Morgunblaðið - 14.03.1991, Qupperneq 25
'MÖRGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR '14. MÁRZ 1991
forsætisráðherra, Ásmundur Ste-
fánsson forseti Alþýðusambands ís-
lands, Ögmundur Jónasson formað-
ur Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, Einar Oddur Kristjánsson
formaður Vinnuveitendasambands
íslands og Árni Benediktsson for-
maður Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna.
Ásmundur Stefánsson lýsti því að
af hálfu ASÍ hefði sú krafa verið
sett fram 24. júlí í launanefnd ASÍ,
VSÍ og VMS, að félagar í ASÍ fengju
sömu launahækkun og félagar í
BHMR. Ásmundur kvaðst þess full-
viss að vinnuveitendur hefðu ætlað
að verða við kröfunni.
Ögmundur Jónasson kvað félaga
í BSRB ekki hafa sett fram sams
konar kröfu á þessum tíma. Þeir
myndu hafa gert kröfuna við endur-
skoðun forsendna kjarasamningsins
í nóvember 1990, en félagar í BSRB
hefðu ekki sætt sig við annað en
að fá sömu launahækkun og aðrir,
enda þótt í forsendum kjarasamn-
ingsins væri ekki kveðið á um það.
í málinu var lagt fram bréf dags.
31. júlí 1990 sem hefur að geyma
svar VSÍ og VMS við ósk ASÍ um
endurskoðun samninga. Þar segir
m.a.:
„Alþýðusamband Islands hefur sett
fram kröfu um endurskoðun á kaup-
gjaldsákvæðum gildandi kjarasamn-
ings aðila í kjölfar sérstakrar 4,5%
launahækkunar háskólagenginna
starfsmanna ríkis og sveitarfélaga í
BHMR hinn 1. júlí sl. Krafa þessi er
reist á 9. tölulið 10. gr. samningsins,
en þar segir að ein af forsendum samn-
ingsins sé sú, að launaþróun annarra
verði sú sama og gert sé ráð fyrir í
samningnum.
Vinnuveitendur staðfesta, að þeim
var fullkunnugt um, að það var af
hálfu verkalýðsfélaganna frumfor-
senda samninga sem miðuðu að lækk-
un verðbólgu og vaxta, óbreyttu verð-
lagi landbúnaðarafurða og tryggara
atvinnuástands, að allir launamenn
sætu við sama borð ...
Nú liggur fyrir að einn hópur laun-
Ólafur Ragnar Grímsson:
Þurfum að læra af
þessari reynslu
„BHMR-MÁLIÐ hefur verið
mjög erfitt og viðkvæmt og
því er mikilvægt, að niður-
staða dómsins er í öllum atrið-
um ótvíræð," segir Ólafur
Ragnar Grímsson, fjármála-
ráðherra, um niðurstöðu
Borgardóms.
Ólafur sagði að í dóminum
kæmi fram að bráðabirgðalögin
væru í fullu samræmi við stjórn-
arskrána. „Lögin samræmast
þeim réttareglum og grundvall-
aratriðum félagafrelsis sem
þurfa að ríkja í lýðræðinu. Þeir
lögfræðingar og stjórnmála-
menn, meðal annars í nýkjörinni
forystu Sjálfstæðisflokksins,
sem gáfu sterkt til kynna að
lögin væru brot á stjórnar-
skránni, þurfa nú að horfast í
augu við rangt mat og alvarleg
mistök," sagði Ólafur.
„Mér finnst mikilvægast að
horfa fram á við og læra af
þessari reynslu. Á undanförnum
mánuðum hef ég átt viðræður
við forystumenn einstakra fé-
laga BHMR til að meta ýmsar
leiðir sem geta skilað háskóla-
menntuðum ríkisstarfsmönnum
betri kjörum og vænlegri starfs-
aðstöðu. Þar getum við horft á
reynslu af samningum þar sem
farnar hafa verið sérhæfðar leið-
ir með tilliti til eðli starfanna
hjá hverjum fyrir sig. Dómurinn
hefur sett punkt aftan við
ákveðinn kafla og það þarf að
draga lærdóma af honum en
aðal atriði er að byija nýjan.“
-Skapar dómurinn aukið
svigrúm fyrir stjórnvöld, til að
grípa inn í kjarasamninga á
grundvelli efnahagsstefnunnar á
hveijum tíma?
„Eg tel að það sé rangtúlkun
á dóminum, vegna þess að hann
ítrekar rækilega félagafrelsi og
samningsfrelsi og rökstyður að
hagur BHMR-félaga var ekki
skertur umfram hag annarra.
Grundvallarreglan er að al-
mannahagur er sterkari sér-
hagsmunum," sagði fjármála-
ráðherra.
