Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRUAR 1992 9 Fyrstu vor- sendingarnar komnar Guðrún Rauðarárstíg ÚTSALA Á DESCAMPS handklæðum og sloppum á alla fjölskylduna. 40-50% afsláttur Mthimia GLUGGA TJÖLD Síðumúla 35 og Kringlunni, sími 680333. Góð ávöxtun Raunávöxtun m.v. 3 s.l. mánuði: Kjarabréf..8.2% Tekjubréf..8,1% , Markbréf...8,7% Skyndibréf....7,0% o i (& VERÐBRÉFAMARKAÐUR FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF. HAFNARSTRÆTI, S. (91) 28566 - KRINGLUNNI, (91) 689700 - AKUREYRI.S. (96) 11100 CHANEL KYNNINGAR HJÁOKKUR FIMMTUDAGINN 13. FEBRÚAR FÖSTUDAGINN 14. FEBRÚAR cLicrt- AUSTURSTRÆTI3 SÍM117201 Stefnt að 30% tollalækkun innan GATT í GATT-samningunum er fjallað um 15 svið alþjóðaviðskipta og þá ekki sízt þjónustuviðskipti, sem nú eru um fjórðungur heimsviðskiptanna. Meðaltollar voru um 40% í milliríkjaviðskipt- um þegar fyrsti GATT-samningurinn varð gerður I947 en er nú um 4,7%. Núverandi samningalota stefnir að 30% lækkun til viðbótar og meðaltollar verða þá um 3,3%. Attunda lotan í fréttablaði VSÍ, Af vettvangi, sem út kom nýlega, er leiðari um GATT-samningana og nefnist hann „Homsteinn heimsviðskipta". Fer leiðarinn hér á eftir: „GATT-samningurinn, eða hið almenna sam- komulag um tolla og við- skipti, er án efa mikil- vægasti alþjóðasamning- ur um niilliríkjaverslun í heiminum í dag. Mark- mið GATT er að greiða fyrir auknum viðskiptum mUli landa og stuðla þannig að því að hvert land nýti sem best nátt- úrugæði sin og mannauð tíl þess að bæta lífskjör. Þegar fyrsti GATT- samningurinn var gerður árið 1947 var meðaltoUur í heimsmarkaðsviðskipt- um um 40%. Síðan hafa 7 samningalotur á vett- vangi GATT verið far- sællega til lykta leiddar og afraksturinn er ótrú- legur eða lækkun meðal- toUs í 4,7%. í áttundu lot- unni sem nú stendur yfir, og kennd er við Urugu- ay, er stefnt að 30% lækkun tolla tíl viðbótar á sex árum. Þessi samn- ingalota er þó sýnu merkUegust þar sem nú er gert ráð fyrir mun víðtækara samkomulagi en áður. Hugverka- réttur Fjallað hefur verið um 15 samningasvið og má þar fyrst nefna þjónustu- viðskipti sem eru að verða æ mikUvægari í alþjóðlegum viðskiptum og eru nú um fijóðmigur heimsviðskipta. í þjón- ustuviðskiptum er m.a. fjallað um flutningastarf- semi, fjarskipti, Ijár- mála- og ferðamanna- þjónustu. Hugverkarétt- ur í viðskiptum er nýr og mikUvægur þáttur samningsins, en þar er markmiðið að selja skýr- ar reglur um einkaleyfi, höfundarrétt og vöru- merki til þess að hindra liugmyndaþjófnað. Einn- ig má nefna að í verslun með vefnaðarvörur er gert ráð fyrir að iðnríki afnemi innflutnings kvóta á innflutning frá þróunarríkjum. Auk þessara atriða má nefna ýmis önnur svo sem að- gerðir gegn undirboðum, opinber útboð, tæknileg- ar viðskiptahindranir og lausn dedumála. Vart þarf að minnast á verslun með landbúnaðarvörur sem einnig er eitt af nýj- um viðfangsefnum GATT. Sleggjudómar Hér á landi hefur því miður gætt þröngsýni í umræðu um GATT mál- ið. Umræðan hefur fyrst og fremst mótast af því ramakveini, sem tals- menn bænda ráku upp í janúarmánuði. An mál- efnalegrar umræðu voru kveðnir upp sleggjudóm- ar og staðhæft að ef gengið yrði að tUboðinu myndi það „rústa land- búnaðinn“. