Morgunblaðið - 05.03.1989, Page 13
MQRGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MARZ 1989
13
WINNIE MATVDELA
Teikning/Pétur Halldórsson
MHfll
\ Vw
bert Brown, sem er íhaldssamur
blökkumaður og sérfræðingur í al-
mannatengslum, er andvígur refsi-
aðgerðum gegn Suður-Afríku.
Winnie Mandela hefur orðið
sífellt háðari „knattspymumönn-
um“ sínum um leið og ágreiningur
hennar og ANC hefur magnazt.
Samband hennar við blöðin hefur
hríðversnað.
Blökkumannaleiðtogi nokkur lét
svo um mælt: „Til hvers þarf hún
lífverði — þarf hún vemd gegn al-
menningi? Winnie vill ekki losna við
þá. Þeir vita of mikið. Hún óttast
að þeir segi frá því sem hér hefur
verið á seyði.“ Annar blökkumanna-
leiðtogi sagði þegar hann fékk sig
fullsaddan á henni í fyrra: „Hún
hefur verið friðhelg alltof lengi.“
Knattspyrnumennimir, sem eru
nú 30 talsins og alltaf klæddir æf-
ingagöllum, einangmðu frú Mand-
ela frá íbúum Soweto. Yfírgangur
þeirra jókst jafnt og þétt og Sow-
eto-búar hafa ekki síður kvartað
yfir auknum hroka frú Mandela.
Stiómmálampnn hafa mikil áhrif í
blökkumannabæjum og oft er leitað
til þeirra, en of langt þótti gengið
þegar knattspymumennimir fóm
að krefjast þess að skipunum henn-
ar væri hlýtt skilyrðislaust. Stund-
um hafa þeir mðzt inn á borgara-
fundi til að krefjast hlýðni.
Sérstök „Mandela-nefnd“ máls-
fall sv or i i i :\ i it
BLÖKKUMENN í Suður-Afríku eru hættir
að dýrka Winnie Mandela, konu Nelsons
Mandela, og kalla hana ekki lengur „móður
þjóðarinnar" eins og á árum áður. Hreyfing
þeirra hefur afiieitað henni vegna yfirgangs
lífvarða hennar, sem eru almennt kallaðir
„knattspyrnulið Mandela“ — Maadela United.
Þeir eru sakaðir um að hafa haldið uppi ógn-
arstjórn í hennar nafni í blökkumannabænum
Soweto skammt frá Jóhannesarborg í tvö til
þrjú ár og hafa komið henni á kaldan klaka.
LLífvörðunum er borið á
brýn að hafa rænt fjóram
svörtum unglingum 30.
desember frá „athvarfi"
meþódista skammt frá heimili frú
Mandela í Soweto. Lík eins þeirra,
Stompie Moeketsi, fannst illa út-
leikið nokkmm dögum síðar. Lög-
reglan rannsakar líka morð á virt-
um lækni í Soweto, sem skotið var
á um svipað leyti og Stompie hvarf.
Tvö morð, sem framin vom síðar,
era einnig talin tengjast lífvörðun-
Um.
ans og að hún hafi orðið fyrir skelfi-
legri reynslu í fangelsi.
Winnie Mandela, sem er 54 ára
gömul, er frá Transkei og af Xhosi-
ættbálknum. Hún heitir réttu nafni
Nomzamo, sem er táknrænt því að
það merkir „sú sem mun þola mikl-
ar raunir". Faðir hennar var kenn-
ari og fjölskyldan var svo fátæk
að hún eignaðist ekki skó fyrr en
hún hóf nám í framhaldsskóla. Hún
fór til Jóhannesarborgar til að læra
félagsfræði og kynntist Nelson þar
1957. Hann var
Stompies kom- MANNSMYND
ust lifs af og frá- ___________
sagnir þeirra
hafa leitt til efi*r Guöm. Halldórsson
ásakana um að
frú Mandela hafi verið samsek um
morðið. Þeir fara huldu höfði. Því
er haldið fram að þeir og Stompie
hafi sætt barsmíðum og pyntingum
á heimili Mandela og jafnvel að hún
hafi tekið þátt í þeim leik. Hún og
knattspymufélagið hafa líka verið
bendluð við hvarf tveggja annarra
unglinga í nóvember. Ottazt er að
þeir séu látnir.
Óvíst er að mál verði höfðað
gegn frú Mandela. Þótt hún sé
umdeild vilja fáir blökkumenn gera
stjórn hvíta minnihlutans það til
geðs að bera vitni gegn fyrrver—
andi„móður þjóðarinnar“.
