Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANtJAR 1986 ‘ * Hræðist ekki frostið en kvefaðist á leiðinni — sagði argentínski knattspyrnumaðurinn Marcelo Houseman við komuna til landsins í gær SEM kunnugt er munu argent- ínsku brœðurnir Marcelo og Rene Houseman leika með meistaraflokki KR í knattspyrnu í sumar. Marcelo kom til íslands fnóvember og kannaði aðstœð- ur, en fór síðan aftur til Argent- fnu tii að ganga frá sfnum mál- um. Hann kom svo f gærmorgun með farangur þeirra bræðra en Rene kemur væntanlega f næstu viku. Á leiðinni frá Keflavík til Reykjavíkur var rætt við Marcelo. Hann var 32 tíma á leiðinni frá Argentínu til fslands og vegna hitabreytingarinnar sagðist hann hafa kvefast illa á leiðinni. „Rað var 35 stiga hiti á celcíus í Arg- entínu, en þó hér sé kalt þá er það hressandi. Ég hræðist ekki frostið og tala bara við Sigurjón lækni út af kvefinu." Þess má geta að Marcelo hitti marga á ferð sinni hér í haust og á ótrú- lega auðvelt með að muna nöfn. Hann sagðist vera mjög án- ægður með að vera kominn til íslands. Vegna verkfalls í Argent- ínu þurfti Rene að bíða í nokkra daga eftir tilskyldum leyfum, en að þeim fengnum var honum ekkert að vanbúnaði. „Ég er hins vegar með bandarískan ríkis- borgararétt og því gat ég farið. Ég bíð spenntur eftir að hitta strákana í meistaraflokknum og hlakka til að byrja að æfa með KR. Ég fer þó rólega af stað og ætla að byrja æfingar í líkams- ræktarstöð. Ég stefni að því að vera kominn í góða æfingu þegar Gordon Lee, þjálfari KR, kemur ílokfebrúar." Þeir bræður munu aðstoða þjálfara yngri flokka KR við kennsluna og auk þess kenna í Knattspyrnuskóla KR. „Það verð- ur gaman að hitta litlu strákana og vonandi getum við kennt þeim eitthvað. Eða þá þeirokkur." Þeir bræður koma til með að búa saman í Vesturbænum „og það er gott, því við erum mjög samrýndir. Frítíminn hjá okkurfer í að horfa á knattspyrnu á mynd- bandsspólum, en ég kom með nokkrar með mér frá Argentínu. En nú ætla ég að hvíla mig eftir ferðina og sofa vel og lengi til að safna kröftum," sagði Marc- elo að lokum. - SG Morgunblaðið/SG 0 Marcelo Houseman kom til landsins í gær. Hór er hann að taka upp úr töskum sfnum á hinu nýja heimili þeirra bræðra og það er auðvitað knattspyrnudótið sem kom fyrst upp úr töskunum. Góður undirbúningur fyrir landsliðið — segir Jóhann Ingi Gunnarsson um Flugleiðamótið • Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrrum landsliðsþjálfari íslands og nú þjálfari hjá Kiel f Vestur-Þýskalandi. Ráðstefna um íþróttahús „ÞETTA verður skemmtilegt mót. Það er oft erfltt að ieika gegn svona liðum og verður örugglega mikill lærdómur fyrir fslenska liðið og tel óg að þeir hafi valið rótt lið f þessa keppni. Úrslitaleik- urinn f mótinu verður milli íslend- inga og Pólverja á sunnudaginn. Þessar þjóðir eiga á að skipa svipuðum liðum um þessar mundir," sagði Jóhann Ingi Gunn- arsson, þjálfari hjá Kiel, er hann var spurður um Flugleiðamótið f handknattleik, sem hefst á morg- un. „ÞETTA mót sem fram fer nú um helgina er mjög gott fyrir undirbúning íslenska landsliðsins í handknattleik fyrir HM í Sviss. Þetta er góð blanda af nokkuð sterkum liðum, sem ekki má van- meta." Vandamál Pólverja markvarslan og varnarleikurinn — Hverjir eru helstu kostir og veikleikar Pólverja, að þínu mati? ÍTALIR röðuðu sár í tvö efstu sætin f stórsvigskeppni heims- bikarsins f alpagreinum karla sem fram fór f Adeiboden í Sviss á þriðjudag. Ricard Pramotton vann þar sinn fyrsta sigur í Skotar unnu SKOTAR unnu fsrael í vináttuleik í Tel Aviv á þriðjudaginn með einu marki gegn engu. Það var Paul McStay sem skoraði sigurmarkið á 60. mfnútu, eftir sendingu frá fyrirliða sfnum Willie Míller, eftir frekar