Morgunblaðið - 16.12.1986, Side 96
semþarf
ttrgtniMfifrife
STERKTKDRT
+
ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
VEIÖD I LAUSASOLU 50 KR.
Haglabyssa
á bílastæði
HAGLABYSSA fannst á bíla-
stæði við Hátún á laugardag.
Maður sem leið átti um bflastæð-
tók eftir því að einhver hlutur lá
á stæðinu. Reyndist það vera hagla-
byssa í poka. Maðurinn lét lögregl-
una vita, sem tók byssuna í sína
vörslu. Hún var óhlaðin og hefur
eigandinn að öllum líkindum lagt
hana frá sér á stæðið á meðan
hann hugði að öðrum farangri. Vit-
að er hver eigandinn er, en f
gærkveldi hafði lögreglan ekki náð
sambandi við hann.
Hjálparsveit
skáta:
Greiðir bak-
vaktir lækna
á þyrlu
Gæslunnar
STJÓRN Hjálparsveitar skáta
^tvað á fundi sínum í gær að
greiða bakvaktir lækna á þyrlu
Landhelgisgæslunnar i einn
mánuð til að byija með.
Læknar hafa undanfama 8 mánuði
tekið þessar bakvaktir í sjálfboða-
vinnu, og er talið að á þessu tímabili
hafi þeir bjargað að minnsta kosti
sex mannslífum. Frestur sem gef-
inn var til þessarar sjálfboðavinnu
rann út á miðnætti síðastliðnu og
að sögn talsmanna Hjálparsveitar
skáta var ákvörðun tekin um að
greiða vinnu læknanna í einn mán-
uð á meðan fundinn yrði viðunandi
lausn á málinu.
8
DAGAR
TIL JÓLA
Morgunblaðið/Eiríkur Finnur Greipsson
Unnið að því að moka flugvélina lausa úr snjóruðningnum sem vélin lenti í þegar hún rann fram af flugbrautarendanum á Flateyri í gær.
Hlekktist á í lendingu á Flateyri
FLUGVÉL af gerðinni Cessna
402 frá Leiguflugi Sverris Þór-
oddssonar hlekktist á í lend-
ingu á flugvellinum á Flateyri
i gær þegar hún rann fram af
brautarendanum og lenti þar í
snjóruðningi. Sex farþegar
voru í vélinni auk flugmannsins
og sakaði engan. Sáralitlar
skemmdir urðu á vélinni og
ákvað flugmaðurinn að fljúga
vélinni til Reykjavíkur þar sem
hann lenti heilu og höldnu um
klukkan 16.30.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Erlendur Borgþórsson flug-
maður að vélin hefði runnið á hlið
í halla fram af brautinni og lent
þar í snjóruðningi. Erlendur sagði
að flugvöllurinn á Flateyri væri
venjulega til fyrirmyndar hvað
aðstæður varðar, en í þetta skipti
hefði verið mjög hált eftir rign-
ingu og þíðu.
Þar sem ekkert var að sjá á
vélinni annað en að aðra hjólalúg-
una vantaði, ákvað Erlendur að
fljúga vélinni til Reykjavíkur.
Hann flaug með lendingarhjólin
niðri og tók flugið klukkutíma,
en venjulegur flugtími á þessari
leið er 40 mínútur. Slökkviliðið á
Reykjavíkurflugvelli hafði við-
búnað á flugbrautinni þegar
Erlendur lenti en allt gekk að
óskum.
Eru úthlutunarákvæði kosningalaga meingölluð?
Aðalhöfundur laganna
hvetur tíl endurskoðunar
ÞORKELL Helgason, stærð-
fræðingur, sem er aðalhöfundur
úthlutunarákvæða núgildandi
kosningalaga, telur nauðsynlegt
að þeim verði breytt fyrir næstu
þingkosningar, þar sem þau séu
mjög gölluð.
í bréfí sem Þorkell ritaði kosn-
ingalaganefnd neðri deildar Al-
þingis fyrir stuttu segist hann vilja
„Stakk mér undir borð o g
beið þess sem verða vildi“
ÓVENJU djúp lægð kom upp
að landinu um helgina og fylgdi
henni hvassviðri um land allt.
Sums staðar varð fárviðri og á
ísafjarðarflugvelli var ein
mesta, ef ekki mesta, veðurhæð
sem mælst hetu: hér á Iandi.
Skilin sem fylgja lægðinni fóru
yfir landið í fyrrinótt. Lítið
eignatjón varð og ekki er vitað
um nein slys á fólki.
Veðurhamurinn var einna
mestur í Grindavík og á Isafirði.
Grímur Jónsson flugumferðar-
stjóri á Ísaíjarðarflugvelii kom til
vinnu um klukkan 7 á mánudags-
morgun. Hann sagðist hafa farið
að taka niður tæki í flugtuminum
til að forða þeim frá tjóni vegna
óveðursins. „Ln þegar vindhraða-
mælirinn var kominn í botn á 120
hnútum, sjórokið með klaka-
hröngli og gijótkasti buldi á
rúðunum sem svignuðu ógurlega,
þá stakk ég mér undir borðið og
beið þess sem verða vildi,“ sagði
Grímur í samtali við fréttaritara
Morgunblaðsins.
Sjá miðopnu og blaðsíður 51
og 52.
„hvetja nefndarmenn til að taka
úthlutunarákvæði nýju kosninga-
laganna til gagngerrar endurskoð-
unar og láta ekki þetta kjörtímabil
líða án þess að svo verði gert.“ I
bréfinu nefnir Þorkell tvö atriði,
sem hafí styrkt hann í þessari skoð-
un. Annars vegar ítarlega gagnrýni
Jóns Ragnars Stefánssonar, stærð-
fræðings, á reiknireglur laganna.
Hins vegar segir hann, að það hafí
valdið sér áhyggjum, að allmargir
menn hafí rætt við sig um mögu-
leika sína á að ná kjöri færu þeir
í sérframboð af einhvetju tagi.
„Bersýnilegt er, að þar eru menn
að horfa í þá möguleika, sem nýju
lögin veita sérframboðum," segir
Þorkell orðrétt í bréfínu.
Páll Pétursson, alþingismaður,
sem er formaður kosningalaga-
nefndarinnar, sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í gær,
að þetta erindi væri nú til athugun-
ar í nefndinni. Unnið væri að
útreikningum fyrir nefndina í sam-
bandi við þá gagnrýni, sem fram
hefði komið, og jafnframt væri
nefndin að athuga, hvort einhver
ákvæði kosningalaganna stönguð-
ust hugsanlega á við stjómar-
skrána.
Páll sagði, að tvö önnur atriði,
er vörðuðu kosningalögin frá 1984
væru til umræðu í nefndinni. í
fyrsta lagi ákvörðun um kjördag til
frambúðar, en samkvæmt núgild-
andi lögum er kjördagur síðasti
laugardagur í júní. í öðru lagi væri
nefndin að ræða ýmsar hugmyndir
um aukin áhrif kjósenda á röðun á
framboðslista.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er það útbreidd skoðun
meðal þingmanna að úthlutunar-
ákvæði eða reiknireglur núgildandi
kosningalaga séu meingallaðar,
enda byggðar á málamiðlun milli
ólíkra hagsmuna. Óvíst er hins veg-
ar, hvort samstaða getur tekist um
breytingar og munu alþýðubanda-
lagsmenn einkum vera andsnúnir
því að breyta lögunum að þessu
leyti.
t
-Tí