Vinir frú Mandela telja að ófam-
aður hennar stafí meðal annars af
því að hún sé gift manni, sem hef-
ur setið í fangelsi ámm saman, að
hún hafi átt erfitt með að valda því
hlutverki að vera tákn andspym-
unnar gegn stjórn hvíta minnihlut-
18 áram eldri en
hún og hafði þá
þegar verið sak-
aður um landráð,
en stóð á hátindi
stjómmálaferils
síns. Þau giftust ári síðar.
Nelson Mandela er píslarvottur
og ætlazt var til að kona hans léki
hlutverk dýrlings. Áður en Nelson
var dæmdur í ævilangt fangelsi
fyrir 25 ámm var hann á stöðugum
flótta undan lögreglunni og þau
munu ekki hafa búið saman nema
í ljóra mánuði alls. Þau eiga tvær
uppkomnar dætur, Zenani og Zind-
wiza.
Þremur mánuðum eftir brúð-
kaupið var Winnie Mandela tekin
föst fyrir áróður gegn nýjum vega-
bréfalögum. Hún var aftur hand-
tekin 1959 samkvæmt lögum um
baráttu gegn hryðjuverkum, en
hæstiréttur sýknaði hana. Þremur
árum síðar var ferðafrelsi hennar
skert í fyrsta skipti samkvæmt lög-
um um baráttu gegn kommúnisma.
Takmarkanir á frelsi hennar voru
í gildi til 1975, en ári síðar var hún
• „Hún lenti í slæm-
um félagsskap... og
hætti aðtala við vini
sína“
aftur sett í bann og því var ekki
aflétt fyrr en 1986. A þessum tíma
var hún oft handtekin, flæmd í inn-
anlandsútlegð og látin sæta stofu-
varðhaldi fyrir að bijóta boð og
bönn.
Hún sýndi stillingu í þrengingum
sínum og hlaut aðdáun blökku-
manna. Ohlýðni hennar við yfirvöld
þótti lýsa hugrekki og seiglu.
Blökkumenn héldu áfram að líta á
mann hennar sem helzta leiðtoga
sinn, þótt hann væri fangi á Robb-
eneyju, og hún var honum mikill
styrkur. Hún var lagleg og vel
máli farin og átti auðvelt með að
ná til áheyrenda á fundum og vekja
hrifningu þeirra. Hún varð því fljót-
lega mjög vinsæl.
Mandela-nafnið hafði mikið áróð-
ursgildi og Afríska þjóðarráðið
(ANC) kunni að nota það og erfiðar
aðstæður Winnie Mandela. Hún
varð einn kunnasti liðsmaður sam-
takanna á erfiðleikatímabili í sögu
þeirra og áhrifamikið tákn suður-
afrískra blökkumanna. Hún hlaut
mörg mannréttindaverðlaun og var
jafnvel kjörin rektor háskólans í
Glasgow og tilnefnd til friðarverð-
launa Nóbels. Bandarískir og evr-
ópskir stjómmálamenn kepptuct
um að fá að vera á ljósmyndum
með henni.
Hún lét hins vegar illa að stjórn
eins og ANC rak sig á síðar. Hún
er skapmikil, einþykk og óþolinmóð
og vill sjálf fá að ráða, en hefur
alltaf staðið utan við valdastofnanir
í samtökum andstæðinga kynþátta-
aðskilnaðarstefnunnar, apartheid.
Gamlir vinir frú Mandela segja
að hún hafi gerbreytzt þegar hún
var átta ár í útlegð í þorpinu Brand-
fort í fríríkinu Oraníu. „Hún lenti
í slæmum félagsskap, fór að drekka
og hætti að tala við vini sína í trún-
aði,“ segir kunningi fjölskyldunnar.
Þegar hún kom aftur til Soweto
síðla árs 1985 stóð hún á hátindi
frægðar sinnar, en síðan hefur allt
gengið á afturfótunum hjá henni.
Framkoma hennar hefur verið um-
deild og hneykslað ANC, en glatt
• „Til hvers þarf hún
lífverði? Þarf hún
vernd gegn almenn-
ingi?"
stjóm hvíta minnihlutans.
Áhrif ANC vom aftur farin að
aukast þegar hún kom heim úr út-
legðinni. „Ungu ljónin" í hreyfing-
unni flykktust til heimilis hennar
til að votta henni virðingu og snatta
fyrir hana. Þeir vildu harðari bar-
áttuaðferðir og gera landið stjóm-
laust. Winnie fékk samúð með þeim
og í apríl 1986 lýsti hún yfir stuðn-
ingi við illræmda „hálsmenaað-
ferð“, sem er í því fólgin að lífláta
andstæðinga með því að væta hjól-
barða í benzíni, bregða þeim um
háls óvinanna og kveikja í börðun-
um.