þega hefur þegar fengið 4,5% launa-
hækkun umfram aðra og þar með
nærfellt tvöfaldað þá launahækkun,
sem ella hefði orðið á árinu. Ef þessi
hækkun gengur fram telja VSI og
VMS sig ekki eiga annarra kosta völ
en að tryggja viðsemjendum sínum
hliðstæða launaþróun ...“
Einar Oddur Kristjánsson sagði
vinnuveitendur myndu hafa greitt
umkrafða launahækkun. Haft hefði
verið samband við framkvæmda-
stjórnarmenn VSÍ og hefðu þeir ver-
ið samþykkir því að launahækkunin
yrði greidd. Ekki hefði þetta þó ver-
ið samþykkt formlega. Ekki hefði
komið formleg beiðni um launa-
hækkun frá öðrum en ASÍ en vitað
he’fði verið að slíkar kröfur myndu
koma fram.
Árni Benediktsson kvað samband
hafa verið haft við stjórnarmenn
VMS og hefðu þeir verið sammála
um að greiða yrði þessa kauphækk-
un, enda stæðu skuldbindingar til
þess.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra kvað sér jiafa verið
tjáð af formönnum VSÍ og VMS
áður en bráðabirgðalögin voru sett
að vinnuveitendur myndu_ greiða
umkrafða kauphækkun ASÍ.
Kjarasamningur Alþýðusambands
íslands vegna Iðnnemasambands
íslands og eftirtalinna landssam-
banda þess og einstakra aðildarfé-
laga þeirra; Verkamannasambands
íslandSj Málm- og skipasmiðasam-
bands Islands, Rafiðnaðarsambands
íslands, Landssambands iðnverka-
fólks, Landssambands íslenskra
verslunarmanna, Sambands bygg-
ingarmanna svo og félaga með beina
aðild að sambandinu annars_ vegar
og Vinnuveitendasambands íslands
vegna aðildarfélaga þess og ein-
stakra meðlima, Vinnumálasam-
bands samvinnufélaganna, Meist-
ara- og verktakasambands bygging-
armanna og Reykjavíkurborgar hins
vegar var undirritaður 1. febrúar
1990. Samningstíminn er til 15.
september 1991 og laun og launa-
tengdir liðir hækka fimm sinnum á
samningstímanum um 9,5% saman-
lagt. í 10. gr. samningsins er greint
hveijar forsendur hans séu. Ein
þeirra er sú að launaþróun annarra
verði hin sama og gert sé ráð fyrir
í samningnum.
í kjarasamningum Alþýðusam-
bands Norðurlands, Verkstjórasam-
bands íslands og Verkstjórafélags-
ins Þórs, Vélstjórafélags Suðurnesja
og Vélstjórafélags íslands við Vinnu-
veitendasambands íslands og Vinnu-
málasamband samvinnufélaganna
er samið um sömu launahækkanir á
sama tímabili og í samningi Alþýðu-
sambands íslands. Forsendur þess-
ara samninga eru þær sömu, þ.á.m.
ákvæðið um launaþróun annarra.
I kjarasamningum Blaðamanna-
félags íslands og Alþýðusambands
Vestfjarða er byggt á sömu forsend-
um að því er launaþróun annarra
varðar og í kjarasamningi Alþýðu-
sambandi íslands og launahækkanir
eru svipaðar.
í kjarasamningi fjármálaráðherra
f.h. ríkissjóðs og Reykjavíkurborgar
annars vegar og Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja hins vegar er
samið um sömu launahækkanir og
í framangreindum samningum. I
þeirri grein, þar sem greindar eru
forsendur samningsins, er ekki getið
um launaþróun annarra. Samnings-
tíminn er frá 1. febrúar 1990 til 31.
ágúst 1991.
í kjarasamningi fjármálaráðherra
f.h. ríkissjóðs, Reykjavíkurborgar og
St. Jósefsspítala _ annars vegar og
Hjúkrunarfélags íslands hins vegar
er vísað til forsendna í kjarasamn-
ingi BSRB en þeirri forsendu bætt
við að launaþróun annarra verði hin
sama og í samningnum felist. Samn-
ingstíminn er frá 1. maí 1990 til 31.
ágúst 1991. Samið var um saman-
lagt 7,5% kauphækkun á samnings-
tímabilinu.
Þá hafa verið lagðir fram kjara-
SJÁ NÆSTU SÍÐU
l»ú færð hvergi jafn
öfluga tölvu fyrir eins
GÖTTVERÐ!
Verðsamanburöur hefur sannfært tölvunotendur um að
erfitt er að gera betri kaup en einmitt í Acrotech
tölvunum, þar sem saman fara gæði, góð vinnslugeta
og makalaust verð.
Pað er einnig alkunna að nýja 20MHz Acrotech 286AT
er hraðvirkasta AT tölvan á markaðinum.
ém-
t..
Pess vegna kunna tölvunotendur að meta Acrotech
tölvurnar. Nú átt þú auðvelt með að bætast í hóp
Acrotech eigenda, því verðið er hreint með ólíkindum.
Acrotech 286AT 20MHz kostar kr. 119.908.-
Acrotech 386SX 16MHz kostar kr. 139.900.-
Innifalið í verði: VSK, Super VGA litaskjár, 1 Mb innra
minni, 40 Mb harður diskur og MS-DOS 4.01.
Ótrúlegt verð fyrir óviðjafnanlega tölvu.
Opið laugardag frá kl. 10:00 til 16:00.
= BALTI hf.
ARMULA 1 SIMI (91) 8 25 55