Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAl 1984 Kjarnorkuvopn og Atl- antshafsbandalagið Bókmenntír Guðmundur Heiðar Frímannsson Gunnar Gunnarsson: Atlantshafsbandalagið og umræðan um fyrstu notkun kjarnorkuvopna. Öryggismálanefnd, ritgerð 1. Það hefur ekki farið framhjá neinum, sem fylgzt hefur með fjöl- miðlum á síðustu árum, að allur almenningur á Vesturlöndum, eða sá hluti hans, sem er háværastur, hefur látið sig nokkru varða stefnu stjórnvalda í kjarnorku- málum. Það er að vísu svo, að hér á landi er hvorki til að dreifa kjarnorkuvopnum né sérstökum áætlunum um að grípa til þeirra. Til að „vera í umræðunni" eins og það heitir, hefur mátt til að klína því á íslenzk stjórnvöld, að á Velkomnir aftur Hljóm plotur a Sigurður Sverrisson Van Halen MCMXXXIV Warner Brothers/ Steinar hf. Eftir síðustu plötu Van Halen, Diver Down, voru margir þeirrar skoðunar, að senn liði að því að sveitin syngi sitt síðasta. Platan þótti nefnilega ekki sæma bresku þungarokkssveit Banda- ríkjanna því á henni voru lög eftir ýmsa aðra. Slíkt þótti víst ekki boða annað en þeir fjór- menningar væru komnir í hug- myndaþrot. Vissulega var Diver Down i hrópandi ósamræmi við fyrstu fjórar breiðskífurnar, en ég hafði þó stórgaman af henni, ekki síst vegna þess hversu vel var farið með þau lög, sem feng- in voru að láni. MCMXXXIV er að mínu viti rökrétt framhald af tilraunum sveitarinnar á Diver Down. Enn eimir eilítið eftir af þeim „commercial“-blæ, sem vissulega setti svip sinn á hana, en gömlu, þungu einkennin gægjast líka fram og það svo um munar. Hafi menn haldið, að Eddie van Halen og félagar hans væru komnir í hugmyndaþrot er það misskilningur hinn mesti. Sum laganna á þessari nýjustu plötu sveitarinnar eru á meðal þess allra besta, sem frá henni hefur komið. Nægir þar aðeins að nefna lagið Hot for Teacher, þar sem ZZ Top-áhrif í gítarmilli- kaflanum eru þó auðheyrileg. Reyndar bregður fyrir áhrifum frá þeim fúlskeggjuðii í Texas í laginu Top Jimmy. Það er ann- ars slakasta lag plötunnar. Vel má það vera, að MCMXXXIV sé heldur léttvæg- ari en fyrstu plöturnar, en Van Halen er bersýnilega á hraðri leið inn á fyrri braut. Ekki kann ég þó alveg við það að vera að troða hljóðgervlum inn (tvö lag- anna, en það kemur þó kannski ekki að sök. Hljómar þó ágæt- lega í Jump, en það lag er greini- lega samið með það eitt í huga að ná eyrum fjöldans. Á heildina litið er MCMXXXIV þrælgóð plata og listilega „pródúseruð" af Ted Templeman, sem hefur séð um þá hlið mála hjá Van Halen til þessa. Sem fyrr segir er lagið Hot for Teacher í sérflokki, en Girl Gone Bad, þar sem örlar á Zeppelínskum áhrifum í upp- hafskaflanum, Drop Dead Legs og jafnvel House of Pain eru þar skammt á eftir. Þó ekki væri nema fyrir gítarleik Eddie van Halen stæði MCMXXXIV flest- um plötum á sporði. Þegar svo bætist við frábær trommuleikur bróðurins, Alex van Halen, af- bragðssöngur Dave Lee Roth og hnökralaus bassaleikur Michael Anthony verður útkoman pott- þétt. ítalskt iðnadarrokk? Finnbogi Marinósson Bon Jovi Bon Jovi Fálkinn Eitt af nýjustu nöfnum rokks- ins er Bon Jovi. Hver þessi hljómsveit er eða drengurinn sem hún dregur nafn sitt af veit ég ekki. En hljómsveitin skaut upp kollinum fyrir stuttu með plötu sem ber nafn hans. Fullu nafni heitir hann Jon Bon Jovi. Hann syngur öll lögin og spilar eitthvað á gítar. Aðrir sem spila með honum eru mér að öllu ókunnir og gagnar sjálfsagt