Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1986 47 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 14—15 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Þjóð á glapstigum Kæri Velvakandi. Ég sting nú niður penna og bið um birtingu þessara hugsana minna, því ég get varla orða bund- ist vegna auglýsingar og heimsend- ingarseðils frá Ríkissjóði íslands. Þar segir á þessa leið: „Allir geta keypt spariskírteini ríkissjóðs í þremur verðgildum, 5.000 kr., 10.000 kr. og 100.000 kr.“ Já, allir, segja þeir háttvirtu herramenn, geta keypt, já hafa bolmagn til að kaupa þau. Jafnvel mánaðarlega geta þeir keypt sér spariskírteini á þessu verði sem þeir tiltaka. Þá er spuming mín: Erum við ekki talin með þessum öllum, við sem höfum í mánaðartekjur skv. iðntöxtum 16.900 krónur? Skyldu þessir háu í þjóðfélaginu framfleyta sér á því yfír mánuðinn og þar að auki hafa efni á því að kaupa sér spariskír- teini fyrir 5—100 þúsund krónur á mánuði? Mér brennur í huga: Hvar er nú heilastarfsemin hjá þessum menntuðu háu herrum eða hafa þeir hreiniega lokað eyrum og augum, svo þeir vita ekkert af verkalýðnum í þessu landi? Þeir ætlast til að við björgum þeim úr skuldasúpunni, þeir þenja sig út yfir allt með því að sóa öllu landsins fé í fánýtan innflutning sem allir vel skynsamir kristnir menn geta verið án. EJða eru kannske engir réttkristnir menn eftir í þessu landi? Vel flestir þjóðfélagsþegnar vita ekki annað í sinn haus en að ríkið eigi að sjá um allt, sjá fyrir þeim og öllu því sem græðgin og gimdin heimtar af öðmm. Það er ekki Hugvekja séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar Velvakandi góður. Sunnudaginn 12. janúar hlustaði ég á séra Sigurð'Hauk Guðjónsson í sjónvarpinu. Þar flutti hann frá- bæra ræðu. Ég held að sem flestir íslendingar hefðu gott af því að heyra þessa hugleiðingu eða lesa. Væri ekki hægt að fá ræðuna birta í Morgunblaðinu? Helga Eng*um ráðum fengum ráðið í lok sjónvarpsfrétta sunnudag- inn 19. þ.m. skírskotaði fréttamað- urinn til veðurfræðingsins að þeir gætu ráðið hvernig veðrið yrði á næstunni. — Þá fæddist þessi orða- leikur: Engum ráðum fengum ráðið, rétt þó spáðum veðri í dag. Er við gáðum on’í gráðið, gast það báðum vel í hag. S.D. lengur í tísku að vera sjálfbjarga einstaklingur, reyna að lifa svo að heimta af sjálfum sér, að vera sjálf- um sér nógur, fara vel með sitt og eyða ekki og sóa í óhóflegt líf skemmtana og fíkna. Ég veit það eftir áreiðanlegum heimildum að það þykir bara lítið að fara á skemmtistað og borga 15—20 þús- undir fyrir kvöldið. Varla er verka- fólkið með 16 þúsundin í þeim NEF, fingur og blóð o.s.frv., auglýs- ir fyrirtæki á Laugavegi ofanverð- um, sem kennir sig við bækur. Fyrir utan þessa væntanlega blóðidrifnu líkamshluta, auglýsir þetta fyrirtæki að ávallt sé eitthvað spennandi í „hryllingsdeild" bóka- búðarinnar. Meðan almenningur má horfa upp á löggæsluna hér uppi á gömlu friðsælu Islandi ganga um með hríðskotabyssur og gráa fyrir jámum vegna miskunnar- lausra hryðjuverka glæpamanna, sem tröllríða heiminum um þessar mundir, lætur kauphéðinn hér í fá- menninu sig hafa það, að auglýsa „hryllingsdeild" í fyrirtæki sínu, svona til þess að biýna fyrir ungl- ingunum að þar fáist allt milli himins og jarðar til þess að vekja viðbjóð, hroll, óhugnað, skelfíngu og angist. Viðbjóðslegar grímur eru flokki. Já, ég segi bara eins og Jeremía spámaður: „Þeir eru orðnir feitir, það stimir á þá. Þeir eru og fleytifullir af illskutali, málefni munaðarleysingjans taka þeir ekki að sér til að bera það fram til sigurs og þeir reka ekki réttar fátækling- anna. Ætti ég ekki að hegna slíkum mönnum? Eða hefna mín á annarri eins þjóð og þessari?" Heiðrún Helgadóttir þar á boðstólum auk fyrmefndra fíngra, blóðs og annarra líkams- hluta. Hvað segja menn nú við svona fjárplógsstarfsemi? Er þetta löglegt og samboðið okkar tiltölulega frið- sama samfélagi? Svo má spyrja, hvemig er þetta flutt inn og undir hvaða heiti? Em bækur hafðar í blóra eða er þetta tollafgreitt sem „hryllingur" „horr- or“, eða kemur þetta inn í landið undir fölsku flaggi? Þessum spum- ingum er beint til tollgæslustjóra og vænst svars frá honum. Við þennan kaupmann er ekki hægt annað að segja en þetta: Lokaðu þessum hryllingi þínum hið snar- asta og seidu eitthvað mannbæt- andi, ekki veitir af. Starri Þessir hringdu . . Stríðsvindar Birgir ísleifsson hringdi og vildi koma á framfæri orðsend- ingu til sjónvarpsins. „Nú er sýnd- ur myndaflokkur á sunnudags- kvöldum er ber heitið „Winds of War“. í íslenskri þýðingu hefur hann hlotið nafnið „Blikur á lofti". Það er ekki rétt þýðing, því flokk- urinn heitir Stríðsvindar á ís- lensku.