Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Stúlka óskast Stúlka óskast í eitt ár til starfa við kúabú í Noregi. Reynsla ekki skilyrði. Búið er 150 km norður af Osló. Þarf að hafa bílpróf. Umsókn- ir ásamt prófskírteinum skal senda Marit og Pál Dobloug, 2350 Nes hed., Norge. Ritari — lögmanns- stofa Ritari óskast á lögmannsstofu. Góð íslensku- og vélritunarkunnátta æskileg. Meðmæli fylgi umsókn. Stundvísi og samviskusemi skilyrðí Umsóknir sendist augld. Mbl. merktar: „Ritari — 0229“ fyrir 5. febrúar nk. Litmy ndaljósr itu n Starfsmaður óskast til starfa við litmynda- Ijósritun (llford Cibachrome Copy). Viðkomandi þarf að hafa: ★ Þekkingu á litgreiningu, Ijósmyndatækni og úrvinrislu Ijósmynda. ★ Þjónustulundaður og viljugur til vinnu. ★ Á aldrinum 25-35 ára. Við bjóðum þér: ★ Líflegt starf í vaxandi fyrirtæki. ★ Góðan starfsanda. ★ Sanngjörn laun. Vinsamlegast leggið skriflegar umsóknir inn á augld. Mbl. fyrir 5. febrúar merktar: „N - 8101“. Fyrirspurnum hvorki svarað á skrifstofu okkar né í síma. Öllum skriflegum umsóknum verður svarað. Fjölritun Nóns hf., Xerox-umboðið. Norræna stofnun- iná Grænlandi Norræna ráðherranefndin hefur ákveðið að hefja rekstur norrænnar stofnunar á Græn- landi frá 1. janúar 1986. Stofnun þessi er ætlað að styrkja menningartengsl á milli Norðurlandanna m.a. með rannsóknum og fræðslu. Markmið stofnunarinnar er einnig að miðla upplýsingum um Norðurlönd til Grænlendinga. Rekstur hennar er í höndum sérkjörinnar stjórnar. Á næstu árum má vænta mikillar uppbyggingar innan stofnun- arinnar. Óskað er eftir: Fulltrúa (kultursekreterare) Hann mun stjórna stofnuninni og fá einn mann sér til aðstoðar. Starfssvið stofnunar- innar nær tll alls Grænlands. Hún er til húsa í Nuuk og hefur grænlenska heimastjórnin lagt fram húsnæði undir hana. Krafist er mjög góðrar dönsku-, norsku- eða sænsku- kunnáttu. Þekking á grænlenskri menningu og tungu kemur sér vel. Samningstíminn er fjögur ár. Ráðning á fyrri helmingi ársins eftir samkomulagi. Laun fara eftir hæfni umsækjenda og eru á bilinu 14.000—18.000 d.kr. Við þessa upphæð kunna að bætast aukagreiðslur. Þeir ríkisstarfsmenn sem taka til starfa við norrænar stofnanir eiga rétt á allt að fjögurra ára leyfi frá núverandi starfi. Umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 14. febrú- ar 1986. Þær skal senda: Nordiska ministerrádet, Kultursekretariatet, Snaregade 10, Dk-1205 Köbenhavn K. Nánari upplýsingar veita Carl Tomas Edam í Kaupmannahöfn í síma 45 1 11 47 11 eða Aqigssiaq Moller í Nuuk í síma 299 230 00. Atvinna óskast Kona í háskólanámi óskar eftir atvinnu, helst hálfan daginn (frá kl. 13.00-18.00) í Reykja- vík. Hefur reynslu af bókasafnsstörfum, verslunarstörfum, stmavörslu og ritarastörf- um. Getur byrjað strax. Tilboð sendist augld. Mbl. merkt: „Nauðsyn - 0454“ fyrir 1. febrúar. Góð atvinna Hefur þú áhuga á að starfa þar sem er: ► Góður starfsandi. ► Vistlegt umhverfi. ► Fjölbreytileg verkefni. ► Starfsmannafélag. Hjá fyrirtæki sem er vel staðsett fyrir flestar SVR-leiðir og býður upp á: ► Góðan tækjakost. ► Starfsþjálfun fyrir óvana. ► Heils- eða hálfsdagsvinnu. ► 2 vikna reynslutíma. ► Bónusvinnu. Ef svo er, þá hringið eða komið og talið við Hrönn verkstjóra á saumastofu okkar. Verið velkomin. DÚKURH/F Skeifan 13, S. 