Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NOVEMBER 1991 RAD/X UGL YSINGAR ATVINNA IÐUNN Kvöld- og helgarvinna Vantar þig aukavinnu? Vantar þig vinnu með skólanum? Okkur vantar duglegt sölufólk. Mikil sala. Góðir tekjumöguleikar. ■ Upplýsingar í síma 626317 frá kl. 13.00- 17.00 í dag, miðvikudag. TIL SÖLU Sameignarfélag í verslunarrekstri, með uppsafnað tap, til sölu. Áhugasamir leggi nöfn sín og síma á auglýs- ingadeild Mbl. fyrir 27. þ.m. merktan: „Beggja hagur - 14851.” Málverk eftir Jón Stefánsson, 116x145 cm; Kristínu Jónsdóttur, 80x106 cm; Kjarval (málað 1921), 60x92 cm. Til mála kemur greiðsla með hús- bréfum. Lysthafendur sendi nafn og síma til auglýs- ingadeildar Mbl. fyrir 25. þ.m. merkt: „List- munir - 14307.” Bílskúr óskast til leigu helst í vesturbænum í Kópavogi. Á að not- ast undir lager. Upplýsingar í síma 43003 milli kl. 8.00 og 19.00. 'Hjp LAGNAFÉLAG ÍSLANDS Lofsvert lagnaverk Lagnafélag íslands auglýsir eftir tilnefningum um lofsvert lagnaverk fyrir árið 1991. Hver sem er getur tilnefnt verk til viðurkenningar og hvort heldur verk sem heild eða einstaka þætti. Verkunum, sem tilnefnd eru nú, skal hafa verið lokið á árinu 1991. Tilnefningum skal skila til Lagnafélags ís- lands, pósthólf 8026, 128 Reykjavík, fyrir 31. desember nk. Ráðstefna um ferða- mennsku og umhverfis- vernd á hálendi íslands verður haldin á Hótel Borg föstudaginn 22. nóvember 1991. Eiður Guðnason, umhverfisráðherra, setur ráðstefnuna. Framsöguerindi flytur Þóra Ellen Þórhalls- dóttir, en fjórtán aðilar, sem tengjast ferða- mennsku og umhverfisvernd á hálendinu, flytja kynningarerindi. Pallborðsumræður og fyrirspurnir verða að loknum flutningi erinda, en ráðstefnunni lýk- ur með samantekt og niðurstöðum. Ráðstefnan er öllum opin. Hún hefst kl. 11.00 og stendur til kl. 18.00. Dómsmálaráðuneytið. Samgönguráðuneytið. Umhverfisráðuneytið. FUNDIR - MANNFA GNAÐUR Vörubílstjórafélagið Þróttur Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 21. nóvember kl. 20.00. Dagskrá: 1. Atvinnumál. 2. Félagsmál. 3. Önnur mál. Stjórnin. Félagsfundur Dagsbrúnar Dagsbrún heldur áríðandi félagsfund fimmtu- daginn 21. nóvember 1991 kl. 16.30 í Bíó- borg, Snorrabraut 37 (áður Austurbæjarbíó). Dagskrá: 1. Félagsmál. . 2. Kjaramál, skýrt frá gangi samningavið- ræðna. 3. Tillaga um heimild til vinnustöðvunar. Mjög áríðandi er að Dagsbrúnarmenn fjöl- menni á fundinn. Komið á fundinn beint af vinnustað. Stjórn Dagsbrúnar. Fyrirtæki óskast Óska eftir að kaupa lítið eða meðalstórt fyrir- tæki, sem gæti brauðfætt sjálfan mig og konuna. Ýmislegt kemur til greina, en þó ekki söluturn. Vil helst geta unnið venjulegan dagvinnutíma þótt ekki sé það skilyrði. Vinsamlega leggið tilboð og upplýsingar inn á auglýsingadeild Mbl. merktar: „Sjálfstæður - 3418”. Trúnaðarmál og öllum svarað. 700-1000m2 Óskum eftir 700-1000 m2 iðnaðarhúsnæði með innkeyrsludyrum til leigu frá 20. nóv- ember til áramóta. Upplýsingar gefur Freyr í síma 621400 eða 650053 á kvöldin Matvælaiðnaður Til leigu húsnæði, sem hentar fyrir matvæla- framleiðslu eða fiskvinnslu. Húsnæðið skiptist í 560 fm vinnslusal, kæli, frysti o.fl. og 150 fm skrifstofu- og starfs- mannaaðstöðu. Gott útisvæði. Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „S - 9591". Fundur með Eiði Guðnasyni Heimdallur heldur opinn fund með Eiði Guðnasyni, umhverfismálaráðherra, í dag, miðvikudaginn 20. nóvember, kl. 20.30. Að loknu framsöguerindi ráðherra gefst fund- armönnum kostur á að bera fram fyrir- spurnir og koma með ábendingar. Fundur- inn verður í Valhöll, Háaleitisbraut 1, og hefst kl. 20.30. Hann er öllum opinn. Félag sjálfstæðismanna í Langholtshverfi Aðalfundur félagsins verður haldinn í dag, miðvikudaginn 20. nóvember, kl. 20.30. Fundarstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. 