Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992 13 Fólksbíll með jeppaeiginleika ✓ 7 manna langbakur meö sítengt aldrif ---- ✓ Aflmikill hreyfill með fjölinnsprautun ✓ Mikil veghæð ✓ FÆSTMEÐ SJÁLFSKIPTINGU Verð frá kr. 1.698.240 HEKLA LAUGAVEG1174 SÍMI695500 A MITSUBISHI MÖTDRS HVARFAKUTUR MINNI MENGUN Hátíðáveg- um Edinborg- arfélagsins EDINBORGARFÉLAGIÐ á ís- landi heldur 15. „Burns Supper“ í sal Meistara- og verktakasam- bandsins, Skipholti 70, efri hæð (hús á horni Háteigsvegar og Bólstaðarhlíðar), laugardaginn 15. febrúar næstkomandi. Sam- koman hefst kl. 20.00 stundvís- lega og henni lýkur um kl. 2 eftir miðnætti, segir í frétt Ed- inborgarfélagsins. Veislustjóri er Kolbrún Kjarval og verða veitingar með hefð- bundnu sniði, en þar ber auðvitað hæst „haggis" frá McSween í Ed- inborg. Bjór, létt vín og sterkari verða til sölu á staðnum svo og óáfengir drykkir. Að vanda mun verða sungið undir stjóm Kristjáns Ámasonar. Harpa Karlsdóttir flytur minni Bums og ræðumaður kvöldsins verður Vésteinn Rúni Eiríksson. Allir sem dvalist hafa um lengri eða skemmri tíma í Skotlandi og aðrir sem áhuga hafa á skosk-ís- lenskum menningarsamskiptum em velkomnir með maka og gest- um. Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson ekki síðri perla, eftir Þorkel Sigur- björnsson en ágætur flutningur þessara verka var framlag Mótettu- kórs Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar. Aðaltónlistarviðburður kvöldsins var frumflutningur á Máríuvísum eftir Hróðmar I. Sigurbjömsson, verki fyrir einsöngvara, kór og stóra hljómsveit. Flytjendur vom Guðrún Marta Halldórsdóttir, Kór Mennta- skólans við Hamrahlíð og Hamra- hlíðarkórinn, sem Þorgerður æfði undir þessa tónleika og Sinfóníu- hljómsvejt íslands, undir stjórn Roberts Porco, prófessors við Tón- listarháskólann í Bloomington. Verk Hróðmars er að nokkru kontrapunktískt í gerð en samt í heild mjög hljómbundið. Formskip- an verksins er að það hefst á hljóm- sveitarinngangi en síðan er tónmáli kórs og hljómsveitar ofið saman. Einsöngsþáttur er í miðhluta verks- ins og er þessi hluti verksins helst til litlaus. Seinni hlutinn er fyrst byggður á samspili kórs og hljóm- sveitar en lýkur með kórsöng án undirleiks. Þessi formskipan stang- ast á við þá venju að verkum skuli lokið með sem mestum fyrirgangi en á móti kemur, að kórkaflinn er einkar falleg tilbeiðslutónlist, þar sem bæninni er lokið í kyrrlátri til- beiðslu. Það bregður fyrir ýmsum stórsniðnum þáttum hér og þar í verkinu og er ljóst að Hróðmar stefnir til átaka við stónj formin. Flutningur verksins var í heild góður, undir öruggri stjórn Roberts Porco, þó stundum brygði fyrir óhreinum leik í háradda hljóðfærun- um, einkum þegar sterkt var leikið. Marta G. Halldórsdóttir söng milli- þáttinn af öryggi og kórinn söng af glæsibrag, einkum í niðurlagi verksins. Guðmundur Emilsson tónlistar- stjóri Ríkisútvarpsins kynnti atriði tónleikanna og var framkvæmd þeirra í heild mjög góð og gengu t.d. skiptingar allar mjög greiðlega. Það er vandi að velja viðfangsefni fyrir slíka efnisskrá sem þessa, þar sem taka þarf tillit til sögulegs mikilvægis, svo og flytjenda og möguleika varðandi fyrirkomulag. í heild tókust tónleikamir vel en mikil meirihluti viðfangsefnanna var trúarlegur og val þeirra virtist nokkuð mótað af því hvað kórarnir, hver- fyrir sig, höfðu fram að færa. Það að lögð var áhersla á kórsöng leiddi óhjákvæmilega til þess að einsöngsbókmenntir okkar íslend- inga voru ekki kynntar en þar eig- um við margt gott og skemmtilegt fram að færa, sem trúlega hefði ekki síður átt erindi út úr viðjum hinnar einangrandi fjarlægðar, en þungbúin og hægferðug trúartón- list okkar. Þá ber einnig að geta þess, að fom kvæðaflutningur var ekki kynntur, en líkur em á því, að þar sé að finna framgerð þess söng- máta, sem landnámsmenn