Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1984 Rætt við erlenda gesti á 50 ára afmæli Heklu HEKLA hf. hélt fyrir nokkru upp á 50 ára afmæli fyrirtækisins með pomp og pragt. Auk veglegs afmælis- hófs, sem haldið var í byrjun árs, efndi fyrirtækið til mikillar sýn- ingar á húsakynnum og vörum, sem það selur. Sóttu um 10.000 manns sýninguna, sem stóð yfir í eina helgi. í tilefni afmælisins bauð Hekla nokkrum fulltrúum frá stærstu við- skiptaaðilum sínum erlendis hingað til lands. Blm. Morgunblaðsins ræddi við nokkra erlendu fulltrúana og eru samtölin við þá hér á síðunni. R.M. Browning og R.W. Anderson frá Goodyear: Óskiljanlegt hversu íslend- ingar skeyta lítið um ástand hjólbarðanna sem þeir aka á Sigfús Sigfússon, fnunkvæmdastjóri Hekhi, með Roderick Alexander frá Citibank. „ÞAÐ er dálítið erfitt að gera sér grein fyrir markaðshlutdeild okkar hér á íslandi en ég geri rád fyrir að hún sé nm 20%,“ sögðu þeir R.M. Browning og R.W. Anderson frá Goodyear-fyrírtækinu er blm. Mbl. rieddi við þá. „Sums staðar (heimin- um, t.d. í Bandaríkjunum, er Good- year mjög ráðandi fyrirtæki á hjól- barðamarkaðinum en annars staðar eru eðlilega önnur fyrirtaeki, sem standa betur að vígi.“ Fyrstu Goodyear-hjólbarðarnir komu til íslands 1931 og þá í gegn- um P.Stefánsson, sem Hekla yfir- tók síðan. Goodyear er stærsti hjólbarðaframleiðandi heims og eru stærstu samkeppnisaðilarnir Michelin og Bridgestone. Fyrir- tækið rekur 41 verksmiðju víða um heim. Hjóibarðar Goodyear hafa farið ótrúlega viða og sögðu þeir Browning og Anderson, að verksmiðjunni hefði tekist að selja bæði Kínverjum og Albönum hjólbarða. Þeim félögum var mikið niðri fyrir þegar umræðan barst að ör- yggiskröfum varðandi hjólbarða hérlendis svo og innflutningi sól- aðra hjólbarða. „Ég held að Island sé eina siðmenntaða landið í heim- inum, þar sem ekki er litið á hjól- Fulltrúar Heklu og Goodyear með hjólbarða frá verksmiðjunum á milli sín. Frá vinstri: Árni Bjarnason, framkvæmdastjóri hjólbarða- og rafvörudeildar, R.M. Browning, R.W. Anderson og þá Þorvaldur Jóhannesson, sölustjóri hjólbarða hjá Heklu. barða, sem nauðsynlegan öryggis- þátt í rekstri bifreiðar. Einhverjar reglur eru reyndar til hérlendis en þeim er ekki framfylgt af neinni hörku,“ sagði Anderson. „Ég get svo sem vel skilið aö fólk leiðist út í það að kaupa sól- aða hjólbarða á meðan nýir eru jafn fáránlega dýrir og raun ber vitni. Eftir því sem við komust næst eru nýir hjólbarðar að með- altali um tvöfalt dýrari hérlendis en í nágrannalöndunum. Sé hugs- að til þess, að þetta eru þeir hlutir, sem líf ökumanns veltur meira á en flest annað, er skattlagning yf- irvalda óskiljanleg," bætti And- erson við. Anderson sagðist hafa komið hingað til lands mörgum sinnum og sér væri mjög vel kunnugt um ástand hjólbarða hér á landi. „Það er nóg að fara bara á bílastæðið hjá Hagkaup til þess að sjá mý- mörg dæmi um handónýta hjól- barða. Það er mér hulin ráðgáta hvernig menn komast í gegnum bifreiðaskoðun á mörgum þeim „túttum" sem ég hef séð. Það eru aðeins Hekla og formaður Bíl- greinasambandsins af aðilum á ls- landi, sem reynt hafa að opna augu fólks fyrir hættunni, sem er samfara þvi að aka á lélegum eða jafnvel ónýtum hjólbörðum, en það er eins og yfirvöld vilji bara ekki opna augun fyrir þessari staðreynd. Þegar maöur hefur það í huga, að Islendingar eru upp til hópa vel gefið fólk er það óskilj- anlegt að fólki skuli ekki vera kærara um líf sitt en svo, að það aki um á ónýtum hjólbörðum." Roderíck Alexander hjá Citibank: íslenskir bank- ar hefðu gott af að fá samkeppni „Ég er ábyrgðarmaður fyrir öllum erlendum vióskiptum hjá ('itibank í Genf og er hingað kominn m.a. vegna tengsla Heklu við Cater- pillar-fyrirtækið, sem hefur bæki- stöðvar sínar ( Evrópu og skipta við okkur,“ sagði Roderick Alexander hjá Citibank er blm. náði tali af hon- um. Hekla hefur mikil viðskipti við Citibank og hafa þau staðið í a.m.k. 10 ár að því er Alexander taldi. „Fjöldamörg alþjóðleg fyrirtæki hafa bækistöðvar sínar í Genf og viðskiptalíf í borginni er því mjög fjörugt." „Ég hef verið mjög ánægður með allt, sem fyrir augu mín hefur borið hér á íslandi og þá jafnt hjá Heklu sem annars staðar," sagði Alexander. „Það litla, sem ég hef séð af landinu, er fagurt, og það hefur vakið athygli mina, að mjög góður starfsandi virðist rikja inn- an Heklu. Þá virðist mikil gróska í Reykjavík, nýjar byggingar um allar trissur bera henni glöggt vitni.