Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ1984 47 íslandsmótið í knattspyrnu hefst í dag „Nlótið verður hnífjafnt spennandi og skemmtilegt" „Þetta íslandsmót leggst mjög vel í mig. Ég hef trú á því aö mót- ið núna verói enn jafnara en í fyrra. Þaö kemur ekkert eitt liö til meö aö stinga af á stigatöflunni. Þaö veröur hart barist í hverjum leik því aö nú er meira í húfi en oft áöur þar sem þrjú stig en ekki tvö fást fyrir sigur í leik,“ sagöi Otto Guömundsson, hinn leik- reyndi fyrirliöi KR. Otto hefur ver- ið í eldlínunni í 14 ár og lætur engan bilbug á sér finna. Fyrsti leikur mótsins er í kvöld á milli KR og Víkings á grasvellinum í Laugardal. Viö inntum Otto eftir því hvernig leikurinn legöist I hann og KR-liðið. „Leikurinn leggst vel í mig og mína menn, á því er enginn vafi. Viö höfum reyndar átt viö smá- vægileg meiðsl aö striöa hjá nokkrum leikmönnum, en vonandi tekst okkur aö stilla upp okkar sterkasta liði í kvöld. Víkingar eru ávallt erfiöir mótherjar og viö vit- um aö viö þurfum aö berjast af miklum krafti til aö sigra. Ég hef trú á því aö KR-liöiö veröi gott í sumar, viö höfum aö undan- förnu skoraö mikiö af mörkum og þaö er góös viti. Liðið hefur veriö aö mótast og er í framför, á því er enginn vafi,“ sagöi Otto. — Breytir þriggja stiga reglan miklu aö þínu mati? „Ég veit þaö ekki. Mér líst svo sem ágætlega á þriggja stiga regl- una sem slíka, en ég er hálf smeykur viö aö liö dragi sig í vörn ef þau ná forystu í leikjum. En svo getur líka vel veriö aö hún hleypi miklu lífi í þetta mót. Vonandi gerir hún þaö.“ — Viltu spá einhverju um endan- lega röö í islandsmótinu? „Nei, þaö vil ég alls ekki gera. Þaö er útilokaö aö spá nokkru ööru en því aö mótiö verður hníf- jafnt alveg út í gegn,“ sagöi fyrirliöi KR-inga. — ÞR. liðin 14 ár. ÍA spáð sigri Knattspyrnumenn hér á landi búast greinilega viö ís- lands- og bikarmeisturum ÍA sterkum til leiks í sumar. Á fundi meö fréttamönnum í fyrradag spáöu þjálfarar, fyrir- liöar og forráöamenn 1. deild- arliöanna um lokastööu deild- arinnar í haust og samkvæmt henni mun ÍA sigra meö yfir- burðum. Hvert félag fékk þrjá at- kvæðaseðla. Akranes fékk 269 stig í fyrsta sæti af 290 mögu- legum og Val var spáö 2. sæti. Annars var úrslitum í deildinni spáö þannig: 1. ÍA meö 269 stig, 2. VáTur 206, 3. Fram 190, 4. Breiðablik 179, 5. KR 161, 6. Þróttur 145, 7. ÍBK 132, 8. Þór, Akureyri 118, 9. KA 113 og 10. Víkingur 82. „ÍA vinnur ylirburðasigur" • ögmundur Kristinsson Leikið á grasi í Reykjavík en möl á Akranesi VÍKINGUR og KR mætast á Val- bjarnarvelli í Laugardal í kvöld kl. 20 í fyrsta leik Islandsmótsins í knattspyrnu — 1. deild — að þessu sinni. Á morgun fara tveir leikir fram í 1. deildinni: ÍA — Fram á Akranesi kl. 18 og Valur — ÍBK kl. 20 í Laugardal. Þess má geta aö leikur- inn á Akranesi veröur á malarvell- inum — grasvöllurinn er enn ekki tilbúinn til notkunar. — sh „ÉG HELD aö Akurnesingar muni stinga önnur liö af í 1. deildinni í sumar — þeir muni vinna yfir- buröasigur," sagöi Ögmundur Kristinsson, fyrirliöi Víkinga, í samtali viö Mbl. um íslandsmótiö sem nú er aö hefjast. „Annars held ég að deildin veröi mjög jöfn og allir komi til meö aö vinna alla.