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem tals- menn bænda fara offari ef tillögur tun innflutn- ing og fijálsari sam- keppni í landbúnaði eru viðraðar. Skemmst er að minnast viðbragða bænda við samnings- drögum EES síðastliðið sumar þegar allt ætlaði vitlaust að verða, en þeg- ar upp var staðið kom í ljós að álirif EES á ís- lenskan landbúnað yrðu litil sem engin. Sainkeppnis- hæfni Varðandi GATT-sam- ingisdrögin og islenskan landbúnað er kjarni málsins sá að gildandi búvörusamningur gerir ráð fyrir framleiðniaukn- ingu sem gerir bændum í langflestum tilfellum kleift að mæta þeirri samkeppni sem aðild að nýju GATT-samkomu- lagi mun hafa í för með sér. Neyslumynstrið á innlendum markaði get- ur að vísu breyst þannig að landsmenn neyti mcira af sumum tegund- um landbúnaðarvara og minna af öðrum en nú tiðkast, en innlend fram- leiðsla myndi aðeins missa takmarkaða mark- aðshlutdeild. Afleiðingin yrði því ekki landauðn og fjölgun eyðibýla held- ur þyrftu bændur og ekki síður úrvhmslu- og dreif- ingaraðilar að aðlagast kröfum markaðarins og standa hagkvæmar að verki en nú er gert. Með því að samþykkja GATT tilboðið væru stjómvöld þvi ekki að fóma hags- munum bænda, heldur miklu fremur að stuðla að samkeppnishæfai'i landbúnaði á komandi ámm. 108 þjóðir Ekkert er athugavert við að bændur geri mál- efnalegar athugasemdir við GATT tilboðið t.d. að tekið verði tíllit tíl verð- bólgu á Islandi á viðmið- unartímabilinu og að heimilt verði að fram- leiðslutengja stuðning við landbúnaðinn eins og áformað er í búvöm- samningnum. Auk þess sem samhliða aukinni samkeppni yrði landbún- aðurinn að fá svipuð al- menn starfsskilyrði og gerast erlendis. Hins veg- ar mega skammtíma- hagsmunir bænda ekki verða til þess að þjóðar- heill verði fyrir borð bor- in. Þjóð sem byggir af- komu sina eins mikið á útflutning og ísland verður að hafa tollfijáls- an aðgang að mörkuðum annarra þjóða á sem flestmn sviðum. í GATT em 108 þjóðir og án þátt- töku í samkomulaginu væri gnindvellinum kippt undan framtíðar utanrikisverslun okkar því að í raun er GATT hornsteinn heimsvið- skipta.“ Snæfellsnes: Slysavarna- sveitir sam- einaðar Borg í Miklaholtslireppi. NÝLEGA var haldinn fundur með björgunarsveitum á sunnan- verðu Snæfellsnesi. TUgangur þessa fundar var að sameina þær björgunarsveitir sem fyrir eru, í cina slysavarnarsveit á sunnan- verðu Snæfellsnesi og ber nýja sveitin nafnið Elliði. Fulltrúar frá Slysavamafélagi íslands mættu á þessa sameiningar- fundi. í stjórn voru kosnir: Guðjón Jðnasson í Neðri-Hól, formaður, aðrir í stjórn eru Viktor Þorkelsson, Vegamótum, og Sigurður Helga- son, Hraunholtum. - Páll. omRon FYRIRLIGGJANDI Á LAGER 6-220VAC OG 6-1 1 OVDC Þú svalar lestrarþörf dagsins MTÆKNIVAL Skeifan 17-128 Reykjavík - Sími 91-681665 - Fax 91-680664

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.