Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991 35 fimm, Guðrúnu leikkonu, Ingi- björgu upplesara, Helgu leikkonu, Kristjáni og Stefáni, hljóðfæraleik- urum, tengdabörnum og barna- börnum innilegustu samúðarkveðj- ur. Eftir langan og glæstan feril er Þorsteinn Ö. Stephensen kvaddur með söknuði, virðingu og aðdáun. Starf hans og stefnumótun í leiklist- arflutningi verður seint fullþakkað og fullmetið; sem listamaður lyfti hann okkur ögnina upp úr duftinu, svo að við sjáum betur til sólar. Sveinn Einarsson Þá er hann afi okkar genginn og aðeins minningin eftir hjá okk- ur. En hvílík minning og hvílíkur maður! Þegar við strákarnir brutum okk- ur leið inn í þennan heim og lentum undir hans verndarvæng var hann að sjálfsögðu kominn af besta aldri og mikið til hættur að hafa sitt lifi- brauð af list sinni. En þó hlutverk- unum fækkaði og veikindi og van- heilsa gerðu vart við sig, urðu verð- leikar hans sem listamanns engu síðri. Hæfileikar hans og hin gríðar- lega sterku tök sem hann hafði náð á leiklistinni komu vel fram í hans daglega fari. Þá mátti einu gilda hvort hann sagði okkur eina góða hænusögu, fór með dýrindis skáld- skap eða sagði okkur frá leikhús- inu. Og alltaf átti hann athygli okkar óskipta. Aldrei lét hann okk- ur unglingana finna til vanmáttar okkar í umræðum um listir og menningu. Tilbúinn að hlusta á okkur ekki síður en að miðla okkur af sinni eigin reynslu og listfengi. Sú ást sem hann hafði á sannri leiklist lætur okkur ekki ósnortna. Skap hans var stórt en rausnar- skapurinn í okkar garð var alltaf sá sami. Hann fylgdist með okkar námi, hvatti okkur og deildi með okkur okkar bestu stundum. Hann var stundum sjálfum sér erfiður í ósérhlífinni gagnrýni og þeirri sjálf- skoðun sem einkennir oft jafn hæfi- leikaríka listamenn sem hann var. Hann var á margan hátt gæfumað- ur og elskaður bæði í starfi og heima við. Okkur bræðrunum virð- ist þó hans mesta gæfa hafa verið amma okkar, Dóróthea G. Breið- fjörð, sem með gáfum sínum, krafti og lífsþrótti studdi hann og styrkti í hvívetna. Við kveðjum hann afa „skafa” með ást og aðdáun og þökkum hon- um fyrir árin og ríkulegar minning- ar. Þorsteinn Guðmundsson, Magnús Guðmundsson, Stefán Þorvaldur Þórsson. Á degi sem þessum, þegar Þor- steinn Ó. Stephensen leikari er kvaddur hinstu kveðju, er tregt tungu að hræra, en hugurinn er hjá honum. Þorsteinn var leikari af guðs náð, jafnvígur á gaman og alvöru og svo snjall að honum lét jafn vel að túlka afglapa sem gáfumenn. Núna, þegar hann er látinn, er leik- sviðið tómt, en endurminningar um ógleymanlegar persónur, sem hann skapaði á löngum ferli og rötuðu allar beina leið til áhorfenda, fylla tómið. Leiðir okkar Þorsteins lágu fyrst saman árið 1957 þegar Leikfélag Reykjavíkur sýndi Browningþýð- inguna eftir Terence Rattigan í Iðnó. Á þessum árum var beðið með óþreyju eftir hverri nýrri per- sónusköpun frá hendi Þorsteins, en túlkun hans á menntaskólakennar- anum Crocker-Harris þótti tíðind- um sæta og hefur jafnan verið talin meðal merkustu afreka hans á leik- sviðinu. F'yrir ungan pilt var það hins vegar á við holla skólagöngu að fá að stíga fyrstu sporin á leik- sviðinu un'dir verndarvæng Þor- steins, að ekki sé minnst á samveru- stundirnar sem fylgdu í kjölfarið. Þegar árin liðu varð kunningsskap- ur okkar Þorsteins að vináttu og er mér nær að halda að hann hafi verið meiri vinur minn en ég átti skilið. Á Laufásveginum var ekki ein- asta góður viðkomustaður fyrir þá sem vildu skeggræða um umhverf- ismál og byggðina í Kvosinni, held- ur sannnefndur háskóli allra sem leituðu fróðleiks um íslenska leiklist að fornu og nýju. Þorsteini var ekki tamt að ræða opinskátt um list sína. Hann vissi sem var að verkið lofar