“ Ögmundur sagöi aö pressan væri engin á Víkingum í upphafi þessa islandsmóts. „Þaó býst eng- inn viö neinu af okkur — og ég verö aö segja aö mér brá hrikalega þegar ég sá spá forráöamanna, þjálfara og fyrirlióa 1. deildarliö- anna (sem birt er hér annars staö- ar á síöunni). Viö vorum aö vísu neöarlega i deildinni í fyrra og leik- ir okkar í Reykjavíkurmótinu hafa ekki gefiö tilefni til stórafreka en engu aö síöur kom þaó mér mjög á óvart hve menn búast viö okkur slökum. En þaö kemur okkur auðvitað til góöa. Viö trúum því sjálfir aö viö séum meö gott liö og ég er bjart- sýnn á sumariö. Viö komumst a.m.k. ekki neöar en okkur var spáö!! Strákarnir voru svolítið svekktir þegar þeir sáu þessa spá en ég held að hún komi til með aö þjappa hópnum saman. Því má bæta viö aö okkur hefur vantaö lykilmenn í Reykjavikurmótinu — Aöalsteinn Aöalsteinsson og Þórö- ur Marelsson eru báöir meiddir og Örnólfur Oddsson er enn í Dan- mörku og kemur til okkar um mán- aöamótin. Hann var meö okkur í Belgíu um daginn og kom sterkur út.“ Ögmundi leist vel á leikinn í kvöid gegn KR-ingum. „Ég hiakka til aö komast á grasiö!" sagöi hann, og bætti því viö aö Víkingar væru ákveðnir í því aö sigra í kvöld. „KR-ingar hafa leikiö mikiö upp á aó nota löng innköst og aukaspyrnur í Reykjavíkurmótinu og ég vona aö viö höfum einhver ráö til aö stööva þá,“ sagöi Ög- mundur. Hann sagöist telja aö þriggja stiga reglan kæmi til aö gera knattspyrnuna skemmtilegri. „Ég á von á því aö liöin leiki meiri sóknarknattspyrnu i sumar en undanfarið. Nú þýöir ekkert aö leika upp á jafntefli því það er sama og tap í sumar." Heimaleikur KA á Þórsvellinum LEIKUR KA og Þórs í 1. deild- arkeppninni í knattspyrnu á sunnudag veröur leikinn á Þórsvellinum, þó hér sé um að ræöa heimaleik KA. Leikurinn hefst kl. 13.30. Þórsvöllurinn er í bestu ástandi grasavallanna fyrir noröan og ákváöu félögin því aö leikið skyldi þar nú. Þór — ÍA: Leikurinn færður á ný LEIKUR Þórs og ÍA í 1. deild- inni í knattspyrnu sem vera átti á Akranesi á miðvikudag i næstu viku veröur leikinn á Akureyri. í upphafi átti leikur- inn reyndar aö fara fram þar en þar sem menn bjuggust viö aö grasvöllurinn ó Akranesi yröi frekar tilbúinn til notkun- ar en vellirnir fyrir noröan á þessum tíma var ákveöiö aö leika á Skaganum. Raunin hefur hins vegar oröið sú aö grasvellir á Akureyri hafa komiö vel undan vetri og eru tilbúnir en ekki Skagavöllur- inn, þannig að leiknum var snúið aftur. — SH. Besta meðalaðsókn í fyrra var á Akranesi AÐSÓKNIN aö knattspyrnuleikjum 1. deildar er ávallt athyglisverö. Hún hefur verið nokkuö misjöfn í gegnum árin og jafnframt eftir því hvar leikiö er á landinu. Ef viö lítum á meöalaösóknina á hverjum leik í fyrra þá kemur í Ijós aö hún var aðeins 639 áhorfendur á hverjum leik í Reykjavík. Er þaö næstlægsta meöaltal á þeim stööum sem 1. deildar leikir fóru fram. ísafjöröur var með lægsta meöaltal, 542. Besta aösókn var á Akranesi eöa 883 aö meöaltali á hverjum leik. Hér aö neöan bittum viö töflu meö meðalaðsókn aö 1. deildar leikjum frá árinu 1978 til 1983. Þar má sjá aö besta meöalaösóknin í Reykjavík var á árinu 1981. 1978 1979 1980 1981 1982 1983 Reykjavík............................ 784 1037 1137 1282 771 639 Akranes.............................. 819 1062 990 778 751 883 Akureyri.......................... 790 834 959 596 756 Keflavík............................. 645 821 827 634 680 Vestmannaeyjar.................... 490 730 654 738 649 727 Kópavogur ........................ 560 795 936 918 721 Hafnarfjörður .................... 361 425 604 isafjöröur ...................... 478 542

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.