Morgunblaðið - 03.11.1984, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1984
Aftaka í Líbanon
MAÐUR, sem sakaður er um að
hafa drepið sex manns í götubar-
daga, var stillt upp við vegg í Tríp-
ólí í Líbanon í fyrradag og síðan
skotinn í hnakkann.
Horfðu vegfarendur á; er
byssumaður með trefil um höf-
uðið skaut manninn með
skammbyssu, þar sem hann stóð
handjárnaður með hettu yfir
höfuðið upp við vegg á almenn-
ingstorgi einu.
Nöfnin „Allah" og „Moh-
ammed* voru rituð á arabísku á
vegginn. Honum var gefið að sök
að hafa handtekið 6 manns og
síðan tekið þá af lífi í Trípólí 20.
október sl. Með þessu hefði verið
framið brot á heraga og gróft
vopnahlésbrot.
Bardagar við
grænu línuna
Brirát. 2. BÓTt-mber. AP.
SKOTBARDAGAR brutust út í dag
milli kristinna manna og múham-
eðstrúarmanna við vopnahléslín-
una í Beirút og sjö óbreyttir borg-
arar særðust.
Líbanskir hermenn neyddust
til að loka öllum eftirlitsstöðvum
á „grænu línunni” og þegar þær
voru opnaðar aftur er bardag-
arnir fjöruðu út eftir myrkur
fóru fáir þar um.
Bardagar hafa geisað í borg-
inni tvo daga í röð og þess vegna
hafa verkamenn ekki getað fjar-
lægt tálma sem reistir voru í vet-
ur.
Bardagarnir fylgja í kjölfar
Fjölmenni spáð við
útförina í Varsjá
VarNÍá. 2. nóv AP.
Varajá, 2. nóv. AP.
ÞÚSIINDIR syrgjenda gengu fram
hjá líki prestsins Jerzy Popieluszko
á heimili hans í dag og búist er við
að meira fjölmenni mæti við minn-
ingarguðsþjónustuna í kirkju heil-
ags Stanislaw Kostka á morgun en
dæmi eru um síðan Jóhannes Páll
páfi II kom í heimsókn í fyrra —
e.Lv. ein milljón manna.
Lík Popieluszkos var flutt í
dag til Varsjár eftir krufningu í
Bialystok. Talsmenn kirkjunnar
segja að enn sé ekkert vitað um
niðurstöður krufningarinnar og
þær séu algert leyndarmál.
Sex verkalýðsleiðtogar í
Gdansk hafa hvatt til klukku-
tíma vinnustöðvunar á hádegi í
verksmiðjum sem starfa á laug-
ardögum, en Lech Walesa lagðist
gegn áskoruninni og gaf i skyn að
hún nyti ekki víðtæks stuðnings
verkamanna.
Verkamannaráðið í Huta
Warzawa-stáliðjuverunum, þar
sem Popieluszko starfaði sem
prestur, hvatti verkamenn til
þess í yfirlýsingu að „sýna ró-
semi og gæta stillingar".
Páfinn, Walesa og Jozef Glemp
kardináli hafa allir hvatt til
hófsemi eftir morðið á prestin-
um, sem yfirvöld segja að kunni
að vera liður í víðtækara sam-
særi.
Vestrænir fulltrúar telja lík-
legt að einhverjar breytingar
verði gerðar á stjórninni, en
segja að staða Jaruzelskis hersh-
öfðingja sé traust.
Walesa og tugir annarra
starfsmanna Samstöðu munu
mæta við útförina.
Dóttir Stalíns snúin aftur til Sovétríkjanna:
Svetlana saknaði
barna sinna mjög
viðræðna varaforseta Sýrlands,
Abdul-Halim Khaddams, og for-
sætisráðherra Líbanon, Rashid
Karami, sem sögðu að þeir teldu
að átökin í Líbanon væru senn á
enda.