lítið að nefna þá. Hinsvegar mætti draga þá ályktun af nöfn- um þeirra að þeir reki ættir sín- ar til Ítalíu. Og ef rétt er þá er það ágæta land þekkt fyrir allt annað en góða rokktónlist. Og ekki vænti ég þess að Bon Jovi eigi eftir að auka hróður þess neitt. Dígin eru öll í anda hins steingelda ameríska iðanðar- rokks (sem getur verið nokkuð gott með undantekningum). Fyrir það fyrsta þá syngur kapp- inn ágætlega en röddin hljómar eins og hjá þúsundum annarra söngvara sem allir eru að reyna að komast áfram með þessari tónlist. Sömu sögu er að segja um lögin sjálf. Uppbygging þeirra og „sándið" á hljóðfærun- um virðist miðast við að gera þetta sem líkast öllu hinu. Jafn- vel gengur þetta svo langt að á köflum eru tilþrifin á plötunni óþægilega lík „Loverboy“. Er þá góðum drengjum að líkjast en vonandi átta allir sig á um hvað er að ræða. Eina lagið á plötunni sem mér þykir vert að nefna er „Run- away“. Þetta er gott, grípandi rokklag og dæmigerð undan- tekning eins og fyrr var minnst á. Athygli vekur að þetta lag er tekið upp 1982 og að Roy Bittan (Bruce Springsteen) spilar á pí- anó í laginu. Öll önnur lög plðtunar eru tekin upp á síðasta ári og stutt er síðan platan kom út. Af öllum þeim ágætis plötum sem komið hafa út upp á síðkast- ið verður ekki annað sagt en tækifærið sem Bon Jovi fær er lítið. Hann er ekki nógu góður til að skilja eitthvað eftir og halda athyglinni. FM Keflavíkurflugvelli væru kjarn- orkuvopn, og þegar það er hrakið, þá er því blákalt haldið fram, að það gætu verið kjarnorkuvopn þar. Þetta eru tveir ólíkir hlutir og ekki greint á milli þeirra í ákafan- um. Það er mikið á sig leggjandi til að „vera með í umræðunni". Jafnhliða þeim múgæsingum, sem gengið hafa yfir Vesturlönd á síðustu árum, hefur átt sér stað skipuleg rökræða um það, hvort hverfa beri frá þeirri stefnu, sem Atlantshafsbandalagið hefur stuðzt við frá upphafi, að það úti- lokar ekki, að það geti orðið fyrra til að grípa til kjarnorkuvopna. í múgæsingunum er það jafnan lagt út sem sérstök tegund mann- vonzku, að Atlantshafsbandalagið vilji ekki endurskoða þessa af- stöðu. Sú skoðun fellur síðan ágætlega að öðrum fordómum múgæsinganna eins og þeim, að flaugar Atlantshafsbandalagsins séu sérstaklega varasamar, mun hættulegri en SS-20-flaugar Sov- étmanna. Tillagan um að hverfa frá stefn- unni um fyrstu notkun kjarnorku- vopna var sett fram í ritgerð í tímaritinu Foreign Affairs vorið 1982. Fjórir menn voru höfundar að ritgerðinni: McGeorge Bundy, George F. Kennan, Robert McNamara og Gerald Smith. Þeir félagar eru allir þekktir í stjórn- málum Bandaríkjanna og ástæðu- laust að fjölyrða um þá hér. Rök þeirra fyrir tillögunni eru í megin- atriðum byggð á tvennu. Annars vegar eru ýmsir hernaðarlegir veikleikar í kjarnorkuvopnastefn- unni. Ráðist Sovétmenn á Vestur- Evrópu með hefðbundnum vopna- búnaði, yrði Atlantshafsbanda- lagið að grípa til kjarnorkuvopna. Bandaríkjamenn yrðu þá að taka ákvörðun um beitingu kjarnorku- vopna til að tryggja öryggi Vest- ur-Evrópu, fullvissir um að þeir yrðu fyrir sams konar árás frá Sovétríkjunum. Evrópuríkjunum hefur þótt þetta vart nægileg trygging fyrir öryggi sínu og fóru því fram á það, að staðsettar yrðu kjarnaflaugar í Evrópu til að tengja betur saman öryggi Vest- ur-Evrópu og Bandaríkjanna. En þessi ráðstöfun er ekki einhlít. Hins vegar telja höfundarnir, að pólitískur ágreiningur sé svo mik- ill um stefnuna í