82222. Atvinna við Ijósritun Óskum eftir að ráða starfsmann til starfa við teikningaljósritunarvélar fyrirtækisins ásamt ýmsum öðrum almennum störfum. Vélar okkar eru stærstu og afkastamestu Ijósritunarvélar landsins og verður viðkom- andi þjálfaður til vinnu við þær. Þú þarft að vera: ★ Þjónustulundaður og viljugur til vinnu. ★ Liðlegur í viðmóti. Við bjóðum þér: ★ Líflegt starf í vaxandi fyrirtæki. ★ Góðan starfsanda. ★ Sanngjörn laun. Vinnutími: frá 08-16 eða 09-18. Vinsamlegast leggið skriflegar umsóknir inn hjá auglýsingadeild Morgunblaðsins fyrir 7. febrúar merktar: „L — 8274“. Fyrirspurnum ekki svarað á skrifstofu okkar né í síma. Öllum skriflegum umsóknum verður svarað. Fjölritun Nóns hf., XEROX-umboðið. Verkstjóri/ afgreiðslustjóri óskast til starfa við teikninga-ljósritunarvélar fyrirtækisins ásamt ýmsum öðrum störfum. Vélar okkar eru stærstu og afkastamestu Ijósritunarvélar landsins og verður viðkom- andi þjálfaður til vinnu við þær. Þú þarft að vera: ★ Þjónustulundaður og viljugur til vinnu. ★ Liðlegur í viðmóti. ★ Á aldrinum 25-35 ára. Við bjóðum þér: ★ Líflegt starf í vaxandi fyrirtæki, ★ Góðan starfsanda. ★ Sanngjörn laun. Vinsamlega leggið skriflegar umsóknir inn á augld. Mbl. merktar: „V - 8275“ fyrir 7. febrúar. Fyrirspumum ekki svarað á skrifstofu okkar né í síma. Öllu skriflegum umsóknum verður svarað. ' Fjöiritun Nóns hf. Xerox-umboðið. Opinber stofnun óskar eftir að ráða lögfræðing til samnings- gerða, innheimtustarfa o.fl. Umsókn sendist Mbl. merkt: „O — 3172“ fyrir 6. febrúar nk. Skrifstofa Nor- rænu ráðherra- nefndarinnar óskar eftir að ráða ráðunauta, ritara og aðstoðarmann/vaktmann Norræna ráðherranefndin var sett á stofn árið 1971. Verksviö nefndarinnar er að taka ákvarðanir varöandi norræna samvinnu, sem tekur til flestra sviða samfélagsins. Skrifstofan í Osló og Menningarmálaskristofan í Kaupmannahöfn annast daglegan rekstur norrænnar samvinnu. Þar er unnin undirbúningsvinna og séð til þess að ákvöröunum ráöherranefndarinnar, og annarra stofn- ana, só framfylgt. Ákveðiö hefur veriö aö sameina þessar tvær skrifstofur. Áætlað er að þvi verki veröi lokiö í júni á þessu ári og veröur skrifstofan frá þeim tíma í Kaupmannahöfn. Vegna fyrirhugaörar sameiningar þarf að fjölga starfs- fólki. Ráðunautur (heilbrigðis- og félagsmál) Ráönautnum er ætlaö aö starfa á sviöi heilbrigöis- og fólagsmála. Hann mun í samvinnu við annan ráöunaut hafa umsjón meö þeirri vinnu sem innt er af hendi á skrifstofunni vegna norrænu félagsmálanefndarinnar auk þess mun hann eiga samstarf viö norrænar stofnanir og starfshópa og stjórna samnorrænum verkefnum. Ráðunautur (byggðamál) Hann mun ásamt öðrum ráðunaut sinna verkefnum á sviði byggöamála vegna norrænu byggðastefnunefndarinnar. Honum er einnig ætlað að hafa umsjón með samstarfi hinna ýmsu stofnana og starfshópa. Ráðunautur (samgöngur, samskipti, ferðamál o.fl.) Hann mun einkum beita sór að verkefnum sem tengjast samgöngum samskiptum, umferðaröryggi og ferðamálum. Verkefni þessi eru á vegum hinna ýmsu embættismannanefnda. Hann mun einnig stjórna samvinnu norrænna stofnana og starfshópa á þessu sviöi. Ráðunautur (œðri menntun) staöa þessi heyrir undir þá deild skrifstofunnar sem sinnir verkefnum á sviði þróunar og rannsókna. Innan deildarinnar er nú einkum fengist