Með yfirlýsingu sinni lenti frú
Mandela í fyrsta skipti í útistöðum
við leiðtoga blökkumanna. Álit
hennar beið hnekki. Svokallað
„Winnie-vandamál" varð til og áhrif
hennar dvínuðu.
Frú Mandela olli aftur deilum
þegar hún reisti stórt og veglegt
hús fyrir sig og fjölskyldu sína mitt
í Soweto. Bæjarbúar fóm að kalla
hana „Svörtu Evitu“ og blökku-
mannaleiðtogar viðurkenndu að
hún væri orðin ráðrík og hégómleg
og vildi að allt snerist um hana.
Húsið kostaði 460.000 pund og
stingur í _stúf við kumbalda blökku-
manna. í því em 22 herbergi og
það er kallað „höll Winníar". Nelson
Mandela bannaði henni að flytjast
í það og það stendur autt.
í júlí í fyrra kveiktu nemendur í
fyrra húsi Mandela-fjölskyldunnar.
Með því vildu þeir hefna sín á
„knattspymumönnum" frú Mand-
ela, sem höfðu lúbarið þá og nauðg-
að tveimur skólastúlkum. Þessi at-
burður vakti í fyrsta skipti athygli
umheimsins á því að margir íbúar
heimabæjar frú Mandela vom fam-
ir að óttast og jafnvel hata hana.
Álit Winnie Mandela beið enn
hnekki þegar ANC og Nelson
Mandela neyddust til að segja upp
samningi, sem hún hafði gert við
umdeildan, bandarískan kaupsýslu-
mann um að hann fengi að nota
Mandela-nafnið í auglýsingum er-
lendis. Kaupsýslumaður þessi, Ro-
• „Hún hefurverið
friðhelg alltof lengi“
... Fyrrverandi sam-
herjar frú Mandela
metandi manna í Soweto hefur
reynt að leysa þau vandamál, sem
lífverðimir hafa valdið, en án ár-
angurs. Winnie hundsaði nefndina
og hafði að engu áskoranir frá Oliv-
er Tambo, aðalleiðtoga ANC, og
Nelson Mandela um að leysa knatt-
spymuliðið upp.
í mörg ár hefur Nelson Mandela
falið mönnum, sem hann treystir,
að vera konu sinni til ráðuneytis,
en hún hefur haft ráð þeirra að
engu. Þegar Ismail Ayob, lögfræð-
ingur fjölskyldunnar, reyndi að gera
Nelson grein fyrir atferli hennar
varð hún æf og sleit sambandinu
við hann. „Nelson ræður ekkert við
hana,“ sagði einn af leiðtogum UDF
nýlega.
Nú er svo komið enginn ber í
bætifláka fyrir frú Mandela. Henn-
ar eigið fólk hefur dæmt hana í
einangrun, sem hlýtur að vera henni
þungbærari en einangmn sú, sem
yfirvöld hvítra dæmdu hana í fyrr
á ámm.
Svokölluð „fjöldalýðræðishreyf-
ing“ blökkumanna hefur rofið
tengsl sín við Winnie Mandela. Að
hreyfingunni standa verkalýðs-
hreyfingin COSATU og Sameinaða
lýðræðishreyfingin (UDF), sem hef-
ur flest lögleg samtök blökkumanna
innan sinna vébanda. Samtök íbúa
Soweto hafa farið að dæmi hreyf-
ingarinnar. Leiðtogar ANC í
Lusaka hafa neitað að styðja frú
Mandela. Því hefur raunvemlega
verið lýst yfir að hlutverki hennar
í baráttu blökkumanna í Suður-
Afríku sé lokið. '
Líkur era taldar á að knatt-
spyrnufélag Winnie Mandela verði
leyst upp, en jafnvel eiginmaður
hennar virðist hafa snúið við henni
baki. Hvort hann skilur við hana
eða heldur tryggð við hana á erfið-
ustu stund lífs hennar er óljóst.
Hún er ráðþrota og vinalaus. Frétzt
hefur að hún vilji flytjast úr landi,
en hún hefur ekkert vegabréf. Nú
er jafnvel svo komið fyrir fyrrver-
andi „móður þjóðarinnar“ að hún
óttast um líf sitt.