Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983 „Svorva nít, byrjcz&a nú ekki a þvi ást er ... að njóta straumkastsins saman. TM Rog U.S Pat Off.-all rights reserved ®1983 Los Angeles Times Syndicate Með morgunkaffinu Kg er að vonast til að komast í lúðrasveitina næsta vor. HÖGNI HREKKVÍSI „ péH KJcRLEGA FVRIR Sól og skjól við Skúlagötu Agnar Þórðarson skrifar: Það voru góð tíðindi í blöðum fyrir nokkru, að í ráði væri að leyfa byggingu fjölbýlishúsa með- fram Skúlagötunni. Þannig gefst borgarbúum kostur á að búa miðsvæðis í höfuðborginni í stað þess að vera vísað upp á heiðar í leit að byggingarlóðum. Við þetta vinnst margt í senn. í fyrsta lagi gefst væntanlegum íbúum kostur á að njóta meiri borgarmenningar þegar ekki er nema steinsnar til helstu menn- ingarbrunna borgarinnar. Menn þurfa því ekki að sóa dýrmætum tíma og fjármunum í að komast á vettvang. Út um stofugluggana hjá sér munu íbúar geta horft á útsýni sem bestu listamenn þjóðarinnar hafa lofsungið i verkum sínum, fjöllin við sundin blá og eyjarnar — vel að merkja verði húsin ekki látin snúa göflum út á flóann, eins og hent hefur á Eiðsgranda. Ástæðulaust er þó að gera ráð fyrir að slíkt slys hendi í annað sinn. Og þá er ekki minna virði skjólið, sem húsin munu veita gegn norðangarranum, þegar sá gállinn er á honum. Oft er eins og það gleymist hér við gerð húsa að við sækjumst ekki eftir skuggum og vindum, eins og íbúar Arabalanda. Við vilj- um fá sem mest af sól og skjóli gegn vindum í okkar kalda en fagra landi. Menn eru stundum að segja að íslendingar eigi að hafa stóra lystigarða, eins og í London, og nefna aðrar borgir Evrópu máli sínu til stuðnings. Þetta væri gott og blessað ef hér væri svipað veð- urfar, en því er ekki að heilsa. Þegar talað er um stór útivist- arsvæði hér, þá væri nær að bera okkur saman við bæi á Grænlandi en borgir á meginlandi Evrópu. Sannleikurinn er sá að þessi svo- kölluðu útivistarsvæði eru eins og skallar þegar litið er á höfuðborg- arsvæðið í heild. Þetta eru ber- angrar sem fólk sést næstum aldrei á ferli á, og varla von þvi hvergi er skjól. Jafnvel garðar eins og Miklatún og Hljómskála- garðurinn eru auðir og yfirgefnir þó um góðviðriskvöld sé að ræða. Það er því enginn samanburður á því hvað fólk hér gengur sér minna til hressingar en í þeim borgum öðrum þar sem veðurfar er ólíkt blíðara. En í skjóli húsa við Skúlagötu geta skapast ákjósanleg skilyrði til útivistar og garðræktunar, sé norðanvindinum bægt frá. Myndi allt svæðið geta orðið eftirsótt af ungum jafnt sem öldnum og margs konar samskipti átt sér stað sem stuðla að betra mannlífi við torg og stræti. Þá er ótalinn allur sá sparnað- ur, jafnt fyrir bæjarfélagið sem skattborgara, sem fylgir því að geta komið fyrir húsum handa fjölda fólks án þess að þurfa að leggja nýjar götur með tilheyr- andi lögnum og þjónustu, svo ekki sé minnst á sparnað íbúanna bæði beint og óbeint. Það kostar ekki fáar krónur að flytja þúsundir manna langar leiðir daglega með almenningsvögnum og einkabil- um. Iðulega kemur það einnig fyrir að fólk leggur á sig mikið erfiði til að komast heim til sín. Á síðasta vetri kom það margsinnis fyrir, í vetrarveðrum og fannfergi, að menn voru tepptir klukku- stundum saman á vegum úthverf- anna og urðu sumir að leita gist- ingar og liggja í flatsæng hjá vin- um og ættingjum á miðborgar- svæðinu. Það væri fróðlegt rann- sóknarefni fyrir félagsfræðinga, sálkönnuði og lækna að sjá hvaða áhrif það hefur á fólk að sækja vinnustaði langt að við erfiðar að- stæður, skammdegi, slæmar sam- göngur og lamstur veðra. Þetta hlýtur að vera aukaálag sem margir eiga erfitt með að þola. Þá væri munur fyrir þetta fólk að búa við Skúlagötuna, þar sem ekki þyrfti að reyna eins á þolrifin við að komast til og frá vinnu. Og það ætti ekki aðeins að byggja íbúðarhús við Skúlagötuna heldur alla strandlengjuna út á Laugar- nes. Þar ættu að vera snotur hús mót flóanum en gróðurmiklir garðar mót hádegissól. Keppa þarf að því að skapa skjól og gróður á þessu veðrasama útnesi, þá verður allt mannlíf ögn mildara og meiri borgarmenning. Að því hljótum við öll að keppa úr því við búum í borg. Að ná símasambandi Magnús H. Skarphéðinsson skrif- ar: Velvakandi. Það er með hvimleiðari athöfn- um sem fólk þarf að standa í að ná sambandi við einhvern tiltekinn starfsmann hjá fyrirtæki eða stofnun sem hefur innanhússsíma. Að bíða þetta í sífellu og útskýra fyrir endalausum nýjum símsvör- um í stofnuninni við hvern það ætlar að tala. í stað þess að gefa kost á því að geta hringt beint í viðkomandi starfsmann, sem einhver þarf t.d. oft í viku að ná í, þá þarf hann að bíða svo og svo lengi. Fyrst eftir því að símadaman eða -herrann svari, þar sem það er orðið lenska hér á landi að ekkert símaborð annar álaginu sem er á stofnun- inni. Síðan þegar loksins er svar- að, að biðja um einhvern ákveðinn starfsmann í fyrirtækinu, sem oftast er í einhverri ákveðinni „deild" þar. Og þegar svo deildin svarar eftir langa mæðu þá þarf viðkomandi erindisleitandi að bera upp einu sinni enn við hvern hann vantaði nú aftur að ná sam- bandi við. Og þá, ef heppnin er með honum, getur hann mögulega fengið samband við þann sem hann ætlaði loksins að ná í. Lætur nærri að oft líða margar mínútur, vegna alls þessa álags skiljanlega á símakerfinu í fyrirtækjunum, þar til viðkomandi fær loksins beint samband við erindismann sinn. Sem í staðinn hann hefði getað strax hringt í beint. Erlendis er víða þannig því fyrir komið að þó innanhússsímar séu i fyrirtækjum, er samt hægt að hringja I velflest símanúmerin beint utan úr bæ, og þá aðeins fyrir þá sem númerið vita. Þau þurfa ekki endilega að vera skráð ef því væri að skipta. En aðalat- riðið er að hafa ekki þetta frum- stæða símakerfi sem sér öllum þessum herskara af símsvörum fyrir ónauðsynlegri vinnu, og tef- ur ábyrgðar- og festumenn þjóðfé- lagsins í margföldu útskýrinar- snatti þegar verkefnin liggja fyrir í röðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.