Morgunblaðið - 09.12.1989, Síða 9

Morgunblaðið - 09.12.1989, Síða 9
MORGUNBLAÐIS XAUGARDAG.UR 9. DBSEMBER 1989 9 Opið til kl. 18.00 laugardag. Verð kr. 155.000. Góð greiðslukjör PELSINN Kirkjuhvoli -sími 20160 Loðskinnshúfur Verð frá kr. 18.900.- BIZAMPELS Stærðir 38-42 Loðskinnstreflar Verð frá kr. 6.900.- PELS- FÓÐURSKÁPA Stærðir 38-46 Verð kr. 39.000.- Ekkifulla aðild Þorvaldur Garðar Kristjánsson, þingniaður Vostfirðinga, sagði i um- ræðu um Evrópumálin: „Evrópubandalagið hlýtur að varða Island miklu þar sem landið til- heyrir Evrópu landfræði- lega, sögulega, menning- arlega og stjómmála- lega. Samt sem áður hef- ur aldrei komið til greina að Island sækt i um aðild að bandalaginu. Það hef- ur verið talið útilokað að ísland gengi í Evrópu- bandalagið. Það hefir verið samstaða á Alþingi og milli stjómmálaflokka landsins um þessa af- stöðu til Evrópubanda- lagsins". Varðstaða um fullveldið og auðlindirnar Þorvaldur segir áfram: „Ástæðumar fyrir þessu liggja í augum uppi. Við Islendingar höf- um ekki tekið í mál að gangast undir samstjóm í eihahags-, atvinnu- og viðskiptamálum með há- þróuðum iðnaðarstór- veldum Evrópu. Það jafhgilti því að afsala sér alveg yfirráðum í þeim málum sem samstjómin fjallaði um, því að aug- ljóst væri, að Islendingar gætu alls engin áhrif haft vegna smæðar sinnar í stjóm þessa tröllaukna bandalags. Við íslending- ar höfúm ekki tekið í mál að gangast undir það jarðarmen bandalagsins að opna auðlindir lands- ins fyrir útlendingum og allra sízt þá mikilvæg- ustu, fiskimiðin, sem em gmndvöllur velmegunar þjóðarnmar og skapar okkur möguleikann til að halda uppi fijálsu, full- valda riki. Við höfum verið þess meðvitandi að þjóðin hefur rétt nýlega heimt sjálfeforræði sitt til baka eftir aldalanga kúg- Opnum auðlindir okkar ekki fyrir útlendingum Staksteinar stinga nefi í þingræðu Þor- valdar Garðars Kristjánssonar um svo- kölluð Evrópumál. Þingmaðurinn leggur áherzlu á tvíhliða viðræður og viðskipta- samninga við Evrópubandalagið en mæl- ir gegn beinni aðild að því. un og erlend yfírráð, sem höfðu nær riðið henni að fúilu. Við Islendingar höfúm aldrei haft það jafii gott eins og nú þegar við höfiim heimt frelsi okkar að nýju. Frelsið verður að varðveita. Frelsið er fjöregg þjóðar- innar.“ Viðskipta- tengsl brýn Síðar segir hann: „En afstaðan til EB þýðir ekki að við íslend- ingar höfúm verið frá- hverfú- Evrópu. Við höf- um sýnt áliuga í þessum efúum og verið virkir aðilar í evrópskri sam- vinnu. Við höfum lagt áherzlu á tryggð okkar við þau andlegu og sið- ferðilegu verðmæti, sem er sameiginleg arfleifð Evrópuþjóðanna. Eg minni á þátttöku okkar i Evrópuráðinu. Og ég nefiú þátttöku okkar í EFTA með aðild okkar að efúahagslegri sam- virniu. Saiuúeikurinn er sá að við íslendingar höftnn verið fullgildir aðilar í evrópskri samvinnu. Að vísu höfum við ekki skip- að okkur í ílokk þeirra sem stefiia á sambands- ríki Evrópu. Heldur höf- um við fyllt flokk þeirra