“ Að sögn Alexander er Citibank stærsti banki heims sem stendur. „Allar tölur breytast svo snöggt, þess vegna segi ég eins og stend- ur.“ Höfuðstöðvar hans eru í New York, en útibú eru mjög víða. Alls sagði Alexander, að bankinn væri með útibú í 100 löndum, m.a. á öllum Norðurlöndunum að íslandi undanskildu. Otibúin í Ósló og Stokkhólmi sagði hann þó aðeins vera skrifstofur, þar sem starf- semi erlendra banka væri ekki leyfð. Alls starfa um 48.000 manns á vegum Citibank. „Þótt fyrirtæk- ið sé stórt og bækistöðvar þess í New York þurfum við ákaflega sjaldan að leita þangað. Miðstýr- ing er nánast engin.“ Alexander sagðist þess fullviss, að ef erlendum bönkum yrði leyft að starfa á íslandi myndi Citibank opna útibú hér. „Ef marka má þær upplýsingar, sem ég hef fengið um íslenskt bankakerfi held ég að fs- lenskir bankar hefðu gott af því að fá samkeppni. Sú samkeppni myndi fljótt skila sér,“ sagði Alex- ander. Markmiðið að vera ætíð í fremstu röð - segir William Evonsky frá General Electric annað en heimilistæki og lampa, en slíkt er hinn mesti misskiln- ingur. Eins og að framan greinir er framleiðsla fyrirtækisins mjög fjölbreytt og sem dæmi má nefna, að GE fékk nýlega samn- ing hjá bandarfska flughernum um sölu á hreyflum í nýjar gerðir þota. „Það, sem við komum til með að leggja mesta áherslu á á næstu árum er það sem við nefn- „GENERAL Electric er geysistórt fyrirtæki á bandaríska vísu. Þegar síðast var gerð úttekt á 500 stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna vorum við í 11. sæti,“ sagði William Ev- onsky, fulltrúii fyrirtækisins, er blm. Mbl. ræddi við hann. „GE er með um 350.000 manns í vinnu um allan heim, þar af 250.000 innan Bandaríkjanna og er með afar fjöl- breytta framleiðslu. Tollskráin bandaríska telur um 400 flokka og þegar það var kannað feyndist GE framleiða vörur í 350 þeirra. Ég held að þessar staðreyndir segi meira en margt annað um fyrirtæk- ið.“ Að sögn Evonskly hefur rekst- ur GE gengið mjög vel undanfar- in ár þrátt fyrir kreppuna, sem heimurinn fékk að finna svo rækilega fyrir og enn má greina á sumum sviðum. „Það var helst á árunum 1981 og 1982 að vind vantaði í seglin," sagði Evonsky. „Þó varð ástandið ekki verra en svo, að þótt heildarsala minnkaði jókst hagnaður fyrirtækisins. Ótrúlegt en satt.“ Evonsky sagði það alltaf hafa verið eitt meginmarkmiða GE, að vera númer 1 eða 2 á sínu framleiðslusviði. Það hefði ætíð tekist þrátt fyrir að í mörg horn væri að líta, framleiðslan væri um allan heim og samkeppnin hörð. Sagðist hann m.a. þakka það frábærri stjórnun. Fyrirtæk- ið væri eins fjarri því að vera miðstýrt og hugsast gæti. Þá skipti það ekki svo litlu, að starfsliðið væri mjög hæft og undir stjórn góðra manna. Flestir kunna e.t.v. að halda að General Electric framleiði ekkert um háþróaður tæknibúnaður (hi-tech) og aukin afköst. Nei, ég held ekki að við þurfum að óttast verkalýðsfélögin í því tilliti. GE er þekkt fyrir að vera eitthvert sanngjarnasta fyrirtækið í Bandaríkjunum gagnvart starfs- mönnum sínum. Við höfum í nær öllum tilvikum fundið fólki, sem við höfum neyðst til að segja upp störfum vegna rekstrarbreyt- inga, störf annars staðar hjá fyrirtækinu. Það er enda stefna þess að láta ekki aukna tækni bitna á starfsfólkinu. „Hvað samstarf okkar við Heklu varðar vil ég segja, að það hefur verið með miklum ágætum þau tvö ár, sem ég hef annast þau. Ég er þess fullviss, að við munum reyna að auka þau enn frekar á komandi árum og hver veit nema GE taki þátt í einhvers konar uppbyggingu á Islandi. Hekla er greinilega sterkt og virt fyrirtæki og einlægni forráða- manna þess er ósvikin. Þetta er fyrirtæki að okkar skapi,“ sagði William Evonsky. William Evohsky (t.v.) ásamt Ingimundi Sigfússyni, forstjóra Heklu, fyrir framan nokkrar af framleiðsluvörum General El- ectric. MorgunblaAiA/KEE.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.