Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992 OG BRAUÐ Aðeins 65,- s1 myllu íilhveitibbaúð Aðeins 99,-1». stkl ferskar BERUR Aðeia* »9.- ta*. baKa»nir Aðeins 39,- isr* V^°* ÁV AXTASAFL NERTAR I L1T Aðeins 59,- ta*. HAGKAUP - altt í einniferó HLBOÐ Sally Horton. Karen McCallum. Eric Rodwell. Tólf heimsmeistarar taka þátt í Bridshátíð Brids_____________ Guðmundur Sv. Hermannsson BRIDSHÁTÍÐ Flugleiða, Brids- sambands íslands og Bridsfé- lags Reykjavíkur, sem hefst á föstudag, er eins og jafnan vel skipuð erlendum þátttakend- um. Þar spila fimm erlendir heimsmeistarar, sjö íslenskir heimsmeistarar og Zia Mahmo- od lætur sig ekki vanta. Þrír af bestu spilurum Banda- ríkjanna eru á meðal þátttakenda, þeir Neil Silverman, Larry Cohen og Eric Rodwell, og raunar má telja Zia Mahmood sveitarfélaga þeirra til Bandaríkjamanna en hann hefur orðið fasta búsetu þar í landi þótt hann hafi pakistanskt vegabréf. Eric Rodwell hefur unnið alla þá heimsmeistaratitla sem keppt er um í opnum mótum nema einn, Rosenblumbikarinn, og þann titil hefur Silverman unnið. Larry Co- hen hefur hins vegar ekki unnið heimsmeistaramót enn, en hann hefur unnið fleiri stórmót í Banda- ríkjunum en nokkur annar síðustu 10 ár eða svo. í nóvember vann hann til dæmis eina af stærstu sveitakeppnunum þar í landi. Fastur spilafélagi hans í Banda- ríkjunum er Marty Bergen sem spilaði á Bridshátíð fyrir nokkrum árum við Eric Rodwell. Zia þarf ekki að kynna fyrir íslendingum en hann kemur nú í 5. skipti á Bridshátíð. Vegur hans fer sífellt vaxandi í íþróttinni, ekki síst eftir útkomu bókar sem hann skrifaði á síð- asta ári og þykir mjög skemmtileg. Þess má einnig geta að bandaríska þrids- sambandið útnefndi hann spilara ársins 1991. Einn bandarískur spilari til við- bótar verður meðal þátttakenda, Karen McCallum sem er marg- faldur heimsmeistari kvenna. Hún er raunar að undirbúa að flytja búferlum til Bretlands og spilar hér við Sally Horton frá Bret- landi. Sally varð fyrst þekkt með- an hún hét Sally Sowter en hún var gift Tony Sowter sem gefur út tímaritið International Popular Bridge. Hún varð margoft heims- meistari kvenna með breska landsliðinu. Sveitarfélagar þeirra Horton og McCallum eru Raym- ond Brook og John Pottage frá Bretlandi. Brook er kominn á efri ár en hefur lengi verið meðal fremstu spilara Breta. Pottage er hins vegar ungur maður á upp- leið, var meðal annars í sigurliði Breta á heimsmeistaramót yngri spilara fyrir þremur árum. Þriðja sveitin er skipuð gömlum kunningjum íslendinga frá Dan- mörku sem oft hafa komið hingað áður við ýmis tækifæri. Þetta eru Jens Auken, Denis Kock-Palm- lund, Lars Blakset og Steen Möll- er. Auken og Kock, Möller og Stig Werdelin hafa spilað saman í sveit síðustu ár með góðum ár- angri en Blakset hleypur hér í skarðið fyrir Werdelin. Þeir Möller eru gamalreyndir félagar og unnu raunar tvímenning Bridshátíðar fyrir nokkrum árum. Til fróðleiks fyrir áhugamenn um danska póli- tík má nefna að Jens Auken er bróðir Svends Auken formanns danska Jafnaðarmannaflokksins og Margarethe Auken þingmanns Sósíaliska þjóðarflokksins sem hefur oft skammað íslendinga duglega fyrir hvalveiðar. Hins vegar hefur Jens látið bridspólitík- ina