Morgunblaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988 -H HVAD VILTU VITA UMTÖLVUNÁM? KYIMIVIING Á TÖLVUNÁMI sunnudaginn 29. maíkl. 14.00-18.00 ALLT FRÁ NÁMSKEIÐUM TIL HÁSKÓLANÁMS. Ef þú ert ... • að taka ákvörðun um náms- braut eða framtíðarstarf • að huga að framhaldsnámi • opin(n) fyrir nýjungum • áhugamaður um tölvur ...þá átt þú erindi á þessa kynningu. Þátttakendur í kynningunni eru: - háskólar - framhaldsskólar - menntamálaráðuneytið - starfsþjálfun fatlaðra - aðilar sem bjóða einstök nám- skeið fyrir almenning. KYNNINGIN ER HALDIN í MENNTASKÓLANUM VIÐ HAMRAHLÍÐ. HÚNERÖLLUMOPIN. AÐGANGUR ER ÓKEYPIS. NOTAÐU ÞETTA EINSTAKA TÆKIFÆRI aSKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ÍSLANOS NORRÆNT TÆKNIÁR1988 Rannsóknastofnun byggingariðnaðaríns í Keldnaholti. Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins - OPIÐ HÚS - í tilefni af Norrænu tækniári 1988 verður Rannsóknastofnun bygg- ingariðnaðarins með opið hús á morgun, sunnudaginn 29. maí, kl. 13—17. Almenningi er boðið að koma, kynnast nánar starfsemi stofnunarinnar og þiggja veitingar. Nokkur dæmi um dagskrár- og sýningaratriði: 1. Upplýsingagjöf um húsbygginga- tæknileg mál og byggingarkostnað. 2. Burðarþol stórrar forsteyptrar gólfeiningar mælt. 3. Mælt slitþol steypustyrktarstáls og brotþol steinsteypu. 4. Slagregnsskápur, hljóðmælitæki og innrauð myndavél verða sýnd. 5. Sýnt verður hvemig rannsóknir á malbiki og öðrum slitlagsgerðum fara fram. 6. Jarðtæknimælingar verða sýndar ásamt gæðaflokkun íslenskra stein- efna. 7. Útgáfuefni Rb verður kynnt. Inngangur Rannsóknastofnun byggingar- iðnaðarins (skammstafað Rb) í Keldnaholti á sér nokkuð langa sögu að baki, sem hófst í Atvinnudeild Háskóla íslands um 1950. Stofnunin hóf starfsemi sína 1965, er lög um rannsóknir í þágu atvinnuveganna voru sett. Hún var í upphafi til húsa við Lækjarteig, en síðan 1968 hefur hún haft aðsetur í Keldnaholti. Alls hefur stofnunin nú til umráða um 3000 mz húsnæði fyrir starfsemi sína. Hlutverk og starfsfólk Samkvæmt lögum um rannsóknir í þágu atvinnuveganna er hlutverk Rb alhliða rannsóknir og gæðaeftir- lit með byggingarefni og byggingar- framkvæmdum í víðasta skilningi. Þannig Qallar stofnunin ekki aðeins um húsbyggingartæknileg málefni heldur stundar einnig rannsóknir á sviði hagnýtrar jarðfræði, rannsókn- ir vegna vatnsvirkjana, gatnagerðar og steinsteypu svo að eitthvað sé nefnt. Starfsfólk er rúmlega fjörutíu manns og þar af er um helmingur með háskólamenntun. Forstjóri er Hákon Ólafsson verkfræðingur. Deildaskipting Vegna þess hve starfsemi stofn- unarinnar er margþætt, hefur henni Sýnmg á Kjarvalsstöðum Eins og sagt hefur verið frá áður hér í blaðinu, þá gekkst Norrænt tækniár, menntamálaráðuneytið, Félag móðurmálskennara og Félag myndmenntakennara fyrir mynd- gerðarsamkeppni 10 ára skólabama þar sem myndefnið var „Tækni framtíðarinnar" og ritgerðasam- keppni 12 ára skólabama, þar sem viðfangsefnið var „Tæknilaus dag- ur“. I keppnina bárust um 130 myndir og um 200 ritgerðir. Sextíu bestu myndimar og 18 bestu rit- gerðimar eru nú til sýnis á Austur- gangi Kjarvalsstaða. Laugardaginn 21. maí voru síðan bestu myndverk og bestu ritgerðir verðlaunuð. Verðlaun hlutu þessir: Myndgerðarsamkeppni 10 ára: 1. verðlaun. Albert Bjami Úlfars- son, Selásskóla, Reykjavík. 2. Verðlaun. Gunnar Ámi Jóns- son, Sævar Öm Hallsson, Þorbjöm Ingi Stefánsson og Guðmundur Ámi Hilmarsson, Oddeyrarskóla, Akureyri. » 3. verðlaun. Kjartan Ámi Þórar- insson og Indriði Ingi Styrkársson, Fossvogsskóla, Reykjavík. Aukaverðlaun. Jóhanna Erla Guðjónsdóttir, Selásskóla, Reykjavík. Aukaverðlaun. Eldar Ástþórsson, Fossvogsskóla, Reykjavík. Aukaverðlaun. Ragnar Fjalar Þorsteinsson, Snælandsskóla, Kópavogi. Ritgerðasamkeppni 12 ára: 1. verðlaun. Eyrún Edda Hjör- leifsdóttir, Áusturbæjarskóla, Reykjavík. 2. verðlaun. Guðni Rafn Gunn- arsson, Breiðagerðisskóla, Reykjavík. 3. verðlaun. Hrefna Pálsdóttir, Melaskóla, Reykjavík. Aukaverðlaun. Steinunn Her- mannsdóttir, Bamaskóla Vest- mannaeyja. Sýningunni lýkur núna sunnu- daginn 29. maí, og eru því síðustu forvöð að skoða hana. 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.