bragð- daufan fyrri háifleik. „Leikurinn við Pólverja verður góður mælikvarði á styrkleika ís- lenska liösins. Pólverjar unnu bronsverölaunin á heimsmeistara- mótinu 1982, en þeir gera það ekki núna í Sviss. Þeim hefur ekki tekist að halda sama standard undanfarin ár og hafa heldur dreg- ist afturúr. Stærsta vandamál þeirra er markvarslan og varnar- leikurinn. Þeir leika oft mjög opna vörn og koma þá mjög vel út á móti sóknarmönnum andstæöing- anna. Leikmenn Pólverja eru tæknilega sterkir og leika góðan og skemmtilegan sóknarleik. Að mínu mati er best að leika 6-0- vörn gegn þeim. Bestu leikmenn þeirra eru, Daniel Waszkiewicz, sem er besti leikmaður Póllands í dag og var m.a. valinn í heimsliðið á síðasta ári. Tluczynski er mikil skytta og svo Wenta, sem er einnig góður leikmaður. Einnig má geta hornamannsins, Plechoc. Gengi liðsins hefur ekki verið upp á marga fiskana á síðustu misserum og hefur liðið verið gagnrýnt mikið í Póllandi. Liðið var sem kunnugt heimsbikarkeppninni, annar var landl hans, Marco Tonazzi. Mark Girardelli varð fimmti og er nú með forystu f heimsbikarnum samanlagt. Pramotton, sem er 21 árs, náði langbesta tímanum í fyrri umferð og var þá einni sekúndu á undan Marco Tonazzi, sem náði aftur besta tímanum í seinni ferð. Hu- bert Strolz frá Austurríki varð þriðji, fjórði var Júgóslavinn Rok Petrovic. Ingemar Stenmark, sem vann sinn 81. sigur i heimsbikarnum í Austurríki um síðustu helgi, féll úr í seinni ferð er hann krækti fyrir hlið. er í neðsta sæti í Baltic Cup- keppninni í Danmörku fyrr í þess- um mánuði, unnu aðeins einn leik og var það reyndar gegn islending- um. Liðið tók þátt í móti í Vestur- Þýskalandi fyrir áramót og varð þar í neðsta sæti og tapaði þar m.a. fyrir Norðmönnum." Körfuknattleiks- eða handknattleiksmenn — Hvernig eru franska og bandarfska liðið? „Frakkar leika skemmtilegan handknattleik. Lið þeirra er ungt og eru þeir að byggja upp, en handknattleikur á erfitt uppdráttar í Frakklandi. Þeir verða í B- og C-styrkleikaflokki næstu árin. Bandaríkjamenn hafa á að skipa frekar slöku liði. Leikmenn þess eru mjög hávaxnir og er eins og þeir reyni að taka til sín körfuknatt- leiksmenn, sem ekki hafa náð að komast að hjá stærri liðunum í körfuboltanum. Þeir áttu samt nokkuð gott lið á síðustu Ólympíu- leikum, en flestir sem voru þá í liðinu eru hættir. Þeir ættu ekki að vera mikil fyrirstaða fyrir íslend- inga, þó má ekki vanmeta þá.“ íslendingar sterkir á heimavelli — Hvernig er staðið að undir- búningi íslenska liðsins fyrir heimsmeistarakeppnina, að þínu mati? „Ég held að það sé ekki hægt að standa betur að þessu miðað við aðstæður. Þessi keppni er mikilvæg fyrir liðið og svo eins leikirnir gegn Norðmönnum. Þó er spurning hvort ekki hefði verið ráð- legt að leika fleiri leiki erlendis. (slendingar hafa alltaf verið mjög sterkir á heimavelli, en aftur ekki eins góðum árangri náð á útivelli. Við spilum á útivelli í Sviss. Fjár- hagurinn getur líka spilað inní þetta dæmi hjá HSÍ. En ég er viss um að þessi undirbúningur á eftir að skila sér í betri árangri." Handknattleikssambandið og íþróttasamband íslands efna til ráðstefnu á Hótel Esju, föstudag- inn 31. janúar, um byggingu fþróttahúsa. Ráðstefnan hefst klukkan eitt og lýkur um fjögur- leytið. Sveinn Björnsson, forseti ÍSÍ, mun setja ráðstefnuna og fundar- stjóri verður Reynir Karlsson, fþróttafulltrúi rfkisins. Haldnir verða fyrirlestrar um hönnun og byggingu fþróttahúsa svo og fyrirhuguð fþróttahús á Siglufirði, Akranesi, Garðabæ og Reykjavfk. Þátttaka tilkynnist til skrifstofu HSÍ f sfma 687715 eða til skrif- stofu fSÍ f sfma 83377. (Fréttatilkynning.) Heimsbikarinn: ítalskur sigur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.