Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 52
wgmiÞiðfrtfe MORGUNBLADIÐ, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVlK SÍMI 601100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 FIMMTUDAGUR 13. FEBRUAR 1992 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Heilbrigðisráðherra á fundi á Akureyri: Heilbr igðiskerf- ið hvergi dýrara SIGHVATUR Björgvinsson heilbrigðisráðherra sagði á kynningar- fundi um sparnaðaraðgerðir í heilbrigðismálum á Akureyri í gær- kvöldi að íslenska heilbrigðiskerfið væri það dýrasta í heimi. Sighvat- ur sagði að þetta kæmi fram í nýrri skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Islands hefði unnið um útgjöld hins opinbera til heilbrigðis- þjónustunnar en þar kæmi fram að útgjöldin væru hærri á hvern einstakling hér en í öðrum löndum miðað við ákveðna aldursdreif- ingu. Heilbrigðisráðherra sagði á fund- inum að í skýrslu Hagfræðistofnun- ar kæmi fram að útgjöld hins opin- bera til heilbrigðismála væru hærri á hvem einstakling á íslandi en í nokkm öðru landi og væru þannig mun meiri en í Bandaríkjunum, sem hingað til hefðu verið talin búa við dýrasta heilbrigðiskerfí í heimi. „Ég spyr heilbrigðisstéttir þessa lands hvort við eigum ekki að skoða þetta mál, því þetta er þróun sem hefur gerst á mjög skömmum tíma. Fyrir nokkrum árum var íslenska heilbrigðiskerfíð með þeim ódýrustu í Evrópu,“ sagði Sighvatur. í máli hans kom fram að í skýrsl- unni segði að útskýringar á þessu lægju ekki á lausu en það fyrirkom- ulag að ríkið borgi allan brúsann kunni að eiga hlut að máli. „Það verður að skoða mjög alvar- lega hvernig stendur á þessu og við verðum að fá heilbrigðisstéttirnar með á þessa skoðun en ekki á móti,“ sagði Sighvatur. Ríkissjóður á þýskum lánsfjármarkaði: 6,3 milljarða lán með 8,5% föstum vöxtum RÍKISSJÓÐUR hefur tekið lán að jafnvirði 6,3 milljarða króna eftir skuldabréfaútboð á þýskum lánsfjármarkaði. Skuldabréfin eru til 10 ára og bera fasta 8,5% vexti sem eru 0,4-0,5% hærri vextir en eru á skuldabréfum þýska ríkisins. skuldabréfaútboðið og töldu það Morgunblaðið/Ingi St. Agnarsson Annríki við höfnina Spariskírteini: Vaxtalækk- un hugsanleg á næstunni -segir fjármála- ráðherra FRIÐRIK Sophusson fjármála- ráðherra segir að nýlega hafi vextir á spariskírteinum ríkis- sjóðs sem seld eru í áskrift verið lækkaðir og gerir ráð fyrir að á næstu vikum verði hægt að taka frekari skref I vaxtalækkunarátt. I frétt í blaðinu í gær segir deildarstjóri hjá Landsbréfum að vextir spariskírteina haldi ávöxt- unarkröfu húsbréfa uppi. Fjármálaráðherra sagð.i í gær, þegar þessi ummæli voru borin undir hann: „Fyrir skömmu lækk- uðum við vexti á áskriftarbréfun- um úr 8,1% í 7,9%. Við gerum ráð fyrir því að á næstu vikum verði hægt að taka ný skref í vaxta- lækkunarátt. En það er að sjálf- sögðu nokkuð háð því að jafnframt verði um lækkun að ræða á eftir- markaði spariskírteina á verð- bréfaþinginu og á raunvöxtum bankanna.“ Annað vildi fjármálá- ráðherra ekki segja um málið að svo stöddu. Skuldabréfaútboðið fór fram í janúar og fékk svo góðar viðtökur að ákveðið var að hækka lánsupp- hæðina um 25 milljónir marka vegna mikillar eftirspurnar. Alls nam lánið 175 milljónum þýskra marka og var tekið til að endurfjár- magna 75 milljóna marka lán ríkis- sjóðs sem kemur til greiðslu í júní, en 100 milljónum verður varið til að greiða yfirdráttarlán í Seðla- bankanum. Samkvæmt lánsfjár- lögum er fjármálaráðherra heimilt að taka um 12,8 milljarða króna að láni erlendis á þessu ári. Erlend fjármálarit fjölluðu um afar vel heppnað bæði hvað snert- ir rétta verðlagningu á bréfunum og heppilega tímasetningu útboðs- ins. Hjá Ólafi ísleifssyni, forstöðu- manni alþjóðadeildar Seðlabank- ans, kom fram ríkissjóður hefði fengið tiltölulega hagstæð kjör á láninu miðað við stöðu markaðar- ins. Hann sagði að lág verðbólga og stöðugleiki hafi haft jákvæð áhrif á þau lánakjör sem íslenska ríkið nýtur í útlöndum og vegi upp á móti efnahagssamdrættinum. Sjá Viðskipti/atvinnulíf bls. 1B. Einn af hverium 20 án atvinnu úti á landi ATVINNULEYSI á lands- byggðinni sem hlutfall af mannafla á vinnumarkaði var 5,5% í janúarmánuði en það jafngildir því að tuttugasti hver vinnufær maður hafi ekki haft atvinnu. 