“ Lélegur sím- svari í Blá- fjöllum Áhugamaður um skíðaferðir hringdi og kvartaði sáran yfír símsvaranum í Bláfjöllum. Sagði að nær ómögulegt væri að ná sambandi, þegar veður væri þann- ig að menn væm í vafa um hvort fært væri í Bláfjöllin eða lyftumar í gangi. Þá hringdu það margir að símsvarinn annaði því alls ekki (eða færi ef til vill úr sambandi vegna álags). Símsvari sem þann- ig væri ástatt um kæmi að litlum notum. Kvaðst hann ekki trúa öðm en hægt væri að ráða bót á þessu, núna á þessari tækniöld. Skorar hann á viðkomandi aðila að kippa þessu í lag. Prósentu- reikningur fjölmiðlanna Gísli Jónsson prófessor hringdi og þótti prósentureikningi blaðamanna hafa hrakað að und- anförnu. „Fyrir nokkm var stór baksíðufrétt í Dagblaðinu þar sem fjallað var um hækkun á ýmsum vömm og gjöldum og var þar farið fijálslega með stærðfræðikunn- áttu lesenda. Síðan var frétt í Morgunblaðinu síðstliðinn föstu- dag þar sem hækkun á bifreiða- skatti sem nú hefur tekið gildi, er sögð 300%. Hið rétta er að hann þrefaldaðist sem er hækkun um 200 prósent. Lesendur dag- blaða svo og aðrir landsmenn era nógu mglaðir í prósentureikningi þó að ekki sé haldið að þeim röngum upplýsingum í dagblöð- um. Ég held að forráðamenn fjöl- miðlanna ættu því að gera þjóð- inni greiða og senda starfsfólk sitt á námskeið í prósentureikn- ingi.“ Góð líðandi stund Hannes Tómasson hringdi og vildi þakka Ómari Ragnarssyni og samstarfsfólki hans fyrir nýja þáttinn á miðvikudagskvöldum. „Hann er alveg skínandi góður og líklega besti þátturinn sem sjónvarpið hefur sent frá sér ef svo heldur fram sem horfír." Hryllingiir ÓKEYPIS BÆKLINGUR Starfsframi, betri vinna, betri laun Eftir nám í ICS-bréfaskólanum átt þú möguleika á auknum starfsf rama og betur launaöri vinnu. Þú stundar námiö heima hjá þér á þeim hraöa sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón- ir manna nám í gegnum ICS-bréfaskólann! Líttu á listann og sjáöu öll þau tækifæri sem þér gefast. ICS-bréfaskólinn hefur örugglega námskeiö sem hæf ir áhuga þínum og getu. Prófskír- teini í lok námskeiöa. Sendu miðann strax í dag og þú færö ÓKEYPIS BÆKLING sendan í flugpósti. (Setjiö kross í aöeins einn reit). Námskei □ Tölvuforritun □ Rafvirkjun □ Ritstörf □ Bókhald □ Vélvirkjun Nafn:........ Heimilisfang: ICS International Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High Street, Sutton, Surrey SM11PR, England. eruölláensku. □ Almenntnám □ Bifvélavirkjun □ Nytjalist Stjórnun □ fyrirtækja □ Garöyrkja □ Kjólasaumur Innanhús- □ arkitektúr Stjórnun hótela □ og veitingastaða □ Blaðamennska Kælitækni og □ ioftræsting Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals i Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekið á móti hvers kyns íyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö notfæra sér viötalstíma þessa. * " I Laugardaginn 1. febrúar verða til viötals Ragnar Júlíusson ■ formaður fræðsluráðs og launamálanefndar og Gunnar S. ^ Björnsson í stjórn ráðningarstofu og Iðnskólans í Reykjavík. g c---------------------------------------------------------a KROSSVIÐUR SPÓNAPLÖTUR T.d. vatnslímdur og vatnsheldur - úr greni, blrkl eða furu. T.d. spónlagðar, plast- húðaðar eða tilbúnar undir málningu. Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket. Einstök gæðavara á sérdeilis hagstæðu verðl' SPARIÐ PENINGA! - Smíðið og sagið sjáif! Þið fáið að sníða niður allt plötuefni hjá okkur í stórri sög - ykkur að kostnaðarlausu. BJORNINN Við erum í Borgartúni 28

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.