Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992 Barnahópur í leikför til Tyrklands: Sýna verkið „Andstæður“ á leiklistarhátíð barna HÓPUR barna frá Akureyri heldur utan um páskana á alþjóðlega leik- listarhátíð barna sem haldin verður í bænum Antalya í Tyrklandi I8.-26. apríl nk. Börnin, alls tíu talsins, eru á aldrinum 11-12 ára og hafa verið á leiklistarnámskeiðum hjá Erni Inga Gíslasyni undanfarið ár. Orn Ingi sendi inn umsókn um þátttöku á hátíðinni og jákvætt svar hefur borist. Þau munu flytja verkið „Andstæður" á hátíðinni. „Þetta kom þannig til að mér fannst ástæða til að gefa krökkunum kost á öðru en námskeiðum og vissi að fyrirspum um þátttöku í hátíðinni lá fyrir hjá Bandalagi íslenskra leik- ara,“ segir Örn Ingi. „Eg fékk gögn- in og sótti um. Þegar jákvætt svar barst hafði ég samband við foreldra barnanna og síðan var ekki um ann- að að ræða en að setja í gang.“ í máii Arnar kemur fram að þetta er í annað sinn sem þessi hátíð er haldin og í fyrsta sinn sem hópur frá íslandi fer á hana. Foreldrar barn- anna verða með í förinni til Tyrk- lands og mun hluti þeirra taka þátt í uppfærslunni á verkinu. Verkið „Andstæður" mun verða sámið af Erni Inga. Hugmyndin og grunnurinn að verkinu eru til staðar en það fjallar um baráttu góðs og ills í heiminum. Tíminn fram að páskum verður notaður til að útfæra verkið. í dagskránni á hátíðinni er gert ráð fyrir að fyrir hádegi gefist börn- unum tækifæri til að vera þátttak- endur á vinnustofum þar sem fluttur er leikur, dans, söngur og spuni en eftir hádegi eru sýningar og verður hvert verk flutt einu sinni. Alls munu 20 lönd eiga fulltrúa á hátíðinni sem að þessu sinni ber yfirskriftina „Heimurinn séður með augum barna“. Örn Ingi segir að um boðs- ferð sé að ræða en til að brúa bilið svo að dæmið geti gengið upp verður leitað styrkja hjá ýmsum aðilum. Rúnar Þór Orn Ing-i, fyrir miðju, ásamt börnunum sem fara til Tyrklands og foreldrum þeirra. Rúnar Þór Frá slysstað á Akureyri. Konan lenti undir bílnum sem er nær á myndinni. Alvarlegt umferðarslys: Bíll kastaðist á veg- faranda eftir árekstur AJLVARLEGT umferðarslys varð á mótum Hrafnagilsstrætis og Þórunnarstrætis á Akureyri um kaffileytið í gærdag. Tveir bílar lentu þar í hörðum árekstri og við áreksturinn kastaðist annar þeirra á gangandi konu sem lenti undir honum. Dróst konan með bílnum eina fimm metra áður en hann stöðvaðist. Konan fékk taugaáfall og varð fyrir minni háttar meiðslum og segir iögreglan að mesta mildi sé að ekki fór verr. Samkvæmt upplýsingum frá um. Mikil hálka var þegar þetta lögreglunni varð áreksturinn gerðist en grunur leikur á að þannig að öðrum bílnum var ekið stöðvunarskyldan hafi ekki verið vestur Hrafnagilsstræti þar sem virt. er stöðvunarskylda. Hinum bíln- Auk konunnar var ökumaður um var ekið norður Þórunnar- annars bílsins fluttur á siysadeild strætið og skullu þeir saman á en meiðsli hans eru ekki talin al- því sem næst miðjum gatnamót- varleg. Báðir bílarnir eru stór- um með fyrrgreindum afleiðing- skemmdir eftir áreksturinn. Vísindanefnd stofnuð við Háskólann á Akureyri: Heilsufar # Akur- eyrinffa í ianúar: Rúm 5% bæjarbúa kvefuð — inflúensan mætt til leiks HEILSUFAR Akureyringa var fremur bágborið í janúar en þá herjaði kveffaraldur á bæjarbúa og veiktust rúmlega 5% þeirra af kvefi eða alls 545 manns. Inflúensan er mætt til leiks á Akureyri og samkvæmt upplýsingum frá Magnúsi Ólafssyni heilsugæslu- lækni hafa 30 flensutilfelli verið stað- fest í janúar. Magnús segir að hér sé um innflú- ensu af A-stofni að ræða og að senni- lega hafi tilfellin verið fleiri en þau sem staðfest voru. „Hvað varðar heilsufar bæjarbúa almennt í janúar var áberandi kveffaraldur sem náði hámarki um miðjan mánuðinn," seg- ir Magnús. Krabbameinsfélagið: Aðalfund- ur í kvöld AÐALFUNDUR Krabbameins- félags Akureyrar