7,3% kvenna á Grænlendingar tvö- földuðu laxveiði sína Loðnubátar hafa fengið allt að 26 punda laxa úti fyrir Austurlandi NORSKIR laxveiðibátar tvöfölduðu veiði sína frá fyrra ári á þeirri vertíð sem nú er nýlokið. Þeir veiddu nú 460 tonn af laxi á móti 230 tonnum á síðustu vertíð. Að sögn Orra Vigfússonar formanns alþjóðlegu kvóta- kaupanefndarinnar sefn hefur reynt að kaupa upp laxakvóta Grænlendinga, sögðu græn- lenskir sjómenn honum að mikill lax hefði verið í hafinu á meðan á vertíð stóð, meira heldur en um langt skeið. Þó ekki eins mikið og um tíma á áttunda ára- tugnum, er Grænlendingar veiddu nokkrum sinnum 1.200 til 1.500 tonn á vertíð. Orri sagði Grænlendinga hafa verið rólega við veiðarnar, þeir hefðu sagt sér að laxamagnið og aðstæðurnar hefðu boðið upp á mun meiri veiði, en lágt verð á laxi hefði gert það að verkum að útgerðin var fljótt rekin með halla. Sagði Orri endurskipulagningu á lax- aútgerð Grænlendinga framund- an og þá væri lag að ná ein- hvers konar samningum við þá um að draga úr eða hætta lax- veiðum í sjó. Kvótakaupanefndin keypti á sínum tíma laxakvóta Færeyinga og að sögn Orra ættu fleiri laxar að skila sér í ámar á komandi sumri vegna þessa. „Það verður fróðlegt að fylgjast með þessu, en að vísu eru horfur ef til vill ekki of góðar hvað varðar árnar sjálfar. Það er lítill snjór í fjöllum og hætt við að árnar verði of vatnslitlar í sumar. Þá veiðist alltaf mun minna en ella, en menn fá þó engu að síður vís- bendingar," sagði Orri. Og hann bætti við að loðnubátamir væru farnir að fá laxa úti fyrir strönd- um landsins. Fyrir skömmu kom einn 26 punda um borð í loðnu- bát úti fyrir Austurlandi. landsbyggðinni voru atvinnu- laus og 4,3% karla. í yfirliti vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins yfir at- vinnuástand í janúar kemur fram að rúmlega 4 þúsund manns voru að meðaltali atvinnulaus í mánuð- inum á landinu öllu, rúmlega^ eitt þúsund fleiri en í desember. í lok janúar voru einnig yfir 4 þúsund manns skráð atvinnulaus þannig að atvinnuleysi virtist ekki hafa minnkað. Mest atvinnuleysi var meðal kvenna á Suðurnesjum, 11,8%, en minnst meðal karla á Vestfjörðum, 0,6%. Atvinnuleysi á höfuðborgar- svæðinu var að meðaltali 1,6% í janúar, 3,4% á Vesturlandi, 0,7% á Vestfjörðum, 6,9% á Norðurlandi vestra, 6,5% á Norðurlandi eystra, 5,6% á Austurlandi, 6,4% á Suður- landi, og 7,0% á Suðurnesjum. Svo dæmi séu tekin af einstaka stöðum þá voru 853 atvinnulausir að meðaltali í Reykjavík í janúar, samanborið við 590 í desember, á Akranesi 137 (97), á Sauðárkrók 77 (48), á Siglufirði 116 (82), á Blönduósi 35 (16), á Ólafsfirði 103 (42), á Akureyri 310 (244), á Húsavík 216 (138), í Þorlákshöfn 166 (93), í Vestmannaeyjum 104 (59), i Keflavík 252 (177), í Sand- gerði 64 (32) og í Grindavík 78 (57). Atvinnuleysistölur í desemb- er eru innan sviga. Hins vegar minnkaði atvinnuleysi víða á Aust- fjörðum og á Dalvík fækkaði at- vinnulausum úr 118 í 52. Sjá frétt á miðopnu, bls. 26-27. Aþingi: Deilur um opinbera heimsókn OPINBER heimsókn Davíðs Oddssonar forsætisráðherra til Israels sem fer fram dag- ana 17.-20. febrúar sætti mikilli gagnrýni stjórnarand- stæðinga við utandagskrár- umræður á Alþingi í gær. Töldu þingmenn stjórnar- andstöðuflokkanna, sem til máls tóku, að með heimsókn forsætisráðherra væru íslensk stjórnvöld að leggja blessun sína yfir aðgerðir og stefnu Yitzhaks Shamirs gagnvart Palestínumönnum. Forsætis- ráðherra vísaði gagnrýninni á bug og sagðist hvorki vera að leggja blessun sína yfir hernám né mannréttindabrot fremur en fyrirrennari sinn hefði gert er hann fór í opinbera heimsókn til Kína árið 1987.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.