Morgunblaðið - 03.12.1991, Síða 50

Morgunblaðið - 03.12.1991, Síða 50
MÖRGUNÉLÁÐIÐ I-RIÐJUDAGUR 3. DÉSEMB’ÉR 1991 so t Eiginmaður minn, GÍSLI T. GUÐMUNDSSON póstmaður, Sólheimum 25, Reykjavík, lést laugardaginn 30. nóvember. Kristín S. Björnsdóttir og börn. t Móðir okkar, GUÐNÝ PÁLSDÓTTIR, lést 1. desember á sjúkraheimilinu Skjóli. Útförin verður auglýst síðar. Erla Bech, Halldór Bech. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KJARTAN STEINBACH loftskeytamaður, Hjallaseli 47, x Reykjavík, \ lést laugardaginn 30. nóvember sl.. Soffía Loptsdóttir Steinbach, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, artima og langamma, KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, Sviðholti, Bessastaðahreppi, lést í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, laugardaginn 30. nóvember. Jóhann G. Jónsson, María W. Friðriksdóttir, Anna Þ. Jónsdóttir, Friðrik S-Jriðriksson, Jóhanna Jónsdóttir, Ásthildur Jónsdóttir, Geir Guðjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur faðir okkar, KRISTINN VILHJÁLMSSON, Aðalstræti 82, Akureyri, lést á heimili sínu þann 1. desember. Margrét Kristinsdóttir, Gunnar Sólnes, Vilhjálmur Bessi Kristinsson, Theodóra Gunnarsdóttir, Einar Kristinsson, Sigríður Karlsdóttir. t Eiginmaður mipn, faðir, tengdafaðir, fósturfaðir og afi, JÓN KR. ISFELD, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði að morgni 1. desember. Auður H. ísfeld, Haukur ísfeld, Kristín G. ísfeld, Auður Björnsdóttir og barnabörn. t Eiginkona mín og móðir okkar, SOFFI'A JÓNSDÓTTIR frá Ásum í Húnavatnssýslu, Huldulandi 1, verður jarðsungin í Bústaðakirkju í dag, þriðjudaginn 3. desem- ber, kl. 13.30. Friðþjófur Pétursson, Sigurður Harðarson, Gunnhildur Friðþjófsdóttir. t Útför föður okkar, JÚLÍUSAR BJÖRNSSONAR fyrrverandi deildarstjóra hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, Kleppsvegi 2, fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 4. desember nk. kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna. Ottó J. Björnsson, Ellen Júliusdóttir, Þóra Júliusdóttir. Steinþór Sighvats- son — Minning Fæddur 15. janúar 1906 Dáinn 25. nóvember 1991 Með þessum orðum langar mig að minnast afa míns, Steinþórs Sig- hvatssonar, sem lést á Dvalarheim- ilinu Garðvangi 25. nóvember. Hann var fæddur á Gunnlaugs- stöðum á Héraði og var þriðji í hópi 9 systkina. Foreldrar hans voru Sighvatur Gunnlaugsson og Svanhildur Hektorsdóttir. Hann var aðeins 9 ára gamall þegar hann fór að heiman og hóf vinnu til að sjá sér farborða, fyrst hjá Sæmundi og Mörtu á Kaganesi og síðar í Karls- skála við Reyðarfjörð hjá Guðrja og Jónínu og reyndust þau honum mjög vel og bar afi ávallt hlýjan hug til þeirra allra. 1934 giftist hann fyrri konu sinni Láru Helgadóttur sem lést eftir stutta sambúð. Eftirlifandi konu sinni, Sigríði Stefánsdóttur, giftist hann síðan 10. desember 1938 og áttu þau tvær dætur, Láru og Unni Ingunni. Lára er gift Braga Magn- ússyni og eiga þau þrjú börn. Unn- ur er gift Jóni William Magnússyni og eiga þau fjögur börn. Barnabörn- in eru níu. Afi var duglegur sjómaður á sín- um yngri árum og reri meðal ann- ars með Guðfinnsbræðrum í nokkur ár. En vegna veikinda þurfti hann að hætta á sjó en bar alltaf hugann þangað. Sást það best eftir að eldri bróðir minn hóf sjómennsku, fylgd- ist afí með af áhuga og í ófá skipti var hann mættur á bryggjuna til að fylgjast með afla dagsins. Síðar hóf hann störf í Keflavík sem innheimtumaður fyrir Kefia- víkurbæ. Þar vann hann í 22 ár og fór allra sinna ferða á reiðhjólinu sínu. Minningarnar um afa riflast upp, góðar minningar frá því ég var lít- ill snáði heima hjá ömmu og afa á Vatnsnesveginum í Keflavík og til þess dags er hann kvaddi okkur. Ég sé fyrir mér eldhúsið heima hjá þeim. Mamma að klippa afa, amma að baka vöfflur og við