Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRUAR 1992 35 Angan af gróðri jarðar, hlý gola, blár og tær himinn, íslenskt sumar, sem ekki á sér hliðstæðu. Einmitt þannig varð ævi Bigga. Björt og fögur svo hvergi bar skugga á, en stutt, já, allt of stutt að mati okkar sem honum unnu. Spumingar leita á hugann og er varpað út í nætur- húmið, en svörin láta standa á sér. Nýr dagur rís, en Biggi er ekki leng- ur hér. Eftir standa minningar um góðan dreng sem hafði allt til brunns að bera og vann vel úr því sem móðir hans hafði lagt inn á æskureikninginn hans. Minningin um óvenju heilsteyptan einstakling, sem hafði lag á að njóta augnablik- anna bæði í leik ogf starfi og virti og elskaði lífið umfram allt. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja í friðarskaut. (V. Briem.) Kæru vinir mírjir, Gunna, Hauk- ur, Matti, Palli og Jói. Guð blessi ykkur og styrki á þessari erfiðu kveðju- og saknaðarstund. Guð blessi ættingja og vini, föður og ömmu, og gefi þeim frið og trú. Ella. Okkur langar til að minnast fé- laga okkar, Bigga, eins og hann var kallaður, í örfáum orðum. Það er ekki auðvelt að koma upp orðum á stundum sem þessum. Minning- arnar skella á manni, en það er huggun í harminum hversu góðar minningamar em. Þeir sem þekktu Bigga vita allir hversu góðan dreng hann hafði að geyma. Handknatt- leikur skipaði stóran sess í lífi hans. Biggi hóf að leika handknattleik með Aftureldingu, en við kynnt- umst honum almennilega þegar hann gekk til liðs við okkur Fram- ara fyrir þremur árum. Biggi féll strax mjög vel í hópinn, enda hafði hann einstakan persónuleika að bera sem allir geta verið stoltir af að hafa kynnst. Til marks um hve mikilvægur hann var fyrir sinn flokk var hann fyrirliði 2. flokks karla hjá Fram og var góður leið- togi innan vallar sem utan. Það hefur verið höggvið stórt skarð í hóp okkar Framara sem aldrei verð- ur fyllt. Þessi hörmulegi atburður sýnir að slysin gera aldrei boð á undan sér og fyrr en varir hefur einn af félögunum kvatt þetta líf. Það fyrsta sem manni dettur í hug eftir að hafa fengið fregnir af slíkum atburði er hversu ósanngjöm örlög- in geta verið. Við trúum því að hans bíði annað hlutverk á öðmm stað. Um leið og við kveðjum Björgvin með þessum fátæklegu orðum vilj- um við votta foður hans, Þór Rúna- ri, okkar innnilegustu samúð, en hann hefur starfað mikið með okk- ur í vetur og unnið ómetanlegt starf. Einnig viljum við votta móð- ur, fósturföður, systkinum, ættingj- um og vinum okkar dýpstu samúð. Biggi og hlýlega brosið hans mun ávallt lifa í minningu okkar um ókomna framtíð. Meistaraflokkur karla, Fram. Laugardágskvöldið 1. febrúar síðastliðinn gerðist sá sorgarat- burður að félagi okkar, Björgvin Elís Þórsson, var hrifínn á brott svo skyndilega í hörmulegu slysi. Við vorum harmi slegnir við þá fregn, því daginn áður höfðum við hitt hann svo brosandi og lífsglaðan. En þannig er því nú farið að enginn veit sína ævina fyrr en öll er og ekki er farið í manngreinarálit þeg- ar fólk í blóma lífsins er kallað á fund feðra sinna. Björgvin hóf nám í Menntaskól- anum við Sund haustið 1989 og stóð sig með sóma þó að íþróttirnar hafi átt hug hans allan. Það var mest áberandi í fari hans hversu indæll og brosmildur hann var. Hann hafði rólegt yfírbragð og var vel liðinn meðal nemenda og kennara skólans, stórt skarð var því höggvið í okkar hóp við lát hans. