Morgunblaðið - 28.05.1988, Page 43

Morgunblaðið - 28.05.1988, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988 43 Borgaraflokkurinn og Ríkisendurskoðun eftir Guðmund Ágústsson Skömmu fyrir þinglok voru sam- þykkt á Alþingi lög um breytingar á lögum um Ríkisendurskoðun sem fólu í sér heimildir til handa Ríkis- endurskoðun að fara ofan í gögn að baki reikningum sem verktakar og aðrir sjálfstæðir aðilar senda ríkinu til greiðslu. Þá er mælt fyrir um í breytingunum að neiti viðkomandi aðili að láta af hendi gögn þá geti Ríkisendurskoðun farið þess á leit við sakadóm að hann úrskurði um leit að gögnunum. Ástæða þessara breytinga var sú deila sem upp kom þegar ákveðnir læknar neituðu að framvísa gögnum til Tiygginga- stofnunar ríkisins fyrir unnin læknis- verk. í hugum flestra hefur þessi breyt- ing á lögunum einskorðast við þessa deilu og þá ijármuni sem þarna er um að rseða. Hins vegar hefur lítið verið Sgrundað hvaða áhrif þessi lagasetning hefur á aðra aðila og það hvort hún samrýmist þeim grundvallarviðhorfum sem liggja að baki stjómskipun íslands. Þingmenn Borgaraflokksins hafa ekki farið leynt með þá skoðun sína að með þessarí breytingu er alit of langt gengið í þá átt að fela löggjaf- anum eftirlits- og rannsóknarvald með stjómsýslunni. Stjómsýslan þarf á virku aðhaldi að halda en það á ekki að gera á kostnað réttar- öryggis eða borgaranna. Rétt var að færa Rfkisendurskoðun frá §ár- málaráðuneytinu undir Alþingi á sínum tíma, en það er varhugavert að gefa henni víðtækari eftirlits- heimildir en stjómsýslunni sjálfri til að fara ofan í gögn er liggja að baki reikningum sjálfstæðra aðila. Rikisendurskoðun á að vera hlutlaus endurskoðunaraðili með eftirlitsvald sem einungis á að ná til þess að krefjast gagna frá stjómsýslunni en stofnunin á ekki sjálf að geta farið af stað og rannsakað gögn hjá sjálf- stæðum aðilum fyrir utan ríkiskerf- ið. Stjómskipun íslands er byggð á þrígreiningu valdsins og því að hver þáttur eigi að vera sem sjálfstæðast- ur og hinum óháður. Því miður hef- ur þessi skipting riðlast nokkuð hin síðustu ár. Sérstaklega hefur það farið í vöxt að löggjafínn gefí fram- kvæmdavaldinu fíjálsari hendur til ákvörðunar um efnisatriði með reglugerðum. Með þessarí breytingu á lögunum um ríkisendurskoðun er annað upp á teningnum. Löggjafinn er að taka til sín vald, að hluta til, til eftirlits með valdinu sem hann hefur þegar látið frá sér, en aðallega felst þó í breytingunni vald til handa Alþingi til rannsókna á stjómsýsl- unni og aðilum tengdum henni und- ir merki lýðræðis. Enginn mótmælir þvi að eftirlit er nauðsynlegt en hins vegar er spumingin hvemig þvS eigi að vera háttað. Á að gefa RSkisendurskoðun vald til að fara fram á húsleit hjá læknum ef þeir neita að afhenda Tryggingastofnun ríkisins gögn um ákveðin læknisverk eða er eðlilegra að gefa Tryggingastofnun sem stjómvaldi þessa heimild. Síðari kosturinn er miklu eðlilegri þar sem læknamir eru verktakar hjá Trygg- ingastofnun og þaðan fá þeir greiðsl- ur sínar. Tryggingastofnun ætti því að vera heimilt að gera kröfu til allra þeirra gagna sem hún telur sig þurfa til að sannreyna reikningana. Að gefa stofnun á vegum Alþingis vald til að geta krafíst gagna með hótunum gerir hana jafnsetta lög- reglu eða öðram rannsóknaraðilum því nú era slík stjómvöld þau einu sem geta farið þess á leit við saka- dóm, að hann kveði upp húsleitarúr- skurði. Það skal ekki gleymast að verk- efni Alþingis er fyrst og síðast að setja landinu lög. Álþingj hefur mjög víðtækar heimildir í því efni og er aðeins bundið af stjómarskránni. Sú skylda hvílir líka á Alþingi að taka sér ekki meira vald en stjómarskrá- in gefur. f stjómarskránni er ekki gert ráð fyrir heimild fyrir Alþingi til að rann- saka gjörðir framkvæmdavaldsins en hins vegar er gert ráð fyrir rann- sóknamefndum er hafí takmarkaðar heimildir sbr. 39. gr. stjómarskrár- innar. Samkvæmt því ákvæði er hvorri þingdeild heimilað að skipa nefndir til að rannsaka mikilvæg mál, er almenning varðar. Slíkar nefndir geta haft heimildir til að Guðmundur Ágústsson „Við höfum þegar nóg af eftirlitssveitum og rannsóknaraðiium þó svo að ekki sé bætt við nýjum og það á vegum Alþingis.