannætuhákarli, sem veiddist 16 kílómetra undan ströndinni í ConnecticuL Hákarlinn reyndist vega 1650 kfló og er talinn sá stærsti sinnar tegundar sem veiðst hefur í Atlantshaflnu. Gerðu sjö mann- ræningjum fyrirsát Dyflinni, 8. áffúst. AP. LEYNILÖGREGLUMENN leitudu í dag að tveimur mönnum, sem grunað- ir eru um að vera aðilar i skæruliða- samtökum, eftir að þeim tókst að sleppa úr klóm lögreglunnar, sem gerði þeim fyrirsát. Fimm byssubófar voru handteknir í fyrirsátinni eftir að þeir höfðu gert tilraun til að ræna forstjóra stórmarkaðar. Fjórir þeirra hlutu skotsár. Að sögn talsmanns lögreglunnar voru 12 menn úr sérstakri skæru- liðadeild írsku lögreglunnar sendir til þess að sitja fyrir ræningjunum, sem voru vopnaðir vélbyssum, þar sem þeir voru á leið til sumarhallar forstjórans, Galen Weston. Weston og fjölskylda hans voru ekki heima við. Lögreglan komst á snoðir um ránstilraunina og varaði fjölskyld- una við í tíma. Weston sagði á hinn bóginn í viðtali við írsk dagblöð, að hann og fjölskylda hans hefðu ekki komið nærri sumarhöll sinni um margra mánaða skeið. Ræningjarn- ir hefðu því farið bónleiðir til búð- ar. Ekki er vitað með vissu hvort sjömenningarnir tilheyra sérstakri skæruliðahreyfingu, en hallast er að því að þeir kunni að tengjast IRA, írska þjóðfrelsishernum á N.-Irlandi. Enginn hópur hefur lýst ránstilrauninni á hendur sér. Alda vopnaðra rána, mannrána og eitur- lyfjasmygls hefur að undanförnu skollið á írlandi. Segja yfirvöld þetta verk skæruliðahreyfinga, sem séu að afla sér fjármuna til vopna- kaupa. Kasparov og Smyslov mættu ekki til leiks Korchnoi og Ribli tefla um réttin til að mæta Karpov heimsmeistara ann Anatoly Karpov. Korchnoi sagði á laugardag, að hann harmaði mjög, að Kasparov mætti ekki til leiks og það væri honum óljúft að þurfa að fylgja reglunum í tilviki sem þessu. SOVJET Pandena, Kaliforníu, 8. áfpist AP. SOVÉTMENN gáfu á laugardag einvígi Garri Kasparov og Victor Korchnoi, sem átti að hefjast þá í Pasadena. Kasparov mætti ekki til leiks eins og Sovétmenn höfðu margsinnis ítrekað. Var Victor Korchnoi lýstur sigurvegari einvígisins eftir að hafa leikið byrjunarleik sinn í fyrstu skákinni. Var Kasparov gefinn klukkustundarlangur frestur til þess að leika sinn fyrsta leik, en þar sem hann var fjarri skákborðinu þurfti ekki að gera þvi skóna að hann færði taflmenn sína á borðinu. Jafnframt gáfu Sovétmenn einvígið á milli Vasily Smyslov og Zoltán Ribli, ungverska stórmeistarans, sem fram átti að fara. Upphaflega átti það að teflast í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en borgaryfirvöld drógu tilboð sitt til baka er þau fréttu af óánægju Sovétmanna með mótsstaðinn. Þessi framvinda mála þýðir að þeir Ribli og Korchnoi verða að tefla saman í einvígi um hvor þeirra skorar á heimsmeistar- Sovéskur rannsóknaleiðangur í vanda: Á þessu korti sjást svæðin þar sem Sovétmenn ætluðu að stunda jarð- fræðirannsóknir á sænska land- grunninu. „Landsortsdjupet" er skammt frá flotastöðinni í Muskö. Sótti ekki um leyfí sænskra yfirvalda SOVÉTMENN ætluðu að hefja rannsóknir á hafsbotni í Eystrasalti á flmmtudag, meðal annars í ná- grenni Landsort í Svíþjóð og við Got- land sem er hluti Svíþjóðar. Átti að stunda rannsóknirnar frá skipinu „Aðeins stuðningur vestrænna þjóða getur bjargað Afgönum“ Breski ofurstinn Colin Mitchell, „Brjálaði Mitch“, segir að Sovétríkin muni brátt gleypa Afganistan „DAVÍÐ er dæmdur til að lúta f lægra haldi fyrir Golíat." Þetta er niðurstaða breska ofurstans Colin Mitchells, sem nú fyrir nokkru fór einn síns liðs um Afganistan f fylgd með þeim mönnum sem þar berjast örvæntingarfullri baráttu fyrir frclsi og framtíð þjóðar sinn- ar. Mitchell er mörgum betur kunnur sem „Brjálaði Mitch“, en það viðurnefni fékk hann fyrir ævintýri sín í Aden þar sem hann stjórnaði Argylls-herdeildinni. Mitchell, sem dvaldist með afgönskum frelsissveitarmönn- um í fjallahéruðunum