Khaddam lýsti yfir stuðningi
við viðræður ísraelsmanna og
Líbana um brottflutning ísra-
elska herliðsins frá Suður-Líban-
on. Viðræðurnar eiga að hefjast
á mánudaginn í landamærabæn-
um Naqoura.
Blaðið „An-Nahar“ hermdi í
dag, að Líbanir mundu leggja til
að breskir og franskir gæsluliðar
yrðu sendir til Suður-Líbanon.
(«nbríd(e og Moskeu, 2. uóvember. AP.
NÁNIR vinir Svetlönu, dóttur Jós-
eps Stalíns, fyrrum leiðtoga Sovét-
ríkjanna, hafa látið f Ijós undrun og
vonbrigði með þá ákvörðun hennar,
að hverfa aftur til heimalands síns
eftir 17 ára útlegð á Vesturlöndum.
Fréttin um að Svetlana og Olga,
13 ára gömul dóttir hennar og
bandaríska arkitektsins William
Peters, væru farnar til Sovét-
ríkjanna, varð fyrst heyrinkunn í
gær, en í dag staðfesti TASS, hin
opinbera fréttastofa Sovétmanna,
hana. Var sagt að Svetlönu hefði
verið veittur á ný rfkisborgara-
réttur, sem hún var svipt árið
1970, og jafnframt veitt heimild til
að búa í Moskvu. Olga, dóttir
hennar, hefur einnig fengið rfkis-
borgararétt f Sovétríkjunum.
Svetlana fór frá Sovétríkjunum
1967 og fékk hæli i Bandaríkjun-
um sem pólitískur flóttamaður.
Hún skrifaði æviminningar sínar
og bók um flótta sinn og var fyrir
það harðlega gagnrýnd i sovéskum
fjölmiðlum, sem sökuðu hana um
föðurlandssvik.
Svetlana er þríkvænt. Með
fyrsta eiginmanni sínum, Sovét-
borgaranum Grigory Morozov,
eignaðist hún tvö börn, Jósep og
Kötju, sem eru búsett í Sovétríkj-
unum. Þau fordæmdu brotthlaup
móður sinnar, en hún lét oft í ljós
söknuð yfir þvf að sjá þau ekki og
barnabörnin sín tvö, sem hún hef-
ur aldrei séð. Annar eiginmaður
Svetlana ásamt börnum sínum, Jósep
Svo virðist sem söknuður hennar að sjá
hún sneri aftur til Sovétríkjanna.
Svetlönu var Indverji, sem lést ár-
ið 1967. Hún flutti ösku hans til
Indira, Svetlana og örlagaþræðir
ÞRÆÐIR örlaganna eru stundum
ofnir á kynlegan hátt. Tvær heims-
þekktar konur, sem eru óvænt f
fréttum sömu dagana af ólíku til-
efni, áttu samskipti er vörðuðu Iff
og frelsi fyrir mörgum árum. Það
voru Indira Gandhi, hinn látni for-
sætisráðberra Indlands, og Svetl-
ana Stalín, sem nú hefur snúið til
Sovétríkjanna eftir sautján ára út-
legð á Vesturlöndum. Hin fyrr-
nefnda stóð í vegi hinnar síðar-
nefndu er hún kaus frelsið. Nú
þegar Indira er látin hefur Svetl-
ana kosið ófrelsið á ný.
Svetlana kom til Indlands árið
1967 með jarðneskar leifar eig-
inmanns síns, sem var Indverji.
Hann var tengdur háttsettum
mönnum í stjórn Indiru Gandhi,
sem þá var nýlega orðin forsæt-
isráðherra. Svetlana hafði afráð-
ið að flýja Sovétríkin í þessari
ferð og setjast að á Indlandi.
Hún reiddi sig á stuðning Indiru,
sem brást henni. Frá viðskiptum
þeirra segir Svetlana í bókinni
um flótta sinn Only One Year,
sem kom út 1969.