kjarnorkumál- um, að henni verði að breyta. Eins og við var að búast, sættu þessar röksemdir öflugri gagn- rýni. Hún kom meðal annars fram í grein eftir þrjá Vestur-Þjóðverja í Foreign Affairs. Þeir telja að til- lagan um að draga úr kjarnorku- heraflanum en auka hefðbundinn herafla dragi úr áhættu Sovét- manna við að ráðast á Vestur- Evrópu og auki því líkur á stríði. í öðru lagi er ekki útilokað, að takmarkað kjarnorkustríð geti átt sér stað. í þriðja lagi þá mun auk- in áherzla á hefðbundinn herafla krefjast meira fjár og aukins mannafla miðað við það sem nú er. Það skapaði spennu í stjórn- málum, sem væri fullt eins mikil og sú, sem nú er. í þessari ritgerð Gunnars Gunn- arssonar um þessa rökræðu er gerð grein fyrir mörgum fleiri röksemdum á báða bóga. Hann rekur sögu kjarnorkustefnu Vest- urveldanna og hvernig ástandið nú er sprottið af átökum fortíðar- innar og aðalatriðin í rökræðunni, sem átt hefur sér stað á síðustu árum. Það er ástæða til að kynna fslendingum þessi sjónarmið. Það er þá kannski von til að meiri þekking stjórni orðum þeirra og gerðum, þegar þessi mál ber á góma. Eg get ekki betur séð en að þessi ritgerð sé ágætt gagn til kennslu í „friðarfræðslu", sem al- þingi virðist ætla að þvinga upp á skólakerfið. Þó verða eflaust ein- hverjir erfiðleikar á að koma meg- inatriðunum til skila á dagvistum. Fóstrurnar geta þá sungið text- ann. Þessi ritgerð er skipulega hugs- uð og yfirleitt prýðilega stíluð og ætti ekki að reynast neinum ofviða, sem hefur áhuga á að tryggja öryggi sitt með skynsam- legum hætti. Húmanismi og endurreisn Erlendar Siglaugur Brynleifsson Kenneth Clark: The Art of Iluman- ism. John Murray 1983. Bruce Cole: The Renaissance Artist at Work. From Pisano to Titian. John Murray 1983. John Walker ritar formála og segir: „Kenneth Clark er aldrei smámunasamur eöa smáskítlega nákvæmur, en það vill oft brenna við hjá höfundum sem rita fræði- lega um listasögu. Það eru ekki margir listasögufræðingar, sem kunna að skrifa, eða sem hugsa um stíl og form ritaðs máls, hvað þá að þeir skýri greinilega þau viðfangsefni sem þeir eru að reyna að skilgreina. Því er það mikið gleðiefni að lesa lifandi enskan prósa um mestu listaverk, sem gerð hafa verið frá upphafi heims. Fyrir okkur, sem erum dæmd til þess að lesa endalausar blaðsiður í listasögum, eru bækur Kenneth Clarks svalandi óasar í þurri og skrælnaðri eyðimörk. Aðeins að hann væri ekki svo einstakur með- al listfræðinga." John Walker var safnvörður við National Gallery í Washington. Snjallir og lærðir listfræðingar eru alltaf að finna nýtt og nýtt í listaverkum fortíðarinnar, og einnig í verkum nútíma lista- manna. Einn þeirra er Kenneth Clark. Hann fjallar hér um þá fimm listamenn endurreisnartím- anna, sem tjáðu skýrast höfuð- hugmyndir húmanismans. And- rúmsloftið meðal flórentískrar borgarastéttar var mettað menn- taþorsta og aðdáun á listum og bókmenntum. Medici-ættin átti mikinn þátt í mótun þessa tíðar- anda og með aukinni meðvitund um styrk og gildi mannsins efldist sjálfsmynd Flórensmanna'. Kenneth Clark velur hér Dona- tello, Alberti, Mantegna og Botti- celli til umræðu og ýmis verk þeirra, útlistar þau og skýrir með hliðsjón af ríkjandi tíðaranda. Með þessum ritgerðum lýkur hann upp nýjum heimi í heimi þessara listamanna og auðgar þar með þeirra tíma og alla tíma. Bruce Cole leitast við að kynna lesendum sínum forsendur mál- ara- og höggmyndalistar á