meistarann. En þegar hann lét í ljósi skoðanir sínar tafaði hann ekki fyrir daufum eyrum. Hann var málsvari þagnar- innar í leik og barðist gegn síbylj- unni. Hann fór heldur ekki dult með þá skoðun sína að hann kysi fremur að beygja persónur leiksins undir sig en elta þær uppi eftir ytri einkennum. Hann hafði hóg- værðina að leiðarljósi og skapaði hveija persónuna á fætur annarri þar sem jöfnuður ríkti með ástríðum og mannviti og flutti jafnan list sína af einhverju því áreynslulausasta látleysi sem sést hefur á íslensku leiksviði. Fyrir framan hljóðnemann átti hann engan sinn líka. Hann geislaði af sköpunargleði og hreif meðleikendur sína með sér og lyfti þeim í hæðir. Áhugi Þorsteins á viðgangi leik- listarinnar var snar þáttur í lífi hans alla tíð og nutu margir góðs af. Á síðari árum gerðist hann sér- stakur vökumaður leiklistargyðj- unnar, fylgdist af áhuga með nýj- ungum og gladdist af einlægni þeg- ar hæfileikaríkir einstaklingar kvöddu sér hljóðs á leiklistarsviðinu. Það segir sína sögu að fyrir rúmum tveimur árum gerði hann sér ferð upp í Borgarleikhús þeirra erinda að afhenda ijórum ungum leikurum styrki úr minningarsjóði frú Stef- aníu Guðmundsdóttur við opnun leikhússins. Eftir það sté nafni minn ekki framar á leiksvið. Að leiðarlokum langar mig að hafa yfir vísu sem Olafur Jóhann Sigurðsson orti og tileinkaði Þor- steini: Þú mikli reynir með rætumar djúpt í jörðu og rammlega tengdar björgum vors foma lands: að vísu hefur haustið nálgazt og snert við hörpu þinni af laufí, en samt er hún næm og svarar himinblænum betur en aðrar. Og betur en öðrum heilsar hann líka þér, sviptignum reyni með ræturnar djúpt í jörðu og roðnum síðdegis bjarma af kynlegri glóð. Það er von mín og trú að nú hafi himinblærinn heilsað leikaran- um Þorsteini Ö. Stephensen með sínum hætti. Blessuð sé minning hans. Þorsteinn Gunnarsson Þorsteinn Ö. Stephensen var stórbrotinn maður. Hann bjó yfir visku enda var hann sífellt leitandi, allt til hinsta dags, hafði brennandi áhuga á öllu sem hann taldi skipta máli í samtíðinni, horfði fram á veginn en hafði líka fortíðina á hraðbergi og reiðubúinn að draga af henni lærdóma. Iiann var ljóð- elskur og bóksinnaður, skáldmæltur sjálfur, skemmtilegur og ljúfur, vin- ur vina sinna og góður frændi.. Þorsteinn Ö. Stephensen var einn verðugasti fulltrúi þeirrar kynslóðar sem kom til sögunnar upp úr síð- ustu aldamótum. Sú kynslóð gerði sér glögga grein fyrir hinu huglæga í tilveru íslensku þjóðarinnar. Þröng viðskiptasjónarmið báru hana aldrei ofurliði. Hún spurði einnig um önn- ur gildi, menningarleg verðmæti og tilfinningar. Þannig hafa boðberar íslenskrar menningar löngum spurt. Og málflutningur þeirra hefur feng- ið hljómgrunn með þjóðinni. Þeir skópu hinn íslenska málstað og á honum byggði þjóðin tilveru sína. Þannig hefur hún komist yfir erfið- leika þegar á móti hefur blásið og öll ytri skilyrði verið mótdræg. Þorsteinn Ö. Stephensen helgaði listinni líf sitt. Þar var sjónarhorn hans vítt. Hann vildi rækta mann- eskjuna, búa henni fijóan og gjöful- an jarðveg. Hann var veitandi sem gæddi umhverfi sitt lífi og fyllti það reisn. Slíkur samræðusnillingur var hann að stundum hafði ég á tilfinn- ingunni að hann stæði í sérsam- bandi við almættið. Með frásagnar- list og seiðandi skopskyni hreif hann okkur með sér svo allir gleymdu stund og stað. Nálægð hans var góð og miid. Og þannig er minningin sem ég mun ætíð geyma um þennan frænda minn og góða vin. Ögmundur Jónasson t Móðir okkar, GUÐBJÖRG ERLENDSDÓTTIR, Furugerði 1, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 21. nóvember kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Barnauppeldissjóð Thorvaldsensfélagsins. Kristfn Magnúsdóttir, Sigurbjörg Magnúsdóttir, Erla Magnúsdóttir, Hrafnhildur Magnúsdóttir. t Alúðarþakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför GUÐRÚNAR HANNESDÓTTUR, Bólstaðarhlíð 42. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnþórunn Hannesdóttir, Valdimar Hannesson, Ingibjörg Magnúsdóttir. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að grefnar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skai hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til- vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning- argreinar birtist undir fullu nafni höfundar. ..... -.... .......... Mér er ljúfsárt að minnast vinar míns, Þorsteins Ö. Stephensen, nú þegar hann hefur kvatt þennan heim. Kynni okkar hófust fyrir ein- um 65 árum þegar við að sumar- lagi störfuðum við mælingar á veg- um Reykjavíkurborgar. Þótt leiðir okkar lægju ekki saman og oft væri langt bil milli samfunda urðu þessi kynni að vináttu sem aldrei brást. Haustið 1933 vorum við sam- skipa með Gullfossi til Kaupmanna- hafnar þar sem hann hóf leiklist- arnám við nemendaskóla Konung- lega leikhússins en ég settist í við- skiptadeild Kaupmannahafnarhá- skóla. Sambandið var slitrótt. Þó sátu Anna systir mín heitin og ég í leikhúsinu þegar Skálholt eftir Kamban var frumflutt, en þá sté Þorsteinn fyrst á hinar dönsku „fjal- ir” sem leikari. Anna þekkti Þor- stein frá hátíðarsýningu á Fjalla- Eyvindi árið 1930, en hún hafði verið fengin hingað heim til þess að leika Höllu en Þorsteinn lék hreppstjórann og er mér minnis- stætt að hún sagði eftir á að enginn hefði gefið sér betri mótleik en hinn lítt þekkti leikari Þorsteinn Ö. Stephensen. Og árin liðu en þegar mágur minn heitinn, Poul Reumert, stofn- aði „minningarsjóð frú Stefaníu Guðmundsdóttur” til eflingar leik- listinni á íslandi fól hann Þorsteini Ö. Stephensen formennsku í sjóðs- stjórninni og gegndi hann því starfi af kostgæfni til dauðadags. Eftir þetta urðu samfundir okkar fleiri og jnnilegri. Á hugann leita minriingar um hinn dáða leiklistar- og drengskap- armann. Þá er einnig hugsað til eiginkonu hans, Dórótheu, sem ég hef þekkt frá því ég fyrst man eft- ir mér. Þetta eru bjartar minning- ar. Ég fyllist þakklæti og óska þeim báðum guðs blessunar. Geir ------------------ Sigríður Jónasdótt- ir en ekki Jónsdóttir í minningargrein urn Sigrúnu Jónasdóttur, sem birtist í Morgun- blaðinu í gær, misritaðist nafn hennar og hún sögð Jónsdóttir. Er beðist velvirðingar á mistökun- um. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langa langömmu, GUÐBJARGAR JÓNSDÓTTUR, Dalbraut 27, Reykjavfk. Lára Herbjörnsdóttir, Ásgeir Ármannsson, Guðbjörg Vilhjálmsson, Guðmundur W. Vilhjálmsson. barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. + Innilegar þakklætiskveðjur til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og minningarathöfn eiginrhanns míns, stjúpa, tengdasonar, bróður og tengdabróður, BRYNJÓLFS LÁRUSSONAR, Hliðarstræti 14, Bolungarvík. Hulda M. Þorkelsdóttir, Þorkell Kristinsson, tengdaforeldrar, systur og tengdasystkin. + Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför ÞÓRU ÞÓRÐARDÓTTUR. Guð blessi ykkur öll. María A. Þórðardóttir, Martha Ingimarsdóttir. + Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ISAKS EYLEIFSSONAR fisksala. Sérstakar þakkir til heimahjúkrunar Kópavogs. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Elísabet Vormsdóttir, Sigríður ísaksdóttir, Baldvin ísaksson, Ingibjörg Hjaltadóttir og barnabörn. Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför eiginmanns míns og föður okkar, PÉTURS WIENGKE, Túngötu 18, Reykjavik. Ásta Kristinsdóttir, Sigrún Pétursdóttir, Bernhard Kr. Pétursson, Þórdís Pétursdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.