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aft- ur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ (K. Gibran). Við vottum fjölskyldu og vinum innilegustu samúð okkar. Fyrir hönd skólafélaga, Oddur Steinarsson, Sigurbjörn Agúst Ágústsson, Bjarki Már Sveinsson. Tilverunni hefur verið líkt við ferðalag og okkur mönnum sem gestum á hóteli jarðarinnar. Ekki getum við pantað og ráðið hversu lengi við viljum dvelja á þessu hót- eli því eitthvert óskiljanlegt afl virð- ist sterkara öllu öðru og kalla gest: ina til sín þegar því sýnist svo. í dag sitjum við hótelgestir jarðarinn- ar hnípnir því eitt sætið er autt. Sætið hans Bigga. Ferðalagi hans lauk alltof fljótt. Það er vont að sitja eftir og skilja ekki tilganginn. Það kemur enginn til með að setjast í sætið hans, það verður autt um ókomna framtíð. En von- andi getum við þegar mesti sárs- aukinn hefur dvínað ögn, horft á sætið hans og rifjað upp það skemmtilega og góða sem hann skildi eftir með því einu að hafa verið til. Hann var nemandi minn í grunn- skóla og við vorum bæði Framarar og hittumst því á þeim vettvangi líka. Mér er efst í huga hið þægi- lega viðmót sem þessi fallegi dreng- ur með strákslega blikið í augum sýndi öllum og veit að það bar vitni þeirri væntumþykju og hlýju sem hann bjó við. Ég bið algóðan guð að halda vemdarhendi sinni yfír öllum þeim sem eiga um sárt að binda og kveð Bigga minn að sinni. Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Laugardaginn 1. febrúar lést vinnufélagi okkar og vinur í skelfi- legu bílslysi. Við viljum minnast hans með nokkrum orðum. Það var vorið 1990, að við strák- arnir völdumst saman í hóp, sem vann við að stika út leið fyrir ljós- leiðara, sem unnið hefur verið við að leggja um landið. Við kynntumst nokkuð náið, því auk þess að vinna saman vorum við saman öllum stundum á meðan á úthaldinu stóð. Við töluðum um heima og geima, skemmtum okkar saman og fórum í fótbolta, þar sem Biggi, einsog við kölluðum hann, var alltaf best- ur, enda frábær íþróttamaður. Hann var okkur mikill gleðigjafí og leit framtíðina björtum augum. Við vorum farnir að hlakka til sumars- ins, til þess að hittast aftur eftir veturinn og vera saman í góðum hópi. En nú verður Biggi ekki með okkur framar og við munum sakna hans sárt. Við vottum foreldrum hans, systkinum, vinum og öðrum að- standendum okkar innilegustu sam- úð. Blessuð sé minning hans. Stjáni, Stymmi, Gummi, Raggi, Marteinn, Valdi, Kalli, Gulli og Steini. I Hann Biggi vinur okkar er dáinn. Það hafði aldrei hvarflað að okkur að hann myndi yfirgefa þetta líf svona fljótt. Það var svo margt sem við áttum eftir að segja og gera. Fyrstu kynni okkar af Bigga voru uppi í Skálafelli. Þar áttum við saman góðar stundir og minn- ingarnar frá þessum tíma gleymast seint. Þegar Biggi gekk í Fram bættist góður félagi í stóran vinahóp og kynni okkar urðu nánari. Það skarð sem hann skilur nú eftir verður aldrei fyllt að fullu. Við erum stoltar af því að hafa átt Bigga sem vin. Persónuleiki hans og hið hlýja bros sem nær alltaf lék um varir hans gerði það að verkum að okkur þótti vænt um hann. Söknuðurinn og eftirsjáin af svo góðum dreng, sem Biggi var, er mikil og við fínnum það vel hvað við erum öll umkomulaus gagnvart örlögunum. Við viljum votta fjölskyldu hans, vinum og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Megi Guð styrkja okkur öll í þessari miklu