Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991 37 LONDON Blóðhiti og bumbusláttur á íslenskri menningarhátíð Tbyijun næsta mánaðar mun T áhugamönnum um íslenska menningu gefast tækifæri til að kynnast ýmsu af því sem hún hef- ur upp á að bjóða á sérstakri hátíð í Lundúnum. Greint er frá áformum þessum í nýjasta hefti tímaritsins PR Weeki sem sérhæfir sig í mark- aðs- og kynningarmálum. Tilefnið er að 1000 ár eru liðin frá því að Leifur Eiríksson fann Ameríku, 500 árum á undan Kólumbusi. Frásögninni fylgir myndin hér að ofan en í texta með henni seg- ir að tveir íslenskir bumbuslagarar muni á hátíðinni kynna möguleika þá á fjölbreytilegum takttegund- um og hljómfalli sem mannslíkam- inn bjóði upp á sé hann barinn eða strokinn af listrænni andagift og innlifun. Fréttinni fylgir að hér fari tveir af þekktustu listamönnum íslend- inga á þessu sviði en athöfn þessi sé til þess fallin „að fá blóðið til að ólga”. Hugmyndina, segir í frétt blaðsins, átti hinn 38 ára gamli menningarfulltrúi í sendi- ráði Islands í Lundúnum, Jakob Magnússon, sem nýverið tók þar til starfa. I samtali við blaðið seg- ir Jakob Magnússon að þar á bæ vilji menn líta svo á að verið sé að opinbera þjóðlegan sið, sem farið hafi fremur hljótt til þessa. í greinni kemur fram að rætur þessarar listgreinar sé að finna í íslenskri alþýðumenningu þótt hæpið sé að telja þessa iðju til þjóðaríþróttar íslendinga. POPPHEIMURINN Olli minmmáttarkemid umskiptum? Astralska poppsöngkonan Kylie Minoque hefur gert áhangend- um sínum hverft við á hljómleikum sínum að undanförnu með því að fletta sig klæðum á sviðinu, innan skynsamlegra velsæmismarka þó. Engu að síður er þetta þvílík kúvend- ing hjá stúlkunni að jafna má við að hvítt breytist í svart. Ungfrúin segir þetta stafa af því að hún sé enginn unglingur lengur, heldur fullþroskuð kona og það beri að hressa upp á sviðsframkomuna með hliðsjón af því. Þykir ýmsum framferði af þessu tagi sveija sig í ætt við stéttarsystur hennar Ma- donnu, að gera út á kynþokkann og gera þar með sönginn sjálfan að nokkurs konar aukaatriði. Haft hef- ur verið eftir ónafngreindum kunn- ingjum stúlkunnar að hér kunni þó mestu að ráða minnimáttarkennd sem gert hefur vart við sig. Þannig er mál vexti, að Minoque er afar smávaxin og hún lenti í því fyrir skömmu, að sambýlismaður hennar popparinn Dave Hutchense hjá INXS lét hana róa og tók heldur saman við danska sýningarstúlku sem í of- análag er himinhá og gnæfír meira að segja yfir Hutchense sjálfan. Fatafellan sé einhvers konar andsvar við áfallinu. COSPER * o O o" o ’o°o O o O o _ ° ° o „ ° O ° o ° O O o° oo OOO 0°o°°oo°oo o °o°°o O °o , 0o00oo°o- „ ’0°o0°oo °o o o o ° °° 0 °° o o°o ° o ° o ° ° ° ° O o O O o^ ° 0 0 - O^S3. °00„000„o o°0< 3 o ° o o o 3 ° O O O < o~° O Vo°° ° o - o—o- — Sjáðu, þetta er forstjórinn á leið heim úr vinnunni. TEIKNIMYNDIR Ekki mikið um störf fyrir- teiknara á Islandi i - segir Ásta Sigurðar- dóttir teiknari sem starf- ar í Kaupmannahöfn Islensk listakona, ásta sigurðar- dóttir, teiknaði eitt af aðalhlut- verkum teiknimyndarinnar Fugla- stríð 'í Lumbruskógi, sem verið er að sýna í Regnboganum um þess- ar mundir og er með íslenskri tal- setningu. Ásta Sigurðardóttir hefur búið í Danmörku frá níu ára aldri. Hún var í myndhöggvaranámi í Óð- insvéum, en hefur meira eða minna unnið við teikningar síðan námi lauk. „Ég vinn eiginlega al- veg við teikningar núna og finnst það miklu líflegra heldur en að vinna sem myndhöggvari. Það er mjög gaman og spennandi að teikna svona fyrir teiknimyndir,” segir Ásta. Ásta segir að eitt af fyrstu verk- unum, sem hún gerði var að teikna fyrir dönsku teiknimyndina Val- höll. „Síðan komu nokkrir smá- þættir fyrir sjónvarp, en þeir voru unnir upp úr myndinni Valhöll og fjölluðu um teiknimyndapersón- una Quark.” Ásta segir að eftir það hafi hún unnið að annarri teiknimynd en svo hafi hún farið að vinna hjá kvikmyndafyrirtæk- inu Nordisk Film. „Þar vann ég t.d. við auglýsingamyndir og einn- ig við upplýsingamyndir um til dæmis krabbamein og fleira. Eftir það vann ég svo við Fuglastríðið og ég teiknaði teiknimyndapersón- una Ólafíu og líka hlutverk söng- konu, sem aðeins kemur fram í myndinni. Við unnum að myndinni í um tvö ár, og það þykir tiltölu- lega stuttur tími til að vinna svona mynd,” segir Ásta. Hún segir að vinnu hennar við Fuglastríðið í Lumbruskógi hafi lokið fyrir rúmu ári. „Þá fór ég að vinna við mynd fyrir fyrirtæki í Los Angeles í Bandaríkjunum, sem heitir Kroyer. Við þessa mynd unnu einnig nokkrir sem unnið Ásta Sigurðardóttir teiknaði eina aðalpersónuna í teiknimyndinni Fuglastríð í Lumbruskógi. hafa hjá Disney-fyrirtækinu. Illuti af myndinni var unninn hér í Dan- mörku. Hún heitir Ferngully: The Last Rainforest og fer að líða að því að hún komi út. Þessi mynd minnir mig svolítið á teiknimynd- ina Litlu hafmeyjuna,” segirÁsta. Ásta vinnur nú hjá Jannik Hast- rup, en það er hann sem gerði Fuglastríðið í Lumbruskógi. „N% erum við m.a. að vinna að fimmt- án mínútna sjónvarpsmynd, en næsta mynd verður teiknimynd um apa og er fyrir börn.” Ásta segir ekki miklar líkur á því að hún komi til íslands til að vinna. „Ég á tvær systur á íslandi og ég heimsótti þær í sumar. Það er auðvitað aldrei að vita hvað getur komið upp, en sem stendur er ekki mikið um teiknivinnu á ís- landi svo ég á ekki von á því að koma heim til að vinna, að minnsta kosti ekki á næstunni,” segir Ásta Sigurðardóttir. í Háskólabíói fimmtudaginn 21. nóvember, Kl. 20.00 Einleikari: TrulsMörk Hljómsveitarstjóri: Michel Tabachnik Efnisskrá: Beethoven: Coriolanus, forleikur Prokofieff: Sinfonia concertante Debussy: Síódegi skógarpúkans Ravel: Bolero

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.