Morgunblaðið - 28.05.1988, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 28.05.1988, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988 55 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Fjölgið ferðum strætisvagna Til Velvakanda. Fyrir skömmu birtist pistill í Vel- vakanda þar sem því var haldið fram að strætisvagnamir væru venjulega tómir og fjölga þyrfti ferðum þess vegna. Ég ferðast töluvert með strætisvögnum og veit þvf vel að þeir eru alls ekki tómir. Venjulega er hvert sæti skipað og oft þurfa margir að standa. Ég er hins vegar sammála því að fjölga þyrfti ferðum strætisvagna. Þeir vaganar sem mest eru notaðir ættu að ganga á tíu mínútna fresti yfir daginn og eins mætti fjölga ferðum á kvöldin og um helgar. Ef þetta yrði gert er ég viss um að fleiri myndu nota vagnana og þannig yrðu tekjur Strætisvagna Reylqavikur meiri. Mér skilst að jafn- an hafi verið einhver hallarekstur á S.V.R. og er það sjálfsagt vegna þess að þjónustunni er ábótavant. Ég vil einnig taka undir það að Qölga mætti biðskýlum. Ég tel einnig að gömlu strætisvagnaskýlin séu mun betri en þessi nýju steinsteyptu. Þeir sem hönnuðu þessi steinsteyptu skýli ættu að prófa að híma í þeim i vondu veðri. Tilfellið er að þau veita lítið sem ekkert skjól. Farþegi Siglufjörður: Oviðunandi ástand Til Velvakanda. Siglfirðingum liggur mikið á að fá veginn til Ólafsíjarðar mokaðan en þangað er enn ófær vegna snjóa. Ef vegurinn er opinn styttir það leiðina inn í Eyjafjörð.um 300 km fram og til baka frá Siglufirði. En nú höfum við Siglfirðingar verið að frétta að ekki verði byijað að moka þennan veg fyrr eri 1. júní og þá yrði hann væntanlega ekki oppnað- ur fyrr en 10. júni. Það er mikil óánægja með þetta hér á Siglu- firði, vegurinn er orðinn fært fram undir Heiðarhaft og tiltölulega lítið •mál að moka hann með þeim tækjum sem til eru. Þetta er óviðun- andi ástand. Það sýnir sig að það ætlar að verða erfítt fyrir okkur Siglfirðinga að sækja þessa stjóm- semi upp á Sauðárkrók, þar virðast menn vera alveg áhugalausir enda kemur þetta ástand ekki niður á þeim. 6525-2529 Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánu- daga til föstudaga, ef þeir koma þvi ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski naftileyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina þvf til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Þessir hringdu .. Fleiri göngnljós Vegfarandi hringdi: „Ég vil taka heilshugar undir þá umræðu sem verið hefur í Velvakanda um gangbrautir og það hvemig réttur gangandi veg- farenda er þverbrotinn. Það er undantekning ef bílar stöðva við gangbrautir þar sem ekki eru gönguljós og veldur þetta slysa- hættu. Lausnin er sú að sett verði upp gönguljós sem víðast." Skert lqör ellilífeyrisþega Ellilífeyrisþegi hringdi: „Stjómmálamennimir tala mik- ið um gamla fólkið þegar á að fara að kjósa en þeir eru ekki fyrr komnir í stjóm en þeir gleyma öllum sínum loforðum. Nú hefur verið lagður á matarskattur og hefur það auk annars skert kjör ellilífeyrisþega mikið. Þetta verð- ur munað fyrir næstu kosningar." Fara ekki eftir eigin reglum Ásta Ámadóttir hringdi: „í hveijum strætisvagni blasir við skilti með áletrun um að ekki megi tala við bílstjóra í akstri. Iðulega sér maður þó farþega standandi f áköfum samræðum við bílstjórana. Ef hins vegar böm koma inn í strætisvagn með fspinna er þeim sagt að fara út og kasta þeim, það séu reglumar. Bílstjóramir þurfa hins vegar ekki að fara eftir reglunum eða hvað?" Símar úr onyox Kona hringdi: „ Fyrir nokkmm ámm fengust símar úr onyox, sem er efni svip- að marmara, hér í Reykjavík en nú virðast þeir hvergi fáanlegir. Ég yrði þakklát ef einhver gæti upplýst mig um hvar hægt er að fá svona síma.“ Lúffur og húfa Nýjar lúffur, dökkbláar með hvítu loðnu fóðri og rauðri ská- rönd á handabakinu með síma- númerinu 44736 stöfunum S.G.J. vom teknar í Kársnesskóla í vet- ur. Þá var fyrir skömmu tekin skyggnishúfa með bláu deri með áletruninni Hrói hf. Vinsamlegast hringið í síma 44736. Gullarmband Gullarmband (spöng) tapaðist á Hótel Sögu eða á leið heim það- an í leigubíl fyrir nokkru. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 83364 eftir kl. 19. Fundar- laun. Kettlingur gefins Falleg átta vikna læða fæst gefins á gott og ábyggilegt heim- ili. Upplýsingar í síma 75692. Skemmtisig/ing Þýskur sigllngaskóll, Hochsee Yachtschule, Nordsee, vantarnokkra félaga til að taka þátt iskemmtisiglingu frá Þýskalandi til Islands núna i sumar. Snekkjan erafgerðinni SWANog er40 feta. Farið verður frá Cuxhaven 30.júliog áætlaður komutimi til Reykjavikur er20. ágúst. Frá Reykjavik verður síðan farið aft- ur 22. ágúst og komið til Cuxhaven 9. september. Nánarl upplýslngar fást hjá: Hochsee Yachtschule Nordsee, Richard Wagner Str. 35, 2800 Bremen, Vestur-Þýskalandi. Sími: 9049-421-346650. FÉLAG JÁRNIÐNAÐARMANNA FELAGSFUNDUR verður haldinn mánudaginn 30. maí 1988 kl. 8.00 e.h. í Domus Medica v/Egilsgötu. Dagskrá: Kjarasamningar. Mætið vel og stundvíslega. Stjórn Félags járniðnaðarmanna. VERZLUNARRÁÐ ÍSLANDS Morgunverðarfundur mánudaginn 30. maí í Leifs- búð, Hótel Loftleiðum kl. 8.00-9.30. SÉRSTAÐA ÍSLENSKRA SMÁFYRIRTÆKJA Þarfnast þau sérstaks samstarfsvettvangs? Framsögumenn Vilhjálmur Egilsson framkvæmda- stjóri VÍ, LofturAI. Þorsteinsson verkfræðingur og innflytjandi, Haukur Alfreðsson verkfræðingur hjá Iðntæknistofnun. Sérefni skattamál smáfyrirtækja, virðiskauka- stakkur. Framsögumaður Jón Guðmundsson deildarstjóri embættis ríkisskattsjóra. Fundurinn er fyrir stjórnendur smáfyrirtækj- anna. Þessi glæsilegi bíll er til sölu Lincoln Town Car árg. 1984, amerískur eðalvagn með öllum þægindum. Verð kr. 1.390.000,- Karl Ásmundsson, upplýsingar í síma 73879 eftir kl. 18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.