sem hafa lagt áherzlu á samvinnu milli ftjálsra ríkja Evrópu. Samvinna ríkja er öllum mikilvæg en þó ekki sízt smárikj- unum. Með samviimu og samtökum getur smáríkj- um verið gert mögnlegt að afreka það sem stór- þjóðunum einum er fært óstuddum. Þess vegna er evrópsk samvinna engri þjóð mikilvægari en Is- lendmgum. Hins vegar veldur smæð þjóðarimiar því að engin þjóð þarf að taka svo mikinn vara á evrópskri samvinnu sem við Islendingar. Af þess- ari staðreynd hefúr mót- ast afstaða okkar til Evr- ópubandalagsins." Frjálsræðið lykill að framtíðinni Þorvaldur Garðar sagði og: „Málið snýst um að skapa islenzkum fyrir- tælqum sömu starfsskil- yrði og erlendum keppi- nautum, hvort sem er í ríkjum Evrópubanda- lagsins, EFTA-löndum, Bandaríkjunum, Japan eða öðrum löndum. Þessu viðfangsefúi hljót- um við Islendingar að vinna að undir öllum kringumstæðum. Inn- ganga í Evrópubandalag- ið eða sameinaða Evr- ópumarkaðinn er engin forsenda þess. Hér er þess vegna ekki að flnna nein sérstök rök eða haldbær fyrir aðild okkar að Evrópubandalaginu. Hins vegar ræður úrslit- um að móta efúahagslíf okkar og viðskiptahætti í átt til þess ftjálsræðis sem samsvarar þróuninni í Evrópubandalaginu svo að við getum komið á og viðhaldið þeim viðskipta- tengslum við bandalagið sem okkur hentar og lífsnauðsyn eru. Þetta orkar ekki tvímælis því að þetta hlýtur að vera höfúðatriðið í stöðu okk- ar gagnvart Evrópu- bandalaginu við tvíhliða samningsgerð. Hins veg- ar breytir þetta í engu þeirri staðreynd að við getum ekki slegið af fúll- veldi landsins með aðild að bandalaginu." Tvíhliða samningar áfram Þorvaldur Garðar sagði og að vel hafi til tekizt í tvíhliða samning- um Islands og EB, ekki sízt í bókun 6, sem varði fríverzlun með sjávarvör- ur. Nú sé hinsvegar end- urskoðunar og breytinga þörf. „Við Islendingar getum ekki verið búnir að segja okkar síðasta orð um tvíhliða samninga við Evrópubandalagið. Það gefúr augaleið að séi"staða íslands er svo gagngerð að henni verð- ur ekki mætt með öðru móti...“ Hjálparsamtökin Móðir og barn starfa í þágu einstæðra mæðra og barna þeirra, einkum með hús- næðisaðstoð. Fyrstu leiguíþúðinni var úthlutað nýlega, en leigan er niðurgreidd að hluta. Leitað er stuðnings frá almenningi og fyrir- tækjum við þetta hjálparstarf. • Hér með er auglýst eftir hús- næði á sanngjörnum kjörum - litl- um íbúðum eða sambýli, sem hentar einstæðum mæðrum og barnshafandi konum. • Þeim, sem vilja leita húsnæðis- aðstoðar, skal bent á, að fyrsti umsóknarfrestur rennur út 20. des. Vinsamlega skrifið til Móður og barns (pósthólf 1014, 121 Rvík) eða hringið í s. 27101. Sjálfseignastofnunin Móðir og barn. Þ.ÞORGRÍMSSDN&CO ABETE*™3* HARÐPLAST Á BORÐ ÁRMÚLA29, SÍMI 38640 ► ► > - ► : ► ► ► : ► LIGNEROSET Sófar, stakir stólar, borðstofuhúsgögn, hilluro.nt.fi. Opidlaugardagfrákl. 10-18 húsgagnasýning sunnudagfrá kl. 14-17 VIÐ ENGJATEIG, SÍMI 689155

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.