duga en hann er stjórnarmað- ur í Bridssambandi Evrópu. Þau Ib Lundby og Inge Keith Hansen láta sig ekki vanta frekar en undanfarin ár og frá Dan- mörku kemur einnig sveit ungra og efnilegra spilara, skipuð Lauge Schaffer, John Hendriksen, Steen Sörensen og Peter Farholt. Loks senda Færeyingar sveit skipaða Joanes Mouritsen, Per Kallsberg, Helga Joansen og Danjal Mohr. Þá má geta þess að í Flugleiða- mótinu spila heimsmeistararnir Aðalsteinn Jörgensen, Jón Bald- ursson, Guðlaugur R. Jóhannsson, Öm Arnþórsson, Guðmundur Páll Amarson og Þorlákur Jcnsson saman í sveit. Morgunblaðið/Arnór Sveitir Ármanns J. Lárussonar og Neóns tókust á í toppbaráttunni í aðalsveitakeppni Bridsfélags Kópavogs sl. fimmtudag. Hafði fyrr- nefnda sveitin betur og vermir nú toppsætið með 10 stiga forskot á næstu sveitir. Brids Umsjón Arnór Ragnarsson Bridsfélags Hornafjarðar Þegar 4 umferðir eru eftir af undan- keppninni er staðan: Hótel Höfn 199 Blómaland 193 Jöklaferðir 188 Bragi Bjarnason 167 Ingólfur Baldvinsson 156 JónAxelsson 155 Sigfinnur Gunnarsson ' 151 Nesjamenn 145 Efstu sveitirnar spila svo útsláttar- keppni sem líkur væntanlega með því að ein stendur uppi sem sigurvegari í Aðalsveitakeppni Bridsfélags Horna- fjarðar 1992. Bridsfélag Sauðárkróks Lokið er átta umferðum af 12 í aðalsveitakeppninni. Efstu pör: Ólafur Jónsson — Steinar Jónsson 184 Halldór Jónsson - Páll Pálsson -EinarGíslason 158 Einar Svavarsson - Sveinbjöm Eyjólfsson 134 Páll Hjálmarsson - Stefán Skarphéðinsson 129 LárasSigurðsson-SigurðurGunnarsson 129 Skúli Jónsson - Bjami Brynjólfsson 129 Næstu tvo mánudaga verður spiluð firmakeppni félagsins. Spilaður verður tvímenningur. Vetrar-Mitchell BSÍ Enn eitt aðsóknarmetið var sett í Vetrar-Mitchell BSÍ síðastliðinn föstu- dag, 7. febrúar. Alls mættu 40 pör. Efst í N/S urðu: GuðjónJónsson-MagnúsSverrisson 517 Gísli Steingrímsson - Bjöm Arnarson 511 Unnur Sveinsdóttir - JónÞór Karlsson 482 Kristín Guðbjömsdóttir - Bjöm Arnórsson 482 Sveinn Sigurgeirsson - Þórður Sigfússon 475 í A/V urðu efstir: Baldur Bjartmarsson - Guðmundur Þórðarson 536 RagnarHalldórsson-PállBergsson 502 ÞrösturBergmann-PáliÞórBergsson 498 Erlendur Jónsson - Hinrik Gunnarsson 447 Hrafnhildur Skúladóttir - Jömndur Þórðarson 437 Vetrar-Mitchell verður að venju næsta föstudagskvöld kl. 19.00 í Sigtúni 9. Bridsfélag Tálknafjarðar Staðan í aðaltvímenningi félags- ins þegar þrem kvöldum af fjórum er lokið er sem hér segir: Brynjar Olgeirsson - Jón H. Gíslason 377 Símon Viggósson - Guðmundur S. Guðmundss.361 AndrésBjamason-HaukurÁmason 332 Lilja Magnúsdóttir - Kristin Magnúsdóttir 332 Sveinn Vilhjálmsson - Rafn Hafliðason 330 Sveinbjörg Harðard. - Friðgeir Guðmundsson 313 Guðlaug Friðriksdóttir - Ævar Jónasson 311 Snæbjörn Geir Viggósson - Bima Benediktsd. 277 Bridsfélag Suðurnesja Hafin er aðalsveitakeppni félags- ins með þátttöku 10 sveita sem er ágætt. Spilaðir eru 32 spila leikir og er í áætlun að spila fjögurra sveita úrslitakeppni um titilinn í mótslok svipað og gert er um Reykjavíkurmeistaratitilinn. Nokkrar sveitir að Suðurnesjum taka þátt í sveitakeppni Bridshátíð- ar sem spiluð verður sunnudag og mánudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.