Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1984 25 frá kaupum eftir að frá samningi er gengið en áður en víxill er greiddur, og er honum það heimilt og fær hann þá víxil og skulda- bréfið afhent en tryggingarfjár- hæðin skv. 7 gr. verður ekki endur- greidd. Eftir útgáfu afsals verður lóð ekki skilað til Reykjavíkur- borgar. Verði víxillinn ekki greiddur á gjalddaga er Reykja- víkurborg heimilt að rifta samn- ingi einhliða með tilkynnjngu til kaupanda þar að lútandi. Komi til riftunar samnings verður trygg- ingarfé ekki endurgreitt. 10. Áskilinn er réttur til að hafna tilboðum, sem ekki ná lág- marksfjárhæð að mati borgarráðs. Innflutningur kartaflna ræddur á maraþonfundi f Framleiðsluráði: Ekki tekin bein afstaða til málsins UMSÓKNIR Hagkaupa, Eggerts Kristjánssonar hf. og fieiri aðila til innflutnings á kartöflum, sem þegar eru komnar til landsins, voru meðal umræðuefna á 12 tíma fundi í Fram- leiðsluráði landbúnaðarins í gær. Umsögn Framleiðsluráðs verður af- hent landbúnaðarráðherra árdegis í dag og varð um það samkomulag á fundinum að birta niðurstöður ekki nema í samráði við ráðherra. Sam- kvæmt upplýsingum sem blm. Mbl. tókst að afla í gærkvöldi voru mjög skiptar skoðanir um málið í ráðinu en að lokum var samþykkt einróma ályktun þar sem ekki er tekin bein afstaða heldur sett fram í greinar- gerð ýmis atriði varðandi málið. Von er á ákvörðun landbúnaðarráðherra næstu daga. f Framleiðsluráði landbúnaðar- ins sitja fulltrúar bænda og vinnslustöðva landbúnaðarins, og fjallar það einkum um framleiðslu og sölumál landbúnaðarafurða. í gær var skipað upp 20 tonnum af kartöflum af nýrri uppskeru frá ít- alíu og Grikklandi sem Eggert Kristjánsson hf. flytur inn. Einnig eru komnar til landsins kartöflur á vegum Hagkaupa og Grænmetis- verslunar landbúnaðarins og í næstu viku mun vera von á kartöfl- um á vegum Miklagarðs og Banana hf. Einnig munu fleiri innflutn- ingsaðilar vera að kanna mögu- leika á innflutningi. Gísli V. Ein- arsson forstjóri Eggerts Krist- jánssonar hf. sagði í samtali við Mbl. að kartöflurnar litu mjög vel út. Menn frá Rannsóknarstofnun landbúnaðarins og yfirmatsmaður garðávaxta væru búnir að skoða þær og hefðu kartöflurnar fengið góða dóma. Sagði hann að ekki væri vitað á hvaða verði hægt yrði að selja þær á í búðum þar sem ekki væri búið að ganga frá verð- útreikningum en sagði það ekki ótrúlegt að þær yrðu á svipuðu verði og í Danmörku, 29—41 kr. kílóið. Skoðanakönnun Hagvangs: Mikill munur á afstöðu kynja til niðurskurðar á félagslegri þjónustu Hér fara á eftir niðurstöður í skoðanakönnun Hagvangs hf. sem framkvæmd var í aprflmánuði, þar sem m.a. var spurt um hvernig leysa ætti fjárhagsvanda ríkisins: Hvernig á að leysa fjárhags- vanda ríkisins? Með auknu skattaeftirliti? Já Nei Veit ekki Meó auknu skattaeftirliti 96,0 2,8 1,2 Með viðbótarsköttum á fyrirtæki 60,7 36,3 3,0 Með afnámi niðurgreiðslna 58,5 33,7 7,8 Með niðurskurði á framlögum til verklegra framkvæmda 56,9 38,6 4,5 Með niðurskurði á þjónustu skólakerfís 22,6 73,3 4,2 Með gjaldtöku fyrir opinbera þjónustu t.a.m. á sjúkrahúsum 20,9 76,5 2,6 Með niðurskurðði á þjónustu heilbrigðis- og tryggingakerfís 15,2 82,7 2,1 Með erlendum lántökum 11,7 85,9 2,4 Með viðbótarsköttum á einstakl. 5,0 93,4 1,6 Með viðbótarsköttum á fyrirtæki? Karlar Konur Karlar Konur Já 95,6 96,5 Já 56,5 64,9 Nei 3,5 2,1 Nei 41,0 31,5 Veit ekki 0,9 1,4 Veit ekki 2,5 3,5 Með afnámi niðurgreiðslna? Með niðurskurði á framlögum til verklegra framkvæmda? Karlar Konur Karlar Konur Já 65,2 51,5 Já 63,4 50,4 Nei 29,0 38,6 Nei 33,9 43,3 Veit ekki 5,8 9,9 Veit ekki 2,8 6,4 Með niðurskurði á þjónustu skólakerfis? Með gjaldtöku fyrir opinbera þjónustu t.a.m. á sjúkrahúsum? Karlar Konur Já 31,8 12,9 Nei 62,9 84,0 Veit ekki 5,3 3,1 * Karlar Konur Já 25,1 16,7 Nei 72,6 80,5 Veit ekki 2,3 2,8 Með niðurskurði á þjónustu heilbrigðis- og tryggingakerfis? Með erlendum lántökum? Karlar Konur Já 21,9 8,5 Nei 75,6 89,9 Veit ekki 2,5 1,6 Karlar Konur Já 12,9 10,1 Nei 85,5 86,6 Veit ekki 1,6 3,3 Með viðbótarsköttum á einstaklinga? Karlar Konur Já 5,8 4,2 Nei 92,4 94,4 Veit ekki 1,8 1,4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.