viö verkefni sem lúta aö æöri menntun. Sem dæmi má nefna: samræmda kennslu í undirstööugreinum í háskólum og æöri menntastofnunum, stú- dentaskipti og norræna samvinnu á sviöi námsráögjafar. Ráöunauturinn mun hugsanlega sinna undirbúnings- og skipulagsverkefn- um vegna norrænna embættismannanefnda og starfshópa. Þá kann honum einnig aö vera falin tímabundin stjórnun ýmissa norrænna rann- sóknarstofnana. ráöunautarnir munu eiga samstarf viö hinar ýmsu deildir skrifstofunnar og viökomandi ráöuneyti og stjórnvöld á Noröurlöndunum. Þess er einnig vænst aö ráöunautarnir eigi frumkvæöi að samnorrænum verkefnum og geri fjárhagsáætlanir. Ráöunautunum kunna einnig aö vera falin önnur verkefni en hér hafa veriö upp talin. Þess er krafist aö iökomandi hafi viöeigandi menntun og reynslu af stjórn- unarstörfum. Þeir umsækjendur, sem hafa sórþekkingu eöa reynslu af ofangreindum málaflokkum munu ganga fyrir. Ráöunautarnir þurfa aö hafa stjórnunarhæfileika, vera samvinnufúsir og geta starfað sjálfstætt. Stööum þessum fylgja feröalög innan Noröurlanda. Aðstoðarmaður/vaktmaður Viökomandi mun sinna póstburöi og dreifingu, prentun, gæslu og viðgerö- um og viöhaldi á húsnæöi og tækjabúnaöi. Viökomandi þarf að geta starfaö sjálfstætt og hafa viöeigandi starfsreynslu. Ritarar Staða ritara. Starfið felst í simavörslu, móttöku og telex- og telefaxsendingum. Staða ritara á skjala- og bókasafni Einnig er auglýst eftir 4 til 5 riturum sem munu starfa við sérdeildir skrif- stofunnar eða fjármála og stjórnunardeild. Ritararnir munu starfa að heföbundnum skrifstofustörfum. Viðkomandi umsækjendur þurfa að vera samstarfsfúsir og geta starfaö sjálfstætt. Krafist er reynslu af skrifstofustörfum, góðrar vélriunarkunnáttu auk þess sem reynsla af skrifstofustörfum, góðrar vélritunarkunnáttu auk þess sem reynsla af ritvinnslu kemur sér vel. Varðandi stöðu ritara á skjalasafni er krafist viðeigandi starfsreynslu. Um allar þessar stöður gildir að krafist er mjög góðrar dönsku-, norsku- eða sænskukunnáttu. Skrifstofan hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um stöður þessar. Viðkomandi munu starfa í Kaupmannahöfn. Æskilegt er að þeir geti tekið til starfa i júni/júlí 1986. Samningstiminn er venjulega 3 til 4 ár. Framlenging hans er hugsanleg. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á leyfi frá núverandi starfi. í boði eru góð laun og ákjósanleg starfskilyrði m.a. mun skrifstofan aðstoða við að útvega húsnæði i Kaupmannahöfn. Umsóknarfrestur er til 18. febrúar. Nánari upplýsingar veita Ragnar Kristoffersen, skrifstofustjóri (administrat- ionsshef) og Harald Lossius, ráðunautur, i sima: (Oslo) 11 10 52 eða Mette Vestergaard i sima: (Kaupmannahöfn) 11 47 11. Terje Tveito, ráðunautur, veitir einnig upplýsingar um stöður ráðunauta um byggðamál og samgöngur. Birgit Raben, deildarstjóri, veitir einnig upplýsingar um stöðu ráöunautar á sviði heilbrigðis- og félagsmála. Bæði i eru þau í Osló. Skriflegar umsóknir skal senda: Nordisk Ministerrad Qeneralsekretæren postboks 6753 St. Olavs Plass 0130 Oslo 1. Skriflegar umsóknir um stöðu ráðunautar á sviði æðri menntunar skal senda: Nordisk Ministerrad Sekretariatet for Nordisk kulturelt samarbejd Snaregade 10 DK-1205 Köbenhavn K Danmark.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.