og nágrennis verður haldinn í kvöld, fimmtu- dag, á Dalvík og hefst hann klukkan 20. Auk venjulegra aðalfundar- starfa verða flutt erindi á fundin- um um krabbamein í karlmönn- um. Fyrirlesarar á fundinum verða Halldóra Bjarnadóttir hjúkr- unarfræðingur, Nicholas J. Carigl- ia læknir og Þórir Þórisson lækn- ir. Allir eru velkomnir á fundinn. Ætlum að auka tengsl háskólans við atvinnulífið og umhverfið -♦ ♦ - segir Jón Þórðarson, framkvæmdastjóri nefndarinnar VIÐ HÁSKÖLANN á Akureyri er nú tekin til starfa vísindanefnd, en hlutverk hennar er að efla rannsóknir við skólann. Þetta getur m.a. falist í þjónustuverkefnum fyrir stofnanir og fyrirtæki, sam- starfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila og upplýsingamiðlun. Jón Þórðarson, framkvæmdastjóri nefndarinnar, segir að ætlunin sé að auka tengsl háskólans við atvinnulífið og umhverfi skólans og hann telur að skólinn geti haft töluverðan hag af þessu. í framvarpi til nýrra laga um Háskólann á Akureyri, sem nú liggur fyrir Alþingi, er gert ráð fyrir að komið verði á fót viðamik- illi rannsóknarstofnun við skólann þannig að hann geti betur sinnt hlutverki sínu sem vísinda- og fræðisetur. Vísindanefndin sem nú er tekin til starfa er hugsuð sem undanfari þessarar stofnunar þótt hún hafí ekki sérstaka fjárveitingu á fjárlögum þessa árs. Aðspurður um hvort ekki sé erf- itt að gangsetja svona verkefni á tímum mikils niðurskurðar í menntamálum segir Jón Þórðarson svo ekki vera. „Þvert á móti er núna rétti tíminn til að fara af stað með svona verkefni því með þessu starfi sjáum við fram á bætt- an hag og aukna hagkvæmni í rekstri skólans. Verkefnin sem við tökum að okkur er ekki ætlunin að niðurgreiða," segir Jón og nefn- ir að nefndin eigi að þjóna svipuð- um tilgangi og rannsóknarstofnan- ir Háskóla íslands eins og Raun- vísindastofnun og Félagsvísinda- stofnun. Nefndinni er ætlað að einbeita sér að því að efla tengsl Háskólans við atvinnulífið, t.d. með því að skipuleggja þjónustuverkefni sem sérfræðingar á vegum skólans gætu unnið fyrir stofnanir og fyrir- tæki er þess óskuðu. Jón segir )að slík vinna sé þegar unnin á vegum sjávarútvegsdeildar skólans. Mörg fyrirtæki á Norðurlandi sækja þjónustu sem þessa til höfuð- borgarsvæðisins. Einnig munu uppi hugmyndir um að nefndin standi fyrir stofnun þróunarseturs þar sem ýmsar stofnanir, er sinna rannsókna- og fræðistörfum á svæðinu, sam- hæfðu krafta sína. Formaður vísindanefndarinnar er dr. Kristján Kristjánsson en aðrir sem sæti eiga í hénni eru Helgi M. Bergs, Hólm- steinn T. Hólmsteinsson, Finnbogi Baldvinsson og dr. Ingvar Teits- Namm spilar á þorrablót- um í Svíþjóð HLJÓMSVEITIN Namm frá Akur- eyri leikur fyrir dansi á tveimur þorrablótum næstu helgar. Mun hljómsveitin leika næstkomandi laugardagskvöld á þorrablóti ís- lendingafélagsins í Uppsölum 22. febrúar, í Stokkhólmi. í hljómsveitinni Namm eru þeir Júlíus Guðmundsson, söngvari, Viðar Garðarsson, bassaleikari, Hlynur Guðmundsson, gítarleikari, Sigfús Arnþórsson, hljómborðsleikari og Karl Petersen, sem leikur á trommur og slagverk. Grímsey: Þorrablótinu seink- aði vegna veðurs HINU árlega þorrablóti Grímseyinga seinkaði um klukkutíma vegna veðurs. Blótið var haldið um síðustu helgi en vegna veð- urs komst hljómsveitin ekki til eyjarinnar fyrr en klukkutíma eftir að blótið átti að hefjast. arkvöldið. Af þeim sökum hófst blótið ekki fyrr en kl. 21.30 Allur matur í þorrablótinu kom frá Eyfirskum matvælum og var sá pakki sendur með fetjunni til Grímseyjar á fimmtudag. -HSH. Að venju mættu allir sem vettl- ingi gátu valdið á þorrablótið og skemmtu sér konunglega. Hljóm- sveitin Gloría frá Húsavík lék fyrir dansi en flugvé! hennar komst þekki í loftið fyrr en skömmu fyrir klukkan níu hátíð- Grímseyingar á þorrablóti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.