Morgunblaðið - 03.12.1991, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 03.12.1991, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991 59 Innlifunin ríkti á sviðinu. í þéttskipuðum salnuin skemmtu menn sér vel. Morgunblaðið/Börkur Amarson Menningarhátíð í London vekur athygli: Skrokkabönkurum boðinn plötusamningur VIÐBRÖGÐ manna við íslensku menningarhátiðinni i London hafa verið í réttu samræmi við yfirskrift hennar Fire & Ice. Blaðamaður Morgunblaðsins var viðstaddur setningu hátíðarinnar í Gulbenkian Gallery og varð þar vitni að hinu umdeilda atriði Human Body Perc- ussion Ensemble, eða skrokkabanki, eins og sumir kalla það. Önnur atriði sem þarna voru flutt liafa óverðskuldað fallið í skugga þess fyrst talda. Skemmst frá að segja fór þessi hátíð ny'ög vel fram og var að mati blaðamanns hin fjörlegasta landkynning. Neikvæð við- brögð fóru leynt, hafi þau einhver verið. Linda Pétursdóttir er fyrirsæta á mörgum myndum á sýningunni í Oriel Galleríi. Laugardagskvöldið 30. nóv. var opnuð ljósmyndasýning í tengslum við hátíðina í Oriel Gallery í Chelseahverfi í London. Meðal gesta voru Jón Baldvin Hannibals- son utanríkisráðherra og Helgi Agústsson sendiherra. Á sýning- unni eru ljósmyndir af íslenskum stúlkum, m.a. margar eftir Bonna af Lindu Pétursdóttur fyrrum al- heimsfegurðardrottningu, sem var þarna stödd. Jakob Magnússon menningarfulltrúi og formaður ís- lendingafélagsins í London sagði í ávarpi að þessi ljósmyndasýning væri hin fyrsta af nokkrum fyrir- huguðum í sal í kjallara Oriel Gall- erís. Þar verður opið hús með ýms- um listrænum uppákomum fyrir íslendinga á laugardagskvöldum framvegis. Sunnudaginn 1. desember héldu íslendingar uppá fullveldisdaginn með því að fjölmenna á menningar- hátíðina í Gulbenkian Gallery. Þeg- ar blaðamaður mætti á staðinn var allt á ferð og flugi. Söngvarar og hljóðfæraleikarar voru að æfa sig sitt á hvað og verið var að koma síðustu listaverkunum fyrir í sýn- ingarsalnum. Mikil eftirvænting ríkti meðal gesta meðan þeir biðu í anddyri sýningarsalsins, sem rek- inn er af Royale Academy of art og ber nafn þekkts „Lundúnakar- akters” sem bjó alla ævi á hinu fræga Ritzhóteli. Hinn kunni skosk-íslenski sjón- varpsmaður Magnús Magnússon og pakka jólgjöfum. Miðvikudaginn 4. desember kl. 17.30 verða ljósin tendruð á stóru jólatré, blágreni úr Hallormsstaðar- skógi, sem gefið er af Bygginga- vöruverslun Kópavogs. Börn úr fimm ára bekk Isaksskóla kveikja á ljósunum á trénu. Skólakór Kárs- ness syngur við jólatréð undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Einnig koma Rokklingarnir og Dengsi í heimsókn. Eins og undanfarin ár verður Bamaspítala Hringsins afhentur hélt ræðu. Hann lauk miklu lofsorði á framlag Jakobs Magnússonar og sagði í samtali við blaðamann á eftir: „Menn búast við einhverju áhrifamiklu frá íslandi og við verð- um að sýna að við séum óvenjuleg. Kynni mín af hugmyndum Jakobs hafa breytt mínum íhaldsömu og svolítið gamaldags skoðunum og sannfært mig um að við þurfum að koma með eitthvað nýtt, frum- legt og spennandi á þessu sviði. Jakob hefur byltingarkenndar hug- myndir og hefur fengið meiri fjöl- miðlaumfjöllun um þessi mál en ég hef fengið í 60 ár.” Umrædd uppákoma fór þannig fram að Sigurður Rúnar Jónsson, Ragnhildur Gísladóttir og Sverrir Guðjónsson birtust fáklædd á sviði kjallara gallerísins og hófu að beija sér á bijóst og maga, söngla, stynja og kveina svo úr varð hinn sérkenni- legasti flutningur á gömlum og þjóðlegum stefjum. Það er greini- lega ekki heiglum hent að taka þátt í slíkum samsöng því ég sá votta fyrir þremur marblettum á maga eins flytjandans. Fljótlega voru þeir allir orðnir eldrauðir á bringu og maga eftir högg og slög í hita leiksins. „Við reynum að nota allan líkamann og fínna fjölbreytt hljóð. Dýpstir tónar fást með því að beija á bijóstkassann og skemmtilega syngjandi tóna má fá með því að beija á tóman og strengdan maga. En margvísleg- ustu tónarnir fást með því að beija afrakstur þess, sem viðskiptavinir hafa kastað af smápeningum í gos- brunna Kringlunnar á þessu ári. Verslanir í Kringlunni verða opn- ar sunnudagana 15. og 22. desem- ber frá kl. 13 til 18, föstudaginn 20. desember og laugardaginn 21. desember verður opið til kl. 22. Á Þorláksmessu eru verslanir í Kringl- unni opnar til kl. 22 og aðfangadag er opið frá kl. 9 til 12. (ÍJr fréttatilkynningu.) á höfuðið,” sagði Diddi. Hann gat þess einnig að þeim