Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) (P* Þú heldur áfram með verkefni sem þú byijaðir á í gær. Nú er tími skoðunar og undibún- ings. Einbeiting þín er frábær um þessar mundir. Naut (20. aprfl - 20. maí) Þú færð hollráð hjá traustum vini í dag. Eitthvað ánægjulegt sem þú minnist úr fortíðinni fyllir þig ljúfsárum trega. Njóttu þess að leita í sjóð minn- inganna. Tvíburar (21. maí - 20. júní) 5» Starfið er heppilegasti vett- vangur þinn til aukinnar tekju- öflunar. Leggðu áherslu á að Ijúka þeim verkefnum sem þú ert þegar byrjaður á áður en þú tekur fleira að þér. Krabbi (21. júní - 22. júlí) >«$8 Þér gengur vel að vinna með öðru fólki í dag. Maki þinn bið- ur þig að hjálpa sér við mikil- vægt verkefni. Nú er heppilegt fyrir þig að tala við kennara bamsins þíns. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú ert með báða fætur á jörð- inni í dag og gengur vel við hvaðeina sem þú tekur þér fyr- ir hendur. Sinntu peningamál- unum og vanræktu ekki það sem þú þarft að gera heima fyrir. Meyja (23. ágúst - 22. september) &£ Þið hjónin aðstoðið bamið ykk- ar í dag, en hafið auk þess tíma til að vera hvort með öðru. Þið farið á gamalkunnan uppá- haldsstað og eigið rómantíska stund saman. Vog (23. sept. - 22. október) Þú lætur hendur standa fram úr ermum heima við í dag. Einnig kanntu að hafa tekið með þér verk heim úr vinn- unni. Fjárhagshorfurnar fara batnandi. Sporddreki (23. okt. - 21. nóvember) C)jj0 Sköpunargleði og sjálfsagi stuðla að velgengni þinni í dag. Ferð sem er á dagskrá hjá þér innan skamms mun fá róman- tískt yfirbragð. Bogmaóur (22. nóv. - 21. desember) m I dag er tilvaiið fyrir þig að kaupa inn og prýða heimilið. Þú kannt einnig að Ijúka ýms- um skylduverkum heima fyrir. í kvöld verða andlegu málin í fyrirrúmi. Steingeit (22. des. - 19. janúar) X* Nú ættir þú að snúa þér að andlegum viðfangsefnum. Þó að þér sé alvaran efst í huga er stutt í sköpunargleði þína. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Þú finnur leið til að bæta fjár- hagsstöðu þína núna. Leggðu ■ síðustu hönd á verkefni sem þú hefur með höndum í vinn- unni. Þú kaupir gjöf handa ein- hveijum. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) S* Nú gengur allt eftir þínu höfði. Þú tekur þátt í hópstarfi og heimsækir vini þína. Stjörnusþána á aó lesa sem dœgradvól. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. DÝRAGLENS TOMMI OG JENNI 5TUNPU/W ]/£!££> ÉS BARA AP LEGGJAST NlÐUR OG G 17ftVf5 1-50 i SMÁFÓLK Já, frú, honum þótti mjög gaman að þessari bók. 3 1 s S 8 © Áttu til cinhverjar sögur þar sem prinsessa kyssir frosk, og hann breytist í hund? Já, frú, það væri góð saga, er það ekki? Það er svo augljóst. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Úr því að austur liggur með DlOx í laufi á eftir blindum sýn- ist langsótt að vinna 3 grönd eftir spaðaútspil. Helgi Sigurðs- son fann þó skemmtilega leið að níu slögum þegar spilið kom upp í barómetertvímenningi hjá Bridsfélagi Reykjavíkur síðastl- iðinn miðvikudag. Suður gefur; allir á hættu. Norður ♦ 765 y Á9 ♦ 1085 + KG872 Vestur Austur ♦ ÁD1098 ... ♦ 43 y843 yD10652 ♦ KD7 ♦ 932 ♦ 64 ♦ D103 Suður ♦ KG2 y KG7 ♦ ÁG64 ♦ Á95 Helgi var í suður, félagi hans Helgi Jónsson í norður, en Egill Guðjohnsen og Magnús Torfa- son í AV. Vestur Norður Austur Suður M.T. HJ. E.G. H.S. — — — 1 Iauf* 1 spaði 2 lauf Pass 2 grönd Pass 3 grönd Allir pass ♦ 16 + HP Magnús kom út með spaðatíu og Helgi átti fyrsta slaginn á gosann. Hann ákvað að hafna svíningu fyrir laufdrottningu, tók tvo efstu og endaði í blind- um. Rúllaði svo tígultíunni yfir ttil vesturs. Magnús svaraði með hjarta, sem Helgi tók á gosa heima. Tók þá hjartaás, fór heim á tígulás, lagði niður hjartakóng og sendi Magnús inn á tígul! Magnús varð að spila frá ÁD í spaða og Helgi fékk 8. og 9. slag á spaðakóng og frítígul. Umsjón Margeir Pétursson Tvöföldun hróka á sjöundu lín- unni er stórhættulegt vopn sem oft má fóma miklu fyrir. Þetta endatafl kom upp á Hoogovens- skákmótinu í Wijk aan Zee í Hol- landi um daginn í viðureign hinna kunnu stórmeistara Valerís Salovs (2.655), Rússlandi, sem hafði hvítt og átti leik, og Yass- ers Seirawans (2.600), Banda- ríkjunum. 25. Haxa7! (Þetta virðist öflugra en 25. Bxh7 - a5), 25. - Hxe4, 26. Hf7+ - Kg8, 27. Hxg7+ - Kh8, 28. Hxh7 - Kg8, 29. Hag7 - Kf8, 30. Hb7 - Kg8, 31. Hhg7+ h8, 32. Hgc7 - Hg4?? (Eins og oft hefur komið fram hér í skákhorninu sézt Seirawan ótrú- lega oft yfir einföld brögð, af svo öflugum manni að vera. Hér var 32. - Hd8 bezta vörnin og það er alls ekki víst að hvíta staðan sé unnin. Vörnin er þó afar erfið, sbr. afbrigðið 33. H4! - Rd5?, 34. Hh7+ - Kg8, 35. Hbg7+ - Kf8, 36. Hf7+! - Kg8, 37. Khg7+ - Kh8, 38. h5 og vinnur). 33. Hc8+ - Hg8, 34. Hc4 og Seirawan gafst upp, því hann tapar manni eða verður mát. Mikilvægur sigur fyrir Salov sem sigraði ásamt Gelfand á mótinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.