Morgunblaðið - 03.12.1991, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.12.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991 21 12 árum eftir að Vilmundur Jóns- son ritaði bréf sitt til bæjarstjórnar Reykjavíkur samþykkti hún sam- hljóða tillögu sjálfstæðismanna um að kjósa nefnd, til að gera tiliögur um stærð og fyrirkomulag fullkom- innar heiluverndarstöðvar í Reykja- vík og sumarið 1946 skilaði nefndin tillögum, þar sem gert var ráð fyr- ir starfrækslu 15 heilsuverndar- greina og borgarlæknisembættisins í væntanlegri heilsuverndarstöð. Framkvæmdir hófust við Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur árið 1949 og stöðin hóf starfsemi sína 4. des- ember 1953 með opnun barnadeild- ar, en stöðin var vígð 2. mars 1957. Oraunhæfar tillögur heil- brigðisyfirvalda á sl. ári Ég ætla ekki að telja upp allar þær deildir, sem starfræktar hafa verið á Heilsuverndarstöð Reykja- víkur á undanförnum áratugum en meðal þeirra eru flestar af þeim greinum, sem Vilmundur Jónsson gat um í títtnefndu bréfi sínu fyrir tæpum 58 árum. Hins vegar vil ég geta, að á sl. ári lá fyrir Alþingi Islendinga tillaga um, að starfsemi stöðvarinnar iegðist niður eigi síðar en 1. janúar 1992. í kjölfar þessa efndi starfsfólk Heilsuverndar- stöðvarinnar til fundar, sem efiaust á eftir að verða skráður í sögu þess- arar merku stofnunar. Á þessum fjölmenna fundi, sem haldinn var í aðalanddyri Heilsuverndarstöðvar- inanr 30. apríl 1990 var áætlunum um að leggja stofnunina niður harð- lega mótmælt og bent á þá stað- reynd, að meira en af skipu- lagðri heilsuvernd og heimahjúkrun í Reykjavík væru á vegum Heilsu- verndarstöðvarinnar og að enginn annar aðili hefði bolmagn til að sinna þessari þjónustu. Lýstu fund- armenn undrun sinni á því, að fram kæmi tillaga um að leggja niður stofnun sem sinnti svo viðamikilli þjónustu, enda störfuðu um 240 manns við Heilsuverndarstöðina. Skorað var á þingmenn Reykavík- inga að vinna gegn þessum hug- myndum. Bráðabirgðastjórn um framtíðarhlutverk Eins og ljóst er af framansögðu voru tillögur þáverandi heilbrigðis- yfirvalda með öllu óraunhæfar, og því var horfið frá þeim. í júlí 1990 voru skipuð þriggja manna bráða- birgðastjórn fyrir Heilsuverndar- stöð Reykjavíkur, sem var falið að gera tillögur um framtíðarhlutverk stofnunarinnar og ljúka störfum fyrir árslok 1991. Guðjón Magnús- son þáverandi aðstoðarlæknir, var skipaður formaður stjórnar af heil- brigðisráðherra, en auk hans tóku sæti í stjórninni Guðrún Guðmunds- dóttir læknir, tilnefnd af trygging- arráði og undirritaður tilnefndur af Reykj avíkurborg. Núverandi stjórn Heilsuverndar- stöðvarinnar hefur mikinn metnað fyrir hönd stofnunarinnar, og telur hana hafa mikilvægu hlutverki að gegna í framtíðinni. Ekki verður fjallað frekar um störf stjórnar í þessari grein en skoðun undirritaðs á framtíðarhlutverki Heilsuvemd- arstöðvar Reykjavíkur mun koma fram í grein í Morgunblaðinu á morgun undir heitinu „Framtíð Heilsuverndarstöðvar Reykjavík- ur”. Höfundur er læknir og varaborgarfulltrúi í Reykjavík. SÝNUM ÞOLINMÆÐI eftir Hinrik Fjeldsted Ég get ekki staðist það að skrifa um þessa miklu álversumræðu sem algjörlega hefur ruglað menn í rím- inu. Menn úr röðum stjómarand- stöðunnar