Ítalíu frá 1250—1550, svo að þeir eigi hægara með að skynja verkin frá upphaflegum forsendum þeirra. Höfundurinn reynir að útskýra aðferðir og tækni listamannanna, hvar þeir lærðu list sína, starfs- skilyrði þeirra, úr hvaða stéttum þeir voru og hvernig samtökum þeirra var fyrir komið; einnig er viðskiptavinum þeirra lýst, hverskonar stéttir leituðu aðal- lega til þeirra um verk og hvar verk þeirra komu fyrir sjónir manna; í kirkjum, ráðhúsum eða á einkaheimilum. Einnig fjallar Cole um tæknigrundvöll listsköp- unar, gerð lita, um marmarann og leirinn, eirinn og silfrið og hvernig þessi efni voru unnin í listaverk. Höfundurinn ræðir um ýmis verk kunnra listamanna og birtir myndir til frekari skýringar. Þetta er fræðslurit um tækni og efni, sem listamenn notuðu á þess- um öldum og með því að gera sér grein fyrir efnismeðferð, skýrist ýmislegt í verkum þessara löngu horfnu meistara. Höfundurinn hefur skrifað nokkrar bækur um listir síðmiðalda og endurreisnar- tímans. GRANTA II Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Granta II, ritstj. Bill Buford. Útg. í Penguin apríl 1984. Þetta hefti af bókmenntatíma- ritinu breska Granta er frábrugð- ið hinum fyrri. Meðal annars í því að það snýst ekki um eitt efni með mörgum tilbrigðum, eins og ýmis fyrri hefti. Nefna mætti breska skáldsagnagerð eða hvað er efst á baugi í Bandaríkjunum á sviði bókmennta. í þessu hefti eru yfir eitt hundrað síður helgaðar viðtöl- um við Milan Kundera og brotum úr ýmsum verkum hans. Milan Kundera er eins og alkunna er tékkneskur rithöfundur sem hefur á síðustu árum búið í Frakklandi og telst nú óumdeilanlega í hópi merkustu rithöfunda samtímans. Efni Kundera í ritinu er sem sagt fyrirferðarmikið og til að mynda er þar ákaflega fróðlegt viðtal við hann eftir skáldsagna- höfundinn Ian McEwan, þar sem þeir ræða um verk Kundera, út- legð hans frá Tékkóslóvakíu, fyrri verk hans, búsetu hans nú í Frakklandi og hin ýmsu prinsipp sem ráða ferðinni í verkum hans. Mjög athyglisverð grein „A Kid- napped West or Culture Bows Out“ er ákaflega áhrifamikil og hnitmiðuð grein Kundera í senn á Sovétríkin og Vesturlönd í senn. Kannski pólitískasta ritgerð Kundera fram að þessu. Þótt þetta sé merk grein fannst mér „Some- where Behind“ taka henni fram þar sem Kundera gerir skil verk- um Franz Kafka, þeim höfundi sem hann telur sig hafa lært mest af. Kundera dregur þarna upp óvenjulega skýra og aðgengilega mynd og þó skuggalega af Kafka og skrifum hans. Eg man ekki eft- ir að hafa í annan tið lesið jafn fróðlega og aðgengilega grein um jafn torráðinn höfund og Kafka hefur löngum verið talinn. Ekki má gleyma hinni frægu sögu Kundera Soul and Body sem er birt í ritinu, er að vísu ástarsaga, en gerist á þeim tímum þegar Sov- étmenn gerðu innrásina í Tékkó- slóvakíu í ágúst 1968 og undir- tónninn er þungur og tregakennd- ur þegar Kundera sníður og saum- ar það á listilegan hátt saman hvernig innrásin hefur smám saman kynleg og ruglandi áhrif á líf einstaklinganna. í ritinu eiga markir höfundar greinar og rit- gerðir, og þar á meðal eru Marques og Vargar Llosa. í upp- hafi er kafli sem heitir Observat- ions og þar skrifa þrír höfundar smápistla einkar læsilega. Ég man ekki eftir í annan tíma að hafa fengið í hendur jafn glæsi- legt bókmenntatímarit og þetta sem er stútfullt af vönduðu efni unnið á sérstaklega traustvekj- andi hátt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.