Morgunblaðið - 03.12.1991, Side 29

Morgunblaðið - 03.12.1991, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991 Joseph Cicippio laus úr höndum líbanskra mannræningja: „Vonast til að geta farið að lifa lífinu á nýjan leik” Samkomulag sagt um lausn hinna fjögurra fyrir áramót Beirut. Reuter. Mannræningjar í Líbanon létu Bandaríkjamanninn Joseph Cicippio lausan úr gíslingu í gær og var hann að því búnu fluttur til Damaskus í Sýrlandi þar sem hann var afhentur bandaríska sendiherranum. Virtist hann tekinn og þreyttur en brosti þó breitt við fréttamönnun- um. Kom kona hans líbönsk til fundar við manna sinn í Damaskus í gær en þau hjónin höfðu ekki sést í hálft sjötta ár. ísraelar létu 25 arabíska fanga lausa á sunnudag eða strax og mannræningjarnir höfðu tilkynnt, að þeir ætluðu að sieppa Cicippio. I Líbanon eru enn í haldi tveir Bandaríkjamenn og tveir Þjóðveijar. Cicippio er sjöundi vestræni gísl- inn, sem látinn er laus síðan í ág- úst þegar Sameinuðu þjóðirnar hóf- ust handa við að fá þá lausa gegn því, að arabar í ísraelskum fangels- um fengju frelsi. Hafa ísraelar nú alls látið lausan 91 arabískan fanga. írönsk stjórnvöld, sem vilja losna úr þeirri pólitísku einangrun, sem þau hafa verið í lengi, hafa einnig lagt sinn skerf af mörkum til lausn- ar gíslunum og ríkisútvaipið í Te- heran sagði í gær, að fyrir milli- göngu Sameinuðu þjóðanna hefðu tekist um það samningar í Damask- us á laugardag að sleppa gíslunum fjórum, sem enn eru í haldi, fyrir áramót. Sagði Farouq aí-Shara, utanríkisráðherra Sýrlands, að Bandaríkjamönnunum yrði sleppt í næstu viku. „Ég er að vonum ánægður með, að þessu skuli lokið og vcnast tií að geta farið að lifa lífinu að nýju,” var eitt af því fyrsta, sem Joseph ■ MÍLANÓ - Hlutabréf ítalska hjólbarða- og kaplafyrirtækisins Pi- relli lækkuðu um hartnær fjórðung í verði í gær. Stjórn fyrirtækisins hafði varað við miklum rekstrarhalla á árinu eftir að samningaviðræður þess við þýska hjólbarðafyrirtækið Continental AG um samvinnu höfðu runnið út í sandinn. I ALMA-ATA - Núrsúltan Nazarbajev varð fyrsti þjóðkjörni forseti Sovétlýðveldisins Kazakh- stans í kosningum á sunnudag. Hann var einn í framboði og fékk 98,8% atkvæða. Hann sagði eftir að úrslitin voru kunngerð að hann myndi beita sér fyrir sjálfstæði lýðveldisins ef til- raunir Míkhaíls Gorbatsjovs Sovét- forseta til að halda Sovétlýðveldun- um saman mistækjust en hins vegar kæmi aðskilnaður frá Sovétríkjunum ekki til greina. Hann sagði þetta „tvennt ólíkt”. Nazarbajev var áður þingkjörinn forseti. Cicippio sagði við fréttamenn í gær. Hann hafði ekki séð dagblað eða annað lestrarefni i fimm og hálft ár og mannræningjarnir voru sífellt að flytja hann af einum staðn- um á annan. Cicippio var fjármála- stjóri Bandaríska háskólans í Beirut þegar honum var rænt og lét hann jafnan lítið fyrir sér fara. Vogaði hann sér til dæmis aldrei út á götu í sjálfri borginni fyrr en daginn, sem Stokkhólmi. Reuter. GUNN Hellsvik, dómsmálaráð- herra Svíþjóðar, fyrirskipaði á sunnudag rannsókn á því hvers vegna lögreglan ákvað að koma í veg fyrir að sænskir þjóðernis- sinnar efndu til árlegs útifundar í Stokkhólmi og Lúndi á laugar- dagskvöld. Lögregluyfirvöld höfðu sagt að þau hefðu bannað útifundina til að afstýra átökum milli þjóðernis- sinnanna og