“ heimta skýrslur, munnlegar og skrif- legar, bæði af embættismönnum og einstökum mönnum. Ef viðkomandi neitar hafa nefndimar ekki heimild til að fylgja kröfum sínum eftir. Endurskoðunarmenn ríkisreikninga skv. 43. gr. stjómarskrárinnar hafa ekki neinar heimildir heldur til að krefjast gagna. Ai ofangreindu er ljóst að ekki var gert ráð fyrir því þegar stjómar- skráin var sett að Alþingi mætti taka sér meira vald en til eftirlits og það vel að merkja tekið fram hvaða heimildir Alþingi hafi til þessa eftirlits. Að Alþingi hafí heimildir til að fara fram á rannsókn hjá borg- uranum er senda ríkinu reikninga, er því ekki samrýmanlegt þrígrein- ingu valdsins. Til lausnar á eftirlitsleysi löggjaf- ans með fjárreiðum stjómsýslunnar er nauðsyn á meira aðhaldi við gerð fjárlaga. Alþingi á að neita ijárfram- lögum nema fyrir liggi gögn er sýni fram á nauðsyn fjárveitingarinnar og á sá stjómsýsluaðili sem fer fram á fjárveitinguna að geta sýnt þau gögn er áætlun hans byggir á. Al- þingi á ekki að tilefnislausu að krakka í einstakar fjárveitingar eftir að hafa samþykkt fjárlögin. Það á hins vegar að neita frekari flárfram-“si lögum við næstu fjárlagaafgreiðslu nema skýlaus grein sé gerð fyrir fyrri árs eyðslu. Með þessum hætti á Alþingi að starfa en ekki með því að setja á stofn rannsóknaraðila til að fylgjast með hveijum og einum. Við höfum þegar nóg af eftirlits- sveitum og rannsóknaraðilum þó svo að ekki sé bætt við nýjum og það á vegum Alþingis. Höfundur er þingmaður Borgara- flokkaina fyrir Reykja vík. Plötuklippur Lokkar « Beygjuvélar fyrir steypustyrktarjárn Stangarklippurfyrir steypustyrktarjárn. G.J. Fossberg vélaverslun hf. Skúlagðtu 63 - Reykjavík Símar 18560-13027 Líf á landsbyggðinni eftirJóhönnu Á. Steingrims- dóttur í þessum pistli ætla ég að beina máli mínu til bamanna ef þau skyldu hafa gaman af að heyra hvemig lífíð er í sveitinni á vorin. í sveitinni færist held- ur en ekki líf í alla þá sem geta starfað, eða eins og gamla fólkið sagði: „alla þá sem vettl- ingj geta valdið". Auðvitað skiljið þið þetta orðtak, allir áttu að vinna sem höfðu þá heilsu eða þroska að geta haldið á vettlingunum sínum. Á vorin óska bændum- ir þess að þeir hefðu fleiri hendur til að vinna allt það sem gera þarf á stuttum tíma ef vel á að ganga með búskapinn það árið. Það verður að taka á móti lömbum og kálfum sem fæðast á vorin og allt þetta ungviði þarf hús og mat. Flest lömbin sjúga að vísu bara mömmur sínar, en það þarf að hugsa vel um lambamæðumar, í öllum þeim stóra hópi þarf að gæta að hverri og einni og sjá um að þær hafí nóg að éta og kom- ist í hús þegar kólnar eða rignir mikið því annars minnkar í þeim mjólkin og lömbin fá ekki nóg. Alltaf eru einhver lömb sem verða útundan eða missa mömmur sínar og þá verður að gefa þeim mjólk úr pela. Krakkamir í sveitinni eru ólatir að hlaupa með mjólkurpelatil lam- banna, helst volga mjólk sem mjólkuð er beint í pelann í fjósinu, þannig er mjólkin hollust, reynd- ar bæði fyrir böm og lömb. Á nætumar verður að fara á fætur og í fjár- húsin til að gæta að fénu, ef lömb eru að fæðast þarf að setja mömmu þess í spil, við héma norðanlands segjum að setja í spil þegar grind er látin fyrir hom af krónni svo að kindinni er hlíft við troðningi hópsins. Þetta þarf að gera svo ekki sé stigið ofaná ný- fætt lambið og líka til þess að einhver kindin steli því ekki frá möm- munni. Fólkið í sveitinni sefur stundum lítið á vorin, en það er líka gaman að vaka vorlanga nóttina ef gott er veður, samt segja langar vökur til sín með þreytu, þreytu sem