félögum hefði boðist plötusamningur í Bretlandi hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í sérkennilegri tónlist. Einnig hefur atriði þeirra verið tekið inn í enskan sjónvarpsþátt um fólksmergðina í London. Margt góðra atriða var á menn- ingarhátíðinni í London. Hljóm- sveitin Todmobile flutti þar þrjú lög við feikigóðar undirtektir. Með ör- yggi sýndu þau Andrea Gylfadóttir, Eyþór Arnalds og Þorvaldur Þor- valdsson hvernig þau slá á hina nýrri strengi í þjóðarsálinni. Tónlist Todmobile var skemmtilega ólík öðrum tónlistaratriðum hátíðarinn- ar, sem voru í eldri og þjóðlegri stfl. Svo sem rímnasöngur Sigurðar Rúnars og kynning hans á lang- spili og gamalli íslenskri fiðlu, lög Engel Lund sem Sverrir Guðjónson söng með sinni óvenju háu og fögru tenórrödd og verk eftir Jón Leifs, sem Jónas Sen píanóleikari lék lista- vel, sem og verk Franz Liszts. Framlag þeirra félaga var sannkall- að eyrnayndi. Verk myndlistarmannanna Guð- jóns Bjarnasonar og Guðrúnar Ein- arsdóttur, sem nú eru sýnd í Gul- benkian Gallery, eru mjög ólík. Að sögn Guðjóns er hann fulltrúi hins myrka: „Eg þótti heppilegur fulltrúi hinna svartari afia vegna þess hvemig verk mín eru unnin.” Þar á hann m.a. við fjórar ferhyrndar, mikilfenglegar og útskornar stál- súlur. Dimmleitar myndir hans eru æði frábrugðnar hvítum akryl- myndum Guðrúnar. „Ég reyni að túlka hið hreina og tæra,” sagði hún. „Þetta hefur allt verið merki- leg reynsla, því ég hef aldrei sýnt erlendis áður.” Landkynningarkvikmynd byggð á ljósmyndum Páls Stefánssonar með texta eftir Thor Vilhjálmsson hefur ugglaust kveikt heimþrána í bijóstum margra viðstaddra og ekki dró úr þeim áhrifum þegar Kór ís- lendinga í London söng á eftir ætt- jarðarlög undir stjórn Aagot Ósk- arsdóttur og mönnum var boðið að bragða á réttum Rúnars Marvins- sonar sem er gestakokkur á hinum fræga fiskréttastað Wheelers í til- efni af menningarvikunni í London. í samtali við blaðamann sagði Jakob Magnússon að hann væri í heild ánægður með hvemig til hefði tekist á þessari fyrstu íslensku menningarkynningu sem hann hef- ur staðið að. „Það er mikil vinna fólgin í svona kynningu. Ekki að- eins að finna atriði og setja saman dagskrána heldur einnig að kynna hana í fjölmiðlum. Þessi menningar- hátíð hefur fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum bæði hér ytra og á Islandi. Mér finnst það af hinu góða. Þetta hefur orðið mér hvatning til dáða og ég er strax farinn að safna nýjum hugmyndum m.a. fyrir Barbican-hátíðina næsta ár. Sú gagnrýni sem fram hefur komið vegna þessarar hátíðar nú kemur lítið við mig að öðru leyti en því að hún hefur vakið með mér þá spurningu hvort íslenska þjóðin hafi algerlega tapað kímnigáfunni.” Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra kvaðst vera ánægð- ur með menningarhátíðina í Lon- don. „Hún var skemmtileg og fjöl- breytt,” sagði hann. „Mér finnst alltaf gaman að hlusta á Magnús Magnússon sérfræðing í víkingaöld og hugmyndasmið um sögu íslend- inga. Myndasýningin var mjög vel gerð og tónlistin var skemmtilejg," bæði hin sígilda og alþýðlega. Eg hafði hina bestu skemmtum af „búktali” Didda og félaga. Ég hef heyrt út undan mér að fjöldi fólks sé hneykslaður vegna þessa og jafn- vel viðhaft orð eins og „smánar- blettur á menningu okkar”. Auðvit- að má hver hafa sína skoðun á því en þegar menn sjá þetta í sam- hengi kemur allt annað á daginn. Þetta segir fyrst og fremst sína sögu um fjölmiðla. Ef frá þessu hefði verið sagt sem kynningu á gömlum þjóðlögum hefði enginn haft áhugá, en af þvi þetta var tengt við nekt þá varð þetta spennandi.” Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir. VANNÞIN FJÖLSKYLOA? Heildarvinningsupphæðin var: 150-209.104 kr. 48. lelkvika ■ 30« nóvember 1991 Röðin : 112-11X-21X-2122 13 réttir: 31 raðir á 1.308.270 - kr. 12 réttir: 738 raöir á 34.600 - kr. 11 réttir: 8.780 raðir á 3.070 - kr. 10 réttir: 64.222 raðir á 880 - kr. Útborgun vinninga getur ekki hafist fyrr en á þriðjudagsmorgni því frændur okkar Svíar þurfa að fara yfir marga seðla meö handafli. Fullrúra ráöuneytis þar í landi hafa ekki úrskurðaö um kaffiblettamiða fyrr en á mánudagskvöld. Kringlan: Kveikt á jólatré JÓLATÍÐIN er hafin í Kringlunni og er húsið komið í jólabúning. Jólaskreytingar hafa venð settar upp ásamt verkstæði jolasvein- anna, þar sem jólasveinn og dvergar eru önnum kafnir við að útbúa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.