Fundum Indiru og Svetlönu
bar tvívegis saman í borginni
Kalakanar í Uttar Pradesh-
fylkli, þar sem ættingjar eigin-
manns hennar bjuggu. Indira
var þá á kosningaferðalagi.
„Indira spurði mig,“ skrifar
Svetlana, um fyrsta fund þeirra,
„hvernig ég kynni við mig i Kal-
akanar. Mjög vel, svaraði ég,
horfði beint í augu hennar og
bætti við: „Mig langar til að vera
hér eins lengi og ég get. Við-
brögð Indiru voru svolítið barna-
leg. Og þú færð ekki leyfi til
þess? spurði hún.“
Indira ræddi sjálf aldrei beint
við Svetlönu um ósk hennar um
landvist. Það var augljóst mál að
mati Svetlönu að hún leiddi það
hjá sér. Frændi eiginmanns
hennar ræddi málið við Indiru
og hún kvaðst ekki treysta sér til
að hjálpa Svetlönu fyrr en eftir
kosningarnar. „Hann sagði,“
skrifar Svetlana, „að ef hún yrði
kjörin forsætisráðherra á ný
mundi hún eiga auðvelt með að
hjálpa mér.“ Það dugði Svetlönu
ekki. Þá yrði landvistarleyfi
hennar á Indlandi útrunnið og
ekki víst að hún fengi að fara frá
Sovétríkjunum á ný.
Á síðari fundi þeirra kvenn-
anna tókst Indiru enn að leiða
málið hjá sér. Þegar hún kvaddi
gekk hún óvænt að Svetlönu og
rétti hennar báðar hendur sínar:
„Ég óska þér góðs gengis," sagði
hún með hlýju í röddinni. „Eg
óska þér líka góðs gengis,“ segist
Svetlana hafa svarað. Það var
allt og sumt.
Indiru var í mun að spilla ekki
sambúðinni við Sovétstjórnina
og gefa stjórnarandstæðingum
ekki átyllu til að saka sig um að
meta eina óbreytta konu meira
en frið við heimsveldi. Svetlana
varð því að fara aðra leið. Hún
kvaddi dyra í bandaríska sendi-
ráðinu í Nýju-Delhí, sem útveg-
aði henni samstundis farseðil til
Bandaríkjanna, þar sem henni
var veitt hæli sem pólitískur
flóttamaður.
og Kötju, sem nú eru fullorðið fólk.
þau ekki hafi ráðið mestu um það að
Indlands og notaði tækifærið til
að flýja land. I Bandaríkjunum
gekk hún að eiga arkitektinn
William Peters, en þau skildu árið
1973. Svetlana og Olga bjuggu í
Princeton í New Jersey þar til
fyrir einu ári að þær fluttust til
Cambridge á Englandi og gekk
Olga i unglingaskóla í Essex.
Margir fréttaskýrendur telja
líklegt að heimkoma Svetlönu til
Sovétríkjanna verði notuð í áróð-
ursskyni. í hópi þeirra, sem telja
líklegt að hún verði neydd til að
fara ófögrum orðum um dvöl sína
á Vesturlöndum, er rithöfundur-
inn Malcolm Muggeridge, sem
gerði með henni frægan sjón-
varpsþátt fyrir nokkrum árum.
Fyrir stuttu sneri annar Sovét-
borgari, sem flúið hafði vestur,
heim á ný. Það var Oleg Bitov,
blaðamaður við bókmenntaritið
Literaturnaya Gazetta, sem fyrir
ári baðst hælis á Bretlandi. Hann
fór einnig óvænt til Moskvu og
hélt því þar fram, að vestrænir
leyniþjónustumenn hefðu neytt
sig til að yfirgefa Sovétríkin og
greinar þær, sem hann skrifaði í
útlegðinni, hefðu verið samdar
undir áhrifum heilaþvottar og
deyfilyfja.