og fylgd- ist með árásum þeirra á bæki- stöðvar sovéska innrásarhersins, segir í viðtali við Sunday Tele- graph 31. júlí sl., að á Vestur- löndum hafi fólk alrangar hug- myndir um ástandið í Afganist- an. Þar vilji menn trúa því, að skæruliðarnir séu nokkurs konar miðaldariddarar, sem geysist fram í sigursælum fylkingum og hafi í fullu tré við fullkomnustu vígvélar sovéska innrásarliðsins, en sannleikurinn sé sá, að þeir séu illa vopnum búnir, illa þjálf- aðir og búi yfirleitt við hið mesta harðrétti. Auk þess eru þeir þjakaðir af innbyrðis ágreiningi en að minnsta kosti sex skæru- * W -psf8 - ■* *-'AT - * Colin Mitchell ofursti ásamt frelsissveitarmönnum í fjöllum Afganistans. liðahreyfingar berjast nú gegn Sovétmönnum. Mitchell rifjar upp orð Marga- ret Thatcher forsætisráðherra, sem hún lét falla í því fræga Khyber-skarði. „Við munum ekki unna okkur hvíldar fyrr en Afganistan er frjálst," sagði hún. „Ef þessi yfirlýsing á að vera eitthvað meira en orðin tóm verður að fylgja henni eftir með raunverulegri hjálp, herþjálfun og vopnum. Annars er Afganist- an dauðadæmt," segir Colin Mitchell. Skæruliðana í Afganistan vantar allt til alls. Mitchell sá t.d. hvergi SAM-loftvarnaflaug- arnar, sem sagt er að smyglað hafi verið til landsins frá Egyptalandi, og einu vopnin, sem þeir hafa gegn fallbyssu- þyrlum Sovétmanna, eru vél- byssur. Þeir hafa engin tæki til að finna jarðsprengjur og verða því að reka geitur yfir grunsam- leg svæði og þó þessar skepnur séu þeim nauðsynlegri en flest annað. Colin Mitchell fór með skæru- liðunum í árásarferð þeirra á eina bækistöð Sovétmanna í Ra- hak og var hann sá eini í hópn- um sem hafði kort og áttavita og annar tveggja með kíki. Skæru- liðunum, sem voru um 200 tals- ins, tókst að fella marga Sovét- mennina, en brátt urðu þeir skotfæralausir og urðu að hörfa undir stöðugum árásum sov- éskra þyrlna. Þótt Colin Mitchell sé svart- sýnn á að Afganir hafi erindi sem erfiði í baráttu sinni gegn Sovétmönnum, dáðist hann samt mjög að kjarki þeirra og bar- áttuanda. Honum fannst hins vegar lítið koma til baráttu- þreksins meðal sovésku her- mannanna: „Rússarnir eru óag- aður lýður, skammarlegir her- menn, sem hlaupa frá vopnum sínum í orrustu, stela öllu steini léttara úr einkabílum við vegar- tálma, selja sinn eigin búnað fyrir hass og láta afganska stjórnarherinn um öll skít- verkin. Skæruliðarnir, sem ég var með, lifðu aðallega á sov- éskum mat, sem hermennirnir höfðu selt á svartamarkaðnum," sagði Colin Mitchell. Shelf. Á síðustu stundu kom hins vegar í Ijós, að sovésk stjórnvöld höfðu gleymt að fá leyfl hjá sænsk- um stjórnvöldum. Samkvæmt frásögn Dagens Ny- heter vissu starfsmenn sænska ut- anríkisráðuneytisins um áform Sovétmanna, en hins vegar hafði ekki verið lögð inn formleg um- sókn um rannsóknarleyfi. Birtist fréttin um þetta mál í DN 2. ágúst og þar var það haft eftir tals- manni sænska utanríkisráðuneyt- isins, að venjulega tæki sex vikur að afgreiða umsóknir um rann- sóknarleyfi og án þess gætu Sovét- menn ekki tekið sýni af sænsku landgrunni. DN hefur það eftir blaðafull- trúa sovéska sendiráðsins í Stokkhólmi, að það hafi verið mis- tök hjá sendiráðinu að senda ekki inn umsóknina. Telur DN að Sov- étmenn verði að láta sér nægja að stunda rannsóknir sínar á alþjóð- legu hafsvæði í Eystrasalti. I DN er rætt við sænskan jarð- fræðiprófessor, Kurt Broström, sem hafði ráðgert að vera með sovéska leiðangrinum, en dró í land þegar hann sá að í óefni var komið. Prófessorinn lætur þau orð falla, að ekki sé ráðlegt að hleypa sovéskum rannsóknaskipum of langt inn í sænska landhelgi. „Öll slík rannsóknarstörf geta haft hernaðarþýðingu," segir Kurt Broström. „Skipið er búið raf- eindatækjum sem nota má í hern- aðarskyni. Þess vegna er ég þeirr- ar skoðunar að sænsk hernaðaryf- irvöld muni aldrei samþykkja slík- ar rannsóknir.“ ERLENT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.