3. Gestur fundarins: Markús Örn Antons- son, borgarstjóri. Stjórnin. I IFIMDAI.I Ul< F ■ U ■ S FÉLAGSLÍF □ GLITNIR 599111207 - HELGAFELL 599111207 VI 2 I.O.O.F. 7 = 17311208V2 = E.T.I. I.O.O.F. 9 = 17311208'A = E.T. 1 RF.GLA MUSTERISRIDDARA RMHekla 6.11. HS. MT. 20.11. VS. FL. IOGT St. einingin nr. 14 Fundur i Templarahöllinni við Eiríksgötu í kvöld kl. 20.30. Leikið af fingrum fram, dagskrá í umsjá hagnefndar. Félagar fjölmennið. Æ.T. SAMBAND ÍSLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Kristniboðssamkoma á Háaleitisbraut 58 í kvöld kl. 20.30. Raeðumenn: Sigurbjörn Þorkels- son og Helgi Elíasson. Laufey Geirlaugsdóttir syngur. Allir velkomnir. Frá Sálarrannsókna- félagi íslands Þórunn Maggý heldur skyggni- lýsingarfund föstudaginn ' 22. nóvember kl. 20.30 á Sogavegi 69. Upplý6ingar á skrifstofu fé- lagsins, Garðastræti 8. Opið frá kl. 13-17. Sími 18130. Stjórnin. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Biblíulestur kl. 20.30. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Allir hjartanlega velkomnir. Seltjarnarneskirkja Samkoma í kvöld kl. 20.30. Sönghópurinn „Án skilyrða” syngur undir stjórn Þorvaldar Halldórssonar. Bobby Arrington syngur. FERÐAFELAG ® ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533 Fimmtudagskvöld 21. nóv. kl. 20. Tunglskinsganga og blysför: Setbergshlíð - Kershellir Hressandi kvöldganga og blys- för i skammdeginu. Gengið um Setbergshlíðina sunnan Hafnar- fjarðar. Áð við kertaljós í Kers- helli. Kynníngarverð: 400,- kr., frítt f. börn m. fullorðnum. Blys kr. 200,-. Brottför frá Umferðar- miðstöðinni, austanmegin, (á Kópavogshálsi og v. kirkjug. Hafnarfirði). Sunnudagsferðin 24. nóv. kl. 13 verður Húsfell - Valaból. Félagsvist Ferðafélagsins miðvikudagskvöldið 27. nóv. kl. 20 í Borgartúni 6 (Rúgbrauðs- gerðínni). Góð verðlaun. Fjölmennið. Aðventuferð í Þórsmörk 30. nóv.-1. des. 2 dagar. Gleymið jólastressinu og dveljið í Mörkinni fyrstu helgi í aðventu. Gönguferðir og kvöldvaka meö góðri aðventu- og jólastemmn- ingu. Verð aðeins 4.500,- kr. fyr- ir utanfél. og 4.000,- kr. f. félga. Pantið strax. Laugardaginn 30. nóv. verður kynning á félagsheimili Ferða- félagsins í Mörkinni 6. Göngu- ferð um Elliðaárdalinn kl. 14 og opið hús kl. 15-16. Allir velkomnir. Gerist félagar! Ferðafélag Islands. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 S 11798 19533 Miðvikudagur 20. nóv. kl. 20.30 Kvöldvaka Ferðafélagsins Árneshreppur á Ströndum, staðhættir og mannlíf Kvöldvaka á vegum Ferðafélags Islands verður haldin miöviku- daginn 20. nóv. i Sóknarsalnum, Skipholti 50a, og hefst stund- víslega kl. 20.30. Haukur Jóhannesson, jarðfræð- ingur, fjallar um Árneshrepp (frá Kolbeinsvík norður að Geirólfs- núp) í máli og myndum, en Ár- neshreppur er nyrsti hreppur í Strandasýslu. Þeir, sem hafa komiö á þessar slóðir vita, að stórbrotin og hrikaleg náttúra þessa landshluta lætur engan ósnortinn og hefur óhjákvæmi- lega sett mark sitt á lífsbaráttu þeirra, sem þar hafa búið. Feröafélagið hefur árlega efnt til ferða um þetta svæði. Ein- stakt tækifæri til þess að fræð- ast um byggó og náttúru þessa afskekkta landshluta. Félags- menn sjá um heimilislegar veit- ingar. Aðgangseyrir kr. 500,- (keffi og meölæti innifalið). Ferðafélagið býður alla vel- komna til þess að njóta fræðslu og skemmtunar á kvöldvökunni. Ferðafélagsspilin verða til sölu. Myndagetraun. Munið tunglskinsgöngu fimmtudagskvöldið 21. nóv. kl. 20 og aðventuferð í Þórsmörk 30.11-1.12. Sannkölluð stemmningsferð í byrjun aðventu. Ferðafélag Islands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.