sorg. Hví fólnar jurtin fríða og fellir blóm svo skjótt? Hví sveipar barnið blíða svo brátt hin dimma 'nótt? Hví verður von og yndi svo varpað niður í gröf? Hví berst svo burt í skyndi hin besta lífsins gjöf? (Bjöm Halldórsson) Sólrún og Tóta. Sunnudaginn 2. febrúar fengum við þá harmafrétt að vinur okkar Biggi hefði kvatt þennan héim. Þessi frétt tók þungt á okkur öll og á stundu sem þessari er erfítt að koma tilfinningum á blað. Það sem alltaf mun lifa í huga okkar og einkenndi Bigga var glað- væra og vinalega brosið hans, sem alltaf blasti við öllum. Það skarð sem myndst hefur í vinahópinn verður aldrei fyllt, en minningin um góðan dreng mun lifa í huga okkar alla tíð. Við vottum Guðrúnu, Hauki, Þór Rúnari, Matta, Jóa, Palla og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð og við viljum kveðja Bigga í hinsta sinn. Við biðjum Guð að geyma góðan dreng. Vinir í lúðrasveitinni. Það getur reynst erfitt og sárt að reyna að skilja Guðs vilja. Elsku vinur okkar, Björgvin, er látinn. Okkur langar til að minnast okk- ar sárt saknaða vinar með nokkrum orðum. Rætur okkar vinskapar áttu sér festu í Handknattleiksdeild Fram. Þar var hann fyrirliði okkar og fé- lagi. Hann bar alla þá kosti sem góðum fyrirliða sæmir. Hann var jákvæður með eindæmum, fann ávallt bjartar hliðar á öllum málum' sama hversu mikið myrkur bjó í okkur hinum. Hann var ákveðinn en missti þó aldrei stjórn á skapi sínu, hann var þolinmóður og áhugasamur en það sem þó skipti mestu máli var að hann var mjög góður félagi. Umhverfis handboltann mynd- aðist sterkur vinahópur þar sem Björgvin lék einnig stórt hlutverk. Hópurinn kom oft saman og ræddi jafnt alvöru lífsins sem léttari mál- efni. Er við förum yfír þessar stund- ir er við áttum saman er það ávallt bros hans sem grípur huga okkar fyrst. Það hafði ótrúlegan mátt. Það birtist á vörum hans og áður en við vissum af hafði það kallað fram samskonar mynd á vörum okkar • hinna. Við drengirnir í 2. flokki karla Fram bárum allir mikinn hlýhug til Björgvins og nutum samveru hans á öllum stundum. Við erum þakklát- ir fyrir að hafa fengið að kynnast jafn yndislegum dreng sem Björg- vin var þó það hafí verið ósk okkar allra að kynnin yrðu lengri. Það verður ekki auðvelt að mæta^r til leiks í komandi keppnum án Björgvins. Hann var það stór hlekk- ur innan liðsins að ljóst er að það verður erfítt að brúa bilið sem frá- fall hans hefur myndað. En við munum minnast Björgvins, jafnt á leikvellinum sem utan hans, og hafa að leiðarljósi hvatningu hans og jákvæðni. Hann var metnaðar- fullur og vildi liði sínu vel svo það er í höndum okkar leikmannanna sem eftir stöndum að uppfylla þær óskir og væntingar sem bjuggu í brjósti Björgvins til liðsins. Við viljum votta fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð og megi Guð styrkja ykkur í sorginni. 2. flokkur karla, Fram. TÖLVUDEILD OG TÆKNIDEILD Stórkostleg rýmingar- Viö erum aö rýma til á lagernum og taka svolítið til í kringum okkur. Af því tilefni bjóöum við upp á stórkost- lega rýmingarsölu sem hvergi á sinn líkan. Þegar við segjum: „Allt á aö seljast“ - þá meinum við það. AceR i* Tölvur, prentarar iff/LASER 386 tölvur AGFA ^ Ljósritunarvélar PHILIPS Mælitæki og símkerfi Telefaxtæki og Ijósritunarvélar Fylgihlutir af ýmsum gerðum Heimilistæki hf Sætúni 8 SÍMI 69 15 00 ÓSOMKÚtgtíM'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.