systkinin á gólfinu með dótakassann. Og jólin bytjuðu aldrei fyrr en amma og afi komu, þá fyrst varð klukkan sex í mínum huga. Afi var dugnaðarmaður, snyrti- menni og sérstaklega gestrisinn, hvort sem skyldmenni, gamlir vinir eða ókunnugir áttu í hlut. Allt það besta sem til var á heimili ömmu og afa skildi borið fram og veitt þeim sem til þeirra komu. Afi var söngelskur og sat löngum stundum við fóninn og hlustaði á plötur. Eftir að stelpurnar mínar fæddust kynntist ég enn meira þeirri hlýju, gjafmildi, kímni og væntumþykju sem hann hafði til að bera og hve barngóður hann var. Ég minnist þess þegar við hjónin fórum með afa í síðasta stóra ferða- lagið fyrir rúmum 2 árum, keyrandi til Blönduóss og síðan til Ísaíjarð- ar, þar sem Lára dóttir hans býr, en þangað hafði hann ekki farið í þónokkur ár. Það hafði oft verið ofarlega í huga mínum að fara með hann vestur og einn góðan veður- dag kom að því. Kaffibrúsinn og smurt brauð var tekið til og í aftur- sætinu sátu afi og eldri dóttir mín þá tveggja ára. Það var gaman og ógleymanleg stund að fylgjast með t Bróðir minn og frændi okkar, ÁSMUNDUR GUÐMUNDSSON frá Helgavatni, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 5. desember kl. 15.00. Rut Guðmundsdóttir og systrabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BERNODÍA SIGURÐARDÓTTIR, Kirkjuvegi 59, Vestmannaeyjum, andaðist í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja að kvöldi 1. desember. Hlöðver Haraldsson, Þorbjörg Ólafsdóttir, Dóra Haraldsdóttir, Friðrik Oskarsson, Ársæll Sveinsson, Sigrún Óskarsdóttir, Sveinn Sveinsson, Jenný Jóhannsdóttir, Arna Huld Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR BJARNASON, Ölduslóð 17, Hafnarfirði, lést i St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, laugardaginn 30, nóvember sl. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju, föstudaginn 6. desember kl. 13.30. Elisabet Jónsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t HILDUR HJÖRLEIFSDÓTTIR verður jarðsungin frá Kristskirkju í Landakoti miðvikudaginn 4. desember kl. 13.30. Þorgerður Einarsdóttir, Hjörleifur Stefánsson, Stefán Hjörleifsson. þeim tveimur á ferðalaginu. Hjálp- semin á báða vegu, hún að leiða langafa sinn sem þurfti stuðning og hann að rétta henni mat eftir þörfum. Eftir nokkurra klukkutíma ferðalag var Lilja Karen orðin svo stór að henni fannst hún ein gæti haldið í hendi hans og stutt hann. Afi hafði á sinn hægláta hátt unnið traust og hug hennar á þessum stutta tíma og skapað sterkt sam- band sem ávallt hélst á milli þeirra. Afi dvaldist á annað ár á Hlé- vangi og síðan á Garðvangi síðustu mánuðina. Hann þráði að fá börnin í heimsókn og gefa þeim góðgæti úr skúffunni sinni, skúffunni sem aldrei var tóm. En nú hefur afi fengið hvíldina. Dóttir mín Ijögurra ára sagði við mig: Pabbi, hann langafi er bara sofandi og vaknar þegar Jesú kem- ur. Síðan sagði hún: Hvenær kemur Jesú, pabbi? Við systkinin þökkum elskuleg- um afa okkar fyrir allt sem hann var okkur og minningin um góðan mann mun fylgja okkur um ókomin ár. Við söknum hans. Guð blessi þig elsku amma mín, mamma og Lára. Á jörðinni hér ekki heima ég á ég hef annað betra í vonum, því mæni ég héðan í þögulli þrá ég þrái að vera hjá honum, sem eilífan bústað mér býður. Svo herði ég þá upp minn huga á ný og held áfram göngunni minni, minn frelsari heldur mér höndina í og hjálpar með nærveru sinni, og heim mig að lokum svo leiðir. (E.G.X) Steinþór Jónsson Minning Semjum minningargreinar, afmælisgreinar, tækifærisgreinar. Önnumst milligöngu við útfararstofnanir. Sími 91-677585. Fax 91-677586. ^ J L F £ jegsteinar :ramleiðum allar ítærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. i | S.HELGASON HF ISTEINSMIÐJA ■ SKEMMUVHGI48. SIMI 76677

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.