safn- ast saman og er lengi að hverfa þó menn nái að sofa nótt og nótt án þess að þurfa að fara á fætur, til að líta eftir fénu. Stundum álpast lömb- in frá mömmum sínum að skoða heiminn og þó að heimurinn þeirra sé bara fjárhúsið og túnið villast þau oft svo að það þarf að leita að þeim og komaþeimafturtil mömmu sinnar, sem æðir ráðvillt og örvæntingar- full fram og til baka jarmandi þar til lambið er fundið. Já, krakkar, lamba- mömmumar haga sér líkt og mömmur ykkar, ef þið týnist hlaupa þær „Stundum álpast íömbin frá mömmum sínum að skoða heiminn og þó að heimur- inn þeirra sé bara fjárhúsið og túnið villast þau oft svo að það þarf að leita að þeimogkoma þeim aftur til mömmu sinnar, sem æðir ráðvillt og- örvæntingar- full fram og til bakajarmandi þar til lambið er fundið.“ og leita og kalla. Krakk- amir í sveitinni eru áhyggjufull þegar lömb týnast því ef lambið fínnst ekki samdægurs eru mestar líkur á að það deyi, en sem betur fer kemur það sárasjaldan fyrir. Já, það þarf margt að gera í sveitinni. Krakk- amir tína rusl og raka í kringum bæinaog brenna það sem safnast hefur yfír veturinn og snjórinn hulið, bóndinn þarf að plægja og herfa þar sem á að sá káli og höfrum handa kúnum og vinna upp bletti í túninu sem ekki hafa reynst nógu vel sumarið áður. Það er farið í bæinn og keypt fræ og áburður sem er keyrður heim á stórum vörubílum, síðan er borið á og sáð, bæði í túnbletti og matjurtar- garða. Að bera á túnin tekur marga daga og svo verður auðvitað að mjólka kýmar kvölds og morgna. Krakkamir moka flórinn oggefa kálfunum mjólk, líka þarf að gefa kisu mjólk og það er engin hætta á að krakkamir gleymi því. Margar kisur eiga kettl- inga á vorin, hér eru fjór- ir kettlingar. Kisa passar kettling- ana vel og sýnir mikla hugprýði ef henni fínnst ástæða til að veija þá. Kettlingar eru uppátekt- arsamir eins og krakkar. Einu sinni tók einn kettl- ingurinn héma upp á því að stríða kúnum; þegar gefíð var á jötumar skreið hann ósköp laumulega undir heyið fyrir framan kýmar, sérstaklega virtist hann hafa gaman af að hrekkja eina kúna. Kettl- ingurinn faldi sig í hey- inu og þegar kýrin fór að éta skaust hann upp, teygði fram loppuna og klóraði í granimar á henni. Kúnni brá voða- lega, og hún stökk aftur í flór eins langt og band- ið gaf eftir, fnæsti og hristi hausinn. Þetta lék kettlingurinn lengi án þess að óhapp hlytist af, en kisa virtist aldrei vera róleg þegar hann var að þessum hrekkjum og fylgdist alltaf með hon- um, sat í fóðurganginum og hafði ekki af honum augun. Einu sinni varð honum hált á stríðninni. Hann var búinn að fela sig í heyinu framan við kúna og beið eftir því að hún færi að éta, en í þetta skipti hafði kisi litli ekki falið sig á réttum stað. Kýrin teygði langa tunguna fram, slæmdi henni utan um stóra hey- tuggu og vöðlaði henni upp í sig, en einmitt í þessari tuggu hafði kettl- ingurinn falið sig og nú lenti hann inni í kjaftin- um á kusu sem japlaði á tuggunni án þess að verða vör við kattarögn- ina. Kisa hafði að vanda fylgst með leiknum og nú greip hún til sinna ráða; eins ogörskot stökk hún fram hvæsandi og læsti klónum í fésið á kúnni sem brá svo við að hún rak upp öskur, við það missti hún tugg- una út úr sér, kettlingur- inn valt ofan í jötuna rennandi blautur af slef- unni úr kjafti kýrinnar, kisa greip í hnakkann á honum, bar hann í bæli sitt og fór umsvifalaust að þrífa hann. Já, þær eru samar við sig mömmumar og hver annarri líkar. Sagan af kisa var nú bara útúrdúr til gamans. Það er mikið að gera í sveitinni á vorin, svo margt að sjaldnast er hægt að ljúka öllu því sem þyrfti að gera, og ekki nema skiljanlegt að bóndinn óski þess að hafa fleiri hendur. Krakkar, getið þið annars hugsað ykkur karl sem hefði Qórar, eða jafnvel sex hendur? Það hlyti að vera skrý- tið að sjá svoleiðis karl vinna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.