fluttu með sér. Heimóttarskapur hefur hrætt okkur Íslendinga frá því að iðka þetta listform sem skyldi, því þarna er ef til vill að finna menjar 11 alda gamals söngmáta og þar með elstu leifar alþýðusöngs, sem fyrirfínnast og er þá átt við þann hluta veraldar, sem menn byggja. Hvað sem þessu líður, þá voru þetta uppbyggilegir tónleikar og margt hægt af þeim að læra og nýta, þeg- ar Ríkisútvarpinu gefst aftur svipað tækifæri til fjöldreifingar á ís- lenskri tónlist. __________Tónlist______________ Jón Ásgeirsson Þessa vikuna standa yfír tón- menntadagar Ríkisútvarpsins og er einkennisheiti þeirra „ísmús“, sem er skammstöfun fyrir íslenska mús- ík. Markmiðið með tónlistardögun- um er að fara yfír 11 alda sögu tónlistar á íslandi, sem að mestu verður gert með fyrirlestrum. Tón- menntadagamir hófust með tón- leikum í Hallgrímskirkju sl. mánu- dag, sem sendir vora beirit til 20 landa í Evrópu. Lögð var megin- áhersla á kórsöng og meðal annars var Hróðmari Inga Sigurbjömssyni falið að semja verk fyrir einsöngv- ara, kór og hljómsveit. Tónleikarnir hófust á því að söngvararnir Bergþór Pálsson og Sigurður Bragason sungu með ágætum tvísöngslagið ísland far- sælda frón. Þorlákstíðir, nánar til- tekið upphafið, og Magnifícat eftir Mist Þorkesldóttur, var viðfangs- efni Hamrahlíðarkórsins og kórs Menntaskólans við Hamrahlíð, und- ir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Magnificat er vel unnið verk og var mjög vel flutt og með töluverðum tilþrifum af hinu unga söngfólki Menntaskólans við Hamrahlíð. Kór Langholtskirkju, undir stjóm Jóns Stefánssonar, flutti raddsetn- ingar á fjóram íslenskum þjóðlög- um, Undir bláum sólarsali, eftir Emil Thoroddsen, og þijár radd- setningar eftir undirritaðan, Krammavísur, Vísur Vatnsenda- Rósu og Sofðu unga ástin mín. Öll vora lögin sérlega vel sungin, eink- um Vísur Vatnsenda-Rósu og Sofðu unga ástin mín, svo að undirritaður man þau vart betur flutt. Kramma- vísurnar þoldu hins vegar ekki vel mikla enduróman kirkjunnar. Karlakór Reykjavíkur, undir stjórn Friðriks S. Friðrikssonar, söng Landið vort fagra, eftir Árna Thorsteinsson, sem hljómaði mjög glæsilega. Líklega gildir það sama um raddsetningu Páls P. Pálssonar á Sprengisandi, eftir Sigvalda Kaldalóns, Karlakórinn Fóstbræður söng undir stjóm Árna Harðarsonar og um Krammavísumar, hratt tón- ferli vill drukkna í mikilli endur- óman kirkjunnar. Karlakóramir sungu saman Töframynd í Atlants- ál eftir Sveinbjöm Sveinbjömsson og Dýravísur Jóns Leifs og skiptu Friðrik og Ámi með sér stjómun- inni en báðir hafa nýlega verið ráðn- ir til starfa við kórana og hafa þeg- ar sýnt það, að þeir era efnilegir stjórnendur. Kór Öldutúnsskóla undir stjórn Egils Friðleifssonar söng Máríu- vers, eftir Pál ísólfsson við undir- leik Marteins H. Friðrikssonar og raddsetningu Jóns Þórarinssonar á þjóðlaginu Krammi svaf í klettagjá. Oldutúnskórinn söng af þeim þokka, sem hann er fyrir löngu orðinn heimsfrægur fyrir og hafa fáar tónlistarstofnanir hér á landi farið jafn vítt um byggðir manna og sungið mönnum jafn oft fyrir á alþjóðamáli tónlistarinnar og Öldu- túnskórinn, undir stjóm stórhugans Egils Friðleifssonar. Fyrri hluta tónleikanna lauk með Requiem eftir Jón Leifs, sem var vel sungið af Kór Langholtskirkju, undir stjóm Jóns Stefánssonar. Þetta und- urfagra verk hefði þó mátt vera hægar flutt og án hrynfestu, til að sérkennilega lóðrétt hljómskipanin nyti sín og einnig af meiri trega en hér var gert. Eftir hlé var eingöngu flutt trúar- leg tónlist. Fyrst var þjóðlag við textann Svo stór synd engin er, í útsetningu eftir Jón Nordal, og þá þrír sálmar úr Hallgrímspassíu Atla Heimis Sveinssonar. Þar eftir var flutt Ave María, eftir Hjálmar H. Ragnarsson, sem er undurfagurt verk, svo og Heyr himnasmiður, ISMUS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.