fólks, sem hafði safn- ast saman við fundarstaðina til að mótmæla árásum á innflytjendur að undanförnu. Eftir að útifundirn- ir voru bannaðir börðust ungir ný- nasistar við lögreglumenn og mót- mælendur. Um 150 manns voru handteknir í hvorri borg. Lögreglan náði vopn- um af fólkinu, meðal annars heima- tilbúnum sprengjum og fánastöng- um með beittum oddum. Fjórir lög- mannræningjarnir náðu honum. Cicippio er kvæntur líbanskri konu og hafði tekið íslamstrú tveimur árum áður en honum var rænt. í gíslingunni hótuðu mannræningj- arnir, Byltingarsinnuðu réttlætis- samtökin, að taka hann af lífi og á myndbandsupptöku, sem dreift var til fjölmiðla, kvaddi hann konu sína og bað hana að minnast sín ævin- lega. Gíslarnir, sem enn eru í haldi, eru Terry Anderson, fréttaritari AP-fréttastofunnar, en hann hefur verið lengst allra eða frá því í mars 1985; Alann Steen, prófessor við Háskólann í Beirut, en hónum var rænt í janúar 1987; Thomas Kemptner og Heinrich Striibig, báð- ir þýskir. Þeim var rænt í maí 1989 í borginni Sídon. reglumenn særðust í Lundi og einn nýnasisti var fluttur á sjúkrahús í Stokkhólmi. Gunn Hellsvik fyrirskipaði rann- sókn á aðgerðum lögreglunnar. „Það er algjört frumskilyrði að fólk hafi tjáningarfrelsi. Án þess getum við ekki sagt að við búum við lýð- ræði,” sagði dómsmálaráðherrann. Fyrr um daginn hafði lögreglu- maður skotið nýnasista til bana í Malmo og sært annan. Þetta er í fyrsta sinn sem lögregl- an hefur komið í veg fyrir árlega útifundi sænskra þjóðernissinna 30. nóvember. Fundirnir eru haldnir til að minnast Karls XII Svíakonungs, sem lést þennan dag á vígvellinum í stríði Svía gegn Rússum, Dönum og Norðmönnum árið 1718. Samtök sænskra þjóðernissinna hafa staðið fyrir fundunum en á undanförnum árum hefur borið æ meira á ungum nýnasistum á þeim. Svíþjóð: Rannsókn á lög- regluaðgerðum gegn nýnasistum ÞRJAR BÆKUR SEM LEIFTRA AF ORÐSNILLD OG SKARPRI HUGSUN s I bókinni Manngerðir eftir Þeófrastos (372-287 f. Kr.), er ljallað um 30 sérkenni í siðum manna sem hljóta að teljast vafasöm s.s. smjaður, illmælgi og blaður, stimamýkt, fruntaskap og dindilmennsku. Manneðlið breytist ekki og þótt 2000 ár séu liðin frá ritun bókarinnar er ekki ólíklegt að margur kannist við persónur í þessum skemmtilegu mannlýsingum. Bókin er ríkulega skreytt lyndislestrarmyndum. Hver er heimssýn heimskunnar og hvaða hlutverk ætlar hún sjálfri sér? í bókinni Lof heimskunnar eftir Erasmus frá Rotterdam (1469- 1536), lætur höfundurinn heimskuna rausa gáleysislega um alvarleg efni. Hún sér margt kyndugt í fari manna og skopast að áráttu þeirra til að sýnast merkilegri en þeir eru. Stephen W. Hawking er einn af fremstu eðlisfræðingum samtímans og í bókinni Saga tímans bregður hann upp heimsmynd nútima eðlisfræði og setur fram frumlegar tilgátur um uppruna, þróun og eðli alheimsins. Hann gerir sér grein fyrir takmörkum eðlisfræðinnar og spyr áleitinna spuminga s.s. „Hvað blæs lífsanda í jöfnumar og fær þeim heim til að lýsa?“. Bókin er metsölubók um víða veröld. HIÐ ÍSLENZKA BÓKMENNTAFÉLAG SlÐUMlll.121 • PÓSTHÓLF 8935 • 128 REYKJAVlK • SÍMI91-679060 M ■f' 1816 Tr 1991 SIEMENS Við opnum í dag heimilistækjaverslun okkar að nýju eftir gagngerar endur- bætur og stækkun. Verið velkomin!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.