era óðum að lyfta sér á kreik á kostnað iðnaðarráðherra. Ég er ekki flokksbróðir Jóns, en að sakast við hann hefur ekkert að segja. Við verðum að reyna að halda áfram að finna einhveija leið til að koma raforku okkar í verð. En það náum við ekki að gera ef menn eru með ásakanir hvor á annan í tíma og ótíma. Við viljum ávallt draga einhvern fyrir rétt þegar illa geng- ur. Hefur fólk í þessu landi hugsað út í það hvernig það bregst við þegar þjóðarhætta eða það ástand skapast, þar sem við þurfum að standa saman? Ekki er ástæða til bölsýni þótt á móti blási, nauðsyn- legt er að íslendingar nái víðtækri samstöðu. Eftir að hafa hlustað á iðnaðar- ráðherra á spjallfundi með ungum sjálfstæðismönnum er ég sannfærð- ur um að hann er með réttar hug- myndir í orkumálum, en það sem er allra best er að hann er með rétt hugarfar. Oft má gagnrýna aðgerðir stjórnmálamanna en þetta er ekki eitt af þeim skiptum. Ég tel Jón Sigurðsson hafa staðið sig vel sem iðnaðarráðherra og í við- ræðunum um nýtt álver. Á fundin- um með Jóni kom fram hjá nonum að ríkisstjórnin er að kanna ýmsar aðrar leiðir og möguleika á nýtingu raforku til orkufreks iðnaðar. Það er ekki eins og iðnaðarráðherra hafi setið með hendur í skauti sér, þvert á móti hefur hann staðið fyr- ir framgangi þess. Hvað hefði fólk sagt ef allt hefði staðist og álver orðið að raunveruleika og fram- kvæmdir hefðu hafist á réttum tíma? Það er ég viss um að það fólk sem gagnrýnir Jón Sigurðsson núna hefði ekki staðið í biðröðum til að þakka honum fyrir vel unnið starf. Ég fylgi sjálfstæðismönnum Hinrik Fjeldsted að málum og er flokksbundinn þar, en það eru menn eins og Jón Sig- urðsson sem fá unga sjálfstæðis- menn til þess að skoða hugmyndir annarra flokka með opnu og já- kvæðu hugafari. Hættum þessu neikvæða tali og sameinumst um stefnu þessarar ríkisstjórnar í að skapa velferð og hagsæld í okkar litla, en hlýlega landi, þar sem við getum öll látið okkur líða vel. Ég tel að ríkistjórn íslands sé að gera rétta hluti með stefnu sinni undir kjörorðinu „Velferð á varan- legum grunni”. Það er nú þannig að stundum þarf ástandið að versna til þess að það skáni. Við sem byggj- um þetta land viljum oftast að efna- hagsástandið batni strax. Fjögur ár fyrir ríkisstjórnina eru naumur tími til þess að hún geti hrint áætl- unum sínum í framkvæmd. Við verðum að gefa okkur tíma og smá skammt af þolinmæði og láta ríkis- stjórnina vinna fyrir okkur að bætt- um lífskjörum. Frá 698.000.- stgr. á götuna TILBOÐSPAKKI Útvarp, segulband og mottur AUt þetta á kr. l.OOO,- ef keyptur er nýr bíll Innitalio CHARADE '31 3ja eda S dyra Sparneytinn bíll fyrir ísienskar adstæður 3 ára ábyrgö 6 ára verksmi&juryövörn Númerapíötur Nýskráning Loftnet 2 hátalarar Tauklædd sæti Hjólkoppar Halogenljós Rúllubelti í aftursæti Skottlok/bensínlok opnast innanfrá Innifalib CHARADE SEDAIU '91 Kraftmikill fjölskyldubíll med vökvastýri, Sgíra eda sjáifskiptur Vökvastýri Klukka 3 ára ábyrgö 6 ára verksmi&jury&vörn Númeraplötur Nýskráning Loftnet 2 hátaiarar Plussklædd sæti Hjólkoppar Halogenljós Rúllubelti í aftursæti Skottlok/bensínlok opnast innanfrá FAXAFENI8 • SIMI91-685870 Höfundur er sölumaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.